Morgunblaðið - 05.03.1994, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 05.03.1994, Blaðsíða 48
tfgggtmliIfiMfr M M FTR M l\l Afl IIR MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN 1 103 REYKJAVÍK SÍMI 691100, SÍMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 3040 / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85 LAUGARDAGUR 5. MARZ 1994 VERÐ I LAUSASOLU 125 KR. MEÐ VSK. Hátt verð hefur fengist fyrir búra Frystiskip á búraveiðum REYTINGSAFLI hefur verið á búramiðunum suður af landinu undan- farnar vikur, og hafa frystiskipin í auknum mæli reynt fyrir sér við veiðarnar. Fiskurinn er þá hausaður og frystur, og að sögn Loga Þor- móðssonar hjá Trosi sf. í Sandgerði, stefnir í nokkurt framboð af fryst- um búra á næstunni þar sem fiskurinn hafi sýnt sig vera í veiðanlegu ástandi núna. Ferskur búri hefur allur verið seldur beint úr landi, að sögn Loga, en hann segir að farið sé fram á mjög hátt verð fyrir fisk- inn hér innanlands. Seld voru fimm kör af ferskum búra í Vestmanna- eyjum í fyrradag á 139 kr. kílóið, og í síðustu viku voru seld úr landi 35 kör, en að sögn Loga hefur heyrst að um 200 kr. hafi fengist fyrir kílóið í Bretlandi. Þá hafa fengist um 700 kr. fyrir kílóið af snyrtum -hýraflökum í Bandaríkjunum. Logi sagði í samtali við Morgun- blaðið að eini búrinn sem boðist hefði til vinnslu innanlands væri úr frysti- skipum og miðað við fyrri reynslu virtist sem búrinn ætli að veiðast vel á því tímabili sem nú fer í hönd. Mikil leynd hefur hvílt yfir því hvem- ig búrinn er veiddur, en menn þekkja þó orðið hvar fiskurinn heldur sig. 10 dollarar kílóið Helsti markaður fyrir ferskan búra hefur verið í Frakklandi, en Tros sf. tfífur hins vegar eingöngu keypt frystan búra til vinnslu og selt á Bandaríkjamarkað. Logi sagði að að minnsta kosti 10 dollarar hefðu feng- ist fyrir kílóið þar af fituflegnum búraflökum sem farið hafa beint á neytendamarkað. „Það er -hægt að selja alveg óhemju af frosnum búra, en hann þekkist nánast ekki öðm- vísi. Vinnslan hefur hins vegar ekki verið alveg tilbúin til að gera þetta, enda hafa húsin kannski ekki fengið svo mikil tækifæri til að þróa þessa vinnslu þar sem þetta hefur að mestu leyti farið beint út og verið á háu verði miðað við takmarkað magn,“ sagði Logi. Lítið fengist upp á síðkastið Kristján Ragnarsson, formaður LÍÚ, sagði að fengist hefði mjög gott verð fyrir búrann, en hins vegar hefði tekist mjög illa að ná honum. „Hann hefur fyrst og fremst haldið sig hér suður af landinu á miklu dýpi, og þær veiðislóðir hafa menn haft svolítið hver fyrir sig,“ sagði hann. Magnús Kristinsson hjá Bergi- Hugin í Vestmannaeyjum tók í sama streng og Kristján og sagði að lítinn afla hefði verið að fá síðustu daga, en hins vegar hefði Vestmannaey VE fengið dágóðan búraafla fyrir skömmu, eða um 60 tonn sem seld voru heilfryst til vinnslu innanlands. Búrinn eftirsóttur Morgunblaðið/Þorkell HAGKAUP í Kringlunni bauð viðskiptavinum sínum upp á búra í gær á 699 kr. kílóið og að sögn Ragnars Arnars Steinarssonar starfsmanns verslunarinnar seldist búrinn ágætlega. Hann sagði að þetta árið hefði búri ekki verið til sölu í Hagkaupi fyrr en í gær, en mikið hefði verið spurt um hvort hann væri ekki væntanlegur. A myndinni sést starfsmaður Hagkaups koma búraflökum fyrir í fiskborði verslunarinnar. Mesta smygl ítvöár FIMM skipveijar á Úranusi hafa játað að eiga smyglvarn- ing sem fannst við leit um borð í skipinu í gærmorgun. Alls er um að ræða 340 lítra af 75% vodka, 47 lítra af öðru áfengi, m.a. viskí og koníaki, og um 35 þúsund vindlinga eða 175 lengjur. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins er þetta stærsta smyglmál sinnar tegundar sem upp hefur kom- ist seinustu tvö ár. Úranus er leiguskip á vegum Samskipa og siglir undir þýskum fána. í áhöfn eru fimm Islend- ingar, sem stóðu að smyglinu, og ellefu skipverjar af öðrum þjóðernum. Smyglvamingurinn fannst falinn í skápum og öðrum hirslum í káetu skipveija, þang- - að sem hann hafði verið fluttur frá öðrum geymslustað í skipinu. Talið er að vamingurinn hafi verið keyptur í Þýskalandi, en rannsókn stendur enn yfír. Úr- anus fékk brottfararleyfi um klukkan 20 í gærkvöldi en áfram var leitað í gámum þeim sem skipið flutti hingað til lands. Hafði sú leit engan árangur bor- ið í gærkvöldi samkvæmt heim- ildum blaðsins. Viðskíptaráðherra um lagafrumvarp sem afnemur flutningsjöfnun á olíuvörur Mun auka mjög á sam- keppni milli olíufélaga Eykur möguleika íslenskra fyrirtækja á olíuviðskiptum við erlend skip SIGHVATUR Björgvinsson viðskiptaráðherra lagði fram frum- varp á ríkisstjórnarfundi í gær um niðurfellingu laga um flutn- ingsjöfnunarsjóð og innkaupajöfnun olíu og bensíns. Frumvarp- ið gerir ráð fyrir að flutningsjöfnun af olíu og bensíni verði felld niður. Sighvatur segir þetta hafa í för með sér að verð á olíu og bensíni verði ekki lengur það sama hvar sem er á landinu og muni auka mjög samkeppni milli olíufélaganna. Hann segir allar líkur á að verulegt verðstríð hefjist milli olíu- félaganna verði frumvarpið að lögum. Sighvatur sagði að rætt hefði verið fyrir tveimur árum að af- nema flutningsjöfnun á olíu og bensíni en ekkert hefði orðið af því þá. „Nú hefur komið í ljós að þetta stendur meðal annars í vegi fyrir viðskiptum okkar við skip sem koma hingað til lands að landa afla og til viðgerða. Vegna hás olíuverðs sem af þessu leiðir þýðir það að þessi skip skipta ekki við okkur um olíuvörur, heldur sigla héðan eftir landanir til hafna í Noregi eða í nærliggjandi löndum, þar sem þau fá olíuna á miklu lægra verði. Þetta er þáttur í að gera okkur mögulegt að eiga eðli- leg viðskipti við þá aðila sem vilja eiga viðskipti við okkur,“ sagði ráðherrann. Allar líkur á verulegu verðstríði Aðspurður um áhrifin á verðsamkeppni olíufélaganna sagði Sighvatur Björgvinsson: „Þetta mun auka mjög sam- keppni. Það verður ekki sama olíu- og bensínverð hjá öllum olíufélög- unum allsstaðar á landinu. Það eru allar líkur á því að það muni hefj- ast verulegt verðstríð þeirra á milli,“ svaraði hann. Geir Magnússon, forstjóri 01- íufélagsins hf., sagði að þetta kæmi sér verulega á óvart. Honum hefði verið kunnugt um að breyta ætti lögunum en hann hefði aldrei heyrt að til stæði að afnema flutn- ingsjöfnunina. Hann vildi ekki tjá sig frekar um málið fyrr en hann hefði séð hvað frumvarpið fæli í sér. I gildi um næstu áramót Samþykkt var í ríkisstjórninni í gær að leggja frumvarpið fyrir þingflokka ríkisstjórnarinnar. Sig- hvatur sagði að þingflokkarnir ættu eftir að taka afstöðu til máls- ins, en ef frumvarpið yrði afgreitt á Alþingi í vor gætu lögin gengið í gildi um næstu áramót. Tap Landsbanka vegna SIS um einn milljarður ÁÆTLAÐ er að Landsbanki íslands þurfi í heild að afskrifa um einn milljarð króna, vegna tapreksturs eða gjaldþrota Sam- bands íslenskra samvinnufélaga og dótturfyrirtækja þess. A undanförnum tveimur árum hefur Landsbankinn lagt í afskrifta- reikning vegna tapaðra útlána til Sambandsins og dótturfyrir- tækja þess liðlega 700 milljónir króna. Áætlað er að á þessu ári muni Landsbankinn þurfa að leggja í afskriftasjóð vegna dóttur- fyrirtækja Sambandsins á milli 200 og 300 milljónir króna. ins og fýrirtækja þess komi til Samkvæmt upplýsingum Morg- unblaðsins áætla forsvarsmenn Landsbankans að heildartap bank- ans vegna upplausnar Sambands- með að verða í kringum einn millj- arður króna, þegar upp er staðið. Þrátt fyrir þessa háu taptölu, vegna viðskipta við fyrrum dóttur- fyrirtæki Sambandsins og SÍS, eru forsvarsmenn Landsbankans þeirrar skoðunar, að með stofnun Hamla, eignarhaldsfélags Lands- bankans um eigur Sambandsins og sölu þeirra eigna sem voru teknar upp í skuldir Sambandsins við Landsbankann, hafi bankanum tekist að forða bankanum frá millj- arða áföllum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.