Morgunblaðið - 18.02.1994, Qupperneq 42
42
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FÖSTUDAGUR 18. FEBRÚAR 1994
VETRAROLYMPIULEIKARNIR I LILLEHAMMER
Samgleðst Markúsi,
hann átti gullið skilið
MARKUS Wasmeier frá Þýska-
landi kom skemmtiiega á óvart
í gær er hann vann loks ólymp-
íugull — þegar enginn átti von
á. Wasmeier, sem er þrítugur,
varð þar með fyrsti Þjóðverjinn
til að vinna gullverðlaun í alpa-
greinum í karlaflokki í 58 ár; síð-
an 1936 er Franz Pfnuer sigraði
í tvíkeppni í Garmisch-Partenk-
irchen.
Wasmeier var auðvitað í sjöunda
himni eftir sigurinn og keppi-
nautar hans samglöddust Þjóðverj-
anum. „Það er stórkostlegt að verða
fyrstur þýskra karla til að vinna
Olympíutitil síðan þá,“ sagði hann
og vísaði til afreks Pfnuers 1936.
„Þetta er frábært augnablik á mínum
ferli en ég held ég geti ekki hætt
nú. Ég hef of gaman af þessu til
þess.“
‘ Tommy Moe, sem sigraði öllum á
óvart í bruni á sunnudag og ætlaði
að halda upp á 24. afmælisdaginn í
gær með því að næla í annað gull,
varð í öðru sæti og var sáttur við
silfrið. „Ég samgleðst Markúsi. Hann
er sannur skíðamaður og á gullverð-
launin skilið. Ég er mjög ánægður
hans vegna og mín.“ Og Marc Girar-
delli, sem keppir fyrir Lúxemborg,
sagði: „Hann átti þetta skilið. Hann
hefur verið lengi í baráttunni."
Atle Skárdal frá Noregi fór braut-
ina fyrstur en Moe var þriðji í rásröð-
'inni og bætti tíma Skárdals, sem
einnig hélt upp á afmæli sitt í gær;
varð 28 ára. Ahorfendur við markið
sungu „Hann á afmæli í dag“ fyrir
þá báða en það var svo Þjóðveijinn
sem stal senunni. Hann kom næstur
á eftir Moe og bætti tíma hans um
átta hundraðshluta úr sekúndu. „Ég
gerði mistök nálægt markinu og þeg-
ar ég sá að ég var ekki nema átta
hundruðustu úr sekúndu á undan
Moe hélt ég að það nægði mér ekki,“
sagði Wasmeier. En þegar upp var
staðið fagnaði hann sigri, eftir langa
bið. „Hann var bestur í dag,“ sagði
Kjetil Andre Aamodt, sem varð þriðji.
„Ég hreifst af Wasmeier. Þetta var
>•,41
f PÚÁTTPÉR. VIN í
LAUQARDALNUM
%
W
%
o
Markusl Wasmeler, sem loks náði í Ólympíugull eftir langa bið,
glæsilegur sigur hjá gamla mannin-
um. Hann nær stundum þessum ótrú-
legu ferðurn," sagði Norðmaðurinn.
Allir voru sammála um að Was-
meier ætti gullið skilið. Búist var við
miklu af honum á leikunum í Calg-
ary 1988 en þá sleppti hann fyrsta
hliðinu í risasviginu og varð sjötti í
bruni. í Albertville fyrir tveimur
árum var hann svo lang fyrstur í
tveimur fyrstu æfingaferðunum fyrir
brunkeppnina en varð fjórði þegar á
hólminn var komið.
Annað gull Egerovu
Lyubov Egerova vann önnur gull-
verðlaun sína í Lillehammer í gær,
er hún sigraði í 10 km göngu kvenna.
Um var að ræða svokallaðan eltinga-
leik; hún fór fyrst af stað, en kepp-
endur voru ræstir í samræmi við
úrslit úr 5 km göngunni sem fram
fór fyrr í vikunni. Hún byijaði 20
sekúndum á undan Manuelu Di
Centa frá Ítalíu, sem varð önnur í 5
km göngunni, en kom átta sek. á
undan henni í mark.
Egevora hefur þar með unnið til
fimm ólympíugulla á ferlinum og er
sigursælasti keppandinn í sögu
göngukeppni Ólympíuleikanna.
ítalski heimsmeistarinn Stefania
Belmondo varð í þriðja sæti og hlaut
bronsið. Hún fór þrettánda af stað
en gekk mjog vel og komst fram úr
tíu keppendum.
Sú besta datt
Þýska stúikan Gunda Niemann,
Ólympíumeistari í 3.000 m skauta-
hlaupi í Albertville fyrir tveimur
árum, rann til á svellinu og datt
þegar keppt var í greininni í gær,
og Svetlana Bazhanova fagnaði mjög
óvænt sigri. Niemann var talin lang
sigurstranglegust, hafði skautað
mjög vel og var á góðri leið með að
setja heimsmet, miðað við milli-
Reuter
tímana, þegar óhappið varð. Hún
skautaði á einu keiluna sem afmark-
ar brautimar, datt og tók japönsku
stúlkuna Seiko Hashimoto með sér
í fallinu. Hvorg meiddist.
Bazhanova fór vegalengdina á
fjórum mín. 17,43 sek., nærri sjö
sekúndum lakari tíma en heimsmet
Niemann er.
Niemann skautaði áfram en fékk
lakan tíma og var ekki meðal 16
efstu. Þáð þýðir að hún fær ekki að
keppa í 5.000 skautahlaupinu, þar
sem einnig var reiknað með sigri
hennar. Hún á reyndar möguleika á
að taka þátt í þeirri keppni ef ein-
hver þeirra þriggja þýsku stúlkna,
sem voru meðal sextán efstu í gær,
gefur sæti sitt eftir.
VALSMÓTIÐ
í BRIDGE
verður haldið í Valsheimilinu mánudagana
21. og 28. febrúar kl. 20.00.
Skráning hjá húsverði í síma 11134.
Tvímenningur, keppnisgjald kr. 1.000 á
mann fyrir bæði kvöldin.
1. verðlaun kr. 6.000.
2. verðlaun kr. 4.000.
3. verðlaun kr. 2.000.
Allir spilarar velkomnir.
Nefndin.
Fjórða gullið
hjá Dæhlie
BJÖRN Dæhlie nældi ífjórða Ólympíugull sitt ígær er hann sigr-
aði í 10 kílómetra skiðagöngu með hefðbundinni aðferð í Lille-
hammer, og þótti sanna að hann er enn konungur göngumanna.
Hann varð að sætta sig við annað sætið í 30 km göngunni á
mánudaginn en nú varð hann langfyrstur.
Dæhlie, sem vann til þrennra
gullverðlauna í Albertville fyrir
tveimur árum, varð 18 sekúndum á
undan Vladimir Smirnov frá Kaz-
akhstan, sem varð í öðru sæti í gær
og gamla brýnið Mareo Albarello (33
ára) frá Ítalíu varð þriðji, 22 sek. á
eftir Dæhlie.
Dæhlie tók á öllu sem hann átti
og var að niðurlotum kominn er hann
fór yfir marklínuna. „Ég var viss um
að Smirnov myndi ná mér. Ég reyndi
að auka hraðann undir lokin. Mér
fannst ég fara of hægt,“ sagði Dæ-
hlie. Þegar keppnin var hálfnuð hafði
Dæhlie einungis 1,7 sekúndna for-
ystu. Smirnov var m^ð næst besta
tímann — hann gekk kröftuglega,
greinilega staðráðinn í að hefna fyr-
ir það er Dæhlie var 15 sentímetrum
á undan honum í markið á heims-
meistaramótinu í fyrra. En Smirnov
tókst ekki að hefna og varð að sætta
sig við að fyrsti verðlaunapeningur
Kazakhstan á Ólympíuleikum yrði
silfur en ekki gull. Dæhlie var ein-
faldlega allt of kraftmikill.
Sigri Dæhlie í 15 km göngunni á
morgun, þar sem hann er talinn lang
sigurstranglegastur, nælir hann í
fímmta ólympíugull sitt og verður
þar með sigursælasti Norðmaðurinn
á vetrarólympíuleikum frá upphafi.
Skautahlauparinn Ivar Ballangrud
vann til fernra gullverðlauna á fjórða
áratugnum.
Norðmaðurinn Vegard Ulvang
varð að láta sér lynda sjöunda sætið,
47 sek. á eftir Dæhlie. Krónprinsinn
svokallaði, Thomas Alsgaard, sem
sigraði í 30 km göngunni á mánudag-
inn, varð í 24. sæti í gær.
Koss gefur
peningaverð-
laun sín í
Bosníusjóð
Johann Olav Koss tilkynnti
eftir að hann hafði unnið s(n
önnur gullverðlaun í fyrradag,
að hann hafi ákveðið að gefa
peningaverðlaun sín, um 2,16
millj. ísl. kr., til norska Rauða
krossins og framkvæmdanefnd-
ar ÓL í Lillehammer, til að
stofna sjóð til að hjálpa stríðs-
hijáðu fólki í Bosníu. Hver Norð-
maður sem vinnur ÓL-gull fær
bónusgreiðslur frá norsku ÓL-
hreyfingunni. Koss vonar að
aðrir keppendur komi í kjölfarið.
„Ég vil segja við alla Norð-
menn, að ég vona að þeir gefi
sem samsvarar tíu krónum [um
100 ísl. kr.] fyrir hvert gull sem
norskir keppendur tryggja sér í
Lillehammer,“ sagði Koss.
URSLIT
ÓL í Lillehammer
10 km ganga karla
1. Bjöm Dæhlie (Noregi)........24.20,1
2. V. Smimov (Kazakhstan)......24.38,3
3. Marco Albarello (Ítalíu)....24.42,3
4. Mikhail Botvinov (Rússlandi) ....24.58,9
5. Sture Sivertsen (Noregi)....24.59,7
6. Mika Myllylae (Finnlandi)...25.05,3
7. Vegard Ulvang (Noregi)......25.08,0
8. Silvio Fauner (Italíu)......25.08,1
9. Harri Kirvesniemi (Finnland)....25.13,2
50. Daníel Jakobsson............27.09,7
78. Rögnvaldur Ingþórsson.......28.51,2
■88 keppendur tóku þátt í göngunni.
Risasvig karla
Brautin í Hvítfjalli var 2.574 m, fallhæð
641 m og hlið 41:
1. Markus Wasmeier (Þýskal.)...1.32,53
2. Tommy Moe (Bandar.).........1.32,61
3. Kjetil Andre Aamodt (Noregi)...1.32,93
4. M. Girardelli (Luxemburg)...1.33,07
5. Wemer Perathoner (Ítalíu)...1.33,10
6. Atle Skaardal (Noregi)......1.33,31
7. Jan EinarThorsen (Noregi)...1.33,37
8. Luc Alphand (Frakklandi)....1.33,39
9. Giinther Mader (Austurríki).1.33,50
10. Marco Hangl (Sviss)........1.33,75
Göngutvíkeppni kvenna
Þær stúlkur sem náðu bestum tíma í 5 km
göngu vom ræstar út fyrstar í 10 km göngu
(hefðbundin aðferð) og varð sigurvegarin
sú sem náði bestum samanlögðum tíma -
(innan sviga árangur í báðum göngunum):
1. Lyubov Yegorova (Rússlandi) .....41.38,9
(5 km 14.08,8/10 ,km 27.30,1)
2. Manuela Di Centa (Ítalía)....41.46,7
(14.28,3/27.18,4)
3. Stefania Belmondo (Ítalíu)...42.21,1
(15.04,0/27.17,1)
4. Larissa Lazutina (Rússlandi).42.36,8
(14.44,2/27.52,6)
5. Nina Gavrilyuk (Rússland)....42.37,5
(15.01,6/27.35,9)
6. Trude Dybendahl (Noregi).....42.50,3
(14.48,1/28.02,2)
7. K. Neumannova (Tékklandi)....42.50,4
(14.49,6/28.00,8)
8. Anita Moen (Noregi).........43.21,6
(14.39,4/28.42,2)
9. Antonina Ordina (Svíþjóð)....43.31,7
(14.59,2/28.32,5)
3.000 skautahlaup kvenna
1. Svetlana Bazhanova (Rússl.) ....4.17,43
2. Emese Hunyady (Austurrlki) ....4.18,14
3. Claudia Pechstein (Þýskal.)..4.18,34
4. L. Prokasheva (Kazakhstan)...4.19,33
5. Annamarie Thomas (Hollandi)..4.19,82
6. Seiko Hashimoto (Japan)......4.21,07
_ 7. Hiromi Yamamoto (Japan).....4.22,37
Íshokkí
B-riðill:
Slovakía - Ítalía...................10:4
Roman Kontsek (1.27, 9.02), Miroslav Sat-
an (10.15, 12.14, 49.34), Peter Stastny
(10.57, 37.35), Zigmund Palffy (13.17,
30.54), Jozef Dano (33.41) — Lucio Topat-
igh (17.32), Martin Pavlu (18.23), Jimmy
Camazzola (32.38), Maurizio Mansi (51.12)
Svíþjóð - Frakkland.................7:1
Roger Hansson (35 sek., 20.35), Haakan
Lóob (8.23), Peter Forsberg (16.36), Stefan
Oernskog (30.47), Roger Johansson
(47.33), Fredrik Stillman (51.42) — Eric
Lemarque (31.57).
Kanada - Bandaríkin.................3:3
Dwayne Norris (4.46, 41.16), Peter Nedved
(32.09) - Brian Rolston (21.06, 29.43),
Todd Marchant (59.32)
Staðan:
Kanada..................3 2 1 0 13: 6 5
Svíþjóð.................3 2 10 15: 6 5
Slóvakía................3 1 2 0 17:11 4
Bandaríkin..............3 0 3 0 10:10 3
Frakkland...............3 0 1 2 6:14 1
Ítalía..................3 0 0 3 7:21 0
■Leikir sem eftir eru: Kanada - Slóvakía,
Ítalía - Frakkland, Bandaríkin - Svíþjóð,
Svíþjóð - Kanada, Slóvakía - Frakkland,
Bandaríkin -Ítalía.