Morgunblaðið - 05.03.1994, Síða 23

Morgunblaðið - 05.03.1994, Síða 23
22 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. MARZ 1994 Eistland Kim Jong-il Kim við hesta- heilsu KIM Jong-il, sonur og arftaki leiðtoga N-Kóreu, Kim II- sungs, er við ágæta heilsu og tekur fullan þátt í stjómunar- störfum, að sögn talsmanns kóreska minnihlutans í Japan, Ho Jong-mans. Sögusagnir hafa um hríð verið á kreiki um að arftakinn, sem ekki hefur komið fram opinberlega síðan í desember, hafi slasast illa í dularfullu slysi. Ho var nýlega í N-Kóreu og fór þá í reiðtúr með Kim yngri sem er 52 ára. Ho sagði að hann hefði verið „mjög hraustlegur, hann tók hvíta hestinn sinn til kostanna". Mistök í Hvíta húsinu BILL Clinton Bandaríkjafor- seti viðurkenndi í gær að emb- ættismenn fjármálaráðuneyt- isins hefðu gert mistök er þeir skýrðu embættismönnum Hvíta hússins frá gangi rann- sóknar Whitewater-gjald- þrotamálsins svonefnda í fyrra. Forsetahjónin tengjast málinu, talið er hugsanlegt að þau hafi misnotað aðstöðu sína til að komast hjá fjár- hagstjóni er Clinton var ríkis- stjóri í Arkansas. UTSALAN HAFIN Skinn-gallerí, laugavegi 66, sími 20301 Önnumst einnig viðgerðir á ieðurfatnaði og pelsum Reuter „Swatch-bílar“ til sýnis TVÆR frumgerðir af svokölluðum „Swatchbíl", samvinnuverkefni Mercedes-bílaframleiðendanna í Þýska- landi og framleiðenda Swatch-úranna í Sviss, voru kynntar á bílasýningu í Stuttgart í gær. Stefnt er að því að sala á þessari gerð hefjist árið 1997. Ekki hefur enn verið ákveðið hvort bílarnir verða knúnir raf- magni, bensíni eða hvorutveggja. Mart Laar villfund með Jeltsín Moskvu. Reuter. MART Laar, forseti Eistlands, lagði til í gær að haldinn yrði leiðtogafundur Eistlands og Rússlands til þess að leysa deil- una um brottflutning rúss- neskra hersveita frá Eistlandi. Vasílíj Svírín, sem stýrir samn- ingum við Eistlendinga af hálfu Rússa, sagði í gær að ljúka mætti heimkvaðningunni á tilsettum tíma ef skriður kæmi á viðræðurn- ar á ný. Viðræður um heimkvaðningu hersveitanna fóru út um þúfur á miðvikudag út af ágreiningi um stöðu hermanna sem komnir eru á eftirlaun og sest hafa að í Eist- landi. Einnig deila ríkin um kostn- að við að reisa hús yfir hersveitirn- ar í Rússlandi. Bandaríkjamenn hóta Japönum þvingunum vegna viðskiptahagnaðarins Hosokawa segir brýnt að auka innflutnmg og neyslu Tókýó, Washington, London, Genf. Reuter. JAPANAR létu í gær í Ijós miklar áhyggjur af stefnu stjórnar Bills Clintons Bandaríkjaforseta sem ákvað á fimmtudag að láta á ný taka gildi sérstaka tilskipun, svonefnda grein 301, er kveð- ur á um að beita megi viðskiptalegum refsingum gegn ríkjum sem Bandaríkin álíta að fari á svig við reglur um frelsi í alþjóða- viðskiptum. Stjórnvöld í Tókýó hafa áður hótað að kæra slíka ákvörðun til ráðamanna GATT, alþjóðasamkomulagsins um tolla og viðskiptamál. Sagði talsmaður stjórnar Morihiro Hosokawa í Tókýó í gær að ákvörðun Bandaríkjamanna bryti í bága við GATT-samninga en Hiroshi Kumagai, ráðherra alþjóðavið- skipta, sagði þó að ekki yrði gripið til gagnráðstafana og held- ur ekki kært til GATT. Oþekktur maður ræðst á Harding Portland. Reuter. RÁÐIST var á bandarísku skautakonuna Tonyu Harding í almenningsgarði í Portland í fyrrakvöld og ekki er enn vitað hver árásarmaðurinn var. Talsmaður lögreglunnar í Portland, Mark Hyde, sagði að Harding hefði verið að ganga yfir garðinn að bifreið sinni skömmu fyrir miðnætti þegar maðurinn hefði stokkið aftan á hana, þannig að hún hefði dottið á jörðina. Harding hefði skrám- ast á hnjánum og olnbogunum. Hún var flutt á sjúkrahús og fór þaðan þegar gert hafði verið að sárunum. „Ég er viss um að hún er í uppnámi og finnur til óþæginda en að öðru leyti amar ekkert að henni,“ sagði talsmaðurinn. Hann sagði að Harding hefði varið sig og notað tæki, sem gaf frá sér væl og flæmdi manninn í burtu. Ekki er ljóst hvort árásarmað- urinn hafi vitað hvert fórnar- lambið var eða hafi ráðist á Harding af tilviljun. Mjög dimmt var og Harding sá ekki andlit mannsins. Atburðurinn átti sér stað í --------------------------— Tonya Harding grennd við heimili hjóna, sem Harding hefur búið hjá frá því hún skildi við eiginmann sinn fyrrverandi, Jeff Gillooly. Hann hefur haldið því fram að Harding hafi samþykkt árás á keppinaut hennar, Nancy Kerrigan, sem líf- vörður hennar skipulagði fyrir vetrarólympíuleikana í Noregi. Fulltrúar GATT í aðalstöðvunum í Genf sögðu í gær að samtökin væru ávallt and- víg því að reynt væri að hafa „stjórn á alþjóða- viðskiptum“ eins og andstæðingar Bandaríkj astjóm segja að hún sé að reyna að gera með því að heimta að Japanar kaupi meira af öðrum þjóðum. Hins vegar væri ekki hægt að fullyrða að grein 301 bryti gegn GATT-samningum. Bandaríkjamenn saka Japana um að beita hvers kyns óbeinum innflutningstakmörkunum. Þeir hafa illan bifur á nánu samráði ýmissa hagsmunaafla í fram- leiðslufyrirtækjum Japana og stofnana ríkisins og telja að oft ríki þegjandi samkomulag milli þessara aðila um að hindra inn- flutning. Er bent á þá erfiðleika sem mörg erlend fyrirtæki hafa lent í þegar þau hafa reynt að brjótast inn á Japansmarkað með framleiðslu sem keppt gæti við innlenda, einnig hafa Japanar verndað hrísgijónabændur af mik- illi hörku og koma þar til mikil áhrif þeirra vegna kjördæmaskip- unar. Bandaríkjamenn segja að með því að hlaða upp miklum hagnaði á utanríkisviðskiptum séu Japanar óbeint að hamla því að kraftur hlaupi í efnahagslíf annarra ríkja, draga úr fjárfestingum þar og auka á atvinnuleysi. Sendiherra Japana í Washington varði í gær landa sína og vísaði því á bug að þeir hefðu ekkert gert til að draga úr viðskiptahagnaðinum. Hann hefði hins vegar aukist að undan- fömu vegna efnahagskreppu í Jap- an sem dregur úr innflutningi vegna minnkandi kaupgetu al- mennings. Hosokawa forsætisráðherra sagði á þingi í gær að gagnrýni Bandaríkjamanna byggðist að nokkru leyti á misskilningi en viðurkenndi þó að hún væri ekki tilhæfulaus. Hann sagði að lands- menn yrðu að taka sig á, opna þjóðfélagið fyrir innflutningi og erlendum fjárfestingum og auka innanlandsneysluna. Þótt hugsanlegar refsiaðgerðir Bandaríkjamanna gætu valdið verðfalli á japönskum verðbréfum fyrst í stað var verðbréfasali í Tókýó á því að langtímaáhrifin yrðu ágæt, þær gætu „þvingað japönsku stjórnina til að opna markaðina". Sprengjuárás á friðargæsluliða Za^reb, Trieste, Sameinuðu þjódunum. Reuter. BRESKIR friðargæsluliðar á vegum Sameinuðu þjóðanna urðu fyrir sprengjuvörpuárás í Mið-Bosníu í gær og yfirmaður þeirra sagði að ef slíkt henti aftur yrði farið fram á loftárásir af hálfu Atlantshafsbandalagsins, NATO. Króatíska fréttastofan HINA skýrði frá því að þijár sprengjur hefðu fallið á búðir friðargæslulið- anna milli bæjanna Zepce og Zavidovici í gærmorgun. Sprengj- umar ollu talsverðum skemmdum en ekki manntjóni. Líklegast þykir að Bosníu-Serbar hafi gert árásina. HINA hafði eftir l’atrick Darling, yfirmanni bresku friðargæsluliðanna, að hann myndi fara fram á loftárásir ef hermenn- irnir yrðu fyrir árás aftur. Embættismenn Sameinuðu þjóð- anna staðfestu í fyrsta skipti í fyrrakvöld að herþoturnar fjórar sem NATO grandaði á mánudag hefðu komið frá Krajina, yfírráða- svæði Serba í Króatíu. 1 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. MARZ 1994 23 Jeltsín Rússlandsforseti reynir að friðmælast við þingið Hvetur til þjóðareining- ar til að efla ríkisvaldið Moskvu. Reuter. BORÍS Jeltsín, forseti Rússlands, reyndi í gær að friðmælast við þing landsins og hvatti þingmenn allra flokka til að ganga í lið með sér til að koma á stöðugleika í þjóðfélagi sem væri á barmi stjórn- leysis vegna örra breytinga. Viktor Tsjernomyrdín forsætisráðherra lýsti yfir fullum stuðningi við Jeltsín og fór hörðum orðum um únga markaðshyggjumenn sem hann sagði vilja reka fleyg á milli hans og forsetans. I ræðu sem Jeltsín hélt á fundi með allri stjórninni og háttsettum þingmönnum í Kreml í gær ræddi hann í fyrsta skipti opinberlega um þá ákvörðun Dúmunnar í vikunni sem leið að veita þeim sem stóðu fyrir valdaránstilraununum í ágúst 1991 og í október síðastliðnum sak- aruppgjöf. Jeltsín gagnrýndi sam- þykkt þingsins, sagði hana alvar- legt brot á stjórnarskránni, en gaf þó til kynna að hann væri reiðubú- inn að hafast ekki frekar að í mál- inu. Jeltsín kvaðst sannfærður um þingmennirnir skildu þörfina á því að sameinasttil að styrkja ríkisvald- ið til að koma í veg fyrir stjórn- leysi og stemma stigu við glæpum í landinu. Jeltsín sagði að skera þyrfti upp herör gegn verðbólgunni, fá hana niður í 5% á mánuði, en hún var 14-16% í febrúar og í fjárlögunum er gert ráð fyrir að hún verði að jafnaði um 11-12% á mánuði á ár- inu. Tsjernomyrdín boðar „hóflegt aðhald“ Víktor Tsjemomyrtín ávarpaði fundinn á eftir Jeltsín og kvaðst styðja forsetann heils hugar. „Það er ekki hægt og raunar ósiðlegt að tala um hugsanleg forsetaefni þeg- ar við höfum forseta nú þegar,“ sagði forsætisráðherrann, sem hef- ur sjálfur verið orðaður við framboð í næstu forsetakosningum. „Forset- inn er leiðtogi þjóðarinnar, kjörinn af fólkinu og ég ætla honum enga rýtingsstungu í bakið, ég er ekki einn af þeim.“ Tsjernomyrdín sagði ennfremur að stjórnin myndi beita „hóflegu aðhaldi" í peningamálum. Hann sagði að Rússar stæðu frammi fyr- ir erfiðu vali miili óðaverðbólgu og hruns í iðnframleiðslunni. „Ef við látum óðaverðbólgu ganga yfír okk- ur fer allt á annan endann og við höfum þá enga möguleika á að snúa við. En ef við látum iðnfyrir- tækin lamast blasir við okkur upp- lausn og ólga í landinu," sagði for- sætisráðherrann. Jegor Gajdar, fyrrverandi efna- hagsmálaráðherra, andmælti þessu síðar og sagði að stjómin hefði ekki fylgt aðhaldsstefnu í peninga- málum og það væri fyrst og fremst skýringin á hmninu í efnahagslíf- inu. Þjóðarsátt í sjónmáli? Vladímír Shúmejko, forseti efri deildar þingsins, kvaðst á sama máli og Jeltsín um þörfina á því að efla ríkisvaldið og sagði ekkert mark vera tekið á tilskipunum for- setans og reglugerðum stjórnarinn- ar utan Kremlar. Ræðu Jeltsíns var almennt vel tekið á þinginu, þrátt fyrir áhyggjur manna af því að ríkisfjármálin færu úr böndunum. Sergej Glazjev, fyrr- verandi fjármálaráðherra, sagði við blaðamenn að þingið og forsetinn hefðu svo að segja sömu skoðanir í efnahagsmálum. „Það hefur skap- ast traustur grundvöllur fyrir þjóð- arsátt," sagði hann. Reuter Gítaristi Nirvana úr dái KURT Cobain, gítarleikari og aðalsprauta bandarísku hljóm- sveitarinnar Nirvana, komst til meðvitundar í gær á sjúkra- húsi í Rómaborg. Þangað var hann fluttur rænulaus í fyrra- kvöld eftir ofneyslu af blöndu lyfja og kampavíns. Cobain er 27 ára og þykir með fremstu tónlistarmönnum i dag. Hljóm- sveitin Nirvana er frá Seattle í Bandaríkjunum og sló í gegn fyrir nokkrum árum en fyrsta breiðskífa hennar seldist í rúmlega 10 milljónum eintaka. Cobain hefur átt erfitt í um- gengni við fíkniefni og m.a. neytt heróíns. Myndin af Coba- in var tekin á tónleikum í París í síðustu viku en þeir þóttu heppnast með eindæm- um vel. Hljómsveitin er á tón- leikaferðalagi um Evrópu. Höfóar til . fólks í öllum starfsgreinum! Innilegar þakkir til allra þeirra, sem glöddu mig og sýndu mér margvíslegan heiður á sjö- tugsafmœli mínu, 5. febrúar síðastliðinn. Sigurbjörg Jóhanna Þórðardóttir. HÁSKÓLI ÍSLANDS ENDURMENNTUNARSTOFNUN GÆÐ ASTJ ORNUNARNÁMSKEIÐ Markviss fræðslustjórn á tímum gæðastjórnunar Þátttakendur: Námskeiðið er ætlað umsjón- armönnum fræðslu- og þjálfunarmála fyrir- tækja og þeim, sem vilja kynna sér gæða- staðla um fræðslu og þjálfun starfsfólks. Efni: Lýsing á starfssviði fræðslustjórnar og þjálfunarkerfi sem tryggir þjálfun starfs- manna. Kynnt verða ýmis líkön og verkefni. Leiðbeinandi: Gunnar Svavarsson, verkfr., fræðslustjóri hjá Bifreiðaskoðun Islands. Tími: 8. og 9. mars kl. 9-12. Verð: 7.500 kr. Gæðakerfi - ISO 9000 Gæðastjórnun í fyrirtæki þínu Efni: Áhersla verður lögð á skilning á stöðl- unum og túlkun þeirra á gæðastjómun. Ennfremur verður uppbygging gæðakerfis og gerð gæðahandbókar tekin fyrir. Þátttak- endur æfa sig í að meta hvernig fyrirtæki stendur miðað við kröfur staðlanna. Leiðbeinendur: Pétur K. Maack, prófessor við HÍ, og Kjartan Kárason, forstjóri Vottunar hf. Tími: 9., 16. og 23. mars kl. 13-18. Verð: 15.600 kr. Skráning í síma 694940, fax 694080. Upplýsingar í símum 694923, -24 og -25. .UífK<vt/i i nd'i'K wAmm (Hnnrrniiv aiíiiIihU >I‘)itJx>4 I_______________________ Reuter Drengur með mynd af Lenín á Rauða torginu í Moskvu, Ef þú kaupir nýjan eða notaðan Ski-doo vélsleða núna ••• Bfldshöfða 14 112 Reykjavík Sími686644 Tilboðið gildir eingöngu um vélsleða að verðmæti kr. 200.000,- eða dýrari. Um uppítökur er ekki að ræða í tilboði þessu nema að sérstaklega sé um samið. Umboðsmenn okkar eru: Bflval á Akureyri, Nonni, Bolungarvík og Bílasalan Fell, Egilstööum. færðu aukahlutri að verðmætri kr. 30.000,- ókeypris! ri^íSLI IÓNSSON HF

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.