Morgunblaðið - 26.04.1994, Page 2

Morgunblaðið - 26.04.1994, Page 2
2 B MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR ÞRIÐJUDAGUR 26. APRÍL 1994 Úti: West Ham 27. apríl Coventry 30. apríl Heima: Ipswich 8. maí Staðan nú: Leikir Sigrar Jafnt Töp Markahl. Stig Manchester United 38 24 10 4 74:37 82 Blackburn Rovers 39 24 8 7 59:32 80 Endaspreítúrinn að meistaratitlinum Blackburn^ Manchestern TLABORE Uti: Leeds 27. apríl Ipswich l.maí Heima: Southampton 4. maí Coventry 8. maí ■ ENSKI kylfingurinn David Gil- ford verður væntanlega sektaður í vikunni. Hann mætti ekki á teig á þriðja degi á móti í Katalóníu á Spáni á laugardaginn. Eftir fyrstu tvo dagana hafði hann leikið á 147 höggum og taldi sig þar með úr leik. En vindur jókst mjög er leið á annan daginn og skorið versnaði verulega þannig að Gilford slapp í gegnum niðurskurðinn. Gallinn var bara sá að hann var kominn til Englands og vissi ekkert af því. ■ JUAN Antonio Samaranch for- seti alþjóðaólympíunefndarinnar, IOC, var á dögunum á ferðinni í nokkrum ríkjum fyrrum Sovétríkj- anna og sagði þar að hann ætlaði að beita sér fyrir því að stofnað yrði samband fyrrum íþróttamanna sem keppt hafa á Ólympíuleikum og er áætlað að um 50.000 íþróttamenn verði í samtökunum. ÍpfémR FOI_K ■ SAMARANCH ætlar að verða formaður þeirra, þó svo hann hafi aldrei keppt á Olmpíuleikum og varaformaður verður valinn af íþróttamönnunum. ■ STEPHEN Hendry snókerspil- arinn snjalli tekur nú þátt í heims- meistaramótinu sem fram fer í Sheffield. Hendry hefur fjórum sinnum orðið heimsmeistari síðustu fimm árin og eygir möguleika á titl- inum nú, þrátt fyrir að hann hafi brákað á sér vinstri olnbogann. ■ HETVDffF hrasaði á baðherberg- inu á hóteli sínu á fimmtudaginn en vann þó Dave Harold 13-2 á föstu- daginn. Hann tók síðan létta æfingu á laugardaginn og sagði að olnbog- inn væri í þokkalegu lagi og að hann hefði sofið vel um nóttina. Hann mætir Nigel Bond í kvöld. ■ SKAPTI Hallgrímsson á Morg- unblaðinu var endurkjörinn formað- ur Samtaka íþróttafréttamanna á aðalfundi þeirra á miðvikudaginn. Með honum í stjórn voru endurkjörn- ir Arnar Björnsson frá RÚV og Jón Kristján Sigurðsson á DV. Vara- menn eru Skúli Unnar Sveinsson, Morgunblaðinu og Heimir Karlsson á Stöð 2. ■ REYKJA VÍKURBORG ætlar að láta gera 5-6 púttflatir víða um borgina í sumar og einnig aðstöðu til að vippa inná flatir. Þetta er kærkomin aðstaða fyrir kylfinga og hefur Sigurður Hafsteinsson verið ráðinn til verksins í samráði við starfsmenn Laugardalsvallar. ■ STJÓRN GSÍ hefur skipað Ólaf Jónsson, Arnar Má Ólafsson og Jóhönnu Ingólfsdóttur í iandsliðs- nefnd í golfi, til að sjá um öll mál landsliðanna, nema að velja þau, en það er í verkahring landsliðsein- valda. - VEISLUHÖLD Það hefur verið nóg við að vera fyrir íþróttaáhuga- menn hérlendis að undanförnu. Á tímum fermingarveisla hefur landsmönnum einnig verið boðið upp á hveija íþrótta- veisluna af annarri. Oft hefur verið haft á orði að fram- boð á menningarefni lega kom í ljós hve framboð á „skemmtilegum“ áhorféndum er orðið mikið hérlendis, auk þess sem dómararnir — og þeim má vitaskuld ekki gleyma í þessu Framboð mikið á vett- vangi íþrótta hérlendis Lkt™ °f ÞábetS °9 9*ðin sömuleiðis Reykjavík sé ótrúlegt miðað við stærð — eða kannski ætti frekar að segja smæð — þjóðarinnar, og það sama má segja um íþróttirnar. Ein af nýju íþróttunum er þolfimi, sem nýlega skaut upp kollinum sem keppnisgrein hérlendis, og frá- bær frammistaða Magnúsar Seheving á heimsmeistaramót- inu um helgina er líklega kunn- ari en frá þurfi að segja. Hann gerði sér lítið fyrir og varð í öðru sæti, aðeins hársbreidd á eftir Japananum sem varði titii sinn frá fyrra ári. Þeir tveir voru langefstir og því langbestir í heiminum. Oft hefur manni þótt íslend- ingurinn ótrúlegur; trúin á sjálf- an sig, krafturinn og þorið eru með ólíkindum, og Magnús Scheving er gott dæmi um slíkt. Hann þorir, vill og getur og uppsker eftir því. Ástæða er til að óska honum sérstaklega til hamingju með frábæran árang- ur í Japan. Það sem Grindvíkingar og Njarðvíkingar sýndu í úrslitavið- ureignunum í körfuboltanum á dögunum sannar svo ekki verður um villst að framfarir hafa orðið miklar í íþróttinni, og breiddin aukist. Keppni stúlknanna í ÍBK og KR var einnig afbragð. Einn- ig var mjög ánægjulegt að ber- samhengi — geta borið höfuðið hátt. Það kom í ljós í úrslita- keppninni í körfuknattleik, að okkar bestu dómarar voru frá- bærir. Þarna voru þeir við störf undir mikilli pressu, en varla var hægt að gagnrýna nokkum skapaðan hlut. Um úrslita- keppnina er hægt að segja að hún var samspil frábærrar frammistöðu leikmanna, dóm- ara og stuðningsmanna. íslenskir handknattleikskarl- ar hafa löngum verið á meðal þeirra bestu og eru enn. Leikir Víkings og Stjörnunnar í úrslita- keppni kvenna á dögunum voru mjög góðir og viðureignirnar hjá körlunum hafa til þessa margar hveijar verið stórgóðar og spennan mikil. Hér á þessum stað var hávaðamengun á hand- boltaleikjum gagnrýnd fyrir viku, sérstaklega mikil trommu- notkun. Sannarlega tímabær ábending og viðbrögðin létu ekki á sér standa. Sum félög a.m.k. ákváðu að fækka trommum snarlega á leikjum sínum og það kom auðvitað í ljós að sú ákvörð- un var til góðs. Þessari ákvörðun forystumanna í handknattleiks- hreyfingunni ber því að fagna. Skapti Hallgrímsson Hvers vegna tók kúabóndinn SIGMAR GUMMARSSON upp á þvíað æfa hlaup? Finnst ég vera rétt að byrja SIGMAR Gunnarsson UMSB, pípulagningamaður og kúabóndi í Rauðanesi í Borgarhreppi, sigraði með yfirburðum annað árið í röð í Víðavangshlaupi ÍR á sumardaginn fyrsta. Sigmar er kvæntur Ingveldi Ingibergsdóttur sem keppti ífrjálsum á unglingsárum og eiga þau tvær dætur. Hefur sú eldri fetað í fótspor foreldranna og þegar sigrað i barnahlaupum. Víðavangshlaup ÍR var fjórða sigurhlaup Sigmars í röð í vetur. En var sigurinn jafn auð- veldul' og hann Eflir VÍrtÍSt? Ágýst „Það kom mér Ásgeirsson eiginlega á óvart hvað ég fékk litla keppni. Ég bjóst við að hún yrði meiri og hélt þess vegna aftur af mér til að byija með, ákvað að leggja ekki of hratt af stað til þess að eiga eftir krafta þegar baráttan hæfíst á lokaspretti. Ertu þá í miklu betri æfíngu en aðrir hlauparar? „Það veit ég ekki, tók mér hvíld í haust og hef einungis æft vel frá áramótum. Reyndar æfi ég minna en fyrir ári, hleyp einungis 5-6 sinnum í viku. Ætli gæði æfíng- anna séu bara ekki betri.“ Hefurðu einhveija tii að æfa með og reka þig áfram í sveitinni? „Það er stutt í Borgarnes og þar hef ég tekið spretti og æfingar með strákum sem eru að koma upp og eiga eftir að láta að sér kveða. Þeir halda mér við efnið. Það er talsverður áhugi á hlaupum í UMSB, einkum Borgarnesi og nágrenni." Ætiiði þá að endurreisa það veldi sem Borgfirðingar voru í Víðavangshlaupinu á fjórða ára- tugnum? „Það er aldrei að vita. Við gátum ekki teflt fram okkar sterkasta liði nú en hefði svo verið er ekki að vita nema við hefðum unnið 3ja manna sveitina." En þú ert ekki sá eini í fjölskyid- unni sem sigrar í hlaupinu? „Nei, nei. Afi konunnar minnar, Viggó Jónsson, vann hlaupið 1930 undir merkjum Glímufélags Reykjavíkur en hann gekk síðan í ÍR áður en hann keypti jörðina hér í Rauðanesi og hóf búskap.“ Þú ert þá væntanlega betri maður í hans huga? „Það gladdi hann að ég skyldi sigra í hlaupinu. Hann fylgist vel með og lætur sig aldrei vanta á sum mót, kominn á níræðisaldur." Hvernig fer það saman að æfa Morgunblaðið/Theodór Sigmar Gunnarsson, bóndi í Rauðanesi í Borgarhreppi, sem sigraði Víðavangshlaupi ÍR, segir kúabúskap og langhlaup fara vel saman. hlaup og stunda búskap? „Það hafa engir árekstrar orðið. Það þarf ekki að sinna skepnunum nema á kvöldin og morgnana svo maður getur hagrætt æfingunum út frá því.“ Þú byijaðir frekar seint að æfa hiaup, kominn á þrítugsaidur? „Já ég fór ekki að æfa fyrr en 1988 er ég var 23 ára en þá hætti ég rallíakstri. Hlaupaáhuginn blundaði alltaf í mér, ég þótti sprettharður unglingur en fijálsar var ekki hægt að stunda á Akra- nesi þar sem ég bjó. Og það var eiginlega konunni að kenna að ég fór að hlaupa. Hún dró mig út að skokka með sér og skráði mig svo til keppni á héraðsmóti í Borg- amesi. Þetta hefur þróast síðan. Hafði góðan þjálfara í Svíþjóð en legg nú æfingarnar meira og minna upp sjálfur." Og þú heldur ótrauður áfram? „Já, mér finnst ég vera rétt að byija og stefni að því að bæta árangurinn í lengri hlaupunum. Ég þykist vita að ég eigi meira inni en spurningin er hvort ég næ því út. Það veltur talsvert á því hvort ég kemst í góð hlaup.“ Verður ekki að fara til útlanda til þess? „Ég gæti alveg hugsað mér að fara út aftur. Það vill reyndar svo til að ég fékk tilboð á dögunum frá sænsku félagi sem vantaði liðs- auka. Miðað við okkar aðstæður buðu þeir nánast gull og græna skóga. Það kom þó of seint því ég hefði þurft að dvelja í landinu í tvo mánuði áður en ég fengi að keppa. Annars segir þetta mikið um þann mun sem er á aðstöðu hlaupara hér og ytra.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.