Morgunblaðið - 18.02.1994, Side 33

Morgunblaðið - 18.02.1994, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. FEBRÚAR 1994 33 Anna Þorsteinsdótt- ir frá Litlu-Hámund- arstöðum — Minning Fædd 29. júní 1909 Dáin 6. febrúar 1994 ) Hún amma er dáin, og eftir lang- an vinnudag var hvíldin kærkomin. Og sannarlega var hún búin að taka rösklega til hendi á meðan kraftar entust. Hún hafði h'ka stundum orð á því, eftir að þrekið fór að minnka, að kannski hefði hún verið óþarflega viljug sem barn og unglingur, því oft þurfti að sendast og gott að vera fljót í förum. Hún fæddist í Hvammi í Arnar- neshreppi, fimmta barn þeirra hjóna Valgerðar Sigfúsdóttur og Þorsteins Þorsteinssonar. Eldri bræður voru: Valtýr, Svanlaugur, Marinó og Frið- rik, en yngri systkini: Jóhann Kon- ráð, Svanhildur, Sigfús og Guð- j. mundur. Af þessum stóra hópi eru 9 aðeins tvö á lífi, Svanhildur sem er á Dvalarheimilinu Hlíð á Akureyri og Sigfús sem býr á Hauganesi. Amma var á öðru ári er fjölskyld- an flutti að Litlu-Hámundarstöðum. Þar ólst hún upp og bjó mestan hluta W ævi sinnar. Um tvítugt lærði hún fatasaum og sauinaði síðan allan fatnað á heimilisfólkið og oft einnig fyrir aðra. Ung kynntist hún Stefáni Einars- syni sem var vinnumaður hjá Jóni bróður sínum í Kálfskinni. Þau giftu sig 27. júlí 1929, og hófu sinn bú- skap. Afi lærði smíðar og vann lengi við þau störf, ýmsar húsabyggingar o.fl. Valgerður langamma missti mann sinn snemma, og bjó áfram með sonum sínum og amma vann bú- störfin og sín heimilisstörf í frístund- unum. Smám saman stækkaði bú- | stofn ömmu og afa og tóku þau síð- ^ an við öllum búrekstrinum. Þau eignuðust sjö börn, en þau & eru: Rósa, gift Níels Gunnarssyni, & Valgeir Þór, kvæntur Sigrúnu Björnsdóttur, Pálmi, kvæntur Soffíu ^ Jórisdóttur, Anna Lilja, gift Dag- w bjarti Hanssyni, Svandís, gift Núma Friðrikssyni, Steingrímur Eyfjörð var kvæntur Erlu Stefánsdóttur, Stefán Páll, var kvæntur Auði Sig- valdadóttur. Hann fórst í flugslysi 21. janúar 1987. Barnabörnin eru 21 og langömmubörnin 14. Arið 1950 var flutt úr gamla bænum í nýtt steinhús sem afi byggði og var það mikil og góð breyting, ekki síst fyrir húsmóður- ina, og einnig þegar rafmagnið kom í sveitina skömmu síðar. Frásagnir ömmu af gömlu dög- unum fundust okkur oft ævintýri líkust, þau störfuðu bæði í Slysa- varnafélaginu og Ungmennafélag- |) inu og eitt sinn fór stór hópur unga fólksins í skemmtiferð í Vaglaskóg. Var farið á trillubáti yfir fjörðinn, gengið yfir Vaðlaheiði, dvalið dag- part í skóginum við leiki og skemmt- an og farið aftur heim að kvöldi. Þessarar góðu ferðar var oft minnst. Ungmennafélagar unnu einnig stundum við heyskap fyrir fólk ef heilsuleysi eða aðrir erfiðleikar steðj- uðu að og voru ánægjulegar minn- ingar frá þeim starfsdögum. M.a. kom hópur ungs fólks í veik- indum afa og hjálpaði tii við hey- skapinn. En heilsa afa bilaði snemma og kom sér þá sérstaklega vel ótrúlegt þrek og dugnaður ömmu, þessarar fínlegu og hógværu konu. Afi lést eftir löng og erfið veik- indi, aðeins 55 ára og voru þá yngstu synirnir aðeins 10 og 12 ára. Amma tók fráfalli afa, sem og öðrum áföll- um í lífinu, með hugprýði og æðru- leysi. Sameiginleg lífsregla þeirra var að treysta á Guð og sjálfan sig, taka því sem að höndum bar og sætta sig við hið óbreytanlega. Amma bjó fáein ár eftir lát afa með aðstoð barna sinna, en síðan var jörðin seld og amma og yngstu synirnir fluttu árið 1961 á Hauganes í íbúð í húsi mömmu og pabba. Þang- að vorum við alltaf velkomin, gott var einnig að skreppa með lestrar- bókina og fá aðstoð. Árið 1964 fluttu þau til Akureyrar og hélt ámma heimili með börnum sínum, en lengst með Steingrími og syni hans, sem var sem hennar yngsta barn og henni mjög hjartkær. Amma var ekki útivinnandi, en var þó um tíma við fataviðgerðir á Sólborg. Amma var mjög heilsuhraust þar til 1982 að hún veiktist mjög mikið og varð ekki söm eftir það. Árið 1988 fluttist hún til mömmu okkar og pabba, dvaldi hjá þeim að mestu næstu tvö árin, en einnig öðru hvoru hjá hinum börnum sínum. Árið 1991 bauðst henni vistun á nýstofnuðu sambýli aldraðra í Bakkahlíð á Akureyri og var þar fram á sl. sumar en þá þurfti hún orðið meiri umönnun. Þá fór hún á sjúkradeild á Dvalarheimilinu Hlíð. Á báðum þessum heimilum er ynd- islegt starfsfólk og var hún sjálf og við öll innilega þakklát því fyrir alla þá elskusemi og sérlega góða umönnun sem hún naut. Hún lést 6. febrúar og var jarð- sungin frá Stærri-Árskógskirkju 12. febrúar í fögru veðri og hvílir nú við hlið afa. Legg ég nú bæði líf og önd ljúfi Jesús, í þína hönd. Síðast þegar ég sofna fer sitji Guðs englar yfir mér. (H.P.) Elsku amma, hafðu þökk fyrir þína ástúð og umhyggju. Anna Soffía, Helga, Rósa Kristín, Stefán Garðar og Eyrún. * Olína Marta Stem- grímsdóttir - Mimiing Vinkona mín Ólína Marta Stein- grímsdóttir frá Höfðakoti á Skaga- strönd er fallin frá, langt um aldur fram. Það var erfitt að sætta sig við fréttina um að Óla hafi greinst með krabbamein, rétt fyrir ’síðustu jól. Síðan tók við vonin um að Óla hefði betur í þessari baráttu eins og svo oft áður í lífsbaráttunni. Von sem aðeins tveim mánuðum seinna varð að engu. Ég hitti Olu í síðasta sinn á Land- spítalanum í janúar sl. Hún tók á móti mér kát og hress í tali að vanda og ákveðin í að hafa sig upp úr þessum veikindum. Samt gerði hún sér fulla grein fyrir að brugðið gæti til beggja vona, þar sem ekki var að fullu greint hversu útbreitt meinið væri. Minningarnar um góðan vin hrannast upp, hversu dýrmætt það er hverjum manni að eiga sér vin sem vill taka þátt í gleði og sorgum hans, laus við yfirborðsmennsku, meting og afbrýðisemi, hvort sem gengur vel eða illa hjá manni í lífs- baráttunni. Einmitt þannig vinur var Óla mín mér. Nú þegar Óla er dáin og við njót- um ekki lengur lifandi áhuga henn- ar á samfélaginu, káta hlátursins hennar og söngs, lifir í minningunni mynd af góðri og sterkri konu sem gaf samferðamönnum sínum mikið, þrátt fyrir að oft hefði hún sjálf átt að vera sá sem þiggja átti. Ég kveð vinkonu mína með sökn- uði, megi minning hennar lifa. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs-er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem) Ég og fjölskylda mín sendum þér, Skúli minn, börnum og fjöl- skyldu Ólu innilegar samúðarkveðj- ur. Þórunn Bernódusdóttir. Brids_______________ ^ Umsjón ArnórG. Ragnarsson Bridsfélag kvenna Mánudaginn 7. febrúar lauk butler- tvímenningnum hjá félaginu, keppnin var mjög jöfn og spennandi, en María og Dúa sigruðu, lokastaðan varð ann- ars þessi: María Ásmundsdóttir - Dúa Ólafsdóttir 113 Hertha Þorsteinsdóttir - Elín Jóhannsdóttir 110 Dóra Friðleifsdóttir - Sigriður Ottósdóttir 103 Hildur Helgadóttir - Karolína Sveinsdóttir 99 Inga L. Guðmundsdóttir - Unnur Sveinsdóttir 85 Liþa Halldórsdóttir - Anna M. Kokholm 55 HallaÓlafsdóttir-lngunnBemburg 53 Næsta keppni félagsins yerður hin vinsæla parakeppni og er áætl- uð í 5 kvöld, spiluð verða forgefin j> spil og vegna formsins eru þau pör sem ætla að vera með beðin um að skrá sig tímanlega og helst ekki H seinna en kl. 18 mánudaginn 21. " febrúar í síma 10730 (Sigrún), 32968 (Ólína), einnig er hægt að ^ skrá sig hjá BSÍ í síma 619360. íslandsmót yngri spilara í sveitakeppni 1994 Helgina 25.-27. febr. nk. verður I haldið í Sigtúni 9 íslandsmót yngri spilara í sveitakeppni 1994. Skráning er hafin á skrifstofu Bridssambands íslands í síma 91-619360. Spiluð verður einföld umferð, allir við alla og fer fjöldi spila í leik eftir fjölda sveita. Aldurstakmarkið í flokki yngri spilara eru miðuð við þá sem fæddir eru 1969 og yngri. Skráningarfrestur er til og með 23. febr. (miðvikudag). Bridsfélag SÁÁ 15. febrúar var spilaður Mitchell- tvímenningur á 8 borðum. Efstu pör: N/S Bjöm Björnsson - Guðbjörg Jakobsdóttir 122 RúnarHauksson -Þorvaldur Axelsson 120 Stefán Ólafsson - Birgir Sigurðsson 117 A/V Baldvin Jónsson - Jón Baldvinsson 128 Kristinn Óskarsson - ÓskarKristinsson 119 Páll Sigurðsson - Helen Gunnarsdóttir 118 Spilað er á þriðjudögum kl. 19.45 stundvíslega. Frá Skagfirðingum í Reykjavík Aðalsveitakeppni Skagfirðinga lauk síðasta þriðjudag, með sigri sveitar Hjálmars Pálssonar. Með honum spil- uðu; Viðar Jónsson, Helgi Hermanns- son, Kjartan Jóhannsson, Sveinn Þor- valdsson og Páll Þ. Bergsson. Röð efstu sveita varð: Sv. Hjálmars S. Pálssonar 180 Sv. Lárusar Hermannssonar 177 Sv. Óskars Karlssonar 155 Sv. Júlíusar Sigurðssonar 151 Sv. Rúnars Lárussonar 144 Að lokinni sveitakeppninni síðasta þriðjudag var stuttur tvímenningur með þátttöku sveitakeppnisspilaranna. Efstir urðu: Helgi Hermannsson og Kjartan Jóhannsson, 117, og Alfreð Kristjánsson og Jón Viðar Jónmunds- son, 100. Næstu þriðjudaga verður boðið upp á eins kvölds tvímenning, með inn- byrðiskeppni spilara (samanlagður bestur árangur). Sigurvegari vinnur sér inn kvöldmat á góðum veitingastað í vor (fyrir tvo). Öllum heimil þátttaka. Spilað í Drangey við Stakkahlíð 17 og hefst spilamennska kl. 19.30. Afmælisinót Lárusar Hermannssonar Yfir 40 pör eru þegar skráð í afmæl- ismótið, sem spilað verður laugardag- inn 5. mars í húsi Bridssambandsins. Skráning stendur enn yfir hjá Elínu á skrifstofu BSÍ og Ólafí Lárussyni í s. 16538. Öllu spilaáhugafólki heimil þátt- taka. Ingibjörg Jónsdóttir frá Laufási — Minning Fædd 29. mars 1913 kröftum. Þau eignuðust fimm börn, Dáin 29. janúar 1994 fjóra syni og dóttur. Eitt þeirra er látið, sonurinn Skúli. Inga dóttir ^ Mig langar til að minnast vin- þeirra er gift og búsett á Stöðvar- ■ konu minnar Ingibjargar Jónsdótt- firði, Trausti giftur og búsettur á ur í örfáum orðum. Ingibjörg dvald- Varmalandi á Laugarbakka V- ist á sjúkrahúsinu á Hvammstanga Hún., Jón giftur og búsettur í Dan- í 18 ár. Hún var með hægfara löm- mörku og Smári giftur og búsettur un sem byijaði í fótum og var því í Vestmannaeyjum. lengst af í hjólastól en seinni árin Ingibjörg minntist stundum á lá hún alveg í rúminu lömuð upp barnabörnin og langömmubörnin. að hálsi. Hún kvartaði aldrei við Var hún með myndir af þeim á mig, var aðeins full af þakklæti skápnum hjá sér og var hún mjög fyrir heimsóknina og dásamaði stolt af hjörðinni sinni og mátti hún lækna og starfsfólk sjúkrahússins. svo sannarlega vera það. Einnig Hún bað alltaf svo yndislega fyrir stóðu á skápnum hjá henni strákur okkur á hverju fimmtudagskvöldi, og stelpa úr tré, hönnuð af mannin- en þá kom ég ávallt til hennar. um hennar, heilmikið listaverk er Ingibjörg var mjög ljóðelsk og hann bjó til á efri árum. kunni heil lifandis ósköp af ljóðum. Eins og áður segir var hún alltaf Sjálf var hún vel hagmælt. Áttum svo full af þakklæti og sagðist aldr- við því oft góðar stundir saman og ei geta endurgoldið allt það sem hlakkaði ég alltaf til að hitta hana. fyrir hana hefði verið gert. Ég sagði Það er lærdónisríkt að hafa kynnst henni einmitt að hún gerði mikið slíkri konu. Ég er ekki viss um að fyrir okkur og það er að vera svona ég hefði getað sætt mig við hennar jákvæð og dugleg. Það kenndi okk- hlutskipti að liggja svona iömuð í ur að hugsa vítt og breitt um gang mörg ár. Hún gat ekki seinni árin lífsins og vera þakklát fyrir það sem flett bók, hafði þó unun af að lesa, að við höfum. Það er langur tími en þessu tók hún með miklu æðru- að vera í 18 ár á sjúkrahúsi og leysi og dáðist ég að henni fyrir það. dagarnir hljóta að vera langir þegar Við höfðum mörg sameiginleg ekkert er hægt að hreyfa sig úr áhugamál. Töluðum mikið um trú- stað. Það er ekki gott að segja um mál og m.a. um líf að loknu þessu hvað sjúklingarnir hugsa þó að þeir jarðlífi. Okkur fannst svo tilgangs- kvarti ekki, en eitt er víst að á ,> laust að fæðast í þennan heim _ef sjúkrahúsinu á Hvammstanga er að ekkert líf væri að því loknu. Ég sérlega vel hugsað um einstakling- las oft fyrir hana bæði ljóð og sög- inn, það get ég talað um af reynslu ur, einnig var hún með góðar hljóð- og hef góða viðmiðun við önnur snældur og naut þess í ríkum mæli sjúkrahús. Það er sorglegt til þess að hlusta á góðar frásagnir. Ég að hugsa hvað mikið er skorið niður spurði hana oft hvort hana langaði í heilbrigðiskerfinu. Það má síst af ekki í einhverja tilbreytingu eins öllu fækka starfsfólki því að vinnu- og t.d. að horfa á sjónvarpið, en álagið er oft mikið og hef ég heyrt hún taldi enga þörf fyrir slíkt, var starfsfólk kvarta um að því finnst þakklát fyrir alla umönnun og að það ekki hafa nægan tíma til að allt væri fyrir sig gert sem í mann- gefa sjúklingunum og er því oft legu valdi stæði. sáróánægt þegar vinnudagur er á.. Inga dóttir hennar kom sem oft- enda. Ég vona af alhug að þetta ar í heimsókn til hennar austan af eigi eftir að breytast fyrir þá sem landi í sumar og dvaldi hér í sýsl- að eiga eftir að dvelja á sjúkrahús- unni í marga daga og eyddi meiri um í lengri eða skemmri tíma. hluta dagsins hjá foreldrum á Útför Ingibjargar Jónsdóttur var sjúkrahúsinu. Hitti ég því Ingu oft gerð frá Víðidalstungukirkju 5. og var hún alltaf að þakka mér febrúar sl., sr. Kristján Björnsson fyrir allar heimsóknirnar. Ég sagði jarðsöng. henni að það væri sjálfþakkað því Ég votta eiginmanni, börnum og að mamma hennar hefði verið svo öðrum aðstandendum innilega sam- mikill gleðigjafi fyrir mig og verður úð. Ég veit að Ingibjörg var hvíld- hún mér ógleymanleg. inni fegin og örugglega fengið góða Eiginmaður Ingibjargar er Björn heimkomu í faðm sonar síns Skúla. Guðmundsson, áður bóndi í Laufási Guð blessi ykkur öll. í Víðidal. Hann dvelur nú á sjúkra- Hildur Kristín Jakobsdóttir. húsinu á Hvammstanga, farinn að t Útför eiginmanns míns, mágs, föður, tengdaföðurs, afa og langafa, JÓHANNESAR GUÐJÓNSSONAR Dvalarheimili aldraðra í Stykkishólmi, fer fram frá Stykkishólmskirkju laugardaginn 19. febrúar 1994 kl. 14.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en þeim, sem vildu minnast hans, er bent á St. Fransiskusspítalann í Stykkishólmi. Guðlaug Ósk Guðmundsdóttir, Kjartan Guðmundsson, Sigurborg Þóra Jóhannesdóttir, Iftikar Qazi Karvel Hólm Jóhannesson, Guðfinna D. Arnórsdóttir, Rebekka Rut Jóhannesdóttir, Godson Anuforo, Pálmi Viðar, Katrín Friðjónsdóttir, Elísabet Jensdóttir, Hilmar Jónsson, Marta Jensdóttir, Benjamfn Vilhelmsson, Jóhannes Jensson, Guðrún Lúðviksdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir sendum við öllum þetm, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför sambýlismanns míns, föður okkar, sonar, bróður, mágs og tengdasonar, STEFÁNS HAUKS JÓNSSONAR, Öldugötu 17, Árskógssandi. Þóra Soffia Gylfadóttir, Tinna Stefánsdóttir, Andrea Stefánsdóttir, Jón Aðaisteinn Stefánsson, Sigurbjörg Jónsdóttir, ÓmarTrausti Jónsson, Hafþór Svanur Jónsson, Sigrún Steinarsdóttir, Lára Ósk Jónsdóttir, Gyifi Baldvinsson, Hildur Marinósdóttir. ■ ii iii iii i.ii

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.