Morgunblaðið - 15.05.1994, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 15.05.1994, Blaðsíða 2
2 SUNNUDAGUR 15. MAÍ 1994 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Vinnuhópur um nýtingu einstakra fiskstofna við Isiandsstrendur 132.000 tonna þorskafli verði farið að tillögomum í SKÝRSLU nefndar Hafrann- sóknastofnunar og Þjóðhagsstofn- unar um nýtingu einstakra fisk- stofna er lagt til að þorskveiðar verði skertar sem mest á næstu árum í því skyni að efla stofninn sem hraðast. Mælt er með að tek- in verði upp sérstök veiðiregla sem kveði á um að ekki megi veiða meira en sem svarar 22% úr veiði- stofninum árlega, þó þannig að hámarksþorskaflinn verði ávallt undir hættumörkum sem nú eru metin í námunda við 175 þúsund tonn. Verði þessari veiðireglu beitt þýðir það að aflaheimildir miðað við núverandi ástand veiðistofnsins yrðu 132 þúsund tonn. Skýrsluhöfundar, Brynjólfur Morgunblaðið Samkeppni ummynd á forsíðu í TILEFNI 50 ára lýðveldisaf- mælis efnir Morgunblaðið til samkeppni um forsíðumynd á sérstakt blað sem gefíð verður út 17. júní. Þátttakendum er í sjálfsvald sett úr hvaða efni verkið er unnið en þemað er „Lýðveldið 50 ára“. Skilafrest- ur er til 10. júní. Verkin geta verið vatnslita- myndir, olíumyndir, krítar- myndir, klippimyndir, Ijós- myndir o.s.frv. Eina skilyrðið er að verkið hafí ekki komið fýrir sjónir almennings. Verkunum skal skilað í mót- töku Morgunblaðshússins, Kringlunni 1, innpökkuðum, ásamt áföstu iokuðu umslagi, þar sem fram kemur nafn listamanns, heimilisfang og símanúmer. Ef fjöldi verka berst, gefur það hugsanlega tækifæri til að setja upp sýn- ingu. Allir þeir, sem senda inn verk, fá þau til baka að sam- keppni lokinni. Dómnefnd er skipuð þremur aðilum, þeim Árna Jörgensen, Braga Asgeirssyni og Sjöfn Haraldsdóttur. Hún áskilur sér rétt til að hafna öllum verkun- um. Verðlaun fyrir mynd, sem birt verður á forsíðu, er 200.000 kr. Morgunblaðið/Jón Stefánsson Bílvelta við Ananaust UM FIMMLEYTIÐ á laugardags- morgun valt sendibíll á hringtorgi við Ánanaust. Maður og kona voru í bílnum og hlupust þau á brott frá slysstað. Lögregla hljóp fólkið uþpi, öku- maður er grunaður um ölvun við akstur. Fólkið slapp án meiðsla. Bjarnason, Jakob Jakobsson, Gunnar Stefánsson, Þórður Frið- jónsson, Friðrik Már Baldursson, Ásgeir Daníelsson og Kristján Þór- arinsson, segja ljóst að þorskstofn- inn sé langt undir þeim mörkum að skila hámarksafrakstri. Hag- kvæmt sé að stefna að því að hrygningarstofn þorsks verði að jafnaði 700-800 þúsund tonn og veiðistofn þorsks 1,4-1,6 milljónir tonna. Hrygningarstofninn er nú um 220 þúsund tonn og veiðistofn- inn 600 þúsund tonn. I skýrslunni segir að afrakstur slíks stofns gæti verið 350 þúsund tonn á ári og útflutningsverðmæti þorska- furða yrði 19 milljörðum kr. meiri á ári en miðað við óbreyttan afla. Ford fær uppreisn æru FORD Galaxy Sævars Péturssonar bifvélavirkja er sannkölluð borg- arprýði, enda hefur eigandinn lagt ómælda vinnu í að endurnýja bílinn undanfarið 2Vi ár. Bíllinn, sem er af árgerð 1959, mun vera sá eini gangfæri af þeim bilum sömu tegundar sem fluttir voru tii landsins á sínum tíma, en Ga- laxy-bíll var fluttur hingað frá Bandaríkjunum í fyrra. „Þegar bíllinn kom til landsins var hann svartur og fyrsti eigandinn var Eyþór Tómasson, forstjóri Lindu á Akureyri,“ sagði Sævar. „Þegar ég fékk bílinn var hann enn gang- fær, en ég breytti honum tölu- vert. Hann var til dæmis með gluggapósta i hliðum, en er nú hardtop-útgáfa. Þá var í honum 6 strokka vél, en ég fékk réttu 8 strokka vélina í hann að utan. Það er ekki að finna í honum eina skrúfu, sem ekki hefur verið átt við. Ég hef ekki reynt að taka saman hvað billinn hefur kostað mig, enda reyndi meira á þolin- mæðina en pyngjuna við þessa vinnu." Þeir sem hafa áhuga á að beija bíl Sævars augum geta gert það á sýningu Fornbílaklúbbsins i Laugardalshöll um hvítasunn- una. Afraksturinn á þessu ári var áætl- aður um 180 þúsund tonn en skýrsluhöfundar óttast að hann verði um eða yfír 200 þúsund tonn þegar fiskveiðaárinu lýkur. 13 ár þar til þorskafli fer yfir 300.000 tonn Helstu niðurstöðumar eru að miklar líkur séu á eflingu þorsk- stofnins með aflareglunni (22% af veiðistofninum) en líkur á hruni í þorskstofninum sé 175 þúsund tonna afla haldið til streitu séu 7%. Gera megi ráð fyrir að 13 ár líði þar til þorskafli fer yfir 300 þús- und tonn en það gæti þó gerst fyrr. 7% líkur séu á því að það gerist árið 2002 eða fyrr en einnig EDWARD Derwinski, fyrsti aðstoð- arutanríkisráðherra Bandaríkjanna í stjórnartíð George Bush, hefur verið tilefndur aðalræðismaður íslands í Chicago, Illinois í Bandaríkjunum. Eftir er að fá viðurkenningu Banda- ríkjastjórnar fyrir tilnefningunni en að sögn Harðar H. Bjarnasonar sendiherra, sem sér um ráðningu ræðismanna fyrir utanríkisráðuneyt- ið, er nánast um formsatriði að ræða. Hörður kvað mjög mikilvægt að fá Derwinski til starfans, hann væri áhrifamaður í Bandaríkjunum og hefði verið mjög hliðhollur íslending- um. Edward Derwinski var ráðunaut- ur Reagans Bandaríkjaforseta og einn af þeim stjórnmálamönnum í utanríkisráðuneytinu sem héldu áfram eftir að Bush varð forseti. Hann er repúblikani og hefur verið viðriðin stjórnmál allan sinn starfs- aldur og átt sæti í þinginu í 23 ár. Hann var sá aðili sem fjallaði um deilumálið um flutninga varnarliðs- ins, er Rainbow Navigation bauð í flutningana gegn Eimskipafélagi ís- eru 15% líkur á að það gerist ekki fyrr en árið 2014 eða síðar. Miðað við að aflareglunni yrði beitt ykist árlegur hagnaður af veiðunum hratt samhliða aukinni stofnstærð þorsks og minnkandi tilkostnaði við veiðamar. Þess má geta að árið 1980 þegar þorskafli hér við land varð hvað mestur var talið að veitt hefði verið um 30% af veiðistofninum. Yrði lágmarksaflinn hins vegar ákveðinn 225 þúsund tonn væru 52,5% líkur á hruni í þorskstofnin- um strax árið 2000. Hrun er skil- greint sem varanlegt fall hrygning- arstofnsins niður fyrir 100 þúsund tonn. lands, og und- irritaði sam- komulag við Matthías Á. Mathiesen, þá- verandi utan- ríkisráðherra, um málið. Átti hann mikinn þátt í lausn þess máls. Þá hefur hann einnig beitt sér mjög gegn þvingunaraðgerðum Bandaríkjastjórnar gegn íslending- um í hvalamálum. „Það er mjög jákvætt, að Edward Derwinski skuli fást til þess að taka að sér aðalræðismannsstarfið í Chicago," sagði Hörður H. Bjarna- son í samtali við Morgunblaðið í gær. „Hann er sjálfur af pólskum uppruna og tilheyrir þar af leiðandi minnihlutahópi í Illinois, er mjög vel kynntur og áhrifamikill innan stjóm- kerfísins. Eftir er að fá samþykki utanríkisráðuneytisins í Washing- ton, en það er nánast formsatriði." Skuldirnar vaxa og vaxa ►Ný skýrsla félagsmálaráðherra sýnir að skuldir fjögurra manna fjölskyldu nema um 3.9 milljónum króna og hafa vaxið ár frá ári./lO Hjálp gegn sálrænum áföllum ►Öll alvarlega áföll valda streitu- viðbrögðum, oft í þeim mæli að fagleg hjálp er nauðsynleg. /12 Er eitthvað að börnun- um okkar? ►Uppeldismál á íslandi skoðuð meðal annars í ljósi kenninga Penelope Leach./14 Fegurðarsamkeppni íslands ►Stúlkumar sem keppa til úrslita í Fegurðarsamkeppni Islands kynntar í máli og myndum./18 Sérhæfing og sjálf- virkni ►Biynjólfur Bjamason, fram- kvæmdastjóri Granda h.f., hefur unnið við sjávarútveg í tíu ár. Þetta hafa verið mikið breytingaskeið í íslenskum sjávarútvegi./20 Á ofsahraða undir Ermasund ►Ermasundsgöngin eru eitt mesta tækniundur þessarar aldar og með opnun þeirra hefur tæplega tveggja alda gamall draumur Napóleons keisara ræst./22 B ► 1-28 Sumir segja mig saf na drasli ►Friðjón Árnason, bílstjóri í Lundareykjadal, hefurþá köllun að safna gömlum dráttarvélum og gera þær upp. Hann hefur safnað saman tæplega 40 gripum og vinn- ur verk sitt við erfiðar aðstæður./l Getur svartur maður átt hvíta konu ►Litið inn á Umburðarlyndissafn- ið í Los Angeles. /6 Til eru fræ ►Haukur Morthens var einn ást- sælasti söngvari þjóðarinnr í yfir 40 ár. Hann hefði orðið sjötugur næstkomandi þriðjudag./lO Mekka fjölmlðlunar ►Hluti af námi fjölmiðlafræði- nema er að kynna sér fjölmiðla- flóru í öðrum löndum. Hér segir af ferð þeirra til Bandaríkj- anna./14 BÍLAR ► 1-4 Caclllac Fleetwood Brougham ►Fyrsta alvörulímúsínan komin til íslands. /2 Fornbílar ►Bugatti-safnið í Mulhouse i Frakklandi skoðað. /4 FASTIR ÞÆTTIR Fréttir 1/2/4/6/bak Fólk f fréttum 42 Leiðari 26 Bíó/dans 43 Helgispjall 26 íþróttir 46 Reykjavíkurbréf 26 Útvarp/sjónvarp 48 Minningar 29 Dagbók/veður 51 Myndasögur 38 Gárur 8b Brids 38 Mannlffsstr. 8b Stjörnuspá 38 Dægurtónlist 12b Skák 38 Kvikmyndir 13b Bréftilblaðsins 38 Samsafnið 26b Vfkvctji 40 INNLENDAR FRÉTTIR: 2-6-BAK ERLENDAR FRÉTTIR: 1-4 Morgunblaðið/Árni Sæberg Aðalræðismaður Islands í Chicago Fyrrum aðstoðar- utanríkisráðherra tilnefndur 1 starfið

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.