Morgunblaðið - 15.05.1994, Qupperneq 1
96 SÍÐUR B/C/D
108. TBL. 82.ÁRG.
SUNNUDAGUR 15. MAÍ 1994 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Vilja njósna-
kubba í síma
Morgunblaðið/RAX
Sundfólk í Landmannalaugum
VIKAN sem leið var sóirík og kjörið tækifæri gafst til að njóta náttúrunnar, enda hafa ferðamenn sett æ meiri svip á mannlíf-
ið. Myndin var tekin í Landmannalaugum þar sem Annica Kihlstrom, Hjörtur Kolsoe og Benedikt Bragason syntu í vatninu.
Verkamannaflokkurinn og frjálslyndir í sókn í Bretlandi
Ihaldsmenn eru komn-
ir niður í þriðja sætið
Lundúnum. The Daily Telcgraph.
BANDARÍSKA alríkislögreglan, FBI, hef-
ur valdið miklu uppnámi í Bandaríkjunum
með því að beita sér fyrir lögum um að
tölvukubbar verði verði settir í alla síma,
myndrita og tölvumótöld sem seld verða
í landinu. Þjóðaröryggisráð Bandaríkjanna
hannaði tölvukubbana, svonefnda Clip-
pers, sem eru á stærð við nögl þumalfing-
urs. Þeir breyta tölvugögnum í dulmál og
í þeim eru faldir lyklar sem gera lögregl-
unni kleift að ráða það. Þannig vonast
lögreglan til að geta haft aðgang að skila-
boðum frá glæpamönnum. Margir hafa
gagnrýnt áformin á þeirri forsendu að þau
geri yfirvöldunum kleift að njósna um
borgarana. Nokkur stórfyrirtæki hafa
einnig hótað að flytja höfuðstöðvar sínar
úr landi vegna tölvukubbanna og það
gæti kostað ríkið milljarða dala í skattfé.
Þau óttast að þau missi erlenda viðskipta-
vini vegna kubbanna.
Vandræðaung-
lingar flengdir?
REPÚBLIKANINN Mickey Conroy, full-
trúi á þingi Kalifomíu, hyggst leggja fram
frumvarp um að unglingum, sem gerast
sekir um skemmdarverk, verði refsað með
hýðingum. Hann sagði að þessi aðferð
hefði gefist vel í Singapore, þar sem
bandarískur unglingur var hýddur fyrir
skemmdarverk nýlega. „Menn geta ekki
beðið aðgerðalausir þar til vandræðaung-
lingar enda sem morðingjar 14 ára,“ seg-
ir hann. „Ég tel að nokkur högg á rassinn
geti haft varanleg áhrif.“ Refsingin, sem
Conroy leggur til, er þó ekki eins sársauka-
full og hýðingarnar í Singapore. Hann
vill að unglingarnir verði rassskelltir með
flötu áhaldi, sem veldur ekki sárum, en í
Singapore er beitt svipum úr spanskreyr,
sem valda örum, og flengingin er svo sárs-
aukafull að fangarnir fá oft lost.
Hjólreiðarnar
takmarkaðar?
BRESKA stjórnin íhugar nú hvort nauð-
synlegt sé að takmarka notkun fjallahjóla
vegna spjalla af
þeirra völdum í mörg-
um af helstu náttúru-
perlum Bretlands.
Pjallahjól njóta æ
meiri vinsælda, eru
nú um 60% af öllum
hjólum í landinu.
Breiðir og hijúfir hjól-
barðarnir hafa valdið
skemmdum á gróðri
og skilja oft eftir djúp
för.
ÍHALDSFLOKKURINN er orðinn minnstur
stóru flokkanna þriggja í Bretlandi, ef marka
má Gallupkönnun sem dagblaðið The Daily
Telegraph birti í gær.
Fylgi Verkamannaflokksins er 45,5% sam-
kvæmt könnuninni, og Fijálslyndra demó-
krata 25%. Þar á eftir kemur íhaldsflokkur-
inn, með 24,5%.
Tæpur helmingur aðspurðra, eða 49%,
taldi að Verkamannaflokkurinn myndi bera
sigur úr býtum í næstu þingkosningum, sem
verða að öllum líkindum ekki fyrr en árið
1996. Aðeins 31% taldi að íhaldsmenn gætu
farið með sigur af hólmi.
Meirihluti aðspurðra kvaðst ekki-telja að
John Major forsætisráðherra bæri einn
ábyrgð á vandræðum íhaldsflokksins. Mikill
meirihluti stuðningsmanna allra flokkanna
var þeirrar skoðunar að allri stjóminni væri
um að kenna.
Major nýtur þó enn lítils trausts á meðal
breskra kjósenda, ef marka má könnunina.
Aðeins 13% aðspurðra sögðust telja að for-
sætisráðherrann væri sterkur leiðtogi.
Blair sterkastur miðjumanna
Könnunin var gerð áður en John Smith,
leiðtogi Verkamannaflokksins, lést. Forystu-
menn flokkanna hafa ákveðið að fresta kosn-
ingabaráttunni vegna kosninganna til Evr-
ópuþingsins í júní þar til eftir útför Smiths
á föstudag.
Tveir af hugsanlegum eftirmönnum
Smiths, Gordon Brown og Tony Blair, þreifa
nú fyrir sér um hvor þeirra eigi að vera leið-
togaefni miðjumanna innan flokksins.
Talið er að Blair, 41 árs talsmaður Verka-
mannaflokksins í innanríkismálum, njóti
meiri stuðnings en Brown, 43 ára talsmaður
flokksins í fjármálum. Þeir eru vinir og hafa
verið bandamenn í stjórnmálunum frá því
þeir voru kjörnir á þing árið 1983. Afar ólík-
legt er því að þeir gefí báðir kost á sér í
leiðtogaembættið og dreifi þannig atkvæðum
miðjumanna. Ljóst er þó að Brown er að svo
stöddu ekki reiðubúinn að víkja fyrir vini
sínum.
Líklegt er að annar hvor þeirra verði í
framboði gegn John Prescott, 55 ára tals-
manni flokksins í atvinnumálum og helsta
leiðtogaefni vinstriarmsins.
SKULDIRNAR
VAXA OG VAXA
Sérhver fjölskykla
skuldar að meðaltali
um 3,9 milljónir króna.
SÉRHÆFING
OG SJÁLFVIRKNI
göngin eru eitt
mesta tækniaf-
rek þessarar
aldar
ofsahraða um Ermarsund
Ermarsunds-
Sumir segja mig
safna drasii