Morgunblaðið - 17.04.1994, Qupperneq 6
6 FRÉTTIR/INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17. APRIL 1994
Frumniðurstöður tilrauna á mönnum hafa reynst jákvæðar
Bólusetning með
nefúða myndar
víðtæk mótefni
Frumniðurstöður rannsókna á bólusetningu slimhimnu með
nefúða gefa til kynna góðan árangur en tilraunir á 26 háskóla-
stúdentum með þessari aðferð standa nú yfir. Fyrirtækið Lyfja-
þróun hf. stendur fyrir rannsóknunum- í samvinnu við Statens
Seruminstitut í Kaupmannahöfn en verkefnisstjóri er Sveinbjörn
Gizurarson, lektor í lyfjafræði við Háskóla íslands. Með því að
bólusetja slimhimnu er hægt að ná fyrr til örvera heldur en
með stungubólusetningu, þ.e. á smitstað, og drepa þær áður en
þær ná að sýkja einstaklinginn en slímhimnan myndar ónæmis-
svörun á öllum öðrum slímhimnum líkamans, svo og í blóði og
öðrum líkamsvessum.
Morgunblaðið/Júlíus
Vandamál við þróun bóluefna
hefur verið að finna hjálparefni
eða ónæmisglæða, þ.e. efni sem
hvetur til myndunat ónæmis.
Rannsóknir á árangri slímhimnu-
bólusetningar hófust með dýratil-
raunum og segir Sveinbjöm að
þær hafi gengið vel og tekist
hafi að fínna hjálparefni sem
hvetja til ónæmismyndunar og
mælingar sýnt góða ónæmissvör-
un.
„Með því að bólusetja með
nefúða má ná fram ónæmisvernd
á öllum slímhimnum líkamans en
langflestar sýkingar smitast af
einni slímhimnu yfir á aðra. Þeg-
ar bóluefni er sprautað undir
húð, sem er algengasta aðferðin
í dag, fæst nánast eingöngu
mótefnamyndun í blóðinu en best
er að ráðast að smitinu á mynd-
unarstað, sem er slímhimnan.
Fyrstu niðurstöður okkar sýna
að bólusetning á eina slímhimnu
með nefúðaaðferðinni myndar
ónæmissvörun á öllum öðrum
slímhimnum líkamans en líka í
húð, blóði og öðrum líkamsvess-
um,“ segir Sveinbjöm og segir
ávinninginn fólginn í því að þróa
bólusetningar við öndunarfæra-
sýkingum, meltingarfærasýking-
um, kynfærasýkingum og fleiri
smitsjúkdómum.
Tilraunir á
mönnum hafnar
SVEINBJÖRN Gizurarson
stendur hér hjá Barböru Stan-
zeit líffræðingi, sem tekur blóð-
sýni úr einum þeirra 26 sjálf-
boðaliða sem tók þátt i tilraun-
inni, en fyrstu mælingar benda
til, að árangur með slímhimnu-
bólusetningu sé góður.
Á þessari teikningu sést hvernig bólusetning á eina slímhimnu
myndar ónæmissvörun á öllum öðrum slímhimnum likamans og
víðar. Teikningin birtist með grein Sveinbjörns i siðasta tölu-
blaði Mixtúru, blaði lyfjafræðinema.
Tilraunirnar á mönnum hófust
í byijun mars í samstarfí við
læknana Helga Valdimarsson og
Friðrik K. Guðbrandsson en alls
eru 26 manns í tilraunahópnum.
Bólusett er við stífkrampa og
barnaveiki með nefúða og síðan
hafa verið tekin sýni vikulega af
munnvatni og nefskoli auk blóð-
sýna. Sýna fyrstu niðurstöður að
sambærileg svörun næst með
nefúðabólusetningu og með
sprautu.
Mikið starf framundan
Sveinbjörn segir að mikið starf
sé framundan við að mæla sýnin
nánar og flokka mótefnin en
unnið verður áfram að mælingum
í sumar. Þá þarf að skoða nánar
skammtastærðir og áhrif þeirra,
hvort mismunur sé á verkun bólu-
efnanna hjá börnum og fullorðn-
um. Næsta skref varðandi til-
raunir á mönnum mun sennilega
fara fram á dönskum hermönn-
um.
Rannsóknir Lyfjaþróunar hf.
hófust árið 1991 undir stjórn
Sveinbjörns sem stundaði fram-
haldsnám í Danmörku og vann
að rannsóknum þar og í Japan.
Að Lyfjaþróun hf. standa Lyfja-
verslun ríkisins, Lyf hf., Tækni-
þróun hf., Lýsi hf. og Steinar
Waage en verkefnið er einnig
unnið í samráði við Statens Ser-
uminstitut í Kaupmannahöfn.
Samstarfsmenn Sveinbjörns hafa
verið Rúna Hauksdóttir hjá
Lyfjaverslun ríkisins og Baldur
Hjaltason hjá Lýsi hf. og í Kaup-
mannahöfn Iver Heron og Henrik
Aggerbeck.
jf Öndunarfærin (lungu og nef)
y/ * Munnvatnskirtlar óg^nunnhol
(V X 'y' Tárakirtlar og augu
(f V X\ Mjólkurkirtlar og brjóstamjólk
Meltingarfærin (t.d. þarmar)
\ (Húðj
Vessar líkamans, blóði
Útttekt RALA
Þónokkur
útbreiðsla
kögurvængju
FYRSTU niðurstöður sérfræð-
inga Rannsóknarstofnunar
landbúnaðarins í rannsókn á
útbreiðslu svokallaðrar blóma-
kögurvængju gefa til kynna að
útbreiðsla hennar sé þónokkur
hér á landi. Halldór Sverrisson,
plöntusjúkdómasérfræðingur,
segir að kögurvængja hafi þeg-
ar fundist í 8 til 10 gróðrastöð-
um með blóm og 2 stöðvum með
grænmeti.
Kögurvængja er
skordýr og sækir
sérstaklega í blóm
og sýgur safa
blaða þeirra sem
og blaða græn-
metisplatna. Mik-
ið magn hennar
getur valdið
minnkandi vexti
og jafnvel upp-
skerubresti.
Halldór Sverrisson sagði að kög-
urvængjan gæti hafa komið upp
með tvennum hætti. Hún gæti
hafa borist til landsins með inn-
fluttum blómum eða komið upp á
yfirborðið eftir að hafa legið niðri
í þijú ár hér á landi.
Eitur eða maurar
Ung kögurvængja er ljósgræn
og fullorðin dökkleit og getur flog-
ið. Halldór sagði að tvær aðferðir
væru tii að vinna á kögurvængj-
unni. Blómaræktendum væri ráð-
lagt að nota eitur til að útrýma
henni og grænmetisræktendum að
nota ránmaura. Engu að síður
væri ljóst að ekki væri hægt að
útrýma kögurvængju algjörlega
úr gróðurhúsum með grænmeti
fyrr en húsin væru hreinsuð að
hausti.
Úttekt RALA nær til ræktenda
á Suðurlandi og í Borgarfirði auk
þess sem ætlunin er að kanna hús
á Norðurlandi. Aðrir geta sent inn
sýni til rannsóknar.
500 þúsund
til hreins-
unardaga
BORGARRÁÐ hefur samþykkt
að leggja til 500 þús. króna
aukafjárveitingu vegna hreins-
unar- og fegrunardaga í hverf-
um borgarinnar.
í maímánuði standa yfir hreins-
unar- og fegrunardagar í hverfum
borgarinnar í samvinnu við íbúa-
samtök og hverfafélög. Fjárveit-
ingin er ætluð til að styrkja fram-
takið og er gert ráð fyrir að fjár-
hæðin skiptist á milli 10 til 12
hverfafélaga. Stuðningur borgar-
innar miðast við þátttöku í kynn-
ingum og auglýsingu, grillveislu,
leiktækjum og hljóðkerfí.
Morgunblaðið/Kristinn
Listasafn Kópavogs
LISTASAFN Kópavogs, Gerðarsafn, verður formlega opnað í dag, sunnu-
daginn 17. apríl. Um leið verður opnuð sýning á úrvali verka úr gjöf sem
erfingjar Gerðar Helgadóttur færðu Kópavogsbæ árið 1977 og hafa sum
verkanna aldrei áður verið sýnd opinberlega. í listasafninu verður einnig
til sýnis úrval verka eldri íslenskra málara, sem Kópavogskaupstaður
hefur keypt siðustu 30 ár og úrval úr gjöf sem minningarsjóður Barböru
og Magnúsar Á. Árnasonar færði Kópavogsbæ til minningar um þau hjón.
Hætt var við keppni í götubolta á heilsudögum ÍFA
Málshöfðun var hótað
SAMTÖKIN íþróttir fyrir alla, sem gangast fyrir heilsudögum 16.-18.
apríl, hafa hætt við götuboltakeppni, „streetball11, sem halda átt í sam-
vinnu við KKÍ á bílastæðum Kringlunnar sunnudaginn 17. apríl, en
að öðru leyti verður dagskrá heilsudaganna óbreytt. Að sögn Gunn-
laugs Grettissonar, framkvæmdastjóra ÍFA, er ástæðan sú að Sport-
menn hf., sem sótt hafa um skráningu á vörumerkinu „Streetball"
hjá Einkaleyfisstofunni, hótuðu málshöfðun vegna þess að orðið var
notað í auglýsingum ÍFA um keppnina.
Fyrirhuguð götuboltakeppni hafði
verið auglýst I fjölmiðlum nú í vik-
unni, og var orðið „streetball" notað
í auglýsingunum. Gunnlaugur sagði
að á fímmtudaginn hefði borist bréf
frá Sportmönnum hf. undirritað af
Ólafi B. Schram framkvæmdastjóra
þess, þar sem farið var fram á að
fyrirhuguð keppni yrði felld niður,
ella kæmi til málshöfðunar þar sem
farið yrði fram á skaðabætur og
greiðslur fyrir notkun vörumerkis-
ins. ,
„Okkur fannst það ekki vera þess
virði að standa í einhveiju karpi um
þetta og drógum við því keppnina
til baka,“ sagði Gunnlaugur.
Islenskt sölufyrir-
tæki stofnað í Chile
SÖLUFYRIRTÆKI í eigu Sæplasts, Hampiðjunnar, Icecon og
verkfræðistofan Meka hefur tekið til starfa í Chile. Kristján Aðal-
steinsson, framkvæmdasljóri Sæplasts, sagðist binda miklar vonir
við að með stofnun fyrirtækisins takist að vinna nýja markaði
fyrir íslenskan iðnvarning. Hann sagði áætlun eigenda fyrirtækis-
ins ganga út á að reka það til reynslu í þrjú ár og endurmeta
síðan stöðuna.
„Við vitum að það er þörf fyrir
okkar vörur á þessum markaði. Við
komum til með að miða okkar mark-
aðsstarf við að það taki 3-4 ár að
koma okkur almennilega inn á þenn-
an markað," sae'ði Kristján.
Undirbúningur að stofnun fyrir-
tækisins hefur staðið allt síðastliðið
ár, en áður hafði Útflutningsráð
unnið að markaðskönnun í Chile.
Búið er að ráða starfsmann frá Chile
að fyrirtækinu, en formiega tekur
það til starfa eftir mánaðamótin.
Sæplast hefur í gegnum árin selt
nokkuð af kerum og trollkúlur til
Chile, en hefur nú áætlanir uppi um
að auka sölu þangað verulega. Meka
og Icecon stefna að því að selja ráð-
gjafarþjónustu til Chile og Hampiðj-
an veiðarfæri. Auk þess mun sölufyr-
irtækið taka aðrar íslenskar vörur í
umboðssölu ef áhugi er fyrir því
meðal íslenskra fyrirtækja.
Kristján sagði það sitt mat að til
að ná árangri á svona fjarlægum
mörkuðum verði íslensk fyrirtæki að
vera með söluskrifstofu í viðkomandi
landi. Hann sagði að frátöldum
mörkuðum í S-Ameríku einbeiti Sæ-
plast sér að mörkuðum í Evrópu.
Hann sagði vitað að stór markaður
sé fyrir ker og trollkúlur í Rúss-
landi, en vandamálið sé að greiðslur
frá Rússum séu óöruggar og því fylgi
mikil áhætta viðskiptum þar eystra.
Sæplast seldi á síðasta ári um 1.000
ker til Rússlands í gegnum umboðs-
fyrirtæki í Evrópu. Hann sagði óvíst
hvort framhald verði á þessum við-
skiptum í ár.
------♦ ♦ ♦-----
Piltarnir úr Keflavík
Aftur leitað
með neðansiáv-
armyndavél
PILTANNA tveggja úr Keflavík,
sem saknað hefur verið síðan í lok
janúar, var á þriðjudag leitað með
neðansjávarmyndavél.
Viku eftir hvarfið var leitað með
neðansjávarmyndavél og nú var farið
aftur yfír svæðið frá Stakksvík inn
að Vogum. Leitin bar ekki árangur.
Að sögn lögreglunnar í Keflavík
hafa fjörur verið gengnar reglulega
fra því piltarnir hurfu en engar mark-
tækar vísbendingar hafi borist um
hvar þeir gætu verið niður komnir.