Morgunblaðið - 17.04.1994, Síða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17. AFRÍL 1994
KVIKMYNDIR/SAMBÍÓIN hafa tekið til sýninga nýjustu kvikmynd leikstjórans
Peters Weir, Fearless. Aðalhlutverkin í Fearless leika þau Jeff Bridges, Isabella
Rosselini og Rosie Perez, en fyrir leik sinn var hún tilnefnd til óskarsverðlauna.
Að ná tökum
á tilverunni
Iftif Hell Nr§f8ifl§§§fl
MAX Kleln (íeff Brldps) ftrkitekf í 8»n Pr§neí§p§
»g liennm genpr ftllt f liftginn þegar sterffð er ann-
ars vegar. Asftnit gftm»lgrémim víni sfnHm eg s»m-
stftrfsmftnni heldHr M»* með flngvél Aleiðis tirHens-
tnn, en þftðnn liygdftst þeir fðlngftrnir snóft tii liftkft
með verkefnftsnfflmng sem gefnr vel f «ðr» linntl,
Meðftl »nn»rrft fnrþegft f flHgvólinní er Cftrlft (Rosie
Pere^) ósemt Hngnm syni sfmim, en þwi er 4 leiðínnf
f fpf eem þ»n hygtí»st i#t» rtt f yst« msftr, En ftUt fer
rt ftnnan veg, BÍIhh verðnr í efnHm hreyfli ffngvrtlnrinn-
»r og þegsr hrtn hyi’jftr »ð miss» Ineð verðm’ ferþegme
um yrtst ftð þeir stanðn ftiiglftf tff ftHglftfs vfð (iftHðwm,
híifft fengið géðftt’ viðtðkui’;
Vglesifts er hftldinn sjókiegii
flughi’éeðsln eg uf þéim sék--
um hefui’ hsnn ískyggílejgftn
áhugft á eliu §em tehgist flug--
siysum eg um Isngt skeið
héfui' hnnn lesið »llt sem
hftnn hefui’ komist yfir um
slfkft hftrmleiki, „Ég hef elltftf
reynt sð ímynðft mév hveipr
tilfinningftF fm’þegft eg
rthftfnfti’ hftfft veríð á tímfthín
Óttftlaus
PEGAR Me* stendm’ ftndspmnis dftHðftimm verðnr h»nn gggntekínn fHllkominni srtlftrrrt,
Max sem ftlltaf hefnr ver-
jð flughrædðnr verður
í fyrstu skelfingu lostinn en
svo skynðilega fyllist hann
undarlegum friði. Hann
stendur í fyrsta sinn í lífinu
frammi fyrir skelfmgu sem
hann getur horfst f augu við
og á þeirri stundu sem honum
verður það ljóst verður hann
gagntekinn fullkominni sál-
arró. Hann rís úr sæti sínu
og hlynnir að öðrum farþeg-
um, og eftir að flugvélin hef-
ur brotlent kemur hann
mörgum þeirra sem lifað hafa
flugslysið af í öruggt skjól.
Carla er ekki jafn heppin.
Þegar flugvélin skellur á jörð-
ina missir hún son sinn úr
fanginu og þegar hún er bor-
in frá brennandi flugvélar-
flakinu verður það eftir sem
henni er kærast. Svipaða
sögu er að segja um Max,
en vinur hans lætur lífíð f
flugslysinu. Þremur mánuð-
um sfðar hafa hvorki Max
né Carla getað tjáð sig á
eðlilegan hátt um þennan
ógnvænlega dag þegar hann
missti besta vin sinn og hún
barnið sitt.
Max er ófús til að hverfa
úr því algleymi frelsisins sem
hann upplifði t flugslysinu,
og hefur hann orðið fráhverf-
ur Lauru (Isabella Rosselini)
eiginkonu sinni og syni vegna
hugmyndarinnar um eigin
ódauðleika. Sjúklegur stjarfi
hefur aftur á móti náð tökum
á Cörlu í sorg hennar og veld-
ur það eiginmanni hennar
bæði ótta og undrun. í ör-
væntingu sinni leiðir Bill
Perlman (John Torturro) sál-
fræðingur flugfélagsins
þessa tvo einstakiinga sam-
an, en undir venjulegum
kringumstæðum hefðu leiðir
þeirra annars aldrei legið
saman. Annar þeirra býr yfir
meiri iífskrafti en nokkru
sinni fyrr, en hinn er tilfinn-
ingalega dofinn vegna sekt-
artilfinningar og óbærilegs
sársauka. í skilningsvana
veröld bindast þau Max og
Carla hins vegar traustum
böndum sem þróast smátt og
smátt í það að verða frels-
andi og djúpstæð andleg vin-
átta, en spurningin er hvort
þessir einstaklingar sem bor-
ið hafa sigurorð af dauðanum
geta náð tökum á tilverunni.
Sjúklega flughræddur
Kvikmyndin Fearless er
gerð eftir samnefndri skáld-
sögu rithöfundarins Rafael
Yglesias, en hann gerði jafn-
Könnuður hins torskilda
ÁSTRALSKI leikstjórinn Peter Weii- hefur í kvik-
myndurn sínum í tæplega tnttugu ár fengist við að
kanna ýmsa iliskiljanlega þætti í mannlegu eðli, og
þá hefur hann gjar nan fjallað um duispekilega hluti
eða þekkíngu sein á rætur sínar í forneskju í
árekstri við heimsmynd nútímans. Tilvera hins
frumstæða og torskilda þrátt fyrir allar tilraunir
tii að fella það undir lögmái skynseminnar er því
gjarnan yrkisefni hans.
Hvað Fearless varðar
segir hann að við
undirbúning myndarinnar
hafi hann mjög rekist á
umQallanir skálda um sér-
kenniiegt ástand þegar
einskonar aðskilnaður
verður milli sálar og lík-
ama, og viðkomandi verði
í framhaidi af því að
ígrunda tiiveru sína með
ákveðnu æðruleysi. í
myndinni upplifí Max eitt-
hvað f iíkingu við þetta
og flugslysið verði til þess
að þurrka út ótta hans við
dauðann. Þetta kunni að
vera eftirsóknarvert
ástand á vissan hátt, en
hættan sé hins vegar sú
að þetta einangri viðkom-
andi frá öðrum þar sem
afleiðingin geti orðið til-
fínningaleysi á nánast öil-
um sviðum.
Peter Weir gerði sfna
fyrstu kvikmynd árið
1974, en það var Picnic
at Hanging Rock, sem
flallaði um duiarfulit
hvarf skólastúikna á
ferðalagi á helgistað
frumbyggja í Ástralíu.
Dulfræði frumbyggjanna
var honum aftur yrkisefni
í kvikmyndinni The Last
Wave sem hann gerði
1977- Gallipoli sem hann
gerði 1981 sópaði svo tii
sín verðlaunum Áströlsku
kvikmyndastofnunarinn-
ar og öðlaðist myndin
geysilega aðsókn um aiian
heim. Tveimur árum
seinna gerði Weir svo The
Year of Living Dangero-
usiy með Mel Gíbson,
Sigourney Weaver og
Lindu Hunt í aðaihlut-
verkum, og fékk Linda
óskarsveðlaunin fyrir leik
sinn í myndinni. Næst á
dagskrá varð svo Witness
árið 1985 með Harrison
Ford f aðalhlutverki og
var sú mynd tilnefnd til
átta óskarsverðlauna, þar
á meðal sem besta inynd
ársins. Næst gerði Weir
The Mosquito Coast eftir
skáldsögu Paui Theroux,
og því næst kom Dead
Poets Society sem Weir
fékk hin eftirsóttu
Virtur
PETER Weir hinn virti
ástralski leikstjóri.
BAFTA verðlaun fyrir
auk tilnefningar tii ósk-
arsverðlauna fyrir besta
handrit. Árið 1991 gerði
hann svo The Green Card
með Gerard Depardieu og
Andie McDowell í aðal-
hlutverkum, en fyrir
handrit sitt að myndínni
var Weir einnig tiinefndur
til óskarsverðlaunanna.
Nálgom
MAX og Carla (Rosie Perez) bindast traustum böndum
sem þróast í að verða frelsandi og andleg vinátta.
Hetja
HINN flughræddi Max Klein (Jeff Bridges) sigrast á
ótta sínum og verður hetja í flugslysi sem hann lendir í.
framt handritið að myndinni
og er það fyrsta kvikmynda-
handrit hans. Yglesias er
fæddur í New York og eru
foreldrar hans, Helen og
Jose, virtir rithöfundar í
Bandaríkjunum. Hann var
aðeins sextán ára gamail
þegar fyrsta skáldsaga hans
var gefín út árið 1972, en
hún byggðist að nokkru leyti
á endurminningum hans um
eigin uppvaxtarár. Síðan
hafa komið út eftir hann sex
aðrar skáldsögur sem allar
inu frá því þeim verður fyrst
ljóst að við vanda væri að
etja og til þeirrar stundar er
flugvélin brotlendir. Dauðinn
er í sjáifu sér tilvíljanakennd-
ur og það er mjög erfitt að
standa frammi fyrir honum.
í þeim skilningi fjallar Fear-
less um það að komast af,
um sektartilfinninguna og til-
raunina til að fá vit í eitthvað
sem í raun og veru er engin
vitglóra í: hvers vegna lifði
ég af en ekki þau?,“ segir
Yglesias.
Vinsæll en vanmetinn
Jeff Bridges hefur að
margra áliti verið frekar van-
metinn leikari þrátt fyrir að
hann hafí leikið í nokkrum
fjölda kvikmynda sem náð
hafa miklum vinsæidum.
Hann hefur oft þótt sýna
stjömuleik, og nægir þar til
dæmis að nefna frammistöðu
hans í myndinni The Fisher
King og sfðast í The Vanis-
hing. Leikaranum hefur þó
hlotnast ýmis heiður þrátt
fyrir að hann hafi aldrei hlot-
ið hin eftirsóttu óskarverð-
laun, en hann hefur hins veg-
ar þrisvar sinnum verið til-
nefndur til verðlaunanna fyr-
ir leik sinn. Jeff er sonur leik-
arans Lloyd Bridges og var
hann aðeins fjögurra ára
gamall þegar hann fór með
fyrsta hlutverk sitt í kvik-
mynd, en síðan hefur hann
leikið í aragrúa kvikmynda.
Konurnar
Hin lágvaxna Rosie Perez
fór með fyrsta kvikmynda-
hlutverk sitt í mynd Spike
Lee, Do The Bight Thing, en
sennilega hafa gestjr kvik-
myndalwsanna fyrst veitt
henni veruiega athygii þegar
hún iék á móti Woody Harrel-
son í myndinni White Men
Can't Jump. Núna er hún
hins vegar flestum kunnug
því fyrir hlutverk sitt í Fear-
less var hún tilnefnd til ósk-
arsverðlauna fyrir bestan leik
í aukalilutverki. Skömmu
áður en hún lék í Fearless fór
hún með hlutverk í myndinni
Untaimed Heart þar sem hún
lék með Christian Slater og
Marisu Tomei. Rosie kemur
úr hóþi eilefu systkina sem
óiust upp í Brooklyn í New
York, en hún fluttist hins
vegar til Los Angeles til að
stunda menntaskólanám.
Dans varð henni snemma
hugleikinn og í Los Angeles
kom hún fram með danshóp-
um um skeið þar til hún var
beðin um að semja dans fyrir
nokkra tónlistarmenn. Hún
hefur samið dansa fyrir sýn-
ingar, hljómleikaferðalög og
myndbönd fyrir listamenn á
borð við Diönu Ross, The
Boys, LL Cool og fleiri. Auk
þess að leggja stund á leiklist
hefur Rosie svo verið með
blúshljómsveitina 5 A.M. á
sínum snærum, en hún er
eingöngu skipuð konum.
Isabella Rosselini á að baki
feril í kvikmyndum frá árinu
1979. Hún er dóttir sænsku
leikkonunnar Ingrid Berg-
man og ítalska ieikstjórans
Roberto Rossellini, og i æsku
var hún á sífelldum þeytingi
á milli þeirra, en móðir henn-
ar bjó lengst af í París en
faðir hennar í Róm. Þegar
Isabella varð tvítug fluttist
hún til New York til að Ijúka
menntaskólanámi, en þar
gerðist hún síðan túlkur og
pístlahöfundur fyrir ítalska
ríkissjónvarpið. Hún öðlaðist
mikla frægð þegar hún varð
ein helsta fyrirsæta fyrir
Lancome snyrtivörufyrirtæk-
ið, en um langt skeið prýddu
myndir af henni forsíður allra
heistu tímarita heims. Meðal
kvikmynda sem Isabella hef-
ur leikið í eru White Nights,
Blue Velvet, Tough Guys
Don’t Dance, Wild at Heart
og Death Becomes Her, og
þá hefur hún nýlega lokið við
að leika á móti Anthony
Hopkins í nýjustu mynd
Johns Schlesinger, The
Innocents.