Morgunblaðið - 27.04.1994, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. APRIL 1994
7
Sigrún Magnúsdóttir um fund R-listans 1 Réttarholtsskóla
Ekki séð reglur um bann
við fundum í grunnskóluni
SIGRÚN Magnúsdóttir, borgarfulltrúi Framsóknarflokksins, segist
ekki hafa séð neinar reglur um að sijórnmálaflokkum sé óheimilt
að halda fundi í grunnskólum borgarinnar. Sigrún sagði að ef
slíkar reglur væru til þá væri sjálfsagt að virða þær, en fulltrúar
meirihlutans í Skólamálaráði hafa lagt fram fyrirspurn vegna
sljórnmálafundar sem R-listinn hélt í Réttarholtsskóla fyrir
skömmu.
Sagði Sigrún að einn maður á
skrifstofu R-listans sæi um allan
undirbúning að fundaherferð Ingi-
bjargar Sólrúnar Gísladóttur.
Hann hafi talið eðlilegt að fundur
um skólamál yrði haldinn í skólum
borgarinnar. Fyrst var haft sam-
band við Hvassaleitisskóla, þar
sem þær upplýsingar fengust, að
skólinn væri upptekinn þetta
kvöld. Bent var á að Réttarholts-
skóli væri heppilegur fundarstaður
og þegar haft var samband við
skólann fengust þau svör hjá
starfsmanni skólans að salurinn
væri laus þetta umrædda kvöld.
Engar hindranir
„Þarna talaði starfsmaður okk-
ar við tvo skólastjórnendur og
hvorugum þeirra var kunnugt um
að fyrir utan skólatíma barna
mætti ekki leigja salina út,“ sagði
Sigrún. „Starfsmaður okkar rak
sig ekki á neinar hindranir og
spurði því hvorki mig né aðra um
hvort þetta væri leyfilegt. Þetta
er það sem snýr að R-listanum.“
Sigrún sagðist ekki vita hvar
sú regla væri skráð að ekki mætti
halda stjórnmálafundi í skólum.
„Ég hef aldrei heyrt um þessa
reglu,“ sagði hún. „Auðvitað á
ekki að vera með pólitík á skóla-
tíma barna, en í grunnskólalögun-
um nýju hefur skólastjórnin tals-
vert um húsnæðið að segja.“ Sig-
rún sagðist hafa átt sæti í undir-
nefnd Skólamálaráðs, sem fjallaði
um nýju grunnskólalögin. Þar hafi
komið fram og þá ekki síst frá
sjálfstæðismönnum í nefndinni að
rýmka ætti frekar heimild til að
leigja út skólahúsnæði til hinna
ýmsu félagasamtaka og fá þannig
betri nýtingu á oft vönduðu hús-
næði. „Svo má spyija hvort opnir
stjórnmálafundir flokkist undir
félagsstarf, en það er annarra að
skilgreina það,“ sagði hún. í þess-
ari nefnd hafi verið unnið að efl-
ingu sjálfstæðis í skólum og væri
þetta einn liður í því. „Svo má
benda á að skólar eru nýttir á
kjördegi, þannig að þeir eru opnir
almenningi."
Loks sagði Sigrún að það væri
ekki nýtt að fundað væri um skóla-
mál í skólum borgarinnar. Minnti
hún á fund með aðstoðarmanni
menntamálaráðherra á sínum tíma
um grunnskólalögin, sem haldinn
var í Hvassaleitisskóla. Þar hafi
Árni Sigfússon borgarstjóri verið
meðal frummælanda.
Morgunblaðið/Eyjólfur M. Guðmundsson
Bjarg hrundi úr Vogastapa
Fjögurra til fimm tonna steinn féll úr Eggjunum í Vogastapa um
helgina og hafnaði niður í fjöru á milli Halatúns og Kerlingar-
búða. Djúp rás er í hlíðinni næst berginu þar sem steinninn hefur
fallið fram og skriðið niður hlíðina. Á myndinni eru ungir Voga-
menn að virða fyrir sér steininn í fjörunni.
AÐSTAÐA TIL SKÖPUNAR: Myndlistarálma meS tilheyrandi verkfærum. Ljósmyndaver og framköllunaraðstaSa. Klippiherbergi fyrir myndbandagerð auk 2ja S-VHS myndavéla. Útvarpsstöð til æfinga og leiks. Tvö tölvuver; bæði Macintosh og
í
«2
»2
&
■8
£
&m
Skólinn er kjörinn, fyrir nemendur sem hafa
ákveðið hvab þeir ætla að verða þegar þeir „verða
stórír" og velja því ákveðnar brautir sem
skólinn hefur í boði.
im sem eru óákvebnir
sem nýtist þeim í öllu
Bóknám fyrir allar brautir (fjórar annir).
Fomám, listnám, fjölmiðlanam, matartæknanám
(1. árib), sjúkraliðanám, vibskiptanám og uppeldisnám.
Eldrí nemendur velkomnir.
Spyrjió um bækiinginn í næsta grunn- eba framhaids-
skola eóa fáið hann sendann.
Umsóknarfrestur er Hl 4. júní.
FRAMHALDSSKOLINN REYKHOLTI
320 REYKHOLT • BORGARFJÖRÐUR
SÍMI 93-51200* 93-51201
FAX 93-51209
KJARNAFÆDIHF.
Akureyri
/^BÚNAÐARBANKI
v/yisu
GEVALIA
J.G.R. Umboðs-
og heildverslun
LITNIR %
Borgarnesi
VIRNET
Borgarnesi
n
SPARISJÓÐUR
MÝRASÝSLU
'ÍSIANDS Borgarnesi
Disatj i (Budjy ^SNVIOXS VQVÍSÖ3S 6° su|s§o|C]D|9>|s tugltstp '§DjsdiDA(n 'jnqqn|s|s6u|u§nj 'jnqc|n|)|a|DJD)j '(gjoq otoj Ql) ■in<I(19|)|„-la)|9us" 'Jncjcjnj)|DpuXuu)||A>| 'jncjcjn|)jDpuXuisoþ :opD|s jgDJDpuauiau j|pupi -DBainjiiA nja (J|punjsncj)
Kaupttlao
Borsllrðlnga
BÚnBulsXiBné QiúuXag"-*?