Morgunblaðið - 17.04.1994, Síða 48
varða
víðtæk
fjármálaþjónusta
Landsbanki
fslands
FORGANGSPÓSTUR
UPPLÝSINGASÍMI 63 73 00
MORGUNBLAfílD, KRINGLAN 1 103 REYKJAVÍK
SÍM! 691100, SÍMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 3010/ AKUREYRl: HAFNARSTRÆTl 8S
SUNNUDAGUR17. APRIL1994
VERÐ I LAUSASOLU 125 KR. MEÐ VSK.
Nýir bankastjórar Seðlabanka Islands
Steingrímur og
Æiríkur skipaðir
STEINGRIMUR Hermannsson, alþingismaður og formaður Framsókn-
arflokksins, og Eiríkur Guðnason aðstoðarseðlabankastjóri, voru skip-
aðir seðlabankastjórar í gær kl. 18.30, af Sighvati Björgvinssyni banka-
málaráðherra. Eiríkur fékk þrjú atkvæði í atkvæðagreiðslu bankaráðs
Seðlabankans í fyrradag og Steingrímur tvö. Sighvatur Björgvinsson
sagði í samtali við Morgunblaðið í gær, að hann hefði kosið að reynsla
þeirra er hann skipaði, væri fjölbreytileg.
Guðmundur Magnússon, prófessor
við Háskóla Islands fékk þtjú at-
kvæði eins og Eiríkur. Viðskiptaráð-
herra var spurður hverju það sætti,
að hann gengi framhjá Guðmundi:
„Ég er að skipa, ekki einn seðla-
bankastjóra, heldur þriggja manna
hóp. Þar þurfa, að mínu áliti, að vera
jTnenn með misjafna reynslu. Ég skipa
annan af þeim tveimur hagfræðing-
um, sem fá flest atkvæði. Það er
skýringin á því að ég vel Eirík. Ég
vildi fremur velja mann með reynslu
úr bankanum, en utan hans. Guð-
mundur Magnússon er afskaplega
hæfur maður, mjög vel menntaður
og hefði mætavel ráðið við þetta
starf, en mín niðurstaða varð sú að
velja hagfræðinginn úr bankanum,"
sagði Sighvatur.
Vel valin forystusveit
Sighvatur sagði jafnframt: „Síðan
vel ég Steingrím Hermannsson. Hann
Á203km
hraða á
Reykja-
nesbraut
TVEIR ungir bifhjólaökumenn
óku um Reykjanesbraut með
203 km hraða á klukkustund
í fyrrinótt þegar löjgregla
mældi hraða þeirra. A eftir
fylgdi þriðja bifhjólið á 166
km hraða. Sá sem hægast fór
stöðvaði strax og lögregla gaf
merki, en hinir tveir reyndu
að stinga lögreglu af.
Mennimir voru á leið á Suður-
nes. Annar þeirra komst heim
til sín í Garðinn áður en hann
var handtekinn en hinn hafði
skilið hjól sitt eftir í hesthúsa-,
hverfi Keflvíkinga og látið sig
hverfa þaðan. Talið er vitað um
hvem er að ræða. Bifhjólamenn-
irnir tveir, sem lögregla náði til,
voru sviptir ökuréttindum til
bráðabirgða í fyrrinótt.
Það er afar fátítt, samkvæmt
upplýsingum Morgunblaðsins, og
nánast einsdæmi, að mældur sé
hér á landi ökuhraði yfir 200
km/klst.
er með góða háskólamenntun, mast-
ersgráðu í rafmagnsverkfærði, þó svo
að hann sé ekki hagfræðimenntaður.
Hann hefur mikla og langa reynslu
af stjómmálum, verið forsætisráð-
herra í sjö ár og er vel þekktur erlend-
is. Hann kemur með reynslu sína og
þekkingu inn í Seðlabanka íslands
til viðbótar þeirri sem aðrir hafa.
Þannig tel ég, að forystusveit bank-
ans sé vel samvalin."
Sighvatur kvaðst ekki telja rétt,
að bankastjórn Seðlabankans væri
skipuð mönnum „úr sömu skúffu",
eða þremur mönnum með samskonar
reynslu að baki. Því hefði hann valið
f stóla seðlabankastjóra með þessum
hætti. „Sá á kvölina, sem á völina,"
sagði ráðherra og kvað það alveg
ljóst, að ef stjórnmálamaður hlyti
starf, sama hvað það væri, yrði slíkt
alltaf vaki ákveðinnar gagnrýni.
„Ég tel ekki, að það eigi að vera
hæfum mönnum fjötur um fót, þó
að þeir hafí gegnt æðstu forystustörf-
um, sem þjóðkjömir fulltrúar geta
gegnt fyrir íslendinga. Maður sem
hefur gegnt ráðherraemþætti á ann-
an áratug og verið forsætisráðherra
í sjö ár og verið oftlega valinn vinsæl-
asti og virtasti stjórnmálamaður þjóð-
arinnar, ef hann telst ekki hæfur til
þess að gegna svona starfí, þá er
eitthvað athugavert, ekki endilega
við hann, heldur fyrst og fremst við
þjóðina, sem valdi hann,“ sagði Sig-
hvatur Björgvinsson.
- • I
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Vetur á Vestfjörðum
I þessari viku kveður veturinn, sumar gengur í garð og harpa byrj-
ar. Enn er vetrarlegt víða á landinu, líkt og í Ónundarfirði þegar
þessi mynd var tekin.
*
VSI um húsaleignbætur
Leigamun
hækka og
fleiri falsa
samninga
HÆTT er við að fyrirhugaðar húsa-
leigubætur leiði til hærri húsaleigu
ogumtalsverðrarfjölgunarfalsaðra
húsaleigusamninga eftir því sem
Guðni N. Aðalsteinsson, hagfræð-
ingur VSÍ, segir. Hann varar við
að tekjutenging bóta leiði til þess
að hvati til að afla tekna minnki.
Ákjósanlegri leið að sama markmiði
sé að gera leigutekjur skattf rjálsar.
Með því móti sé stuðlað að auknu
framboði á leigumarkaði og lægri
leig-
u. Guðni sagði, að undrun vekti að
jafn stórt mál virtist vera að fara í
gegnum þingið án almennrar umfjöll-
unar. Vanda yrði til verka enda erf-
itt að stíga skrefíð til baka þegar
bætumar yrðu einu sinni komnar á.
„Breytingin hefur þær afleiðingar
að húseigendur heimta hærri leigu
til að hafa upp í skattinn eða draga
húsnæðið af markaðinum sem einnig
hækkar leiguverð. Þannig lenda
húsaleigubætumar í vösum leigusal-
ans eða ríkisins í stað þeirra sem
bótakerfíð ætlaði að þjóna,“ sagði
Guðni.
Falsaðir leigusamningar
Jafnframt sagði hann, að grund-
völlur skapaðist fyrir fjölgun falsaðra
leigusamninga. Ekki skipti máli í
þessu sambandi skilyrði þess efnis,
að ekki mætti leigja hjá venslafólki,
auðvelt yrði að leita til annarra, gera
samning og fá bætur. „Bæturnar
hafa væntanlega líka þær afleiðing-
ar, að fleiri fara út á leigumarkað-
inn, ungt fólk í foreldrahúsnæði fer
t.d. að leita að húsnæði. Eftirspurnin
eykst, en það á ekki að vera tilgang-
ur frumvarpsins," sagði Guðni.
Kristján Gíslason hjá Radíómiðun hf. kærir Póst og síma fyrir brot á samkeppnislögum
Telur söludeild misnota
tölvugögn þjónustudeilda
FRAMKVÆMDASTJÓRI Radíómiðunar hf. lagði í gær fram kæru til
Samkeppnisstofnunar á hendur Pósti og síma (P&S) vegna meintra
brota gegn ákvæðum samkeppnislaga. Kristján Gíslason framkvæmda-
stjóri krefst þess að söludeild P&S verði algerlega aðskilin frá þjónustu-
deildum fyrirtækisins. Segir Kristján óeðlileg hagsmunatengsl milli
deilda og að gögn frá þjónustudeildum hafi verið notuð af söludeild.
Þá selji P&S búnað sem ekki hafi verið prófaður af fjarskiptaeftirliti.
Radíómiðun hf. hefur selt farsíma
í samkeppni við Póst og síma síðan
1986 þegar handvirka kerfíð var tek-
ið í notkun. Um síðustu áramót var
því lokað og NMT sjálfvirka farsíma-
kerfið eitt í boði. Ákvað gjaldskrár-
Fyrsta tímabil foreldragreiðslna vegna dagvistar í Reykjavík
538 uinsóknir bárust
UMSÓKNARFRESTUR fyrsta greiðslutímabils vegna greiðslna
Reykjavíkurborgar til foreldra rann út 7. apríl. 538 umsóknir bárust
'Dagvist barna. Grciðslutímabil er þrír mánuðir og greitt er út mán-
uði eftir að því lýkur, í fyrsta skipti í byijun maí.
Rétt til að sækja um greiðslur
höfðu foreldrar barna á aldrinum
tveggja og hálfs árs til fjögurra og
hálfs árs. Það eitt skilyrði var sett
fyrir að barnið væri ekki í vistun sem
niðurgreidd er af Reykjavíkurborg.
Árni Sigfússon borgarstjóri sagði
að af þessum 538 börnum, sem sótt
hefði verið um fyrir, væru 383 á bið-
lista eftir leikskóla í borginni. Greiðsl-
urnar hafa engin áhrif á stöðu barn-
anna á biðlistum eða rétt þeirra til
að fá inni á leikskólum.
Greiðslurnar verða skattskyldar en
undanþegnar staðgreiðslu. Það þýðir
að þeir sem þiggja greiðslurnar verða
að gera grein fyrir þeim á skattfram-
tali og skattur af þeim er gerður upp
eftir á. Árni Sigfússon sagði áfram
yrði reynt að heija á að fá skatt af
þessum greiðslum felldan niður. „Það
gefur augaleið að það verður reynt.
Þegar sambærileg upphæð er greidd
til einkarekinnajeikskóla er hún ekki
skattskyld en þegar hún rennur beint
til foreldra þá er hún það,“ sagði Árni.
nefnd P&S í byijun ársins 1993 að
gefa notendum handvirka kerfisins
kost á að flytja sig yfír í hið sjálf-
virka án þess að þurfa að greiða stofn-
gjald. Gjaldskrámefnd sendi öðmm
seljendum ekki tilkynningu um þessa
ákvörðun en Kristján segir að yfír-
menn P&S hafí sagt síðar að þeim
hefði verið frjálst að bjóða viðskipta-
vinum, sem áttu síma úr handvirka
kerfínu, niðurfellingu stofngjalda.
Segir Kristján að tilkynning um
þessa ákvörðun hafi borist notendum
og þeim bent á að leita til P&S eftir
nánari upplýsingum. Einnig hafí verið
fjallað um málið í júní- og nóvember-
heftum Farsímafrétta, sem ætlað er
að vera hlutlaust fréttabréf. í lok
ársins hafi öllum farsímanotendum
borist bréf frá P&S þar sem boðið
var upp á niðurfellingu stofngjalds
sem fyrr auk 15% afsláttar af tiltek-
inni tegund búnaðar sem kosta átti
58.139 krónur. En síðari hluta árs
1993 voru á þriðja 'nundrað hand-
virkra farsíma ennþá í notkun að
sögn Kristjáns.
Heimilisföng og vinnusími
Skrá yfir notendur handvirkra far-
síma var að sögn Kristjáns fengin
þannig að deildarstjóri tiltekinnar
söludeildar hafði samband við reikn-
ingagerð og bað um útskrift yflr
notendur handvirkra farsíma ásamt
heimilisföngum og vinnusíma. Bendir
hann á að yfírmaður reikningagerðar
sé einnig yfírmaður umræddrar sölu-
deildar og eigi hann jafnframt sæti
í gjaldskrárnefnd. Hafi starfsmenn
einnig nýtt sér upplýsingarnar með
því að hringja heim til notenda eða
í vinnu þeirra til að fylgja tilboðinu
eftir.
Búnaður ólöglegur?
Loks segir Kristján að P&S hafi
tekið að selja gjaldtökubúnað fyrir
farsíma og hefðbundin símtæki
nokkru á eftir Radíómiðun hf. í sam-
keppni við fyrirtækið og samkvæmt
upplýsingum frá fjarskiptaeftirliti sé
búnaður P&S ekki prófaður og sam-
þykktur, sem stangist á við lög. Seg-
ir hann einnig að P&S hafí fjallað
um gjaldtökubúnað sinn í Farsíma-
fréttum. Hafi hann beðið um að fjal-
lað yrði um búnað Radíómiðunar hf.
en verið hafnað. Þá hafí hann falast
eftir því að fá hann auglýstan gegn
greiðslu og því einnig verið hafnað.