Morgunblaðið - 27.04.1994, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. APRÍL 1994
13
Árnesingakórinn
Tónlist
Jón Ásgeirsson
Átthagakóramir hafa um nokk-
urt skeið starfað hér á höfuðborg-
arsvæðinu með miklum blóma og
haldið tónleika í sumarbyijun. í ár
beinist athyglin að Árnesingakórn-
um sem Sigurður P. Bragason hef-
ur stjómað í nokkur ár. Að þessu
sinni hélt kórinn tónleika sl. sunnu-
dag í Langholtskirkju en kallaði til
samstarfs Kór Kvennaskólans í
Reykjavík, sem Sigurður hefur
stjórnað síðan í haust, og einsöngv-
arana Ingunni Osk Sturludóttur,
Þorgeir Andrésson, Árna Sighvats-
son, Stefán Arngrímsson og Ingvar
Kristinsson, en sá síðastnefndi er
félagi í kómum. Margrét Harpa
Guðsteinsdóttir lék einleik á flautu
en undirleikari á píanó var Bjami
Þ. Jónatansson.
Efnisskráin var að mestu byggð
upp af íslenskum ættjarðarlögum,
fjórum lögum eftir söngstjórann
óg af 20 viðfangsefnum voru að-
eins 4 lög eftir erlend tónskáld og
einn negrasálmur. Íslensku höfund-
arnir voru Sigfús Einarsson (Nú
er glatt í borg og bæ og Kvölds í
blíða blænum), ísólfur Pálsson (Eg
stóð um nótt), Emil Thoroddsen
(Hver á sér fegra föðurland), Sig-
urður Þórðarson (Sjá dagar koma),
Sigvaldi Kaldalóns (Ásareiðin og
Hér skal boðað) og Sveinbjörn
Sveinbjörnsson (Sprettur og Sverr-
ir konungur).
Lögin eftir söngstjórann voru
Manvísa, Ég elskaði lífið (sungið
af kór Kvennaskólans), Söngvar
loftin fylla og Fagra veröld. Lög
þessi em einföld að gerð og best
hljómandi voru Ég elskaði lífið og
lagið við Fagra veröld, kvæði Tóm-
asar. Hlutur einsöngvara var
þokkalegur framfærður en sá eini,
sem nokkuð hvað að, var Þorgeir
Andrésson, er söng með miklum
ágætum lag Sigurðar Þórðarsonar,
Sjá dagar. 1 lögum þeim sem Ing-
unn Ósk söng, reyndi ákaflega lítið
á raddgetu hennar en söngur henn-
ar í lagi ísólf Pálsson, Ég stóð um
nótt, var gæddur þokka og þetta
ágæta lag var í heild fallega flutt.
Söngur Árnesingakórsins var í
heild góður, látlaus og hreinn og
bestur i lokalaginu, Þýtur í skógum,
úr Finnlandíu eftir Sibelius. Sigurð-
ur er á góðri leið með að gera
Árnesingakórinn að góðum kór.
Nemendakór Kvennaskólans fer vel
af stað og þar hefur Sigurður mikil-
vægt verk að vinna, varðandi söng-
mennt unga fólksins.
Undirritaður vill gera smá at-
hugasemd varðandi notkun orðsins
útsetning, sem fróðir menn telja,
að eigi að gilda um algjöra umsköp-
um lags, bæði hvað snertir form-
mótun, raddfærslu og hljómskipan.
Smá breytingar á raddskipan eins
og í Hver á sér fegra föðurland,
eftir Emil Thoroddsen, ættu ein-
faldlega að nefnast breyting á
raddskipan og breytingar á lagi
Sigurðar Þórðarsonar, Sjá dagar
koma, er rétt að kalla umritun, þar
sem bæði undirleikur, einsöngs-
línan og hljómskipan kórsins er sú
sama og hjá höfundi. Umritun
karlaradda fyrir blandaðan kór og
smá tilfærslur radda, er ekki rétt
að kalla raddsetningu, jafnvel þó
faglega sé staðið að umrituninni.
Þetta er ekki tekið fram hér, sér-
staklega vegna tónleika Árnesinga-
kórsins, heldur vegna þess að um-
ritanir, bæði fyrir hljóðfæri og
söng, eru oft ranglega sagðar vera
raddsetningar og eða útsetningar.
Tónleikar voru haldnir
í Gerðarsafni
Samkór Kópavogs, nemendur og
kennarar við Tónlistarskóla Kópa-
vogs og aðrir listamenn, stóðu fyrir
tónleikum í Gerðarsafni, Listasafni
Kópavogs, um síðustu helgi, undir
yfirheitinu Menningardagar. Lista-
safn Kópavogs er glæsilegt hús og
á áreiðanlega eftir að verða Kópa-
vogsbúum álíka lyftistöng og menn-
ingarmiðstöðvamar í Gerðubergi og
í Hafnarborg, þar sem fitjað hefur
verið upp á ýmsum nýjungum, er
íbúar Stór-Reykjavíkur hafa sannar-
lega metið mikils og svarað með
góðri aðsókn.
Að þessu sinni voru tónleikamir
haldnir á neðri hæð hússins en þar
er of lágt undir loft til tónleika-
halds. Stærri salurinn á efri hæð-
inni er trúlega mun betur fallinn til
tónleikahalds, sem var nú fullskip-
aður standlistaverkum eftir Gerði
Hjörleifsdóttur, í tilefni af opnun
safnsins. Við venjulegar málverka-
sýningar mætti halda þar kammer-
tónleika, eins og tíðkað hefur verið
á Kjarvalsstöðum og í Hafnarborg.
Tónleikamir hófust á strengja-
samleik ungra nemenda, með aðstoð
kennara sinna og undir stjórn Svövu
Bemharðsdóttur. Strengjasveitin
flutti smá kafla úr ýmsum tónverk-
um meðal annars einleiksþætti úr
Árstíðunum og 1. þátt úr fíðlukon-
sert í a-moll eftir Vivaldi. Einleikar-
ar vom Sigrún Daníelsdóttir og
Lára Bryndís Eggertsdóttir. Þá var
frumflutt strengjaverk, sem nefnist
Fimm kennileiti, er Þorkell Sigur-
bjömsson samdi sérstaklega fyrir
stengjasveitina og nefnast þættirnir
Þingið, Lækurinn, Álfhóll, Kirkja
og Víghólar. Svava Bernharðsdóttir
hefur æft þessa litlu strengjasveit í
vetur og fyrir utan elskulegan
þokka, sem var yfir leik unga fólks-
ins, er þama að frnna þau meiðar-
brot, sem af kann að rísa hávaxinn
og glæsilegur skógur.
Þrír kennarar við Tónlistarskóla
Kópavogs, Lin Wei, fiðluleikari,
Araþór Jónsson, sellóleikari, og Jón
Sigurðsson, píanóleikari, fluttu
fyrsta þátt úr tríói í e-moll, eftir
Sveinbjöm Sveinbjömsson og gerðu
það af þokka en flutningurinn bar
þó þess merki að til þess leiks hafði
verið stofnað án undangenginnar
mikillar samvinnu flytjenda sem er
nauðsynleg þegar um er að ræða
flutning kammertónlistar.
Meðal tónskálda í Kópavogi er
Ámi Harðarson og söng Þórann
Guðmundsdóttir við undirleik Krist-
ins Arnar Kristinssonar, þijú lög
eftir Áma sem trúlega era samin
þegar hann var við nám í Eng-
landi, enda samin við kvæði eftir
Mervyn Peake. Þetta eru vel samin
sönglög og vora þau prýðilega flutt
en einmitt fyrir söng Þórannar var
hljómrými salarins beinlínis and-
stætt.
Síðast á efnisskránni var Samkór
Kópavogs, með Katrínu Sigurðar-
dóttur sem einsöngvara, undir
stjóm Stefáns Guðmundssonar og
við undirleik Ólafs Vignis Alberts-
sonar. Á undan söng kórsins las
Róbert Arnfínnsson leikari upp tvö
þjóð eftir Þorstein Valdimarsson og
mátti glögglega heyra hversu
hljómþurr þessi salur er fullskipaður
fólki, því til hliðar heyrði undirritað-
ur ekki einu sinni orðaskil. Samkór
Kópavogs flutti nokkur íslensk sön-
glög og söng Katrín Sigurðardóttir
einsöng í lagi Inga T. Ég bið að
heilsa og í mjög fallegu lagi eftir
Fjölni Stefánsson, Litla barn með
lokkinn bjarta. Katrín er góð söng-
kona og flutti lag Fjölnis sérlega
vel.
Tónleikunum lauk með fjögurra
laga syrpu eftir heiðursborgara
Kópavogs, Sigfús Halldórsson, allt
lög sem hvert mannsbarn kann og
syngur sér til gleði og uppbygging-
ar. Lögin voru Lítill fugl, Þín hvíta
mynd, Við tvö og blómið og Dagný
sem er aðeins brot af frábæru laga-
safni þessa ágæta tónskálds. Það
verður að segjast eins og er að
söngur Samkórsins á lögum Sigfús-
ar hefði mátt vera betur unninn en
aftur var það salurinn sem gerði
söngfólkinu þungt fyrir. Nú er að
sjá hversu til tekst með að nýta
salinn og fá til staðarins listamenn,
alls staðar að, bæði til sýninga á
myndlist og til flutnings á tónlist
og töluðu máli.
140.000 kr. með notuðum bíl eða peningum, gera þér kleift að eignast glænýjan bíl.
Þetta er sú upphæð sem greidd er við undirritun kaupsamnings á Lada Safír. Það
sem upp á vantar bjóðum við þér að greiða með 14.232 kr. á mánuði í þrjú ár.
Þessi fjárhæð samsvarar 468 kr. á dag. Sumir eyða þessum peningum í eitthvað,
á hverjum einasta degi, sem þeir myndu ekki sakna þótt þeir slepptu því.
Lada Safír er ekki með samlæsingu eða rafdrifnum rúðum,
enda hefur það ekki áhrif á aksturinn og þú borgar heldur ekki fyrir það.
Verð frá 558.000 kr. á götuna!
^X'"Ladaþe^ohefurW^'
ÁRMÚLA 13 • SÍMI: 68 12 00 • BEINN SÍMI: 3 12 36
ÓRKIN 3114-2-7-21