Morgunblaðið - 27.04.1994, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. APRÍL 1994
45
Norrænar konur leggjast á eitt til að skapa Nordisk Forum
Yfir 1.300 íslensk-
ir þátttakendur
JAFNT í nyrstu byggðum sem í
stærstu norrænu stórborgum eru
hnefastórir steinar tíndir af jörð-
inni. Hver þeirra tilheyrir einni
norrænni konu og áfangastaður
þeirra er einn og hinn sami eða
norræna kvennaráðstefnan í Ábo
í Finnlandi 1.-6. ágúst nk. Á ráð-
stefnunni verður steinunum safn-
að saman og enda þótt þeir virð-
ist smáir hver fyrir sig verður
fjallið hátt því steinarnir verða
jafn margir þátttakendunum,
a.m.k. 10.000.
Reyndar er erfitt að geta sér til
um þátttökuna nú og talan að ofan
aðeins fengin með tilvísun til þátt-
tökunnar í Osló árið 1988. Hana
sóttu um 10.000 manns og komu
hlutfallslega langflestir frá íslandi
eða 800. Flest bendir til að sagan
endurtaki sig í ár og má því til
stuðnings geta þess að af um sex
þúsund skráðum þátttakendum eru
rúmlega 1.300 íslenskar konur. Með
í þeirri tölu eru íslenskar konur
búsettar á Norðurlöndunum, annars
staðar í Evrópu og Ameríku.
Allt frá Kína
Mikill undirbúningur hefur farið
fram fyrir ráðstefnuna og hefur
sérstök áhersla verið lögð á framlög
og þátttöku nýbúakvenna og
kvenna í afskekktari byggðarlög-
um. Hér á landi hefur áberandi
mikill áhugi verið á ráðstefnunni
fyrir norðan og austan land og hef-
ur vakið mikla athygli í Finnlandi
að stór hluti kvenna á Djúpavogi
sækri ráðstefnuna. Beint leiguflug
verður frá Akureyri og Egilsstöðum
til Ábo. Frá öðrum svæðum má
nefna að búist er við fjölda þátttak-
enda frá Eystrasaltslöndunum
þremur, Eistlandi, Lettlandi og Lit-
háen, og mikill áhugi er meðal sama
í Norður-Finnlandi. Von er á hópum
frá Rússlandi, Þýskalandi og Pól-
landi og hópur kínverskra kvenna
sækir ráðstefnuna í boði sænsku
framkvæmdanefndarinnar. Ástæð-
an er sú að eitt hlutverk ráðstefn-
unnar er að undirbúa stóra kvenna-
ráðstefnu á vegum Sameinuðu þjóð-
anna í Kína árið 1995.
Ráðstefnan ber yfirskriftina Líf
og störf kvenna — gleði og frelsi
Nordisk Forum
MERKI ráðstefnunnar endur-
speglar yfirskrift hennar Líf og
störf kvenna — gléði og frelsi.
og hefst hún eins og áður sagði 1.
ágúst nk. Opnunarathöfnin verður
afar mikilfengleg og felst hún m.a.
í því að vestnorrænn kvennakór og
norræn stórsveit koma siglandi á
fleka eftir Aura-ánni í miðri Ábo.
Stjórnandi kórsins er Margrét
Pálmadóttir og þátttakendurnir eru
34 listakonur frá íslandi, Grænlandi
og Færeyjum. Æfingar hafa farið
fram í löndunum þremur og um
síðustu helgi var sameiginleg æfing
á íslandi. Gestirnir fóru af landi
brott í gær, þriðjudag.
2.000 uppákomur
Eftir opnunarhátíðina tekur við
skemmti- og fræðsludagskrá með
yfír 2.000 uppákomum. Hægt verð-
ur að hlýða á yfir 900 fyrirlestra
og 180 styttri erindi. Boðið verður
upp á um 520 menningaratriði, 430
kynningar og tæplega 40 atriði
tengd íþróttum. Meðal sex þema-
húsa eru Hús andanna, þar sem
m.a. verður fjallað um heimspeki,
trúarbrögð og kvennafræði, Fram-
tíðarhúsið, þar sem m.a. verður
fjallað um stjórnmál, jafnrétti, um-
hverfismál og uppeldi og Velferðar-
húsið, þar sem m.a. verður fjallað
um velferðarsamfélagið, atvinnu og
launakjör.
Af öðrum dagskráratriðum má
nefna að boðið verður upp á kvik-
myndahátíð, rokktónleika, leiksýn-
ingar, myndlistasýningar, sýningar
á handverki ýmiss konar, morgun-
leikfimi, hlaup og golf að ógleymdri
Nótt listanna, aðfaranótt 5. ágúst.
Menningardagskrá verður í mið-
borginni fram á morgun. Reyndar
fer mesti hluti dagskrárinnar fram
á þessum slóðum að því undanskildu
að stór hópur ísler.skra kvenna not-
ar tækifærið og fer til Pétursborg-
ar. Hvað varðar dagskráratriði frá
Íslandi má geta þess að þau verða
á annað hundrað og má sem dæmi
nefna dagskráratriði frá konum í
Félagi íslenskra hugvitsmanna,
kvikmyndir eftir íslenskar konur og
leiksýningar. Ráðstefna jafnréttis-
málaráðherra fer fram í í leikhúsi
borgarinnar 4. og 5. ágúst.
Skemmtun og fræðsla
Kvennaráðstefnan Nordisk For-
um er öllum opin, konum og körl-
um, og er aðgangseyrir aðeins 100
mörk (1.300 ísl. kr.). Börn innan
18 ára aldurs í fylgd með fullorðn-
um fá hins vegar frían aðgang.
Dagskráin fer fram á ýmsum
tungumálum, m.a. finnsku, sænsku,
norsku, ensku og íslensku og verður
íslendingum veitt þýðingaraðstoð
eins og við verður komið. Ekki er
að efa að margir eiga eftir að
skemmta sér vel og snúa heim
reynslunni ríkari. Tilgangur ráð-
Morgunblaðið/Anna G. Ólafsdóttir
IJndirbúning’ur hafinn
ÁBO-búar eru nú í óða önn að undirbúa ráðstefnuna enda von á
mörgum gestum og vist að bakkar Aura-árinnar í miðri borginni
fyllast af fólki. Stór hluti dagskrárinnar fer fram í háskólabygging-
um i miðbænum.
Morgunblaðið/Kristinn'
Vestnorrænn kvennakór
VESTNORRÆNI kvennakórinn hélt sameiginlega æfingu á Islandi
um síðust helgi. Kórinn syngur á opnunarhátíð Nordisk Forum 1. ágúst.
stefnunnar er einmitt tvíþættur; að
hafa gaman af og fræðast.
Umsóknarfrestur um þátttöku í
ráðstefnunni rennur út 1. maí og
fást allar upplýsingar á skrifstofu
jafnréttismála.
W? ÁTAK GE6N UMFRAMÞYNGD FYRIR BYRJENDUR
r BURT MEÐ ÓÞARFA FITU!
Öruggur árangur í baráttunni við aukakílóin
Nýtt árangursríkt námskeið sniöið að þörfum þeirra sem vilja
fræðast og ná markvissum árangri, Við leggjum áherslu á
hreyfingu og rétt matarræði, það ásamt öruggri handleiðslu
reyndra þjálfara tryggir góðan og varanlegan árangur.
Framhaldsnamskeið: Atak gegn umframþyngd
nr-
Fundur Alþjóðahvalveiðiráðsins í Mexíkó
Deilt um tilvist leyni-
legs samkomulags
FULLYRT er að andstæðar fylkingar innan Alþjóða hvalveiðiráðsins
hafi komist að leynilegu samkomulagi um veiðar í atvinnuskyni
gegn hvalafriðun í Suðurhöfum í grein í breska blaðinu Observer á
sunnudag. Nánast öruggt er talið á samkomulagið verði staðfest á
ársfundi ráðsins í Mexíkó 23.-27. maí næstkomandi. Karsten Klep-
svik, formaður norsku sendinefndarinnar, segist í samtali við Morg-
unblaðið, hvorki vita til að efnt hafi verið til fundar eða komist að
nokkurs konar samkomulagi þessa efnis.
ar trú á að einhver árangur næðist
varðandi breytingar á RMS-áætlun.
Norðmenn hefðu þegar lagt fram
nýja áætlun og færu fyrstu þrír lið-
irnir varðandi kvóta, veiðar og rann-
sóknir í einu og öllu eftir texta frá
vísindanefnd ráðsins. Deilur gætu
hins vegar hugsanlega skapast um
fjórða liðinni um eftirlit og stjórnun.
Greenpeace
Greenpeace-samtökin leggja í
fréttatilkynningu áherslu á að mik-
ilvægasta markmið þeirra á árs-
fundinum í Mexíkó sé að sett verði
á stofn friðað svæði fyrir hvali í
kringum Suðurskautið. Þau séu
andsnúin hvalveiðum í ábataskyni
hvar sem er í heiminum.
Klepsvik sagðist hvorki vita til
þess að haldinn hefði verið fundur
um málið í London fyrir tveimur
vikum, eins og haldið er fram í
greininni, né gerður hafi verið
samningur. Hins vegar bæri greinin
keim af ríkjandi anda og blaðamað-
urinn Polly Ghazi væri greinilega
vel að sér. Hann hélt áfram og
benti á að staðreyndin væri sú að
ef ekki yrði komist að samkomulagi
í ráðinu innan tveggja ára myndi
það liðast í sundur. Þjóðir eins og
Bretar, Hollendingar, Ástralir og
trúlega Nýsjálendingar væru að
átta sig á þessari staðreynd.
Hvað ársfundinn varðaði sagist
Klepsvik ekki eiga von á að hann
skipti sköpum. Hann hefði hins veg-
Vegna fjölda áskorana ánægðra viðskiptavina verður nú boðið upp á fram-
haldsnámskeið í þessu árangursríka námskeiði. Fjölbreytt heyfing fimm
sinnum í vilcu, þolfimi, tækjasalur, ganga eða skokk. Framlialdsnámskeiðið
viðheldur árangri í baráttunni gegn óþarfa fitu.