Morgunblaðið - 17.04.1994, Qupperneq 32
ATVINNU/RAD-
OG SMÁAUGLÝSINGAR
ATVINNUAUGi YSINGAR
„Au-pair í Þýskalandi
Þýsk fjölskylda óskar eftir „au-pair“ stúlku
til að passa dreng á 3. ári, í 1 ár frá og með
1. ágúst nk. Má ekki reykja.
Uppl. veitir Díana Heiðarsdóttir núverandi
„au-pair“ stúlka, í síma 90-49-421-3469898.
Familie Diederichsen, Benquestr. 15,
28209, Bremen, Deutschland.
Kjötiðnaðarmaður
Sláturfélag Suðurlands óskar eftir að ráða
sem fyrst kjötiðnaðarmann til starfa í kjöt-
vinnslu félagsins á Hvolsvelli.
Umsóknir óskast sendar á skristofu félags-
ins, Fosshálsi 1, Reykjavík fyrir 26. apríl nk.
Nánari upplýsingar veitir starfsmannastjóri
í síma 677800.
BÍIAKRINGLAN
Atvinna atvinna
Viljum ráða bílamálara, bílasmið og bílasala
til starfa. Góð vinnuaðstaða.
Getum útvegað íbúðarhúsnæði.
Skriflegar umsóknir ásamt upplýsingum um
menntun og fyrri störf óskast sendar BG
Bílakringlunni hf., fyrir 25. apríl 1994.
Háskólakennsla
Óskum eftir að ráða kennara til starfa við
Samvinnuháskólann á Bifröst. Starfstitill
aðjúnkt eða lektor.
Fræðslusvið: Hagfræði, viðskipti og rekstur.
Störf hefjast 2. ágúst nk. Dómnefnd fjallar
um umsóknir í lektorsstöður.
Við leitum að viðskiptafræðingi/rekstrarhag-
fræðingi eða manni með aðra sambærilega
menntun.
Nánari upplýsingar veitir Þórir Þorvarðarson.
Vinsamlega sendið skriflegar umsóknir til
Ráðningarþjónustu Hagvangs hf., merktar:
„Bifröst 129“, fyrir 30. apríl nk.
Hagvaneur h if
Skeifunni 19 Reykjavík Sími 813666 Róðningarþjónusta Rekstrarróðgjöf Skoðanakannanir
Bakari
Bakari óskast í Sauðárkróksbakarí.
Upplýsingar gefur Óttar í síma 95-35126
eftir kl. 10.00 f.h.
Garðabær
Fóstra
Fóstra óskast á leikskólann Bæjarból í 50%
stöðu eftir hádegi.
Upplýsingar hjá leikskólastjóra í síma
656470.
Sálfræðingar
Leikskóladeild Akureyrarbæjar óskar eftir að
ráða til starfa sálfræðing frá 1. ágúst nk.
Staða sálfræðings við leikskóladeild er ný
staða og felst m.a. í:
- Greiningu á þroskafrávikum.
- Faglegum stuðningi við starfsfólk leik-
skóla og skóladagheimila í starfi með
fötluðum börnum og sérþarfabörnum, í
samvinnu við ráðgjafarfóstru.
- Almennri uppeldislegri ráðgjöf til foreldra
barna á leikskólaaldri.
- Umsjón, ásamt ráðgjafarfóstru, með
tengslum leikskóla og grunnskóla með
sérstöku tilliti til fatlaðra barna og barna
með sérþarfir.
Laun samkvæmt kjarasamningi STAK og
Launanefndar sveitarfélaga.
Fóstrur
Laus er til umsóknar starf hverfisfóstru frá
15. maí nk. (1/2 starf síðdegis).
Hverfisfóstra hefur yfirsýn yfir og annast
upeldislega ráðgjöf varðandi alla þætti
dagvistunar barna á vegum Akureyrarbæj-
ar. Hún annast faglega og stjórnunarlega
ráðgjöf á leikskólum og skóladagheimilum,
lögboðið eftirlit og leyfisveitingu handa
dagmæðrum og er forstöðumaður gæslu-
valla.
Laun hverfisfóstru eru samkvæmt kjara-
samningi STAK og Akureyrarbæjar eða
Launanefndar sveitarfélaga og Fóstrufélags
íslands.
Nánari upplýsingar um störfin og megin verk-
efni gefur deildarstjóri leikskóladeildar í síma
96-24600.
Upplýsingar um kaup og kjör gefur starfs-
mannastjóri í síma 96-21000.
Umsóknareyðublöð fást í starfsmannadeild
Akureyrarbæjar, Geislagötu 9. Umsóknar-
frestur um ofangreind störf ertil 25. apríl nk.
Leikskóladeild Akureyrarbæjar.
Kvenfataverslun
í miðbænum óskar eftir starfskrafti, vönum
sölu og afgreiðslustörfum, strax. Vinnutími
frá kl. 12-17. Æskilegur aldur 35-60 ár.
Umsóknir með upplýsingum um aldur og
fyrri störf sendist auglýsingadeild Mbl., fyrir
22. apríl merktar: „YB - 11713“.
Dvalarheimilið Lundur, Hellu
Hjúkrunarfræðingar
Nýlega hóf starfsemi hjúkrunardeild við
Dvalarheimilið Lund á Hellu. Deildin rúmar
12 einstaklinga. Að auki eru 18 einstaklingar
á þjónustudeild.
Okkur bráðvantar hjúkrunarfræðinga til starfa
nú þegar, eða eftir nánara samkomulagi.
Aðstoðað verður við útvegun húsnæðis.
Nánari upplýsingar veitir Sólrún Einarsdóttir,
hjúkrunarforstjóri, í síma 98-75993 eða
heimasíma 98-75237.
Námskeið
fyrir dagmæður
Námsflokkar Hafnarfjarðar munu halda nám-
skeið fyrir dagmæður í maí nk. ef næg þátt-
taka fæst. Námskeiðið verður í samræmi við
reglugerð Félagsmálaráðuneytisins um dag-
gæslu barna í heimahúsum og fer kennsla
fram á kvöldin og um helgar. Þátttökugjald
er kr. 10.000,-
Þeir sem ætla að skrá sig á námskeiðið hafi
samband við Hönnu Kristinsdóttur í síma
53444 milli kl. 14 og 16 fyrir 30. apríl nk.
sem jafnframt veitir nánari upplýsingar.
Námsflokkar Hafnarfjarðar.
Bifvélavirkjar/
vélvirkjar
Óskum eftir bifvélavirkja eða vélvirkja vönum
vörubíla- og vinnuvélaviðgerðum. I boði er
fjölbreytt og uppbyggjandi framtíðarstarf.
Við leitum að góðum fagmanni með þjón-
ustulund. Tungumálakunnátta nauðsynleg
(enska/danska). Þekking á vökvakerfum
æskileg. Starfið felst í viðgerðum, smíðum,
pöntun og afgreiðslu varahluta ásamt mörgu
fleiru. Þeir einir koma til greina sem eru að
leita að framtíðarvinnu.
Komdu eða hringdu og fáðu sent
umsóknareyðublað.
SMIÐSBÚÐ 2 - P.O.BOX 193-212 GARÐABÆR
ISLAND - TEL: 354 1 656580 - fax: 354 1 657980