Morgunblaðið - 18.02.1994, Qupperneq 40
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. FEBRÚAR 1994
40
„Ég man þá tíð
þegar maður þurfti ekki háskólagráðu.“
Með
morgunkaffinu
Jæj’elskan, ég verð víst að
hætta núna. Ég heyri að börn-
in eru komin heim úr skólan-
um.
r
Hvaða fífl skrifaði: Hjálp, vél-
in heldur mér föstum á móti
vilja mínum!?
HÖGNI HREKKVÍSI
„ LArru mig S7Á perrA ,.A4ówo li'&u bros.“
BRÉF TIL BLAÐSINS
Kringlan 1 103 Reykjavík - Sími 691100 - Símbréf 691329
Hvalurinn
- vinur okkar eða fórnarlamb
Frá Rafni Geirdal:
Margt hefur verið ritað um hvala-
málið að undanförnu. Nú hefur kom-
ið fram í fréttum lögfræðiálit samið
af Gunnari Schram forseta lagadeild-
ar og öðrum Íagaprófessor, gert að
beiðni forsætisráðherra, þar sem
fram koma efasemdir um að Norður-
Atlantsþafspendýraráðið,
NAMMCO, geti talist gild alþjóða-
samtök í samræmi við ákvæði Al-
þjóðahafréttarsáttmálans, þar sem
Island eitt sé sjálfstætt ríki í engum
öðrum samtökum á þessu sviði. Nor-
egur sé í Alþjóðahvalveiðiráðinu og
Færeyjar og Grænland heyri undir
Danmörku, sem mér skilst að sé í
Alþjóðahvalveiðiráðinu og mæli jafn-
veí gegn hvalveiðum. Þannig að í
stuttu máli sagt, þá erum við eini
fullgildi aðilinn í þessum nýju al-
þjóðasamtökum.
Jafnframt er ljóst að Björn Bjarna-
son formaður utanríkismálanefndar
Alþingis tekur þessar röksemdir til
greina og vill málefnalegar umræður
sem séu hafnar yfir einlitar skoðanir
einstakra stjórnmálaflokka. Hann
nefnir þetta „viðkvæmt utanríkis-
mál“. Það er alveg nýr tónn, því allt
þar til í fyrrasumar kepptist hver um
annan þveran að hafna skoðunum
erlendra áhrifaaðila; jafnvel svo mjög
að okkar eigin sjávarútvegsráðherra
Frá Guðna Björgólfssyni:
Undirritaður þurfti á læknisvott-
orði til atvinnurekenda vegna fjar-
vista að halda á dögunum. Uppsett
verð á skilríki þessu er kr. 900,-
til viðbótar því að hafa greitt kr.
600.- fyrir komu á stofu læknis.
Gagnasafn
Morgunblaðsins
Allt efni sem birtist í Morgun-
blaðinu og Lesbók verður fram-
vegis varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskil-
ur sér rétt til að ráðstafa efninu
þaðan, hvort sem er með endur-
birtingu eða á annan hátt. Þeir
sem afhenda blaðinu efni til
birtingar teljast samþykkja
þetta, ef ekki fylgir fyrirvari
hér að lútandi.
lét frá sér orð sem móðguðu forseta
Bandaríkjanna. Það var staðfest með
formlegum hætti af embættismönn-
um Bandaríkjaforseta og utanríkis-
ráðuneyti okkar valdi það að biðjast
afsökunar.
Einnig er ljóst af leiðara Morgun-
blaðsins þann 12. febrúar sl. að rit-
stjómin tekur undir mörg þessara
sjónarmiða og telur jafnframt að
stórkostlegur viðskiptalegur skaði
geti hlotist af ef við hefjum hvalveið-
ar.
Nú kemur upp sú spurning hvað
við eigum að gera. Ég legg til að
eftirfarandi leiðir séu farnar:
1. Ekki sé farið út í hvalveiðar að
nýju; nema til þess að anna inn-
lendri eftirspurn.
2. Þess sé gætt að þær veiðar séu
framkvæmdar með nægilega öruggu
samþykki frá öðrum þjóðum, þannig
að þær séu ekki líklegar til að skaða
okkur viðskiptalega á öðrum sviðum.
3. Norður-Atlantshafsspendýraráðið,
NAMMCO, haldi velli, a.m.k. um
sinn. Það gegni því meginhlutverki
. að rannsaka stofnstærðir ýmissa
hvalategunda. En einnig sé það upp-
lýsingamiðill til almennings, rík-
isstofnana, og alþjóðlegra áhrifaaðila
á þessu sviði.
4. Þessum upplýsingum sé m.a. kom-
ið til Alþjóðahvalveiðiráðsins og allra
helstu ríkisstjóma heims. Einnig til
Ég hafði af þessu tilefni samband
við Tryggingastofnun ríkisins og
spurðist fyrir um gjaldskrá þá er
gjald þetta grundvallaðist á. Mér
var tjáð að engin slík gjaldskrá
lægi fyrir en að læknum væri í
sjálfsvald sett hvort og hversu hátt
gjald þeir tækju af sjúklingum.
Þessi sömu svör fékk ég hjá Lækna-
félaginu.
Af þessu tilefni langar mig til
að fá eftirfarandi upplýst:
1. Að hversu miklu leyti er mér
heiður eða skömm að því að greiða
kr. 900 í samanburði við þann sem
ekkert greiðir fyrir slíkt skilríki?
2. Hvenær var gjaldskrá sú hvar
nefnt gjald var tilgreint gefin út
og er landlæknir tilbúinn að senda
Morgunblaðinu afrit af nefndri
skrá?
Virðingarfyllst,
GUÐNI BJÖRGÓLFSSON,
Kirkjubraut 25,
Akranesi.
allra helstu alþjóðasamtaka um dýra-
vemd og umhverfisvernd.
5. Alþjóðahvalveiðiráðið sé hvatt til
þess að taka upp:
a. málefnalegri afstöðu,
b. vera í auknu samræmi við ákvæði
alþjóðahafréttarsáttmálans,
c. að niðurstöður vísindanefndar
ráðsins séu virtar.
6. Ný tekjuleið sé farin. í stað hval-
veiða sé áhersla lögð á hvalaskoð-
unarferðir. Þannig hafa Jöklaferðir
á Höfn í Homafirði gert tilrauna-
verkefni á þessu sviði sl. haust sem
tókst með ágætum. Um þetta lofs-
verða nýsköpunarstarf var fjallað
með heilsíðugrein í Morgunblaðinu
sl. haust. Samkvæmt fréttum er von
á fleiri gestum næstkomandi ár.
Ef við gefum okkur að ferðamenn
í þessum ferðum hafí t.d. verið 100
talsins og hver ferðamaður veiji að
meðaltali 100.000 krónum í dvöl sína
hérlendis, þá bendir það til um 10
milljóna í gjaldeyristekjur. Ef fleiri
koma nk. ár, t.d. 150 ferðamenn,
þýðir það um 15 milljarða.
Með því að styðja undir þennan
vaxtasprota í ferðaiðnaði getum við
glætt von um nýja iðngrein sem er
vonarneisti um bjartari framtíð.
Þetta getur unnið með ferðaiðnaði
almennt, þar sem þetta er nýr val-
kostur fyrir ferðamenn. Einnig yrði
þetta að líkindum vel séð á alþjóða-
vettvangi. Auk þess gæti þetta kom-
ið í veg fyrir viðskiptaskaða, sem
annars gæti orðið geigvænlegur ef
farið væri út í hvalveiðar. Að lokum
geta rannsóknir á stofnstærð nýst
okkur til að auka líkur á að ferða-
menn sjái hvali i skoðunarferðum
sínum og verðmæti hvals tekur þann-
ig á sig nýja mynd. Veljum þetta sem
leið. Eg þakka.
Virðingarfyllst,
RAFN GEIRDAL,
Smiðshöfða 10, Reykjavík.
Til kaþólskra
lesenda
Frá sr. Jan Habets:
ÉG SENDI Morgunblaðinu
grein sem svar til Einars Þor-
steins um allt sem hann ákærði
mig um og okkar kirkju. Morg-
unblaðið sendi grein mína til
baka, vildi ekki birta fleiri
greinar um geimverurnar! Ég
kann ekki að þvinga Morgun-
blaðið. Spurning má þó vera:
Er það rétt, að grein mín mátti
ekki birtast?
SR. JAN HABETS,
Austurgötu 7,
Stykkishólmi.
íshafsströnd Sovétr.; um 90.000
ferkm. H er ísi lagt hálft en sigl-
ingaleiðum haldið opnum með ís-
bijótum; mikilvæg siglingaleið sem
tengist m.a. Eystrasalti, Ladoga-
og Onegavatni, Svarta-, Kaspí- og
Azovhafi með skipaskurðum; helstu
hafnarborgir: Arkhangelsk, Belo-
morsk og Onega.“
xxx
Tjjóðernisstoltið brýst fram með
Mr ýmsum hætti. Úlfar Eysteins-
son matreiðslumeistari sem rekur
þann vinsæla fískréttastað Þijá
Frakka, er mjög ósáttur við hvernig
Frakkar hafa hagað sér gagnvart
fískútflutningi íslendinga að und-
anförnu. Hann er reyndar svo argur
að hann segist vera að hugsa um
að breyta nafni staðarins af þsjssum
sökum — Þrír Frakkar muni eftir-
leiðis nefnast Þijár frakkar hjá Úlf-
ari!
Yíkveiji skrifar
Víkvetji er líklega í hópi fjöl-
margra landsmanna sem nýt-
ur sígildrar tónlistar án þess að
geta þó talist neinn sérstakur kunn-
áttumaður á því sviði. Engu að síð-
ur hefur hann haft ómælda ánægju
af samnorræna spurningaþættinum
Kontrapunkti, sem byggist á því
að kapplið frá fimm Norðurland-
anna eiga að þekkja tóndæmi sem
sjaldnast liggja þó í alfaraleið tón-
listarsögunnar. Það er með ólíkind-
um hversu glúrnir keppendur eru
að geta sér til um verkin sem tón-
dæmin eru sótt í og um höfunda
þeirra. íslensku keppendurnir
standa öðrum síst að baki í getspek-
inni en það sem er þó makalausast
af þessu öllu er velheppnað form
þáttarins og stjórn hans sem gerir
það að verkum að jafnvel venjuleg-
ir sjónvarpsáhorfendur heima í
stofu, sem þekkja yfirleitt hvorki
haus né sporð á tóndæmunum eða
höfundum þeirra, skuli geta haft
gaman að því að fylgjast með vitr-
ingunum rekja sig áfram eftir vís-
bendingum að réttu svari.
xxx
Dr. Gunnlaugur Þórðarson vék
að því í framhjáhlaupi í grein
hér í blaðinu ekki alls fyrir löngu
að í umræðum undanfarið vegna
Smugunnar væri nú farið að tala
um Barentshaf þar sem samkvæmt
málvenju áður fyrr var jafnan talað
um Hvítahaf. Við nánari eftir-
grennslan hefur komið í ljós að
þetta er misskilningur hjá Gunn-
íaugi. Á nýja Times Atlasinum sést
greinilega að Hvítahaf er hafsvæði
og raunar flói suður af Barentshafi
og um það segir einnig svo í ís-
lensku alfræðibókinni:
„Hvítahaf (rússn. Beloje more):
mikill flói inn úr Barentshafi á N-
Fyrirspurn til landlæknis