Morgunblaðið - 17.04.1994, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17. APRIL 1994
—i ‘ ■ i'1 /- .71 iir;i )/.*:■ l*1 ■ i:- i ■
Listdansflokkur æskunnar
Ballett í Operunni
Myndlistarsýning barna
Bömin í leikskólanum Amarborg
og á skóladagheimilinu Bakka sýna
verk sín dagana 13.-20. apríl og böm-
in í leikskólanum Bakkaborg og Fálka-
borg dagana 20. apríl - 27. apríl.
Sýnt er í húsnæði SVR í Mjóddinni.
Þú svalar Icstiaifx' nf d;ipsins_
á^sjdum M(>guans! __
æ- ' - 'í
__________Ballett______________
Ólafur Ólafsson
Listdansflokkur æskunnar: Ball-
ett í óperunni.
Danshöfundar: David Greenall,
Aðalheiður _ Halldórsdóttir,
Kristín A. Ogmundsdóttir, Ivg-
enia Makarova, Jules Perrot,
Tom Bosman, Alvin Ailey, Laur-
en Hauser, Ingibjörg Björns-
dóttir.
Tónlist: Ur ýmsum áttum.
Flytjendur: Sinfonietta æskunn-
ar og ýmsir flytjendur.
Hljómsveitarstjóri: Ríkharður
Þórhallsson.
Búningar: Coco, Joey.
Skólastjóri Listdansskóla ís-
lands: IngibjÖrg Björnsdóttir.
Listdansstjóri: David Greenall.
Islenska Operan, apríl 1994.
Það hefur verið kraftur í starf-
semi Listdansflokks æskunnar að
undanförnu. Dagskráin hefur verið
fjölbreytt, sýningarnar vel sóttar
og stemmning á sýningum og
móttökur áhorfenda með endæm-
um góðar. Þennan listdanshóp
skipa þeir nemendur Listdansskóla
íslands, sem lengst eru komnir í
námi og reyndar tveir dansarar
úr íslenska dansflokknum að auki.
Allt er þetta tilkomið fyrir áhuga
og áræði nemendanna og trú
stjórnenda Listdansskólans á nema
sína, en ekki síst fyrir ótnílega
elju, útsjónarsemi og kjark list-
dansstjóra flokksins, David Gre-
enalls. Listdansflokkur æskunnar
er nauðsyn dönsurunum til að
þroskast sem listamenn, því þeir
þurfa að koma verkum sínum fyrir
áhorfendur. Ef tækifærin koma
ekki uppí hendur manns, þá verður
að skapa þau. Sýning Listdans-
flokks æskunnar í íslensku óper-
unni er einmitt glöggt dæmi um
það, þegar ungir vaxandi lista-
menn standa á sínu og skapa sér
tækifæri.
Flokkurinn er ferskur blær í
ballett á íslandi í dag. Á sýning-
unni kenndi ýmissa grasa. Um
helming efnisskrárinnar hefur
flokkurinn sýnt áður. Af þeim
hluta var það einkum Bændatví-
dansinn úr Giselle, sem hafði tekið
stakkaskiptum. Búið var að svið-
setja þennan hefðbundna kafla
nokkuð skemmtilega fyrir fjóra
dansara. Hann gaf fleiri dönsurum
tækifæri og var líka fallega og vel
dansaður. Af nýjum atrioum er
vert að minnast á Tilbrigði úr
Þyrnirósu, eftir Lauren Hauser,
sem nú starfar hér á landi eftir
dansferil við New York City Bal-
lett. Þessi sex kloss'sku sóló voru
samin fyrir flokkinn og þjóna fyrst
og fremst því hlutverki að þjálfa
dansarana og gefa þeim nauðsyn-
leg tækifæri til að reyna sig sem
sólóistar. Það tókst dálítið misjafn-
lega, en í heild mjög þokkalega.
Tom Bosman var gestakennari við
Listdansskólann í vetur og setti
saman Karakterdans fyrir stúlk-
urnar í hópnum. Það atriði var
með ánægjulegustu atriðum
kvöldsins og makalaust hvað stutt-
ur tími hans hér á landi hefur skil-
að miklu af sér. Lokaatriði sýning-
arinnar var Valse triste sem Ingi-
björg Bjömsdóttir samdi við tónlist
Jean Sibelius. Sinfonietta æskunn-
ar undir stjórn Ríkharðs Þórhalls-
sonar flutti tónlistina. Kóreógrafía
Ingibjargar var falleg og hæfði
tónlistinni mjög vel. Að vísu
þrengdi sviðið nokkuð að dansinum
og hann hefði notið sín mun betur
á stærra sviði. Vandaður loka-
punktur við góða kvöldstund.
í heild mega aðstandendur sýn-
ingarinnar mjög vel við una eftir
veturinn. Það er þrekvirki að koma
upp sýningu sem þessari, án þess
að hafa nokkra aðra sjóði en sína
eigin til að ganga í. Þau hafa skap-
að sér sín eigin tækifæri. Samvinn-
an við tónlistarmennina er einnig
mikilvæg. Þessi duglegu ungmenni
hafa sannað dugnað og hæfileika
með þessu og tendrað ljós, sem
eflaust á eftir að skína mun skærar.
Óvitar í Færeyjum
HAVNAR Sjónleikarfélag frumsýndi sl. föstudagskvöld íslenska barna-
leikritið Óvita eftir Guðrúnu Helgadóttur í þýðingu Martins Næs. 30
leikarar tóku þátt í sýningunni, 10 fullorðnir og 20 börn. í Óvitum eru
það einmitt börnin sem leika fullorðna fólkið og öfugt.
Sex af bókum Guðrúnar Helga-
dóttur hafa verið gefnar út í Færeyj-
um í þýðingu Martins Næs, þar á
meðal bækurnar um þá félaga Jón
Odd og Jón Bjarna. Þeir eru í miklu
uppáhaldi meðal Færeyinga, jafnt
ungra sem aldinna.
Ovitar eru annað verkefni Sjónlei-
karfélagsins í vetur og fyrir áramót
var Hafið eftir Ólaf Hauk Símonar-
son leikið við góðar undirtektir.
Á fimmtudagskvöld sýndi Fær-
eyska sjónvarpið hálftíma þátt um
vinnu leikstjóra og leikmyndateikn-
ara við tilurð sýningarinnar. Það er
Sigrún Valbergsdóttir sem leikstýrir
Óvitum, en Messíana Tómasdóttir er
höfundur leikmyndar og búninga.
Nemendasýning Listdansskóla íslands verður í Þjóðleikhúsinu
Sýning- Listdansskólans
HIN árlega nemendasýning List-
dansskóla Islands verður í ÞJóð-
leikhúsinu, þriðjudaginn 19. apríl
kl. 20.
Sýningin er tvískipt, fyrri hlutinn
Lítið ævintýri er frumsamið dansæv-
intýri þar sem allir nemendur skólans
koma fram, hátt í hundrað talsins.
Lítið ævintýri er eftir kennara skól-
ans, Ingibjörgu Björnsdóttur, Nönnu
Ólafsdóttur, Auði Bjarnadóttur, Mar-
gréti Gísladóttur og Tom Bosma, sem
var gestakennari við skólann í vetur.
Síðari hlutinn er af verkefnaskrá
Listdansflokks æskunnar sem sýnir
verkin Ferðalag og Bóleró ásamt
nokkrum sígildum sólódönsum. List-
dansflokkur æskunnar var stofnaður
fyrr á árinu og hefur þegar haldið
nokkrar sýningar meðal annars á
Sólon íslandus og í íslensku óper-
unni. Dansarar Listdansflokks æsk-
unnar eru allir nemendur Listdans-
skóla Islands ásamt tveimur dönsur-
um íslenska dansflokksins. Stjórn-
andi hópsins og danshöfundur er
David Greenall.
Tveir undirleikarar Listdansskól-
ans, þær Olga Bragina og Björg
Bjarnadóttir, leika í nokkrum atrið-
um á sýningunni. Aðeins verður ein
sýning og er miðasala hjá Þjóðleik-
húsinu.
(Fréttatilkynning)
VORDAGAR
Rýmum fyrir nýjum skóm
Gerið góð kaup
cVjDVttSL
PÓKÐAK
g<edú öfy pjóYUA&ta/
KIRKJUSTRÆTI 8, SÍMI 14181
ecco-
LAUGAVEGI 41, SÍMI 13570
-sniðin að
mannleéum
TOPPI TIL TÁAR
Uppbyggilegt lokað námskeið.
Fimm tímar í viku,
sjö vikur í senn.
Strangur megrunarkúr sem
tist fylgt er eftir daglega með and-
onum legum stuðningi, einkaviðtölum
tvo og fyrirlestrum um mataræði
geta og hollar lifsvenjur.
fostu- Heilsufundir þar sem farið er
t hafa yfjr förðun, klæðnað, fram-
ndi komu og hvernig á að efla
sjálfstraustið.
Þetta námskeið er eingöngu
ætlað þeim konum sem berjost
Þessi Yjý aukakílóin.
m
Tveir
fastir tímar
°g tveir
frjáisir
i hverri
viku.
KORTAKERFIÐ
■ Rautt kort.
Rauða kortið eru líkast þvi sem áður gerðist
hjá okkur í JSB. Þetta kort hentar þeim konum
i sem eru tilbúnar að binda sig við tvo
! ákveðna tíma í viku, en auk þess geta
þær svo mætt í tvo frjálsa tíma á fostu-
dögum og laugardögum. Rauð kort hafa
forgang i þann flokk sem viðkomandi
skráir sig í. Skráning er takmörkuð.
■ Grænt kort.
Grænt kort gildir i alla flokka alla daga
vikunnar þar til flokkarnir eru fullsetnir. Þessi
kort eru miðuð við þarfir þeirra sem vilja hafa
sveigjanleika á mætingu og ástundun.
Barnapössun
í Suðurveri
alla daga
frá kI. 9-16.
Lelkhorn fyrir
krakkana
[ Urniinhnnri
c 11 rm r v p n i
LIDAIIMRPPíTI
Hringið og
pantið kort
eða skráið
ykkur í flokka.
Sími 813730
TOOfilI