Morgunblaðið - 05.03.1994, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 05.03.1994, Blaðsíða 32
32 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. MARZ 1994 Þorleifur Ámi Reynisson - Minning Ég var sjö ára þegar ég kynntist Þorleifi fyrst. Ég var í ísaksskóla, jafngamall Þorleifí. Við urðum fljótt bestu vinir og vorum enn þegar hann féll frá skyndilega. Þorleifur var alltaf mjög vitur um alla hluti og ef kennarinn spurði okkur erfíðrar spurningar var það venjulega Þorleifur sem vissi svarið. Ég ímyndaði mér oft að Þorleifur ætti eftir að verða ríkur því að hann hafði mjög gott fjármálavit. En það besta og mikilvægasta var að Þorleifur var traustur og góður vinur. Þorleifur minn, ég vona að þú verðir vel geymdur í Guðs ríki og að hin góða minning þín megi ætíð iifa. Við þessi orð Áma viljum við foreldrar bæta nokkrum orðum: Það var okkur öllum mikið happ og gleði þegar við eignuðumst kunningsskap og vináttu Þorleifs Árna, Líneyjar og Reynis. Vinátta drerigjanna var traust frá upphafi. Enginn fær því þeim harmi lýst í orðum sem slysið ógurlega vakti, slysið sem tók líf Þorleifs Árna, á ~i-3. ári. Þann harm munum við bera lengi, svo skært var ljósið sem slokknaði. Við sem eigum böm á þessum aldri skynjum og skiljum hvað á foreldra Þorleifs er nú lagt. Þorleifur var skarpur og næmur drengur, mikill rannsóknarhugur, en líka glaðsinna, áhugamálin óvenjuleg, ímyndunaraflið frjótt og uppátækin mörg. Á hugann leita ólík minningabrot. Vinátta sem hófst í ísaksskóla, dagsheimsóknir, næturgisting, dvöl í Vatnaskógi, íárengur sem kunni ensku reiprenn- andi, var að læra frönsku, kunni skylmingar og að spila á harmon- iku, drengur sem hafði farið svo víða. Það er ómetanlegt fyrir for- eldra að vita böm sín í slíkum fé- lagsskap. Megi hin bjarta minning sem við eigum um Þorleif Árna Reynisson milda sorg Líneyjar, Reynis og ann- arra aðstandenda, okkar allra. Árni Helgason, Gerður og Helgi. í dag er frændi minn, Þorleifur Árni Reynisson, borinn til grafar. Mér finnst það hafi verið í gær sem mamma sagði mér að Líney og Reynir væm búin að eignast dreng. Það fór um mig sælutilfinning, ég hafði eignast lítinn frænda. Er tímar liðu varð hann vinur og bróð- ir í senn. Eftir því sem árin liðu komu æ betur í ljós ágætir persónueiginleik- ar hans. Ég man eitt sinn þegar Þorleifur var ekki meira en fjögurra ára að hann kom í jólaboð til okk- ar. Þar var hundurinn Lubba sem var orðin gömul og ergileg. Þorleif- ur óð beint að hundinum, Líney varð hrædd, en það var óþarfi. Með blíðuhótum sefaði hann krakka- fælnu Lubbu sem strax tók Þorleifi sem góðum vini. Þorleifur var stór og stæltur þeg- ar sem lítið barn og ég sagði alltaf við hann að eitt sinn myndi hann spila körfubolta eins og ég. En með árunum lagði hann stund á skylm- ingar, sú íþrótt sameinaði kraft, fegurð og list en þessi þijú orð áttu vel við Þorleif Áma sem með sínum mikla metnaði og þrotlausu æfing- um skaraði fram úr í íþrótt sinni. Yndislegustu dagar mínir sl. sumar voru þeir þegar Þorleifur var með mér á tveggja daga golfmóti á Hvaleyrinni. Eg sótti hann um morguninn sem mótið byijaði og bjóst við að ég þyrfti að skýra fyr- ir honum allar reglur og um hvað þetta allt snerist. En það var óþarfi, Þorleifur þekkti allar reglumar. Þann dag þrömmuðum við frændur um grænar grundir og spjölluðum um alla heima og geima. Þeir sem voru með okkur spurðu hver þetta væri. „Þetta er frændi minn,“ svar- aði ég stoltur. Menn spurðu hvort hann spilaði golf því að þeir sáu og heyrðu að hann kunni heilmikið fyrir sér í listinni. Jú, Þorleifur kvaðst spila golf - en bara í tölv- unni sinni. Við svar hans varð „gen- eral“ hlátur. Þorleifí brást ekki húmorinn frekar en fyrri daginn. Seinni mótsdaginn var rigning og mér gekk ekki sem best en frændi minn stappaði i mig stálinu og sagði: „Þér gengur þó vel með pútt- in.“ Alltaf tókst honum að sjá eitt- hvað jákvætt við alla hluti. Þegar mótinu var lokið ákváðum við frændur að byija að æfa golf næsta sumar undir leiðsögn minni. Það verður ekki í bráð en einhvern dag- inn munum við frændur samt ganga eftir grænum grundum en þá verð- ur Þorleifur leiðbeinandinn minn. Þegar ég var lítill las mamma fyrir mig bókina Bróðir minn Ljóns- hjarta eftir Astrid Lindgren. Það varð uppáhaldsbókin mín og ég veit að mamma hans Þorleifs las hana líka fyrir hann. Mig langar að enda þessi minningarorð á til- vitnun í bókina: „„Veistu að ég dey bráðum?“ sagði ég grátandi. Jónat- an hugsaði sig um andartak. Það var eins og hann vildi ekki svara þessu en svo sagði hann. „Já, ég veit það.“ Þá grét ég enn sárar. „Hvemig getur nokkuð svo hræði- legt gerst að sumir verði að deyja þegar þeir eru ekki einu sinni orðn- ir tíu ára?“ Veistu Snúður, mér finnst það ekki svo hræðilegt," sagði Jónatan. „Ég held að þér muni þykja það mjög gaman.“ „Gaman!“ sagði ég. „Er eitthvað gaman að liggja dauður niðri í jörð- inni?“ „Uss,“ sagði Jónatan. „Það er bara hulstrið utan um þig sem liggur þar. Þú sjálfur flýgur burt á allt annan stað.“ „Hvert þá?“ spurði ég forviða því ég gat næstum ekki trúað því sem hann sagði. „Til Nangijala,“ sagði hann.“ Hver veit nema það verði í Nangijala þar sem við Þorleifur frændi hittumst næst. En hvar sem það verður verða fagnaðarfundir. Ég kveð elskaðan frænda minn með þakklæti fyrir allt sem hann gaf mér og allt sem hann var mér á sinni stuttu ævi. Þinn frændi, Friðfinnur V. Hreinsson Ungur drengur er látinn. Hjart- kær systursonur, einkabarn móður sinnar, hefur lokið allt of skammri jarðvist sinni. Hjartasárin blæða. Fyrir næstum hálfri öld lá lítil stúlka í hnipri milli tveggja hey- galta á túninu á Húsafelli í Hafnar- firði. Hún lá á bæn og bað guð sinn í hljóði að barnið, sem móðir henn- ar var að fæða, yrði falleg og heil- brigð systir. Guð heyrði bænina og um kvöldið kom í heiminn yndisleg stúlka. Þetta var Líney, litla systir- in langþráða, og nú voru systurnar á Húsafelli orðnar þijár auk stóru bræðranna. Þrátt fyrir talsverðan aldursmun á okkur systrunum mynduðust milli okkar náin tengsl þegar á unglingsárum mínum. Móð- ir okkar var heilsuveil og dó frá okkur ungum og þar sem ég var elst mátti oft ekki á milli sjá hvort ég var í hlutverki móður eða syst- ur, einkanlega þegar Líney átti í hlut. Árin liðu og við systkinin eignuð- umst maka og börn en einn skugga bar á. Líneyju varð ekki barna auð- ið. Allra leiða var leitað en allt kom fyrir ekki. Guð ætlaði víst ekki að gefa henni barn. Þá ákvað stóra systir að taka til sinna ráða. Fallega stúdentsmyndin af Líneyju var sett upp á hillu heima hjá mér og við hlið hennar undurfögur stytta af móður með nýfætt barn í fangi sér. Daglega horfði ég á konurnar mín- ar á hillunni, systur mína og móður- ina með barnið, og bað guð þess jafnheitt og ég hafði 'beðið hann forðum daga þegar Líney fæddist að gefa henni barn. Enginn vissi þetta nema við Líney, þetta var leyndarmálið okkar. Loksins, loks- ins leit út fyrir að bænirnar hefðu verið heyrðar, Líney átti að fá úr- skurð um það hvort hún væri barns- hafandi eða ekki. Þennan dag var jarðarför í ættinni svo að ég gat ekki verið heima til að fá fréttirnar en við komum okkur saman um að ef svarið væri jákvætt kæmi Líney í kirkjuna í hvítu nýju sumarkáp- unni sinni. Ég man ennþá gleðina sem gagntók mig þegar Líney gekk inn eftir kirkjugólfinu í hvítu káp- unni. Um leið stafaði sólin geislum sínum inn um gluggann og baðaði hana ljósi. Kraftaverkið hafði gerst, guð hafði heyrt bænir okkar, hann ætlaði að gefa Líneyju barn. Þetta barn var Þorleifur Árni, sólargeisl- inn hennar og kraftaverkið mitt, sem kvaddur er i dag í hinsta sinn. Frá fyrstu stundu var þessi ynd- islegi drengur sannkallaður sólar- geisli og gleðigjafí öllum sem hon- um kynntust. En einkum þó foreldr- um sínum, þeim Líneyju Friðfinns- dóttur og Reyni Oddssyni. Og þau kunnu svo sannarlega að meta sól- argeislann sinn. Oft á lífsleiðinni hef ég kynnst góðum foreldrum en ég vona að ég halli ekki á neinn þegar ég segi að enga foreldra hafi ég þekkt sem ræktuðu barnið sitt eins og vel og þau gerðu. Ekki með dekri eða ofgnótt veraldlegra hluta heldur með kærleika sínum og umhyggju. Af hvoru tveggja áttu þau nóg. Þau töluðu við hann, hlust- uðu á hann, lásu fyrir hann og völdu honum hollt lestrarefni. Þau komu fram við Þorleif Árna frá fyrstu tíð af þeirri virðingu, tillitssemi og kurteisi sem þeim er eðlislæg. Þau leiðbeindu honum og hrósuðu en tóku aldrei ábyrgðina frá honum, ábyrgðina á eigin orðum og gerð- um. En fyrst og fremst elskuðu þau hann og ást þeirra nær út yfir gröf og dauða. Þorleifur Árni var frá fyrstu bemsku miklu þroskaðri en aldur hans sagði til um. Það kom vel í ljós sl. haust þegar leiðir foreldra hans skildu. Þá var hann ekki leynd- ur neinu heldur var hann, eins og endranær, fullgildur viðmælandi. Þrátt fyrir erfiðleika þá sem foreldr- ar hans gengu í gegnum var hagur barnsins það sem skipti þá mestu máli. Satt að segja var stórkostlegt að fylgjast með hvemig þessi litla fjölskylda komst yfir þennan erfiða hjalla og hvernig foreldramir rækt- uðu samband sitt sem vinir. Vinir sem hlutu að skilja en áttu sér samt sem áður sameiginlegt takmark; heill og hamingju barnsins síns. En nú þyrpast minningarnar að, einstök atvik skýrast og ég endur- lifi atburðina. Lítill fjögurra ára drengur liggur mér við hlið í stóra hjónarúminu. Mamma er að fljúga og pabbi staddur erlendis vegna atvinnu sinnar. Þá er gott að vera hjá Helgu frænku, Hreini, Friðfinni og Elínu Önnu. Ekkert finnst litla frænda eins gaman _og að láta spyija sig spurninga. Ég er undir- búin og hef sankað að mér heilum bunka af spurningum. En það er sama hversu erfiðar spumingarnar em, sá litli veit ævinlega svarið. Loks get ég ekki orða bundist og segi: „Þorleifur minn, hvemig veistu svona mikið?“ Þá ljóma fal- legu augun og hann svarar: „Mamma og pabbi era búin að segja mér þetta allt saman.“ Stoltið yfir þeim leyndi sér ekki. Við erum á leið heim eftir vorhá- tíð í ísaksskóla. Frændi lýsir fyrir mér kennaranum, bekkjarsystkin- um sínum og skólalífinu. Hann er rólegur og yfírvegaður og segir skipulega frá, m.a. frá því hvernig hann fékk hrist af sér hrekkjusvín sem létu hann ekki í friði. Þau lögðu hann í einelti um haustið en í jólafrí- inu hugsaði hann upp ráð til að ná tökum á tilerunni. Hann gerði sér áætlun svo pottþétta að ég hugsaði með mér hvaða herforingi sem væri gæti verið stoltur af slíkri áætlun. „En dugði hún,“ spurði ég, „láta hrekkjusvínin þig nú í friði, Þorleifur minn?“ „Ja-há alltaf,“ sagði hann „og ekki bara mig held- ur vin minn Iíka.“ Auðvitað, hann hugsaði líka um vin sinn. Hann er að útskrifast úr ísaks- skóla. Við eram þarna öll, foreldr- arnir ljóma af stolti yfir efnilegum drengnum sínum. Hann fer með kvæði eftir Halldór Laxness. Hann er yfirvegaður eins og æfður ræðu- maður eða leikari og flytur ljóðið skýram rómi. Alltaf sama rólega fasið, þrátt fyrir að hann sé feiminn að eðlisfari. Ég er að flytja á Tjarnarbraut- ina. Þorleifur Ámi er að hjálpa til og er dijúgur við verkið. í nokkrum kössum, sem eru ekki alveg lokað- ir, eru gömlu bækurnar barnanna minna og allt í einu er Þorleifur horfinn. Við föram að svipast um eftir honum og loksins finnst hann í einu herberginu. Þar situr hann á gólfinu flötum beinum með bók í kjöltunni, niðursokkinn í lestur. Þarna hefur hann komist í feitt. Auðvitað fékk hann bækurnar lán- aðar og á nokkrum dögum hafði hann innbyrt þær allar. Hann var ótrúlega afkastamikill og góður les- ari, las bæði hratt og vel og mundi auk þess allt sem hann las enda frábær námsmaður. Ég er komin í heimsókn í Mið- skóga, þangað sem fjölskyldan er nýflutt. Faðir Þorleifs er ekki heima, við Líney systir ætlum að spjalla saman eftir að Þorleifur er kominn í rúmið. Eins og ævinlega er tekið á móti manni eins og um sé að ræða tiginn þjóðhöfðingja. Þannig er Líney, hlý og nærgætin. Þorleifur sýnir mér nýja herbergið sitt og ég dáist að því hvað það er fallegt og hvað öllu er þar smekk- lega fyrir komið. „Já, hún mamma gerði það,“ sagði frændi minn og stoltið leyndi sér ekki. Þorleifur var lasinn þetta kvöld og fékk að sitja hjá okkur um stund, vafinn í sæng- ina sína og hjúfraði sig að móður sinni. Við systurnar fórum að ræða um lífið og tilveruna og velta fyrir okkur stóru spurningunum sem aldrei fást svör við. Eftir dijúga stund áttuðum við okkur á því að það hafi gleymst að senda drenginn í rúmið. En hann hafði ekki verið óvirkur hlustandi heldur sem full- þroska viðmælandi, greindarlegur, þroskaður og fróður langt umfram það sem mátti búast við eftir aldri hans. Þá flaug mér í hug það sem Jónas Hallgrímsson segir um lang- lífi og skammlífi: Hvað er langlífi? Lífsnautnin frjóva, alefling andans og athöfn þörf. Fyrir dijúgum mánuði fór Þor- leifur með mér og fjölskyldu minni í Ieikhús að horfa á frænku sína Elínu Önnu leika í skólaleikriti. Hann var ánægður með leikritið og bæði hrifinn og stoltur af frænku sinni á sviðinu. Á eftir töluðum við systurnar um það að taka upp fyrri siði og fara saman í leikhús og ferðalög og rækta enn betur sam- band frændsystkinanna. Við höfð- um fyrir löngu gert okkur ljóst hversu mikilvægt það er að eiga frændfólk og vini þegar á bjátar og lífið fer um mann ómjúkum höndum. Eða hvert á að sækja styrk ef ekki til nánustu skyldmenna sinna? Og nú væri brátt komið að næstu kynslóð að rækta vináttu og frændsemi. Þó að við vissum það ekki þá var Þorleifur Árni raunveru- lega að kveðja mig og fjölskyldu mína þetta yndislega síðdegi. Núna vil ég muna hann eins og hann var þá. Ég vil muna hlýjuna í augum hans og þeirra frændsystkina beggja er hann kyssti frænku sína og óskaði henni til hamingju með leikinn, glettnina og alvöruna til skiptis í máli hans er þeir frændur lögðu á ráðin um framtíðina og hlýj- una í svipnum er hann kvaddi mig með kossi en þannig kvaddi hann mig ævinlega. Algóður guð blessi hann og veiti foreldrum hans og öllum þeim sem elskuðu hann styrk til að standast þá miklu raun sem nú er á þau lögð. Þín móðursystir, Helga Friðfinnsdóttir. t Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, KRISTINN SVEINSSON, Hafnarbraut 22, Hólmavík, lést í sjúkrahúsinu á Hólmavík 4. mars. Börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. t Útför ástkærrar eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, FRIÐRIKKU M. JÓNSDÓTTUR, Hrafnistu, Reykjavík, sem lést þann 25. febrúar, hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Fyrir hönd dætra og annarra aðstandenda, Valmundur Þorsteinsson. t Þökkum innilega auðsýnda samúð við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu, langömmu og langalangömmu, MÖRTU JÓNSDÓTTUR frá Nýborg, Akurgerði 5, Akranesi. Magnús Guðmundsson, Ester Jónsdóttir, Anna Guðmundsdóttir, Sigurður Geirsson, Dóra Guðmundsdóttir, Karl H. Karlsson, Steinunn Guðmundsdóttir, Guðmundur Guðbjörnsson, Aðalbjörg Guðmundsdóttir, Ásgeir Kr. Ásgeirsson, Sigurður Guðmundsson, Nanna Sigfúsdóttir, Pálmi Guðmundsson, Hanna Benediktsdóttir, Elín Sveinsdóttir, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.