Morgunblaðið - 05.03.1994, Side 46
46
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. MARZ 1994
HANDKNATTLEIKUR / BIKARURSLITALEIKUR
Sigmar Þröstur
getur náð þrennu
„EG er ákveðinn að gera allt sem ég get til að fagna þrenn-
unni,“ sagði Sigmar Þröstur Óskarsson, landsliðsmarkvörður úr
KA, sem hefur orðið bikarmeistari með Stjörnunni og ÍBV, en á
möguleika á að verða bikarmeistari með þriðja félaginu í Laugar-
dalshöllinni ídag. Sigmar lékmeð Stjörnunni 1987 í leikgegn
Fram, 26:22 og með Eyjamönnum 1991, þegar þeir lögðu Vík-
inga óvænt að velii, 26:22. Já, Sigmar Þröstur hefur orðið tvisv-
ar bikarmeistari — á sömu markatölu! „Það er alltaf viss spenna
að leika bikarúrslitaleik, en við höfum fengið mjög góðan stuðn-
ing hér á Akureyri — stuðning sem hefur þjappað okkur saman.
Þegar við lékum gegn FH í deildinni fyrr í vetur, þá endaði leikur-
inn með jafntefli. FH-ingar byrjuðu betur og komust yfir, 1:9,
en þegar við náðum að stöðva hraðaupphlaup þeirra, náðum
við að jafna leikinn. Við verðum að vera vel vakandi fyrir því að
FH-ingar nái ekki mörgum hraðaupphlaupum íbikarúrslitaleikn-
um,“ sagði Sigmar Þröstur.
Þetta verður mikill baráttuleikur
og það er aldrei hægt að bóka
sigur fyrirfram í eins þýðingarmikl-
um leik,“ sagði Kristján Arason,
sem leikur sinn síðasta bikarúr-
slitaleik. Kristján ætlar að leggja
skóna á hilluna eftir þetta keppnis-
tímabil og gerist þjálfari hjá þýska
liðinu Dormagen. Kristján glímir
við Alfreð Gíslason, en þeir hafa
háð margar orrustur í gegnum tíð-
ina — hér á landi, í Þýskalandi og
á Spáni. Þess má geta til gamans
að fyrir tólf árum, 1982, áttust
þeir félagar við í bikarúrslitaleik
og fór Alfreð, sem lék þá með KR,
með sigur af hólmi, 19:17.
L
KNATTSPYRNA
Þorvaldur
orðaður við
þijú stórlið
Þorvaldur Örlygsson, lands-
liðsmaður hjá Stoke í Eng-
landi, hefur leikið mjög vel að
undanfomu. Skv. frétt í bresku
blaði nýverið hafa ótsendarar
þriggja stórliða verið að fylgj-
ast með íslenska landsliðs-
manninum. Fyrst var greint frá
þvf að „njósnari" frá Newcastle
hefði fýlgst með Þorvaldi og
síðan birtist önnur frétt þar sem
menn frá Liverpool og Everton
vom sagðir hafa bæst í hópinn.
Þorvaldur sagðist ekkert vita
um málið, annað en að hann
hefði heyrt af fréttunum sem
birst höfðu í biaðinu, Birming-
ham Sports Argus. Vissulega
væri ánægjulegt, að eftir sér
væri tekið, en hann hugsaði
ekki um annað nó en standa
sig vel með Stoke. Því má bæta
við að blaðið sagði ennfremur
að forráðamenn Stoke mætu
íslendinginn á eina milljón
punda, andvirði 107 milljóna
króna. Hann fékk fijálsa sölu
frá Nottingham Forest fyrir
tímabilið, þannig að Stoke
þurfti ekki að borga krónu fyr-
ir hann.
Ekki hefur náðst í forráða-
menn félaganna þriggja, sem
nefnd voru til sögunnar, vegna
málsins.
NISSAN
stöðugri sokn
Fjörugur baráttuleikur
Jóhann Ingi Gunnarsson, þjálfari
Hauka, sagði að eitt væri víst, að
leikur KA og FH yrði fjörugur bar-
áttuleikur. „Tvö ólík lið eigast við.
KA-liðið er geysilega sterkt vam-
arlið, með góðan markvörð. Hinir
hávöxnu l'eikmenn liðsins, Alfreð
Gíslason og Erlingur Kristjánsson,
stjóma flatri vörninni og þegar
Sigmar Þröstur Óskarsson er í stuði
fyrir aftan vömina, er hún sann-
kölluð „Mulningsvél." FH-ingar era
aftur á móti þekktir fyrir að vera
„sóknarvél" og hraðaupphlaup
þeirra eru afar hættuleg. Sóknar-
leikur KA þarf því að vera mjög
markviss og ógnandi, til að slá það
vopn úr höndum FH-inga.“
- Nú hafa FH-ingar mikla
reynslu að leika þýðingarmikla
leiki, eins og úrsiitaleiki ogEvrópu-
leiki. Ræður sú reynsla úrsiitum?
„Það munar mikið um þá
reynslu, en KA-liðið hefur einnig
reynslumikla leikmenn, eins og
baráttumennina Alfreð Gíslason og
Valdimar Grímsson, sem hafa leik-
ið með sigursælum verðlaunaliðum.
Óvænt úrslit geta litið dagsins
ljós.“
- Hefur það komið niður á leik
Alfreðs að hann er einnig þjálfari
KA?
„Já, en hann á að gleyma því
að hann sé þjálfari, þegar út í slag-
inn er komið. Það er hann sem á
að gefa tóninn."
- Taka FH-ingar hann ekki úr
umferð?
„Ég reikna með því að þeir geri
það. Bæði liðin koma til með að
bjóða upp á ýmsar vamaraðgerðir,
eftir hvernig leikurinn þróast."
- Ef þú værir þjálfari KA. Hvaða
leikmann FH-Iiðsins myndir þú
taka úr umferð?
„Ég myndi láta mína merin ráð-
ast til atlögu gegn leikstjórnandan-
um Guðjóni Amasyni.“
Jóhann Ingi sagði að leikurinn
yrði mikill spennuleikur — tauga-
spenna leikmanna myndi setja svip
sinn á hann í byrjun. „Ég hef trú
á því að það lið sem nær að losa
sig frá spennunni og ná tökum á
leik sínum, fari með sigur af hólmi.
„Það hefur gengið á ýmsu fyrir
leikinn, eða eftir að honum var
frestað. Það má því reikna með að.
leikurinn verði eldfimur, en þó ekki
grófur. Ég vona að dómararnir sem
dæma takist vel upp, því að þeir
geta haft mikið að segja,“ sagði
Jóhann Ingi Gunnarsson.
Það má fastlega búast við mik-
illi stemmningu í Laugardalshöll-
inni, en úrslitaleikurinn hefst kl.
17. Stuðningsamenn FH ætla að
koma saman á veitingahúsinu A.
Hansen kl. 11, en stuðningsmenn
KA í Valsheimilinu kl. 13. Rútu-
ferðir frá þessum stöðum verða síð-
an á leikinn.
í
Slgmar Þröstur Óskarsson hefur orðið bikarmeistari með Stjörnunni og
ÍBV. Tekst honum að verða bikarmeistari með KA?
UM HELGINA
BERGSVEINN 245/8
288/21
SIGMAR ÞROSTUR
GUNNAR 152
18
EINVARÐUR
ÞORVALDUR
HANS 72/15
83/11
ALl'REÐ
J
HALFDAN 44
1j
KNUTUR 88/42
167/70
J
VALDIMAR
GUÐJON 91/15
47/2
1
Skorað
Þar af úr vítum-1
BYRJUNARLIÐ
FH og KA,
skoruð mörk og varin
skot í 1. deild í vetur
Helgi gerði þrennu
fyrir Stuttgart
- og boðið að æfa með aðalliði félagsins
HELGI Sigurðsson, knatt-
spýrnumaður úr Fram, lék æf-
ingaleik með varaliði Stuttgart
í vikunni — sló í gegn og gerði
þrjú mörk. Eftir leikinn komu
forráðamenn félagsins til hans
og buðu honum að æfa með
aðalliði félagsins.
Helgi sagði að sér hafi gengið
mjög vel í umræddum leik sem
var gegn úrvalsliði úr þýsku 3. deild-
arliðunum Fellbach og Oeffingen.
Stuttgart sigraði örugglega 8:1 og
spilaði Helgi með í 60 mínútur.
Tryggvi Guðmundsson KR-ingur lék
einnig með Stuttgart í þessum leik,
en meiddist á ökkla.
Helgi sagði að níu leikmenn sem
spilað hafa með aðalliði Stuttgart
hafi verið með í þessum leik, þar á
meðal Eyjólfur Sverrisson sem lék
allan leikinn. Helgi og Tryggvi hafa
verið hjá Stuttgart í viku og verða
við æfingar þar út næstu viku. Helgi
æfir með aðalliðinu en Tryggvi með
varaliðinu. Þorbjöm Sveinsson úr
Fram er einnig í Stuttgart og æfir
með unglingaliði félagsins, sem Sig-
urvin Ólafsson leikur og æfir með.
Helgl SigurAsson.
Danir með þrjá nýliða á Wembley
Richard Möller Nielsen, landsliðs-
þjálfari Dana, hefur valið þrjá
nýliða í sextán manna landsliðshóp
sinn, sem leikur gegn Englendingum
á Wembley á miðvikudaginn kemur.
Það eru þeir Sören Frederiksen, sem
leikur með Silkeborg, Jesper Krist-
ensen, miðvallarspilari hjá Bröndby
og vamarleikmaðurinn Carsten Det-
hlefsen frá OB.
Aðrir leikmenn eru: Peter Schmeichel, Man.
Utd., Mogens Krogh, Bröndby; Lars Olsen,
Seraing, Mark Rieper, Bröndby, Henrik
Larsen, Mannheim, Jakob Friis-Hansen,
Lille, Jes Högh, Bröndby, Jakob Kjeldbjerg,
Chelsea, John Jensen, Arsenal, Kim Vilf-
ort, Bröndby, Michael Laudrup, Barcelona,
Brian Laudrup, AC Milan og Bent Christen-
sen, Ölympiakos'Pireus.
Körfuknattleikur
Úrvalsdeildin
Laugardagur:
Strandgata: Haukar- UMFT............14
Sunnudagur:
Akranes: IA - ÍBK.............. 20.30
Borgames: Skallagrímur - Snæfell....16
Seltjamanes: KR - UMFN..............20
1. deild kvenna:
Laugardagun
Sauðárkrókur: UMFT - fR.............14
Sunnudagur:
Sauðárkrókur: UMFT-ÍR...............14
Mánudagur:
Kennaraháskóli: ÍS - Valur..........20
1. deild karla:
Höll Akureyri: Þór - ÍS.............14
Austurberg: Leiknir - Höttur........14
Sandgerði: Reynir - Höttur..........14
Handknattleikur
Úrslitaleikur í bikarkeppni karla verður leik-
inn í dag:
Laugardalshöll: KA - FH.............17
2. deild karla - úrslitakeppni:
Laugardagur:
Fjölnishús: Fjölnir - UBK...........14
Sunnudagur:
Strandgata: ÍH - Fram...............20
Mánudagur:
Seltjamanes: Grótta - HK............20
Blak
Sunnudagur:
1. deild kvenna:
Hagaskóli: ÍS-Víkingur........kl. 18.00
1. deild karla:
Hagaskóla: ÍS-ÞrótturR........kl. 19.30
Frjálsíþróttir
Meistaramót fslands, 15-18 ára, verður
haldið í dag og á morgun í Baldurshaga
og Kaplakrika. I dag hefst keppni í Baldurs-
haga kl. 10 með 50 m hlaupi, langstökki
og hástökki án atrennu. Hástökk, kúluvarp
og stangarstökk verður í Kaplakrika og
hefst kl. 16.
Á morgun hefst keppni í Baldurshaga
kl 10 með 50 m grindahlaupi, þrístökki
með og án atrennu og langstökki með og
án atrennu.
íþróttir fatlaðra
fslandsmót fatlaðra verður um helgina og
keppt verður í boccia og lyftingum í Iþrótta-
húsi Seljarskóla, borðtennis og bogfimi í
fþróttahúsi ÍFR, sundgreinar fara fram í
Sundhöll Hafnarfjarðar.
Karate
fslandsmótið í karate - kata - verður haldið
í Hagaskóla í dag, laugardag, og hefst kl.
14.00. Úrslit kl. 15.30.
Skfði
Bikarmót fullorðinna og f flokki 15 - 16 ára
í alpagreinum verður á Dalvík um helgina.
Keppt verður í svigi og stórsvigi. Skíða-
staðagangan sem er hluti af fslands-
göngunni verður í Hlíðarfjalli um helgina.
Skíðaleikar verða haldnir fyrir böm 8 ára
og yngri í dag á skíðasvæði Fram í Eldborg-
argili.
Sund
Unglingamót KR verður haldið í Sundhöll
Reykjavíkur um helgina. 500 börn víðsveg-
ar að af landinu taka þátt í mótinu.
Golf
Púttmót verður haldið í Gullgolfi, Stórhöfða
15, í dag laugardag. Keppt verður í karla
og kvennaflokki og ræst út milli kl. 10 og
18.