Morgunblaðið - 05.03.1994, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 05.03.1994, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. MARZ 1994 17 GISLI FERDINAN'OSSON H F. Austurstræti 3,sími 14033- Sleinaríki v/Lxkjargötu, sími 610140. >4lafossbúðin Pósthússtræti 13, sími 13404 Lækjargötu 6a, sími 20937. Hafnarstræti 5, símar 1 67 60 og 1 48 00 Austurstræti 17, s. 10151 og 11321 PARÍSARbÚðin RAMMA Austurstræti 8, sími 14266 GERÐIN Hafnarstræti 19,sími 17910. Eymundsson ** STOFNSETT 1872 Austurstræti 18, s. 13135 og 18880 FOKUS HF. Lækjargötu 6b, sími 15555 LONDON Dömudeild, Austurstræti 14,sími 14260. ULLARHÚSIÐ THE W00LH0USE Adalstræti 4,sími 26970. THORVALDSENSBASAR Austurstræti 4,sími 13509. Fuku yfir jökul ATLI og Gunnar Páll á rokþotunni á fullri ferð. Létu sig fjúka yfir Mýrdalsjökul Bflarnir höfðu ekki við í lokin FIMM nemendur Mcnntaskólans við Sund sigldu farartæki sem þeir nefna rokþotu yfir Mýrdalsjökul síðastliðinn þriðjudag. Hefur hið nýstárlega farartæki verið í smíðum undanfarna mánuði og var ferð- in farin til þess að vekja athygli á 25 ára afmæli skólans sem haldið er hátíðlegt í dag og verður rokþotan meðal annars til sýnis í skólan- um. Piltarnir segjast hafa lent í ýmsum ógöngum vegna færðar á leiðinni en undir lokin voru jepparnir sem fylgdu þeim hættir að hafa við en þá lá leiðin niður í móti. Piltarnir fimm, Atli Karl Ingi- marsson, Bergur Stefánsson, Eiríkur F. Einarsson, Gunnar Páll Eydal og Sigurður Ó. Sigurðsson, lentu í ýms- um hrakningum á leiðinni vegna þungrar færðar. Þeir lögðu af stað á mánudag en þurftu að gista í skála á Sólheimajökli fram á þriðjudags- morgun vegna veðurs. Klukkan tíu um morguninn lögðu þeir svo loks af stað en ferðin tók um tíu tíma. Drengjunum fylgdu tveir jeppar og voru þeir yfirleitt tveir á þotunni í einu. Bergur og Gunnar sögðu í sam- tali við Morgunblaðið að ferðin hefði verið farin til þess að vekja athygli á afmælinu en merki skólans er á segli þotunnar. „Við áttum í öllu mögulegu basli á leiðinni vegna færðar en hins vegar vorum við vel útbúnir og ferðin gekk ótrúlega vel. Það er til dæmis bæði talstöð og neyðarblys á þotunni. Við vorum líka með hraðamæli tengdan við hjólið sem er að aftan en hann sýndi 8-10 kílómetra hraða að meðaltali. Við héldum í norð-norð-austur og þegar við vorum að koma að jökulröndinni hættu bílarnir að hafa við okkur enda lá leiðin niður í móti. Svo bætti í vindinn, sem hafði ekki verið mjög mikill fram að því. Ætli við höfum ekki verið komnir hátt á þriðja tug. En við fórum ekki lengra því jökull- inn er talsvert sprunginn þar,“ segja þeir Bergur og Gunnar að lokum. Nemendur og starfslið Menntaskólans við Sund halda upp á 25 ára afmæli skólans í dag Hef aldrei séð nem- endur jafn áhugasama Langur laugardagur ' miöbænum Opiö frá kl. 10 til 17 Afmælishátíð PÉTUR Rasmussen rektor Menntaskólans við Sund og Hulda Þórisdóttir gjaldkeri nem- endafélagsins. ið útundan og að menn hafi ekki tekið eftir okkur. Við vitum ekki almennilega hvað veldur þessú. Hug- myndin hefur því verið að opna skól- ann og sýningin í dag miðast auðvit- að að því að vekja athygli fólks á skólanum og skapa honum sterkari ímynd. Við viljum leggja áherslu á sérstöðu okkar og teljum að hér hafí sú hefð alltaf verið ríkjandi að taka meira tillit til einstaklingsins. Lögð er áhersla á að halda í bekkjar- kerfið því við teljum að nemendur þrífist betur í bekk en í áfangakerf- inu þar sem þeir geta orðið ein- mana.“ Morgunblaðið/Þorkell Framkvæmdagleði NEMENDUR Menntaskólans við Sund mála skólann og nánasta umhverfi eins og það var þegar hann var við Tjömina. Tekið tillit til allra „Síðan var sett á laggirnar í fyrsta skipti í vetur sérkennsla fyrir nem- endur sem gengið hefur illa í jóla- prófum. Nemendur sem eiga í erfið- leikum í námi hætta ekki lengur í skóla því þeir hafa ekki að nokkru að hverfa á vinnumarkaðinum. Þeir sitja áfram í skólanum og þetta var að verða vandamál í bekkjarkerfis- skólum. Einnig höfum við tekið nem- endur úr bekkjum og stofnað sér- stakan bekk sem við köllum kjarna- nám þar sem lögð er áhersla á undir- stöðufögin. Reynslan hjá okkur er nefnilega sú að ef menn falla til dæmis í fyrsta bekk og koma aftur næsta vetur kemur í ljós að þeir hafa sama og ekkert lært. Ég tel að umhyggjan fyrir nemendum sé eitt af því sem einkennir okkar skóla- starf og þetta er eitt af því. Síðan má nefna viðmót kennara gagnvart nemendum og öflugt umsjónarkerfi, ekki síst í fyrsta bekk þar sem um- sjónarkennari hefur einn tíma á viku með nemendum sínum. Við höfum einnig haft forystu um það að sinna nemendum sem glíma við lestrarörð- ugleika, en það er dágóður hópur.“ Mikil eftirvænting Varðandi dagskrána nefnir Pétur söngleikinn Loka sögu Sívertsen sem nemendur bindi miklar vonir við. Að honum standa fjórir piltar og verður hann frumsýndur á þriðju- daginn kemur. Loka saga Sívertsen tekur eina og hálfa klukkustund í flutningi en atriði úr honum verður flutt í dag. Piltamir hafa unnið að hugmyndinni síðan í sumar og segir Pétur að frumsýningarinnar sé beðið með mikilli eftirvæntingu og ekki sé laust við að höfundamir séu spenntir. „Ég hef aldrei upplifað nemendurna jafn áhugasama eins og núna, þeir em hreint ótrúlegir," segir Pétur að lokum. NEMENDUR, kennarar og starfsfólk Menntaskólans við Sund eru með opið hús í dag vegna 25 ára afmælis skólans. Mikil stemmning hefur ríkt í skólanum að undanförnu en afmælishátíðin verður sett klukkan eitt í dag og segist rektor aldrei hafa séð nemendur jafn áhugasama. Hulda Þórisdóttir gjaldkeri nemendafélagsins segir að nemendur hafi lagt nótt við dag svo hátíðin mætti heppnast sem best. Bekkjunum var til dæmis skipt upp í starfshópa sem hafa einbeitt sér að tilteknum verkefnum. Fjórir skólapiltar skrifuðu söngleikinn Loka sögpi Sívertsen, sem frumsýndur verður á þriðjudaginn, nýtt merki var búið til fyrir skólann og sett úr dúkkulísum og margt fleira. Hulda Þórisdóttir segir að undir- búningur hafi staðið yfir lengi og dagskráin sé fjölbreytt. „Það hefur verið mikil stemmning í skólanum undanfarið og unnið langt fram á nótt. Hver bekkur hefur fengið verk- efni til að sjá um, til dæmis hvernig hinn dæmigerði MS-ingur er, haft upp á gömlum ármönnum, það er formönnum nemendafélags skólans, og búið til slangurorðabók MS. Einn bekkur er að búa til eftirlíkingu af Pétri Rasmussen rektor úr pappam- assa, annar tekur fyrir tísku og tón- list síðastliðinna 25 ára og heldur tískusýningu. Fjallað er um unglinga og áfengi og búið er að gera nýtt merki fyrir skólann og setja á fána. Síðan er umgengni í skólanum til umfjöllunar. Einn bekkurinn hefur búið til gervibekk, eftirlíkingar af sjálfum sér í fullri stærð, líkt og dúkkulísur, sem settar voru í sitt á fána, búinn var til gervibekkur sæti í skólastofunni. Krakkarnir tóku svo einn heimspekitíma upp á segulband sem verður spilaður í stof- unni. Eitt verkefnið var að ímynda sér skólann árið 2094, annað að safna gömlum ljósmyndum úr skóla- starfinu. MS nú og þá hefur líka verið til skoðunar, til dæmis hvað kostaði á árshátíðina fyrir 25 árum og hvað kostar í dag svo er bekkur að mála eftirlíkingu á umhverfi skól- ans eins og það var þegar hann var niður við Tjörn og svo framvegis,“ segir Hulda. Skólinn útundan ímynd skólans hefur einnig verið til umfjöllunar og leitaði einn bekk- urinn eftir hugmyndum almennings um skólann. Pétur Rasmussen rekt- or segir að framkvæmdagleði krakk- anna hafi verið með ólíkindum. „Okkur finnst oft að við höfum ver-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.