Morgunblaðið - 05.03.1994, Side 45

Morgunblaðið - 05.03.1994, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. MARZ 1994 45 Hver er ég, hvað heiti ég? Frá Gísla Helgasyni: Þegar ég var lítill angi í Vest- mannaeyjum, kom fljótt í ljós að ég var mjög afbrigðilegur krakki. Ég þekkti alla bíla á hljóðinu og útliti, en þekkti hins vegar ekki fólk í sjón, þar sem augu mín voru mjög döpur eins og hún amma sagði. Suma þekkti ég á rödd, aðra á fötum, skeggi eða háralit, en Gölli Valda var auðþekktur á lykt- inni. Flestir vinir mínir gerðu sér grein fyrir þessu og ef þeir sáu eitt- hvert hik á mér sem sýndi að ég kannaðist ekki alveg við þá, kynntu þeir sig. Það þótti mér þægilegt og komst svo að því að þannig vildu fleiri, sem eru sjónskertir, að hafa það. Sumir fuliorðnir menn gerðu sér það að leik að stilla mér upp fyrir framan sig og spurðu: „Hver er ég, hvað heiti ég, veistu hver ég er?“ Þetta brenndi sig inn í barns- sálina og ég forðaðist t.d. bílastöð- ina heima eins og heitan eldinn, enda þótt margir ágætir menn, sem unnu þar, væru mér góðir. Ég varð kvekktur á þessum leiðindaleik, sem birtist oft í mjög hörðum viðbrögð- um gagnvart þeim, sem hann iðk- uðu og enn verð ég sótillur, þegar fólk gerir mér þetta. Um daginn var ég staddur á veit- ingastað í Reykjavík ásamt nokkr- um vinum. Ég fór á barinn og pant- aði drykki handa okkur. Vinstra megin við mig stóð kona og heils- aði mér. Ég tók kveðju hennar vin- gjarnlega að ég held. Hún spyr hvort ég muni eftir sér. Ég kvað nei við. Þá spyr hún hvort ég þekki sig ekki og ég kvað nei við. Þá spyr hún: Veistu ekki hver ég er, og ég kvað nei við. Hún sagði okk- ur hafa unnið hjá tilteknu fyrirtæki fyrir mörgum árum. Það var farið að síga í mig og ég spyr: Hvað heitirðu? Hún sagðist ekki vita það, ég ætti að þekkja sig. Ég varð al- veg brjálaður inni í mér, dauðlang- aði að beija hana, en lét kyrrt liggja og gekk inn í skotið til félaga minna afspyrnu þungur á svipinn og hugs- aði á latínu: „Ira furor brevis est“, sem útleggst: Reiði er stutt æði. Konan mín spurði af hveiju það stæði skýstrókur upp úr hausnum á mér og ég sagði eins og var. Frá Elsu Guðsteinsdóttur: Þetta bréf er skrifað vegna vand- lætingar minnar á málflutningi Steingríms Sigfússonar alþingis- manns á Alþingi í síðustu viku. Mig Iangar að spyija Steingrím Sigfússon hvort hann vilji ekki reyna að stilla skap sitt þannig næst að hann verði ekki svona ruddalegur í málflutningi sínum á Alþingi okkar allra. Eitthvað fóru Frakkar í taugarn- ar á honum um daginn svo að hann taldi sig þurfa að „skíta“ svolítið í þá, en hann áttaði sig bara ekki á því að hann gæti með þessum mál- flutningi móðgað einhveija þá kjós- endur sem hann þarf á að halda til að kjósa sig í þetta embætti. Steingrímur hreytti einhveijum athugasemdum varðandi innflutn- ing okkar frá Frakklandi og sagði eitthvað á þá leið að við gætum Skömmu síðar kemur þjónn að borðinu til okkar og þar á eftir konan. Ég bað þjóninn vinsamleg- ast að vísa henni frá borðinu hvað og hann gerði. Vissulega niður- lægði ég þess konu, sem væntan- lega hefur verið skírð einhveiju nafni, en gremja mín varð til þess að ég sýndi þessi viðbrögð, sem gætu virst hroki. — Er þetta ef til vill hroki? x GÍSLI HELGASON, Reynimel 22, Reykjavík. auðveldlega verið án rauðvíns og nokkurra Citroen-druslna. Nú veit ég ekki hvaða lúxus- kerru þessi ágæti maður ekur. Ef til vill á hann Síberíukádiiják. En hvað um það, þá ætla ég að fræða manninn um það að Citroén-bílar eru engar druslur, spurðu bara Áma Johnsen alþingismann. Citroén-bílar hafa um áratuga skeið verið langt á undan sinni sam- tíð miðað við gæði og tækni, um það get ég trútt um talað. Ég skora á Steingrím Sigfússon að koma og skoða Citroéninn minn svo að hann megi sannfærast, og skal ég meira að segja leyfa honum að prufukeyra hann þessu til stað- festingar, en það skal strax tekið fram að bíllinn er ekki falur. ELSA GUÐSTEINSDÓTTIR, Engimýri 12, Garðabæ. Gagnasafn Morgunblaðsins Allt efni sem birtist í Morgun- blaðinu og Lesbók verður fram- vegis varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskil- ur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endur- birtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. Pennavinir TVÍTUG dönsk stúlka sem skrifar á ensku auk dönsku vill eignast íslenska pennavini. Getur ekki um áhugamál: Christine R. Nielsen, Finsensvej 47A, 1.-102, 2000 Frederiksberg, Danmark. TÓLF ára tékkneskur pittur með áhuga á ensku, tónlist og íþróttum: Zdenek Kraus, Vaclavska 421, 507 81 Lazne Belohrad, Czech Republic. LEIÐRÉTTINGAR Rangnefndur reiðvegakóngnr í frétt af árshátíð Hestmannafé- lagsins Harðar í Mosfellsbæ, sem birtist í Morgunblaðinu 3. marz, var frá því skýrt að Jón Ásbjömsson hafi verið kjörinn „reiðvegakógur ársins“. Þetta mun vera rangt, því að þennan titil hlaut Þórarinn Jóns- son tannlæknir. Hann var hins veg- ar ekki á árshátíðinni og tók Jón við titlinum fyrir hönd Þórarins. Nafn féll niður í myndatexta á bls. 36 í Morgun- blaðinu í gær, þar sem skýrt var frá því, að ellefu félagar í Meistara- félagi hárskera hafí verið heiðraðir á 70 ára afmælishátíð félagsins, féll niður nafn mannsins, sem stóð lengst til hægri á myndinni. Hann heitir Björn Gíslason hárskeri á Selfossi og núverandi formaður meistarafélagsins. Beðizt er velvirð- ingar á þessum mistökum’. ' J VELVAKANDI MEIRAUM BJÓRMÁLAÞÁTT ÉG GET ekki orða bundist vegna þess hvernig nú er farið að haga ýmsum samtalsþáttum Sjón- varpsins. Til þess að þeir heppn- ist og séu þess virði að bera þá á borð fyrir þjóðina er mjög nauð- synlegt að stjórnandinn kunni þá list að hafa alla þræði í hendi sinni án þess að hægt sé að greina hver sé skoðun hans sjálfs á því málefni sem rætt er. Hann á að vera hlutlaus. Að kvöld 1. þessa mánaðar var samtalsþáttur í sjónvarpinu með óhæfum stjórnanda sem notfærði sér aðstöðu sína til að grípa fram í fyrir þátttakendum og koma sjónarmiðum sínum á framfæri, enda talaði hann sjálfur manna mest. Ef ekki er hægt að fá kurt- eisa menn sem þekkja takmörk sín til að stjórna þessum þáttum ber sjónvarpinu, sem á að vera menningartæki, að leggja þá nið- ur. Annað er ekki við hæfí enda vil ég ekki trúa því að það sé ásetningur að misbjóða bæði þeim sem fengnir eru tii viðtals og okkur hinum sem á hlýðum. Lilja Krisljánsdóttir SYKURSJÚKLING- AR ATHUGIÐ EINS OG margir hafa heyrt er verið að selja næringarduftið „Herbalife" í heimakynningum. Dæmi eru fyrir því að sykursjúki- ingum sé lofað minni insúlínþörf og eigi þar af leiðandi að minnka insúlíngjöfina. Herbalife gerir engin kraftaverk fyrir sykur- sjúklinga, það inniheldur kolvetni og hækkar þar af leiðandi blóð- sykurinn. Fyrir hönd Samtaka sykur- sjúkra, Guðrún Þóra Hjaltadóttir, vai’aformaður. TAPAÐ/FUNDIÐ Skjalataska tapaðist TAPAST hefur rauðbrún skjala- taska með talnalás. Finnandi vin- samlega hringi í síma 27314 eða 30799. GÆLUDÝR Köttur í heimilisleit BLANDAÐUR síamshögni, eins og hálfs árs, óskar eftir nýju heimili vegna ofnæmis á gamla heimilinu. Upplýsingar í síma 811901. Köttur í óskilum ÞESSI köttur hefur verið í óskil- um í dágóðan tíma. Upplýsingar í Kattholti eða í síma 21587. Hundur í óskilum LÍTIL svört tík, líklega labrador- blendingur, er í vörslu Heilbrigð- iseftirlits Kópavogs. Upplýsingar í síma 41171. Citroén engin drusla Jógadans Kripalujóga Viltu losa þig við ótta og hömlur? Viltu tengjast frumorku þinni? |j Viltu opna fyrir hið guðdómlega í þér? Stígðu þá dansinn af gleði í: Dansupplifun með ANAMIKU helgina 11.-13. mars. Hún verður einnig með námskeið fyrir fagfólk (dansara, danskenn- ara, söngkennara o.fl.) helgina 18.-20. mars. Verð kr. 8.500 fyrir hvort námskeið. Jógastöðin Heimsljós, Skeifunni 19, 2. hæð, s. 677981 (kl. 17-19). yuieardasstilboð Peysur fr Full búð af nýji á kr. 1 un vörum. I.99I I,- íl la Sl Laugavegi 54 S: 25201 4.-13. mars Nautasteikur á tilboösveröi: kn Jarlinn veisla alta daga SJJJJ :i ■''~r Jarlim r- v c I 1 I N 0 A 0 J O F A ■ Sprengisandi - Kringlunni KAHl ARKAÐURINI Rýmingarsala á bókamarkaðinum!! AUKAAFSLATTUR ÞESSA SlÐUSTU HELGI BÓKAMARKAÐSINS KOLAPORTIÐ MARKAÐSTORG iHMtaUÉlUáfiAASUS^^ Opið iaugardag og sunnudag kl.10-16

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.