Morgunblaðið - 17.04.1994, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 17.04.1994, Blaðsíða 29
MORGUNBLA.ÐIÐ MINNINGAR SUNNUDAGUR 17. APRÍL 1994 29 mæðraskólans á Laugum. Halldóra var fædd 26. júní 1905 á Sandi í Aðaldal. Foreldrar hennar voru Sig- urjón Friðjónsson, bóndi þar, og kona hans Kristín Jónsdóttir. Sigurjón var sonur Friðjóns bónda á Sandi Jóns- sonar bónda á Hafralæk Jónssonar og konu hans Sigurbjargar Guð- mundsdóttur Stefánssonar frá Síla- læk. En Kristín var dóttir Jóns bónda á Rifkelsstöðum í Eyjafirði Ólafsson- ar Jónssonar bónda á Stokkahlöðum og konu hans Halldóru Asmunds- dóttur Gíslasonar frá Þverá í Dals- mynni. Hal'.dóra var sjöunda í röð tíu barna Siguijóns og Kristínar sem upp komust. Eldri voru Amór, skólastjóri Alþýðuskólans á Laugum, síðar starfsmaður Hagstofu íslands, Unn- ur, húsfreyja á Laugabóli í Reykjad- al, Áskell, bóndi í Laugafelli í Reykjadal, Dagur, skólastjóri bama- skólans á Litlulaugum, Fríður, ljós- móðir, síðast á Sólvangi í Hafnar- firði og Sigurbjörg, húsfreyja á Litlu- laugum í Reykjadal, en yngri Ing- unn, sem lést úr berklum fulltíða, Ásrún, hjúkrunarkona á Hvítaband- inu í Reykjavík, og Bragi, alþingis- maður og bankaútibússtjóri á Akur- eyri. Lifa Áskell, Fríður, Sigurbjörg og Bragi systur sína. Halldóra fluttist á fyrsta ári með foreldrum sínum að Einarsstöðum í Reykjadal þar sem þau tóku við hálfri jörðinni til ábúðar eftir að Haraldur Siguijónsson, mágur Kristínar, lést um aldur fram. Voru þetta ráð Ásr- únar húsfreyju Jónsdóttur og föður systranna. Foreldrar þeirra höfðu flutt í Einarsstaði þegar þau brugðu búi. En þriðja systirin, Kristjana, hafði gifst í Stórulaugar í Reykjadal Aðalgeiri Davíðssyni, bónda þar. Sig- uijón og Kristín höfðu einmitt kynnst þegar Siguijón var heimiliskennari á Einarsstöðum hjá Haraldi og Ásrúnu og var kært með þeim og húsfreyju. Var þeim því ljúft að flytja fram í Reykjadal, þó einkum Kristínu sem naut þar nábýlisins við eldri systur sínar. Þau Siguijón og Kristín bjuggu á Einarsstöðum til 1913 þegar þau tóku hálflendu Litlulauga í sömu sveit á leigu og fluttu þangað með öllum börnum sínum. Þar bættist þeim fóstursonur, Gísli T. Guð- mundsson, systursonur Siguijóns. Seinna keyptu þau jörðina alla og bjuggu þar til æviloka. Halldóra var snemma rösk til allra inniverka og gekk í heimilisstörfin með móður sinni af miklum dugnaði enda margt að iðja á stóru heimili. Voru þær mæðgur mjög samrýndar Oog einhuga um verk. Ekki minnkuðu annir þeirra við það að Siguijón tók mikinn þátt í málefnum Kaupfélags Þingeyinga og stjómmálum. Settist hann á þing sem varamaður Hannes- ar Hafstein, þegar hann lét af störf- um sökum heilsubrests, og sat alls fjögur þing. Var því gestkvæmt á Litlulaugum. Ábyrgðin af heimilinu lagðist þó enn þyngra á herðar Hall- dóru fyrir það að Kristín varð berkla- veik. Halldóra var þó ekki aðeins hveij- um röskari til vinnu heldur einnig til bóknáms. Hún naut fýrst leiðsagn- ar Arnórs, bróður síns, og Helgu Kristjánsdóttur, mágkonu sinnar, við Alþýðuskólann á Breiðumýri 1922-23 og síðar á Laugum 1926-27, þegar skólinn hafði verið fluttur þangað. Eftir það fór hún til náms í hússtjómarfræðum til Svíþjóðar, fyrst við húsmæðraskólann Hels- ingegárden 1927-28. Húsmæðra- kennaraprófí lauk hún hins vegar í Rimforsa 1930. Enn fór hún í náms- ferð til Norðurlanda 1950 og tók m.a. þátt í kennaranámskeiði í upp- eldishagfræði í Uppsölum. Áður en Halldóra lauk húsmæðra- kennaranámi hafði verið komið á fót húsmæðraskóla á Laugum undir stjórn Kristjönu Pétursdóttur alþing- ismanns Jónssonar á Gautlöndum og hafði verið ákveðið að Halldóra tæki þar við kennslu í hússtjómarfræðum. Halldóra hóf þar störf 1930. Varð húsmæðraskólinn síðan starfsvett- vangur hennar meðan kraftar hennar entust til kennslu. Tók hún við skóla- stjórn að Kristjönu látinni 1946 og gegndi henni allt til ársins 1966 eða í tuttugu ár. Skólasetrið á Laugum var reist í túnfæti Litlulauga fyrir atbeina þeirra feðga Siguijóns og Arnórs. Gaf Siguijón lóð undir skólana og hitaréttindi til hitunar þeirra. Fjögur systkinanna áttu eftir að sinna kennslustörfum þar en ekkert eins lengi og Halldóra. Rækti hún það starf af áhuga, stakri alúð og að- gæslu. Var henni umhugað um að af skólanum færi hið besta orð, þar væm úrvalskennarar og námsmeyjar menntuðust þar bæði til munns og handa. Þá var það henni kappsmál að húsakynni skólans væru ætíð í besta horfí og þrifnaður hvergi meiri. Samstarf hennar og annarra kennara var með ágætum og unnu flestir þeirra með henni áratugum saman að velferð skólans. Samskipti hennar við stjórn skólans voru og góð. En mestur styrkur við skólastjómina mun henni þó hafa verið af Áskeli, bróður sínum. Öll árin sem hún starf- aði við húsmæðraskólann sá hann um bókhald hans. Var þeim báðum samviskusemi í blóð borin og heið- arleiki í ljárgæslu ailri. Svo ríkar voru kröfur Halldóru til sjálfrar sín að duga við skólastjórnina að hún gekk að lokum fram af heilsu sinni og varð því að láta af störfum. Flutt- ist hún þá til Reykjavíkur og síðar á Seltjarnarnes og bjó lengstum hjá Kristínu, dóttur sinni. Alltaf leit hún samt á Reykjadal sem sína heima- byggð og hvarf hún norður í Laugar þegar snjóa leysti á vorin. Halldóra giftist 1933 Halldóri Víg- lundssyni, síðar vitaverði. Þau slitu samvistir 1942. Þeim varð þriggja barna auðið. Þau eru Halldór, yfír- læknir á Kristnesspítala, kvæntur Bimu Bjömsdóttur, vefnaðarkenn- ara, og eiga þau fjögur uppkomin böm. Svanhildur, starfsmaður BSRB, var gift Arnaldi Valdimars- syni, starfsmanni Skattstofunnar í Reykjavík, og eiga þau fjögur böm, og Kristín, starfskona Kvennalistans, gift Jónasi Kristjánssyni, ritstjóra, og eiga þau ijögur börn. Halidóru var mjög annt um böm sín. Velferð þeirra, bamabama og barnabamabama tók ekki síður hug hennar en kennslan og skólastjómin. Er það líklegast ríkasti votturinn um atorku hennar og nægjusemi fyrir sjálfa sig að hún kom börnum sínum til mennta ein og óstudd. Bera þau öll uppeldi hennar og menningu gott vitni. Halldóra var fremur hlédræg, fá- mælt og orðvör þótt hún væri alveg feimnislaus og ákveðin í framkomu. Hún var meðalkona á hæð, beinvax- in og grannholda, andlitsdrættimir skarpir og festa í svipnum, dökk- hærð en hærðist snemma. Hreyfíng- ar hennar vom kvikar og í fullu sam- ræmi við röskleika hennar. Hún var fremur alvörugefin en hress í tali við kunnuga. Ræktarleg var hún við þá sem henni voru hollir og hlý þeim sem henni geðjaðist að. Ég sem þetta rita var svo lánsam- ur að eiga Halldóm að föðursystur. Engin kona önnur en móðir mín ann- aðist mig barnið eins og hún, engin önnur en móðir mín lét sér jafntítt um þroska minn og hún. Drengurinn eyddi ég summnum með henni. Strax og vorskólinn á Akureyri var búinn fór ég austur í húsmæðraskóla til hennar. Einnig ferðaðist ég með for- eldrum mínum og henni um allt land svo langt sem vegir leyfðu. Mér varð þá fullljóst að foreldrum mínum var návist fárra jafnkær og hennar enda fannst mér hún hvergi njóta sín jafn- vel og með þeim nema í samskiptum við Áskel, bróður sinn. Þau þijú systkinin vom næsta lík að andlits- falli og gerð og áhugasvið þeirra var svipað um margt. Þó hafði Halldóra lítinn áhuga á þessum ámm á stjóm- málum. Þær frænkur móðir mín og Halldóra voru báðar afarröskar til vinnu. Höfðu þær ungar orðið að sinna heimilisstörfum þegar mæður þeirra veiktust af berklum og sam- hugur þeirra virtist koma af sjálfu sér þótt þær væm óskaplíkar. Engin mágkvenna móður minnar virti kosti hennar eins og Halldóra enda leitað- ist móðir mín alltaf eftir að verða henni að hveiju því liði sem hún gat hvort sem það var um aðdrætti til skólans eða fyrirgreiðslu vegna barna hennar. Mér finnst síðan ég ferðaðist barn með foreldmm mínum og Halldóm, föðursystur minni, hringinn kringum landið að engin landafræði og sögu- kennsla hafi verið betri. Þau þeystu ekki um sveitir og kauptún landsins heldur gáfu sér tóm til að skoða kennileiti, glöggva sig á bæjamöfn- um, ræða landsins gögn og gæði, rifja upp frásagnir úr hémðum og sögu staða og heimsækja fólk enda þekktu þau systkinin víða til. Ekki var það síður gott veganesti drengn- um að fá að kynnast þeim anda menningar sem ríkti í Húsmæðraskó- lanum á Laugum. En best var að dveljast með Halldóru einni í Varma- hlíð og njóta kyrrðarinnar með henni. Heiman frá mér var ég vanur stöð- ugum ys og þys enda við systkinin mörg og mjög gestkvæmt en á sumr- in dvaldist Halldóra langdvölum ein þegar þetta var enda börnin farin að heiman til náms og starfa. Móðir mín sagði mér síðar að Halldóm hefði þótt félagsskapur af að hafa mig hjá sér í Varmahlíð og þar fannst mér líka indælt að vera. Hún hafði gott fyrir mér og leiðbeindi mér á sinn hljóðláta hátt. Bar ég óblandna virðingu fyrir henni eins og mér virt- ust einnig allir aðrir gera. Hún var mér raungóð fóstra. Það fékk ég henni aldrei fullþakkað. Úlfar Bragason. Minning Sigrún Halldórsdóttir Fædd 18. janúar 1917 Dáin 6. apríl 1994 Á morgun, mánudag 18. apríl, verður gerð útför móður minnar, Sigrúnar Halldórsdóttur frá, Foss- vogskirkju. Það er með djúpum sökn- uði sem ég minnist hennar og kveð. Hún lést í Landspítalanum 6. apríl sl. eftir mánaðarlegu þar. Á svona stundu vakna margar spumingar, en engin em svörin. Hvað kemur upp í hugann á þesari stundu er ung kona í blóma lífsins fellur frá? Minningar um góða móður og ömmu og skemmtilegar stundir rilj- ast upp, minningar sem munu lifa ævilangt. Efst í huga mínum er þakk- læti fyrir að hafa átt mínar yndislegu stundir með lífsglaðri móður. Stund- um okkar fór fjölgandf síðustu árin er við deildum saman áhugamálum okkar og skiptumst á skoðunum. Alltaf þótti mér gott að geta leitað til hennar ef mér lá eitthvað á hjarta. Oft var glatt á hjalla hjá okkur mæðg- unum, ég sat stundum tímunum sam- an og hlustaði á hana segja frá yngri árum sínum. Minningar hennar hrönnuðust upp, frá æskuárum sínum í Svanahlíð á Akranesi, þar sem hún var fædd og uppalin. Frá því hversu dugmikla foreldra hún átti, frá prakkarastrikum sínum í sveitinni. Hún var greinilega fjörmikil stúlka. Hún kenndi manni ýmislegt sem for- eldrar hennar kenndu henni, svo ég hef gott vegánesti í framtíðinni. Móðir mín ólst upp í stórum systk- inahópi. Alls urðu þau 16 talsins, eftirlifandi eru 11. Mamma var virkilega hjálpsöm kona, vildi allt fyrir alla gera, hún gaf virkilega mikið frá sér. Stærsta áhugamálið okkar var að kynna okk- ur dulræna hluti, hvort líf væri eftir þetta líf, miðilsstörf og ýmislegt í þeim dúr. Þetta var okkur svo fjar- lægt þá. Við komumst að þeirri niður- stöðu að eftir aðskilnað okkar á jörðu hér myndum við hittast hinum megin og að dáið fólk gæti fylgst með okk- ur, sem mennsk erum hér á jörð. Þar sem hún hefur nú kvatt okkur hér trúi ég að hún hafí uppgötvað annað líf og sé nú í faðmi pabba síns og bræðra. Ég veit hún hefur enn auga með okkur og er ekki alveg horfín. Aldrei hafði ég leitt hugann að því hversu trúuð hún væri, ég man þó er við systumar vorum yngri og faðir okkar á sjó var okkur kennt að biðja fyrir honun, aldrei var farið að sofa fýrr. Ég veit það hefur mikið reynt á þessa trú hennar, er hún bað fyrir móður sinni, elsku ömmu minni, sem þá lá veik á sjúkrahúsi og fyrir sum- um systkina sinna. Er hún vissi að ég væri löt við að fara með mínar bænir skammaði hún mig oft, svo núna loksins hef ég lært þetta. Ef hún vissi um batamerki eftir bænir sínar var alltaf viðkvæðið að þetta væri honum Guði að þakka. Ég veit að hún heldur áfram að biðja fyrir okkur á nýja heimilinu sínu. Það var sama hvað móðir mín tók sér fyrir hendur, hún var alltaf jafn myndarleg. Alltaf var jafn fínt í kringum hana. Þar sem dauðinn var okkur svo fjarlægur batt maður von- ir við bata, ef einhver batamerki sáust varð maður bjartsýnn. Oft hugsaði ég hversu gaman yrði ef hún næði sér, því þá skyldum við ekki spara tímann saman. Það var svo margt sem okkur langaði að gera, en þeir draumar okkar verða að bíða þar til í næsta lífí. Hún skilur eftir sig stórt skarð, en minningarnar munu ylja okkur um hjartarætur, minningar um ynd- islega móður og ömmu munu lifa. Ég veit að sonur minn mun heiðra minningu ömmu sinnar, er hann hef- ur þroska til. Einhvern tímann segi ég honum frá þeirra samverustund- um og kenni honum það sem hún kenndi mér. Þá daga er við hittumst ekki not- uðum við óspart símann, aldrei leið sá dagur að við vissum ekki hvor um aðra. Það er svo skrýtið að aldr- ei framar muni ég heyra glaðlega rödd móður minnar á hinum enda línunnar. Þar sem hún er núna kom- in á vit nýrra ævintýra og ég veit að henni líður vel sætti ég mig við að kveðja hana sem góða móður og bestu vinkonu, sem ég hef átt. Hún verður mér ávallt efst í huga. Amma mín minnist hennar sem stillts og góðs bams. Hjálpsamrar og skemmtilegrar dóttur. Alltaf fannst þeim gaman að tala saman og veit ég vel að þetta er erfíð raun fyrir ömmu mína, að horfa á eftir fimmta baminu sínu. Guð gefí henni styrk. Sigrún var dóttir Helgu Jónínu Ásgrímsdóttur, Akranesi, og Hall- dórs Magnússonar, Akranesi, sem lést 1977. Elsku amma, Linda, Helga, Birkir Freyr, móðursystkini og aðrir ástvin- ir, megi Guð veita ykkur styrk og trú í þessari miklu raun, svo ykkur auðnist að bera sorg ykkar fram á veg vöna og minninga, minninga um móður, ömmu, dóttur og systurina bestu, sem gaf ykkur svo mikið. Blessuð sé minning hennar. Dýrleif Ólafsdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.