Morgunblaðið - 27.04.1994, Qupperneq 18
18
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. APRÍL 1994
Tónverk eftir Atla Heimi Sveinsson
Tíminn og vatnið
flutt á Listahátíð
TÍMINN og vatnið, verk fyrir
kór, hljómsveit og einsöngvara
eftir Atla Heimi Sveinsson, verð-
ur frumflutt í Langholtskirkju á
Listahátíð í Reykjavík 12. júní nk.
Atli Heimir samdi verkið þegar
hann hafði lokið við fyrstu óperu
sína, Silkitrommuna, fyrir u.þ.b. 10
árum. Hann segir að lengi hafi stað-
ið til að flytja verkið en af því hafi
ekki orðið fyrr en nú.
„Þetta er við ljóðabálk Steins
Steinarrs, sem er 21 kvæði, og svo
er umfangsmikið hljóðfæraspil á
milli. Mismunandi hljóðfæri eru not-
uð í hverjum kafla og skiptist á
kórsöngur, einsöngur, tvísöngur,
þrísöngur og hljóðfæraleikur. Text-
inn er allur sunginn og svo eru
textalausir kafla á milli, einskonar
hugleiðing um kvæðið," segir Atli
Heimir.
Atli segir að einungis hafi tveir
textalausir kórþættir verið fluttir
áður. Það gerði Hamrahlíðarkórinn
undir stjóm Þorgerðar Ingólfsdótt-
ur. Að öðru Leyti er um frumflutning
á verkinu að ræða.
Verkið verður flutt undir stjórn
Pauls Zukofskys. Flytjendur verða
auk kórs Kammersveit Reykjavíkur
með Rut Ingólfsdóttur konsert-
meistara og einsöngvaramir Marta
Halldórsdóttir, Bergþór Pálsson og
Sverrir Guðjónsson. Alls em flytj-
endur rúmlega 50 talsins.
Erindi um
Búalög og
Alþingisdóm
himnaranns
FÉLAG íslenskra fræða boð-
ar til fundar með sr. Kolbeini
Þorleifssyni í Skólabæ við
Suðurgötu, í kvöld, miðviku-
dagskvöld, 27. apríl, kl. 20.30.
Þar mun sr. Kolbeinn segja
frá rannsóknum sínum á ævi
og kveðskap eins mikilvirkasta
skálds 17. aldar, sr. Jóns Magn-
ússonar í Laufási (1601-1676),
og nefnist erindi hans: Hin
fyrstu Búalög og Alþingisdóm-
ur himnaranns.
Eftir sr. Jón liggja rúmlega
17 þúsund vísur í ýmsum stór-
um ljóðabálkum en af þeim
hafa einkum verið prentuð ýmis
fræðsluljóð um rétta stétta-
skiptingu þjóðfélagsins og und-
irbúning fyrir dauðann. Sr.
Kolbeinn mun þó einkum fjalla
um óprentað efni eftir sr. Jón
og m.a. sýna hvemig hann hag-
nýtti sér dæmisögur Snorra-
Eddu og setti frásagnir Bibl-
íunnar um hinn fyrsta mann í
íslenskt samhengi.
Eftir framsögu sr. Kolbeins
gefst mönnum kostur á léttum
veitingum áður en umræður
hefjast. Fundurinn er öllum
opinn.
GJÖF sem gleður... |
BUXNAPRESSA
Morgunblaðið/Kristinn
Tíminn og vatnið
TÍMINN og vatnið, verk eftir Atla Heimi Sveinsson fyrir kór, hljómsveit og einsöngvara, verður frumflutt
á Listahátíð í sumar. Myndin var tekin á fyrstu kóræfingunni sem haldin var á heimili Atla Heimis sl.
sunnudag.
Ríkisendurskoðun skilar skýrslu um sölu á hlutabréfum ríkisins í SR-mjöli
Söluverð of lágt en hvorugt til-
boðanna fullnægði skilyrðum
RÍKISENDURSKOÐUN telur að sú ráðgjöf sem stjórnvöld fengu við
sölu hlutabréfa rikisins í SR-mjöli hafi ekki verið eins vönduð og
æskilegt hefði verið. Þá hafi verðmæti fyrirtækisins verið hærra en
kaupverð. Skýrsla ríkisendurskoðunar um söluna var kynnt alþingis-
mönnum í gær. Þar er í ýmsum öðrum atriðum fundið að undirbún-
ingi og meðferð málsins og m.a. komist að þeirri niðurstöðu að hvorki
tilboð Haralds Haraldssonar né tilboð Jónasar A. Aðalsteinssonar og
Benedikts Sveinssonar hafi uppfyllt þau skilyrði sem sett höfðu verið
í útboðsskilmálum. Sigurður Þórðarson ríkisendurskoðandi vildi ekki
tjá sig um málið í gær og vísaði að öllu leyti til skýrslunnar. Bene-
dikt Sveinsson, annar forsvarsmanna kaupenda SR-mjöls, sagði í sam-
tali við Morgunblaðið í gær að hann hefði fengið skýrsluna í hendur
en ekki lesið hana og vildi því ekki að svo stöddu tjá sig um efni hennar.
Hvítar - svartar - brúnar.
Verð frá kr. I 1.300,- stgr.
JBMg Einar
Jmm Farestveit & Co hf
Borgartúni 28 fS 622901 og 622900
í upphafi skýrslunnar er aðdrag-
andi og undirbúningur sölunnar rak-
inn og kemur þar m.a. fram að
Framkvæmdanefnd um einkavæð-
ingu hafi lagt til í samræmi við
Verklagsreglur um framkvæmd
einkavæðingar að verðbréfafyrir-
tæki sæi um úttekt, ráðgjöf og um-
sjón með sölu og yrði sú vinna boð-
in út á meðal allra verðbréfafyrir-
tækja. Sjávarútvegsráðuneytið hafí
óskað eftir að leitað yrði tilboða hjá
VÍB og Handsali en sjónarmið Fram-
kvæmdanefndarinnar hafí að lokum
verið viðurkennt eftir að hún hugð-
ist senda málið til ráðherranefndar
um einkavæðingu til umfjöllunar.
„Af fundargerðum Framkvæmda-
nefndar um einkavæðingu má ráða
að nefndin taldi sig sniðgengna með
því að sjávarútvegsráðuneytið fól
sérstökum söluhóp að sjá um söluna
á SR-mjöli hf.,“ segir í skýrslu Ríkis-
endurskoðunar og einnig að ekki
verði þó dregið í efa að lög um stofn-
un SR-mjöls hf. veiti sjávarútvegs-
ráðherra vald til að annast undirbún-
ing og sölu fyrirtækisins.
Tilboð Landsbréfa 9,4
milljónum ódýrara en VÍB
Ríkisendurskoðun telur að kapp-
kosta beri að nýta sem best þá þekk-
ingu sem Framkvæmdanefnd um
einkavæðingu hefur aflað sér; henni
hafí verið falið af ríkisstjóm að hafa
yfírumsjón og eftirlit með sölu ríkis-
fyrirtækja og því hefði verið eðlilegt
að fela henni yfírumsjón og eftirlit
með sölu SR-mjöls.
Við útboð meðal verðbréfafyrir-
tækja á vinnu við verðmat og sölu
hlutabréfa í SR-mjöli bárust tilboð
frá öllum verðbréfafyrirtækjum í
landinu. Landsbréf buðu 'ægst, 1,9
milljónir króna, 9,5 milljónum króna
lægra en næsta tilboð, sem var frá
VÍB, en því var tekið. Sjónarmið sölu-
hópsins og Framkvæmdanefndar um
einkavæðingu voru þau að þátttaka
Landsbréfa gæti orkað tvímælis
vegna tengsla við Landsbankann,
aðal lánveitanda SR-mjöls. Ríkisend-
urskoðun telur hins vegar í ljósi laga
um verðbréfaviðskipti að litlar líkur
hafí verið á að Landsbréf yrði talið
vanhæft og að eðlilegt hefði verið
að láta reyna formlega á tilboð fyrir-
tækisíns, í ljósi þess að það var 9,5
milljónum lægra en tilboð VIB, auk
þess sem Landsbréf hefðu áður sinnt
sambærilegri þjónustu hnökralaust.
Samningur við VÍB ekki í
samræmi við ákvæði laga
Þá rekur Ríkisendurskoðun að
formaður Framkvæmdanefndar um
einkavæðingu hafi gert munnlegan
samning við VÍB um vinnuna, en
ekki skriflegan, sem virðist í ósam-
ræmi við ákvæði laga um verðbréfa-
viðskipti, sem áskilji skriflega samn-
inga um þjónustu af þessu tagi.
Um mat á verðmæti og eðlilegu
söluverði SR-mjöls hf. segir í skýrslu
Ríkisendurskoðunar að samanburð-
ur á mati tilboðsgjafa á framtíðar-
tekjuvirði SR-mjöls hf. og mati VÍB
bendi til að verðmæti fyrirtækisins
hafí verið hærra en endanlegt verð.
Hafí báðir bjóðendur, hópur Haralds
annars vegar og Jónasar og Bene-
dikts hins vegar, gert rekstraráætl-
anir til fimm til tíu ára fram í tím-
ann þar sem afkomumöguleikar voru
metnir. Séu rekstraráætlanir bjóð-
enda metnar á sama hátt og VÍB
gerði við mat á framtíðarafkomu-
möguleikum SR-mjöls megi ætla að
verðmæti fyrirtækisins hafí verið
nokkru hærra en endanlegt kaup-
verð og legtö nærri efri mörkum
mats VÍB. VÍB hafi metið núvirt
tekjuvirði miðað við 15% ávöxtun-
arkröfu og 20% ávöxtunarkröfu.
Niðurstaðan hafí verið tekjuvirði á
bilinu 695-1.011 milljónir króna.
í skýrslu Ríkisendurskoðunar seg-
ir að mikilvægasti þátturinn og sá
vandasamasti við sölu á ríkisfyrir-
tæki sé að jafnaði mat á virði þess.
Óviðunandi sé að fela eingöngu ein-
um aðila að meta framtíðartekjuvirði
fyrirtækis. Nauðsynlegt sé einnig
að eigandinn sjálfur eða annar aðili
á hans vegum geri til samanburðar
slíka úttekt.
Tilkynnt var að til stæði að selja
öll hlutabréf ríkisins í SR-mjöli með
auglýsingum sem birtust 17. og 19.
nóvember sl., áður en VÍB hafði lok-
ið vinnu við verðmat fyrirtækisins,
sem að sögn Ríkisendurskoðunar er
í ósamræmi við tiliögu stjómar SR-
mjöls. Ríkisendurskoðun telur að
bíða hefði átt með auglýsingar þar
til grunnupplýsingar um SR-mjöl
væru tilbúnar til afhendingar, enda
hefði það verið í samræmi við verk-
lagsreglur Framkvæmdanefndar um
einkavæðingu. „Þegar upplýsingar
lágu fyrir hefði átt að bjóða hluta-
bréfin út með formlegum hætti og
setja í auglýsingu um slíkt útboð
skilyrði það sem bjóðendur yrðu að
uppfylla. Með þeim hætti hefði verið
séð til þess að allir tilboðsgjafar
sætu við sama borð og gagnrýni um
hvernig staðið væri að málum síður
komið upp,“ segir í skýrslunni.
Síðan er rakið að þann 7. desem-
ber hafí þeim 14 aðilum sem gefið
höfðu sig fram við VÍB verið sent
bréf þar sem tilkynnt var að upp-
boðsgögn yrðu afhent 17. desember
þeim sem fyrir 13. desember hefðu
gert grein fyrir ýmsum atriðum er
vörðuðu fjárhag tilboðsgjafa, fyrir-
ætlanir um að fjármagna kaupin
með eigin fé eða lánsfé og þurfi fram
að koma að tilboðsgjafi hafí fjár-
hagslegan styrk til að kaupa fyrir-
tækið allt og tryggja rekstur þess
áfram. Yrðu kaupin fjármögnuð með
lántöku að einhverju leyti skyldi
gerð grein fyrir lánveitanda og þeim
tryggingum sem tilboðsgjafi hyggist
setja fyrir lántöku sinni.
Ríkisendurskoðun telur að fram-
angreind skilyrði hafi verið óeðlileg
að því leyti að þau feli í sér að aðil-
ar skyldu sýna fram á að þeir hefðu
fjárhagslegt bolmagn til að kaupa
fyrirtækið áður en grundvallarupp-
lýsingar um fyrirtækið voru veittar,
en stofnefnahagsreikningur hafði
ekki verið kynntur þegar bréfið var
sent. Þó óeðlilegt sé að skilyrða af-
hendingu grunngagna á þennan hátt
telur Ríkisendurskoðun þó fullkom-
lega eðlilegt að setja slík skilyrði
fyrir þátttöku i útboðinu eða fyrir
því að tilboð verði talið gilt.
Annað ógilt, hitt a.m.k.
umdeilanlegt
Innan tilskilins frests skiluðu þrír
aðilar, Jónas A. Aðalsteinsson' hrl,
Akureyrarbær og Haraldur Haralds-
son inn bréfum til VIB og var ákveð-
ið að allir fengju útboðsgögn, þrátt
fyrir að VÍB teldi bréf Haralds ekki
fullnægja framangreindum skilyrð-
um, m.a. vegna þess að yfírlýsingar
um að Olís og Sjóvá-Almennar væru
meðal þeirra sem stæðu að baki
honum, fengust ekki staðfestar og
Haraldi og Búnaðarbankanum hafði
ekki borið saman um þátt banka í
fjármögnun kaupanna. Ríkisendur-
skoðun er sammála því mati að til-
boð Haralds hafi ekki fullnægt skil-
yrðum og telur að auki a.m.k. um-
deilanlegt hvort bréf Jónasar Aðal-
steinssonar hafi á þessu stigi upp-
fyllt fyrrtalin skilyrði.
Tilboðsfrestur var ákveðinn til 28.
desember og innan þess frests bár-
ust sem kunnugt er tilboð frá hópi
Haralds, sem bauð 801 milljón króna
staðgreiðslu auk uppgreiðslu á 932
milljóna króna langtímaskuldum
SR-mjöls, og frá hópi Jónasar og
Benedikts, sem lýstu sig reiðubúna
að beita sér fyrir að kaupendahópur
þeirra settist að samningaborði á
þeim grundvelli að kaupverð yrði
ekki lægra en nafnverð hlutabréfa
fyrirtækisins, sem var 650 milljónir.
Akureyrarbær lýsti yfir að hann
sendi ekki tilboð vegna hins skamma
frests sem gefínn hafði verið.
Ríkisendurskoðun fínnur að því að
bjóðendum hafí ekki gefist kostur á
að vera viðstaddir opnun tilboða eins
og almennt tíðkist við opnun tilboða.
Ríkisendurskoðun fellst á það mat
VÍB og söluhópsins að Haraldur
Haraldsson hefði ekki sýnt fram á
að hann fullnægði skilyrðum fyrr-
greinds bréfs frá 7. desember um
fjárhagslegan styrk og fjármögnun
og hafí endanlegt tilboð hans ekki
bætt úr fyrri ágöllum. Því var valið
að ganga til samninga við Jónas og
Benedikt, sem komu fram fyrir hönd
21 útgerðarfélags og 4 stofnanafjár-
festa, en VÍB hafði við afhendingu
útboðsgagna metið að sá hópur full-
nægði skilyrðum um fjárhagslegan
styrk til kaupa og áframhaldandi
reksturs og þegar hér var komið var
jafnframt litið til dreifíngar eignar-
aðildar og þátttöku heimamanna og
starfsmanna en í boðinu kom fram
að gert væri ráð fyrir þátttöku
heimamanna. Umsamið kaupverð
varð 725 milljónir króna og var
kaupsamningur undirritaður 29.
desember.
í skýrslunni segir að það sé mat
Ríkisendurskoðunar að tilboð Jónas-
ar og Benedikts verði ekki talið
verðtilboð í skilyrði útboðsgagnanna
heldur fremur staðfesting á áhuga
þess hóps sem þeir fóru fyrir, til að
kaupa hlutabréfin og setjast að
samningaborði í því skyni að ráða
kaupunum til lykta út frá tilteknum
hugmyndum um lágmarksverð,
greiðslutilhögun og greiðslutíma.
Loks segir í skýrslu Ríkisendur-
skoðunar að við sölu á hlutabréfun-
um megi ætla að væntanlegum
kaupendum hafi verið veittur • full-
skammur tími til að gera tilboð, með
hliðsjón af reglum um útboð á vöru
og þjónustu. Frá tilkynningu um
sölu til bréfs, þar sem gerð var grein
fyrir skilyrðum til að afmarka bjóð-
endahópinn, hafi liðið 18 dagar og
þaðan í frá 6 daga frestur til að
uppfylla skilyrði. Tilboð hafí verið
opnuð 11 dögum eftir afhendingu
útboðsgagna. Ríkisendurskoðun álít-
ur að ekki hafi verið veittur nægjan-
legur frestur til að skila tilboðum
og bendir á að mikilvægt sé að út-
boðsskilmálar séu skilmerkilegir og
í samræmi við almennar leikreglur.