Morgunblaðið - 18.02.1994, Page 44
JiewiiM
-setur brag á sérhvern dag!
MORGUNBLAÐW, KRINGLAN 1 103 REYKJAVÍK
Slm 691100, SÍMBRÉF 691181, PÓSTHOLF 3040 / AKUREYRl: HAFNARSTRÆTl 85
Föstudagur til fjár
Frystðkistw m
sySfríÖBÖJ í KRINGLUNI V) \ A 1
FOSTUDAGUR 18. FEBRUAR 1994
VERÐ I LAUSASOLU 125 KR. MEÐ VSK.
Rannsókn umfangsmikils fíkniefnamáls lokið
45 kg af hassi og 6
kg af amfetamíni
flutt í 19 ferðum
24 grunaðir og söluverð efnanna um 95 millj.
TUTTUGU og fjórir aðilar eru á kæruskrá lögreglu vegna aðildar að
umfangsmesta fíkniefnamáli sem íslensk lögregla hefur fengist við en
rannsókn þess hefur staðið frá því í júlí sl. og er nú lokið. Niðurstöð-
ur rannsóknarinnar eru þær að á vegum þessa hóps hafi verið flutt
inn til landsins allt að 45 kíló af hassi og 6 kíió af amfetamíni í 19
ferðum frá því snemma árs 1992 og fram í júlí 1993. 38 ára maður
sem nefndur hefur verið höfuðpaur þessa fíkniefnahrings hefur setið
í gæsluvarðhaldi síðan 1. september vegna rannsóknarinnar. Sam-
kvæmt upplýsingum Morgunblaðsins er talið að hann eigi þátt í 13
smyglferðanna sem um ræðir í málinu og eigi aðild að innflutningi á
um það bil 35 kílóum af hassi og 5 kg af amfetamini. Hér á landi má
áætla að söluverðmæti þeirra fíkniefna sem um er að ræða í málinu
myndi hafa numið um það bil 95
15 manns hafa setið í gæsluvarð-
haldi vegna rannsóknarinnar sem
hófst þegar tveir menn voru hand-
teknir á Keflavíkurflugvelli með 3
kg af hassi og tæpt kíló af amfetam-
íni í fórum sínum. Játningar liggja
fyrir varðandi hluta sakargifta, m.a.
frá hinum svonefnda höfuðpaur. Við
rannsóknina hefur samkvæmt upp-
lýsingum Morgunblaðsins meðal
annars komið í ljós að aðilar sem
tengjast þessu máii hafi átt þátt í
~ið skipuleggja og flytja inn fíkniefni
í fjórum eldri fíkniefnamálum sem
komu upp á fyrrgreindu tímabili en
ekki hafði tekist að upplýsa að öðru
leyti en því að lagt hafði verið hald
á efnin og flytjendur þeirra hand-
teknir.
Vegna þeirra mála sem rannsókn-
in tekur til hefur lögregla lagt hald
á 13,8 kg af hassi og 1,7 kg af
amfetamíni en samkvæmt upplýsing-
um Morgunblaðsins hefur lítið verið
upplýst um það hvernig staðið var
að dreifingu þeirra um það bil 30
kg af hassi og 4 kg af amfetamíni
sem komust á markað hérlendis.
milljónum króna.
samninga. Þar er um verulegar fjár-
hæðir að ræða, samkvæmt heimild-
um Morgunblaðsins.
Ríkissaksóknari hefur fengið send
rar.nsóknargögnin og samkvæmt
upplýsingum Morgunblaðsins er
búist við að málið verði afgreitt til
dómsmeðferðar fyrir 15. mars þegar
gæsluvarðhaldsúrskurður hins svo-
nefnda höfuðpaurs rennur út.
Sjá: „Söluverð ...“ á bls. 23
Torkennilega hluti rak á land
Vik Mýrdal.
TVO torkennilega hluti rak á land á Álftaversfjöru
nærri Alviðruhamravita fyrir skemmstu. Böðvar Jóns-
son bóndi á Norður-Hjáleigu fann rekann og gerði
viðvart. Sprengjusérfræðingar Landhelgisgæslunnar
fóru á staðinn en um var að ræða 5 metra langt
dufl með stýriuggum og kút úr áli. Duflið reyndist
vera af þeirri tegund sem notuð er til þess að draga
á eftir tundurduflaslæðara og var sprengt. Kúturinn
reyndist úr áli og hættulaus. Brýnt er að menn láti
vita þegar torkennilega hluti rekur á fjörur enda
geta þeir innihaldið sprengi- eða eiturefni.
RR
Hindranir gegn innflutnmgi íslensks fisks við frönsku landamærin
Bílar með íslenskan fisk
fóru yfír landamærm í gær
Franskir tollverðir tóku belgísk heilbrigðisvottorð um fiskinn gild
FRANSKIR tollverðir hleyptu tveimur bílum, hvorum með 18 tonn af
fiski til íslenska fiskvinnslufyrirtækisins Nord Morue í Frakklandi,
yfir landamæri Frakklands og Belgíu síðdegis í gær. Að sögn Birgis
S. Jóhannssonar, framkvæmdastjóra Nord Morue, var framvísað belg-
ísku heilbrigðisvottorði um farm bilanna og tóku tollverðir þau góð
og gild. Búist var við að þriðji bíllinn kæmist með sama hætti yfir
landamærin í gærkvöldi. Birgir býst við að frönsk heilbrigðisyirvöld
muni loka þessari leið íslensks fisk inn til Frakklands.
Umfangsmikil fjársvikamál
Samkvæmt upplýsingum Morgun-
blaðsins er algengt að 3-7 aðilar úr
24 manna hópnum hafí tengst hverri
hinna 19 ferða og er talið að flestir
hafi komið við sögu í fleiri ferðum
en einni.
Auk fíkniefnamálsins tengist þess-
um hópi umfangsmikil fjársvikamál
sem varða m.a. falsaðar nafnritanir
á tryggingavíxla og raðgreiðslu-
„Ég held að þetta geti ekki verið
svona einfalt,“ sagði Birgir Sævar
Jóhannsson. „Ég held að það sé á
hreinu að heilbrigðisyfirvöld hafa
ekki látið af neinu varðandi þær
fyrirskipanir og reglugerðir sem þau
hafa í höndum. Frá þremur heil-
brigðisstöðvum hefur verið látið vita
að tekið verði sýni úr öllum fiski, sem
þýðir tafir í viku auk gífurlegs kostn-
aðar við að aflesta bílana og setja
fiskinn í kæligeymslu. Vandamálið
er það sama og verið hefur, heilbrigð-
isyfirvöld hafa verið og eru ákveðin
í að halda áfram að blokkera inn-
flutning á fiskafurðum. Mesta breyt-
ingin er sú að nú getum við flutt
fisk án þess að eiga á hættu að hann
verði eyðilagður," sagði Birgir. Hann
sagði að undanfarna viku hefði fyrir-
tækið orðið fyrir 20-35 milljóna
króna sölutapi sem beint mætti rekja
til mótmæla sjómanna og aðgerða
heilbrigðisyfirvalda. Hann kvaðst
telja að varanleg lausn fyndist ekki
nema eftir pólitískum og diplóma-
tískum leiðum.
Tollvarsla í anda
Evrópusambandsins
Fjármálaráðherra um ágreininginn vegna búvörulagafrumvarpsins
Komið verði í veg fyrir að gengið
sé á hlut neytenda með álögum
FRIÐRIK Sophusson fjármálaráðherra segist ekki vera mótfallinn því
að gerðar séu breytingar á búvörufrumvarpinu en segist leggja áherslu
á að staðið verði við samkomulag stjórnarflokkanna frá í desember.
Friðrik segir að aðalatriðið sé að komið verði í veg fyrir að gengið sé
á hlut neytenda og annarra atvinnugreina en landbúnaðar með því
að færa of mikið vald í hendur landbúnaðarráðuneytisins við álagn-
ingu á innfluttar vörur.
„í þeirri vinnu sem nú fer fram í
landbúnaðarnefnd Alþingis er mik-
'ilvægt að niðurstaðan verði í sam-
ræmi við það sem átti að gerast í
desember. Fyrirkomulagið sem
stjórnarflokkarnir samþykktu í des-
ember tryggði hagsmuni innlendra
framleiðenda vegna EES-samnings-
ins og gaf stjórnvöldum jafnframt
tíma til að undirbúa hugsanlegar
lagabreytingar, sem stafa af Ur-
rúgvæ-samkomulagi GATT en það
tekur gildi líklega á miðju næsta
ári,“ segir Friðrik.
„Fyrirliggjandi frumvarpsdrög,
sem formaður landbúnaðarnefndar
bað þrjá lögfræðinga að færa í lög-
fræðilega skotheldan búning, er að
mörgu leyti til bóta og texti drag-
anna er mun skýrari en gildandi lög.
Aðalatriðið er að koma í veg fyrir,
að með álögum sé gengið á hlut
neytenda og annarra atvinnugreina
en landbúnaðar, með því að færa of
mikið vald í hendur landbúnaðar-
ráðuneytisins við álagningu gjalda á
innfluttar vörur. í desember var það
niðurstaðan að verðjöfnun ætti að
vera á forræði landbúnaðarráðuneyt-
isins. Aðrar álögur og tollar eiga
hins vegar samkvæmt eðli máls
heima í fjármálaráðuneytinu, þar
sem taka þarf tillit til mismunandi
og ólíkra hagsmuna og samræma þá.
Ég hef hins vegar enga trú á öðru
en að ásættanleg niðurstaða náist í
þessu máli og vil fyrir mitt leyti að
sjálfsögðu stuðla að því. Næstu dag-
ar verða notaðir til þess," sagði hann.
Verndartollar ekki á forræði
atvinnuvegaráðuneyta
Aðspurður hvaða breytingar hann
teldi eðlilegt að gera á frumvarpinu
sagði Friðrik: „Ég legg áherslu á að
gjöld sem eru umfram verðjöfnun
og eru í eðli sínu verndartollar eiga
ekki að vera á forræði einstakra at-
vinnuvegaráðuneyta, vegna þess að
það kallar einungis á að önnur ráðu-
neyti vilji fá sams konar vald til þess
að vernda innlenda framleiðendur og
má til dæmis benda á iðnaðarráðu-
neytið, auk þess sem neytendur í
landinu verða að mega treysta því
að það séu almennar reglur sem gildi
um gjaldtöku í innflutningi. Ég held
að það sé ástæða til að læra af mis-
tökunum sem fólust í því að afhenda
landbúnaðarráðuneytinu jöfnunar-
álagsheimild á kartöflur á sínum
tíma. Ég tel eðlilegt að þessi mál
verði sérstaklega rædd í þeirri nefnd
sem forsætisráðherra skipaði fyrir
skömmu til þess að undirbúa hugs-
anlegar lagabreytingar vegna
GATT-samningsins,“ sagði Friðrik.
Sjá frásagnir í midopnu.
Birgir segir hugsanlegt að bílarnir
hafi fengið að fara yfir landamærin
af því að tollverðir í Frakklandi starfi
meira í anda reglna Evrópusam-
bandsins en heilbrigðisyfirvöld fram-
fylgi fyrst og fremst þeim kröfum
sem settar séu í innlendri löggjöf.
Þegar Morgunblaðið ræddi við
Birgi voru bílarnir enn ekki komnir
að fyrirtæki hans en þeirra var vænst
í nótt eða snemma í morgun. Birgir
hafði þann fyrirvara á að hugsanlegt
væri að bílarnir yrðu stöðvaðir á leið-
inni af heilbrigiðisstarfsmönnum en
þar sem verkfalli sjómanna er lokið
var ekki búist við aðgerðum af þeirra
hálfu. Birgir sagði að byijað yrði að
vinna úr hráefninu, sem er það fyrsta
sem fyrirtækinu berst héðan i nær
3 vikur, strax í fyrramálið en undan-
farið hefur fyrirtækið verið að vinna
úr takmörkuðum birgðum.
Lúðvík Jónsson, framkvæmda-
stjóri Icelandic France, dótturfyrir-
tækis Sölumiðstöðvar hraðfrystihús-
anna í París, sagði við Morgunblaðið
í gær að reyna ætti á innflutning á
fiski til Frakklands um nokkrar
landamærastöðvar á næstu dögum.
Benedikt Sveinsson, framkvæmda-
stjóri Islenskra sjávarafurða, segir
fyrirtækið halda sínu striki og fara
með gáma eins langt og komist verði.