Morgunblaðið - 05.03.1994, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 05.03.1994, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. MARZ 1994 13 Vísindi — bömin og við eftir Huldu Jensdóttur Á æskuárum mínum var máltækið „vísindin efla alla dáð“ í miklum hávegum haft, nánast heilagt og óbrigðult. Móður mína heyrði ég oft viðhafa þessi orð og þá gjarnan í tengslum við mikilvægi menntunar. Aldamótafólk sem hún átti fátt þess kost að ganga menntaveginn, þó þá sem nú væri máltækið „mennt er máttur" vel skilgreint og eftir- sóknarvert. Tímarnir breyttust. Nú sitja flest- ir á skólabekk til fullorðinsára og þykir ekki umtalsvert og sumir leggja vísindi fyrir sig. Fyrir vísind- um bera margir allt að því ótta- blandna virðingu, enda vísindum ætlað að standa fyrir því besta og fullkomnasta. Við sem erum komin til ára höfum . lifað slíkar byltingar á sviði vísinda og tækni, þæginda og forréttinda, að stundum er erfitt að „hanga á spýtunni". Allt snýst svo hratt, sem og það, að spýtan hefur tvær hliðar og stundum fleiri. Vísindin eru ekki og hafa e.t.v. aldrei verið, ljúf kær- leiksverk, til þess eins ætluð að blessa, bæta, auðga og „efla alla dáð“. Vísindi virðast títt snúast um spennandi viðfangsefni, spennunnar vegna. Að ná sem lengst á rannsókn- arstofunni, kljúfa og sameina flókn- ar eindir. Að sanna jafnvel hið óhugsanlega, eða til að fullnægja fróðleiksfýsn eða fremur forvitni jafnvel hégómagirnd án tillits til afleiðinga og/eða til að koma á móts við gerviþarfír, eins og síðasta vísindaafrekið sannar. Sjálfsagt hefur ekki farið framhjá mörgum fréttin að nú sé hægt að taka egg úr fóstri, þ.e. kvenkyns- fóstri, sem tekið var af lífi í móður- kviði, ftjóvga eggið og koma fyrir í legi ókunnrar konu, þar sem það síðan dafnar og verður að lifandi mannveru sem fæðist í tímans rás ef allt fer sem ætlað og þá sem af- kvæmi einskis manns. Mörgum finnst þetta vísindaafrek svo fjarstæðukennt að aldrei muni það ná fram að ganga, enda sé það gegn siðgæðisvitund allra hugsandi manna en — er það svo? Það er ekki ýkja langt síðan frá- leitt þótti, og brot gegn öllu sið- gæði, að barn væri fjarlægt úr móð- urkviði, nema mikið lægi við. Nú virðist svo komið, hvað það mál varð- ar, að menn eru hættir að tala um það í þ.m. á íslandi. Á litla íslandi fara mörg hundruð yfir móðuna miklu árlega án þess að eftir sé tekið. Þegjandi og hljóða- laust er mannslífum fargað á altari efnishyggju. Þegjandi og hljóðalaust er ríkisstyrkta risafyrirtækið fóstur- eyðing rekið óáreitt á þeim fölsku forsendum að fóstrið, barnið í móð- urlífi, sé ekki manneskja fyrr en það sé búið að ná „stöðluðum" aldri, sem misvitrir menn ákveða. Fram að því sé það ekki neitt. Sannleikurinn er hinsvegar sá að um leið og egg og sæðisfruma sam- einast er líf. Vísir er lagður að vits- munaveru sem í allri gerð er æðri og ólík öllu öðru. Eftir örskamman tíma þ.e. 2'h v. er lítið hjarta — mannshjarta — farið að slá óreglu- lega. Eftir 3 v. er slátturinn regluleg- ur. Æða og öndunarfæri þróast, vís- ir kominn að kynfærum, skynfærum og útlimum 6 v. er þar rnunnur, varir, tunga og mjólkurtennurnar 20 vaxa nú hratt. 7 v. sýnir fóstrið viðbrögð við áreiti, 8 v. finnur það til, kreppir litla hnefa, 10 v. hefur það fengið fullkomna mannsmynd. 11 v. kyngir það, sofnar, vaknar, 12 v. heyrir það.--Viðbrögð við há- vaða skýr, viðbrögð við tónlist mæl- ast. 18 v. sýgur það puttann sinn. Sú hugmynd vísindamanna að hjálpa óbyijum til bameigna með því að taka egg úr nokkurra vikna kvenfóstri sem hefur verið fjarlægt Hulda Jensdóttir „Þegjandi og hljóða- laust er ríkisstyrkta risafyrirtækið fóstur- eyðing- rekið óáreitt á þeim fölsku forsendum að fóstrið, barnið í móð- urlífi, sé ekki mann- eskja.“ úr móðurkviði og koma því fyrir í legi óbyijunnar, er enn ein sönnun þess að fóstrið, barnið í móðurkviði, er lifandi manneskja og svo mikið lifandi, þrátt fyrir ungan aldur, að örsmátt egg úr líkama þess getur orðið að manneskju í öðrum líkama, öðru legi, sem veitir því skjól og næringu til vaxtar og þroska. Flest okkar sem eldri erum drukk- um í okkur með móðurmjólkinni virðingu fyrir mannslífum, einnig því smáa í móðurlífi. Við vissum fljótt að barnið þar var einstaklingur með sín sér einkenni sem enginn annar átti og ekkert gat frá honum tekið. Við vissum að kyn hans var ákveðið frá upphafí, augnlitur, hár- litur og yfírbragð allt. Við vissum það og að rödd hans yrði ekki sú sama og nágrannans, hann mundi tala, hugsa og syngja öðruvísi og eiga sína eigin drauma. Nú þarf ekki trú hvað þetta áhrærir, vísindin hafa sannað það allt. Maður skyldi ætla að aukin þekking yki einnig virðingu fyrir sköpunarverkinu mað- ur, en svo er víðsfjarri. Tæknifijóvg- un, hjálp foreldrum til handa, sem gladdi heimsbyggðina á sínum tíma, hefur snúist í öndverðu sína eins og margir óttuðust. Ef nútímakona vill eignast ljós- hærða hávaxna stúlku, en genarann- sóknir sýna að barnið sem hún geng- ur með er lágvaxinn strákur, þarf hún ekki annað en lyfta hendi. Henn- ar er valið. Fyrst er það vísindamað- urinn sem gefur úrskurðinn um strákinn og síðan hinn vísindamað- urinn sem fjarlægir niðurstöðuna, hið óæskilega „modell". Fósturhlutar og fylgjur streyma í tugþúsundatali dag hvern til þekktra snyrtivörufyrirtækja, notaðar í svo- kölluð hrukkukrem fyrir konur. í Morgunblaðinu 80. árgangi og 81. tölublaði, stóð orðrétt í frétt sem þar birtist: „Merieux fær að meðaltali 19 tonn á dag víðsvegar að úr heim- inum.“ „Hluti þeirra er seldur öðrum rannsóknarstofum...", „Að sögn talsmanns franska fyrirtækisins Roc er sérstakur legköku(fylgju)kraftur notaður í þrenn hrukkukrem fyrir- tækisins.“ Tilvitnun lýkur. Margir líta svo á að fóstureyðing- ar — í þeirri mynd, sem nú blasir við, sé mesta hörmung sem yfír heimsbyggðina hefur komið. í kjöl- far þeirra hefur lítilsvirðingin fyrir mannlegu lífi aukist eins og dæmin sanna. I framhaldi þar af koma svo „líknardráp" á ungum og öldnum, hungurdráp á óæskilegum börnum, hjálp til sjálfsvíga, leikur með mann- legt líf á rannsóknarstofum, svo sem einræktun og erfðafræðilegar fjöld- atilraunir að ógleymdu því síðasta að nýta egg úr deyddu fóstri til fijóvgunar. Allt sprottið af sama meiði, takmarkalausu virðingarleysi. Mannleg reisn er fótum troðin. Þannig hafa vísindin, sem áttu að efla alla dáð orðið að hrollvekju á þessu sviði. Um það eru fjölmörg dæmi, en hér verður staðar numið. Óbyijan þarf ekki egg frá líflátnu fóstri til að uppfyllist óskin um að eignast barn. Á íslandi einu gætu 6-7 hundruð barnlausar fjölskyldur eignast ár hvert yndislegt bam, sem gæfí lífinu aukið gildi. Konur sem hafa gengið í gegnum lífsreynsluna fóstureyðingu og þær konur sem vegna tímabundinna erf- iðleika eða óbærilegs þrýstings telja sig ekki eiga annarra kosta völ en að fara í fóstureyðingu eiga alla samúð og kærleik skilið. Allt sem mögulegt er að gera þeim til hjálp- ar og stuðnings er skylda, en fóstur- eyðing leysir aldrei neinn vanda. Að vita barn sitt í góðum hönd- um, ef svo þarf að vera, en ekki horfið, er huggun sem snýst í ómælda gleði þegar fram líða stund- ir. í því felst farsæl lausn. Barn er ekki eign, hvorki kynfor- eldris né kjörforeldris. Það er tíma- bundin gjöf, verðlaun án eignarétt- ar. Kvöð þess sem á heldur er — að fara vel með, gera sitt besta, elska, varðveita, styrkja, leiða til þroska og farsældar, svo sem kost- ur er. Mættum við á Islandi bera gæfu til að loka fyrirtækinu fóstureyðing sem slíku. Mætti íslensk þjóð bera gæfu til að standa vörð um öll sín börn og bjóða þau hjartanlega vel- komin. Það er rúm fyrir þau öll. Höfundur er framkvæmdastjóri Þumalínu ogfv. forstöðukona Fæðingarheimilis Reykjavíkur. Byggðastefna í blindgötu Um nefndarálit og tillögur nefndar um flutning ríkisstofnana út á land eftir Vigfús Erlendsson í júlí á síðasta ári kom út skýrsla með tillögum nefndar um flutning ríkisstofnana, sem skipuð var af forsætisráðherra - til þess að gera úttekt á og tillögur um flutning rík- isstofnana út á land. Skýrslan skiptist upp í fimni kafla. í fyrsta kafla er skilgreining á störfum nefndarinnar. Annar kafli er um flutning stofnana frá höfuð- borgarsvæði til landsbyggðar. Tek- ið er fram að til að meta hvort hagkvæmt sé og æskilegt að flytja stofnanir, sé tekið mið af margvís- legum atriðum, sem snerta eðli þeirra og hlutverk. Síðan er fullyrt að eftir margháttaða athugun ýmissa stofnana séu nokkrar valdar til flutnings. Það var greinilega fyr- irfram búið að ákveða að gera til- lögur um flutning einhverra stofn- ana hvað sem tautaði og raulaði, án tillits til málefnalegra raka. Hvað varðar hina yfirlýstu marg- háttuðu athugun, þá er hún ekki upp á marga fiska. Eftir þeyting á milli stofnana, sem nefndarmenn vissu greinilega í flestum tilfellum lítið um, t.d. hlut- verk, verkefni eða staðsetningu, yfirborðsleg viðtöl við stjórnendur og starfsmenn og greinilega nokkuð jaml, japl og fuður kom svo hið merka plagg út. Þetta var náttúru- lega löngu eftir áður áætlaða tíma- setningu, enda þurftu nefndarmenn að vanda sig vel, það var auðvitað vandasamt að skipta „kökunni“ rétt. Æins og fyrirfram mátti gefa sér höfðu þingmennirnir fundið sér nokkrar ríkisstofnanir til þess að skipta bróðurlega á milli 7 kjör- dæma. Þriðji kafli skýrslu flutnings- nefndar er um flutning stofnana að hluta eða útibúastefnu. Fjórði kafli skýrslunnar fjallar um aðgerð- ir til að jafna aðstöðu landsmanna eftir búsetu. Þar er rætt um að sýslumannsembættin verði gerð að almennum umboðsskrifstofum fyrir svæðisbundna stjómsýslu og flutn- ingi verkefna út á land, bæði frá stofnunum og ráðuneytum. Fimmti kafli nefndarálitsins er síðan um hagnýtingu nútímatækni í fjarskiptum ogtölvumálum til fjar- vinnslu. 3.-5. kafli eru ágætir útaf fyrir sig og ættu ráðherrar og þingmenn að einbeita sér frekar og vinna frek- ar úr þeim köflum, en gleyma fyrsta kafla. Þegar skýrslan kom út var ég agndofa á þeim vinnubrögðum, sem greinilega voru viðhöfð. Þar sem ég átti síður von á að af svo fárán- legum hugmyndum yrði lét ég kyrrt liggja. Nú virðist sem eigi að fara að hrinda þessum hugmyndum í framkvæmd og því mál að rísa upp til andmæla. Erlendar fyrirmyndir Flutningsnefnd vitnar í erlendar fyrirmyndir og erlend rit um flutn- ing stofnana í nefndaráliti og tillög- um sínum frá í júlí sl., en heldur er það nú rýr lesning og virðast nefndarmenn lítt lesnir í þeim rit- um, sem vitnað er í. A.m.K. er ekki hægt að sjá í skýrslunni sjálfri vit- ræna umfjöllun, heldur eingöngu „Það var greinilega fyrirfram búið að ákveða að gera tillögur um flutning einhverra stofnana hvað sem taut- aði og raulaði, án tillits til málefnalegra raka. Hvað varðar hina yfir- lýstu margháttuðu at- hugun, þá er hún ekki upp á marga fiska.“ lista yfir rit og fullyrðingu um að úr þeim gögnum hafí verið unnið. Ekki er fjallað á neinn hátt um þann kostnað eða rask, sem af þeim flutningum hlaust. Vinnubrögðin hérna eru gagnrýniverð og skýrslan ber þess greinileg merki að það var búið að gefa sér ákveðna útkomu í upphafi. Má t.d. nefna að samfara flutn- ingum á stofnunum erlendis hefur gjarnan farið fram uppstokkun og endurskipulagning á stjórnskipu- lagi og starfsemi viðkomandi stofn- ana. Oftar en ekki er verið að sam- eina tvær eða fleiri stofnanir. Einn- ig hafa slíkir flutningar í flestum ef ekki ölllum tilfellum farið fram við góðar aðstæður í atvinnulífi. Dæmi um þetta er endurskipulagn- ing og flutningur á skipulags- og byggingarstofnun Svía, Boverket frá Stokkhólmi til Karlskrona fyrir nokkrum árum. Þó stór samfélög, sem búa við góðar hraðbrautir, lest- ir, feiju og flugsamgöngur og al- Vigfús Erlendsson mennt betri færð þar að auki geti ákveðið að flytja stofnanir frá höf- uðborg sinni, er þessu ekki til að dreifa hér á landi í okkar þjóðfélagi með okkar erfíðu vetrarsamgöngur. Bæði samgöngulega, þjónustulega og fjárhagslega eru slíkir flutningar hið versta óráð. Byggðastefnusnakk Merkilegt nokk heyrðist enginn þingmaður Reykvíkinga æmta eða skræmta, þegar skýrslan kom út, enda ekki von, hér var um „byggða- stefnu“ að ræða, hið eðla fyrir- bæri. Byggðastefna, sem þingmenn hampa gjarnan, heilagt og háleitt hugtakið er nokkuð, sem þingmönn- um og fieiri pólitíkusupi er gjamt að grípa til og tala í kringum mörg- um fögrum orðum, án þess nokkurn tímann að hafa sannað einhveija raunverulega byggðastefnu í verki. Það sem pólitíkusar hafa aðallega í raun sýnt í verki til þessa er and- byggðastefna og gjaldþrotastefna gagnvart landsbyggðinni. Það vant- ar hins vegar sjaldan fögur og há- stemmd orð um „byggðastefnu" og valddreifingu. Velferð stofnana og starfsmanna Áhugi á velferð starfsmanna og stofnana ásamt möguleikum þess- ara stofnana til þess að rækja sín hlutverk er ekki ofarlega í huga ráðamanna, þegar teflt er á skák- borði stjórnmálanna. Ákvarðanir sem lúta að flutningi stofnana virð- ast eiga að taka á öðram og veiga- minni grundvelli en velferð stofnan- ananna sjálfra og starfsmanna þeirra. Nei, þetta era einfeldnings- legar tillögur á grandvelli óljósra og órökrænna hugmynda um byggðastefnu. Því það er alltaf vænlegt til vinsældaveiða að veifa byggðastefnufánanum. Stjórnmála- menn ætla sér að gefa kjósendum blöðrur. Það vita hins vegar allir hvað loftið er gjamt að síga úr blöðrum og hversu gjarnar þær eru á að springa. Ef af þessum flutningum verður eiga þeir eftir að koma illilega aftan að landsbyggðinni og reyndar þjóð- inni allri í einangran og lakari þjón- ustu þessara stofnana, og miklu meiri kostnaði. Ef þingmenn og ráðherrar vilja rétta landsbyggðinni bakka með einhveijum raunverulegum krásum, þá ættu þeir að snúa sér að alvöru aðgerðum til uppbyggingar á at- vinnumálum og útrýmingar at- vinnuleysis. Höfundur er starfsmaður hjá skipulagi ríkisins í flutningauppnámi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.