Morgunblaðið - 15.05.1994, Síða 6

Morgunblaðið - 15.05.1994, Síða 6
6 SUNNUDAGUR 15. MAÍ 1994 MORGUNBLAÐIÐ ERLEIMT Föðurlandshyggja og aukinn stöðugleiki einkenna rússnesk sljórnmál Valdabaráttan snýst um tilkall til sögunnar og arfleifðarinnar svo sem sigrum í stríðum eða hverskyns velgengni á alþjóðavett- vangi, fyrr og síðar, er ekki við miklum undirtektum að búast. Það hefur verið hamrað á því hvað eftir annað síðustu árin að sagan endurtaki sig. Þetta hafa menn viljað nota til að styðja þá spádóma um að Rússland stefni beint í einræði og svipi því mjög til Þýskalands eins og það var á árunum milli stríða. Það er raunar búið að bergmála þessa skoðun svo oft og lengi að margir eru farnir að hugsa um framvindu atburða nú, eins og þeir séu ekkert annað en endurtekning sögunnar. En þessi túlkun er í mikilli andstöðu við það sem þó ætti að vera öllum Astand mála í Rússlandi um þessar mund- ir á sér enga hliðstæðu í sögunni og tómt mál að tala um endurtekningu í þeim efnum segir Jón Olafsson í þessari grein sinni frá Moskvu. Um síðustu helgi héldu rússar upp á sigurinn yfir Þjóðverjum 1945, eins og gert er 9. maí ár hvert. Hátíðahöldin voru að þessu sinni með óvenju miklum glæsibrag og þótti mörgum sem ekkert vantaði nema hersýninguna til þess að allt væri fullkomnað. Aðalviðburður sigurdagsins var opnun safns um föðurlandsstríðið mikla, eins og Rússar kalla sinn þátt í síðari heimstyijöldinni, stað- sett í námunda við sigurbogann sem reistur var á síðustu öld, til að marka sigurinn á Napóleon. Innrásum Napóleons og Hitlers hefur jafnan verið líkt hvorri við aðra einsog best sést á nafnagift- unum. Stríðið við Napóleon er kall- að föðurlandsstríðið, en við Hitler föðurlandsstríðið mikla. Níunda maí hátíðahöldin hafa verið hálf vandræðaleg í Moskvu frá því að tilvist Sovétríkj- anna lauk, því einhvemveginn vissu menn ekki hvemig ætti að endurskoða sögulegan skilning á aðdraganda og atburðum seinni heimstyrjaldarinnar. Nú virðist ráðið hafa verið fundið og fullkom- in sátt ríkja um það að endurskoða þennan skilning alls ekki. Það var því nokkuð sérkennilegt að fylgjast með hátíðahöldunum í ár. Þar var allt á sömu bókina lært, dögum saman upphófu fjölmiðlar kjark og hreysti rússnesku þjóðarinnar, á meðan stjórnvöld reyndu einsog þau gátu að sýna styrk sinn, jafnt innanlands sem utan og koma í veg fyrir að stjómarandstaðan stæli senunni, og tækist að brigsla stjóminni um alþjóðahyggju og landssölu. Engar gagnrýnisraddir heyrðust, engar tilraunir voru gerðar til að velta vöngum yfír því hvort Rússar ættu kannski að sjá sinn þátt í heimstyijöldinni í dálít- ið öðm Ijósi en gert var á Sovéttím- anum. Kraftmikið sjónarspil Hátíðahöldin voru í stuttu máli kraftmikið útspil stjórnvalda, sem vildu bæta ímynd sína í augum almennings og reyna að gera stjórnarandstöðuna hjákátlega. Ferðalag Jeltsíns forseta til Þýska- lands strax að hátíðahöldunum loknum þar sem hann samdi tafar- laust við vin sinn Helmut (einsog hann komst að orði við rússneska sjónvarpsmenn) um að fresta brottkvaðningu síðasta rússneska hermannsins frá Þýskalandi og fleiri mikilvæg mál, var enn einn liðurinn í þessari velheppnuðu her- ferð. Það er óhætt að segja að stjórnin hefur styrkt stöðu sína síðustu daga; allt í einu er einsog stjórnarandstæðingar til vinstri og hægri, að ógleymdum hinum Fijálsíyndu demókrötum, séu al- Bráðhress með Helmut BORÍS Jeltsín Rússlandsforseti og Helmut Kohl, kanslari Þýskalands, í hópi aðdáenda sinna. Heimsókn Jeltsíns til Þýskalands þykir hafa tekist vel. Vel fór með þeim tveimur og höfðu menn til marks um það að Jeltsín kallaði kanslar- ann Helmut. Báðir hafa þeir styrkt stöðu sína að undan- förnu, stjórn Jeltsíns hefur sótt í sig veðrið og fylgi við Kohl kanslara hefur farið vaxandi að undanförnu. veg orðnir máttlausir. Þótt stjórn- arandstöðunni tækist að halda fjöl- menna fundi á sigurdaginn, var alveg ljóst að Jeltsín forseti og hans lið hafði tögl og hagldir. En þetta sjónarspil sýndi líka dálítið annað: Það er að verða nokkuð skýrt hvaða sjónarmið njóta vinsælda í landinu og hver gera það ekki. Andstæðingum Jeltsíns hefur tekist á síðustu tveimur árum að skapa megna tortryggni á öllum sleikjuhætti gagnvart Vesturlöndum. Ta! um vináttu við vestræn ríki, eða aðstoð þeirra, fellur ekki í ftjóan jarðveg í Rússlandi, nema jafnframt komi fram að öllum sé ljóst innanlands sem utan, að Rússland sé og verði stórveldi. Sjálfsgagnrýni er tvíbent líka. Um leið og hún beinist að einhveiju sem Rússum er heilagt, ljóst: Ástand mála í Rússlandi um þessar mundir á sér alls enga hlið- stæðu í sögunni. Þessvegna er líka tómt mál að tala um endurtekn- ingu sögunnar, jafnvel þó að allt fari á versta veg. Tilkall til sögunnar Þótt atburðir sigurdagsins í Moskvu hafi ekki farið hátt, né verið alþjóðlegt fréttaefni, þá gáfu þeir skýra mynd af því um hvað valdabaráttan, baráttan um fram- tíðina, snýst hér í Rússlandi. Hún snýst um tilkall til sögunnar, að hve miklu leyti þeir menn sem sitja við stjórnvölinn geta gefið trúverð- uga mynd af sér sem arftökum keisaranna og flokksleiðtoganna, sem vissulega voru harðstjórar, en gerðu Rússland þó að stórveldi. Það sem stjórn Jeltsíns hefur skort hingað til er þessi trúverðugleiki og af þeirri ástæðu hefur andstæð- ingum forsetans tekist að ná mikl- um áhrifum. Vissulega má til sanns vegar færa að efnahags- ástandið í landinu sé full ástæða til pólitískrar ólgu, en á hitt ber að líta, að mikill meirihluti rúss- neskra kjósenda kveðst styðja skársta kostinn af öllum illum fremur en að hafa sérstaka trú á einhveijum flokki eða stjórnmála- manni. Efnahagsástandið minnkar kannski varúð fólks gagnvart lýðskrumurum, en það hefur ekki gert almenning öfgasinnaðan. Það er að sýna sig að rússneska stjórnin tekst öðruvísi á við verk- efni sín en dæmi eru um að stjórn- völd hafi gert í Rússlandi og það gefur út af fyrir sig ástæðu til bjartsýni. Á hverri öld hafa verið gerðar umbótatilraunir í Rússlandi (enn eitt tilefnið til að halda því fram að sagan endurtaki sig) og jafnan hefur þeim lyktað með ein- hverskonar afturhaldi, þó aldrei nógu miklu til að gera umbæturn- ar að engu. Eftir að Sovétríkin hrundu benti margt tii þess að afturhvarf til fyrri stjórnarhátta væri yfirvofandi í mörgum þeirra ríkja sem áður voru Sovétlýðveldi og upp á síðkastið hefur mörgum sýnst að í Rússlandi kynnu aftur- haldsmenn að ná yfirhöndinni. En nú er einsog stjórninni hafi tekist, að minnsta kosti um stundarsakir, að snúa öllu sér í vil með einföldum hætti: Á meðan umbótastefnu er að minnsta kosti haldið vakandi, og ekki dregið úr vináttu við Vest- urlönd, er allt kapp lagt á að halda í heiðri venjur og hefðir, sovéskar ekki síður en rússneskar. Ernir og keisarafánar Umbætur eru ekki nýjar í Rúss- landi og þaðan af síður afturhald, en það er nýtt að vinna að umbót- um í nafni sögunnar, án þess að gera greinarmun á stjórnum eða tímabilum. Það var Rauði herinn sem rak flótta Þjóðveija inn í miðja Evrópu í lok síðustu heimsstyijald- ar og festi upp rauða fána og hamra og sigðir í höfuðsetrum aðals- og borgarastéttar. En þegar 49 ára afmælis þessara sigra var minnst á mánudaginn var, voru önnur merki á lofti. Það voru tví- höfða ernir og rússneskir keisaraf- ánar sem settu svip sinn á daginn og þótti engum mikið. Þegar við vörnum föðurlandsins kemur eru allir jafnir, herir, leiðtogar og aldir. Það er hætt við að þeir sem vonuðust eftir ennþá meiri upp- Ijóstrunum og ennþá meira upp- gjöri við Sovéttímann þurfi að bíða enn um sinn. En í staðinn verður kannski meiri stöðugleiki í pólitík en menn hafa búist við, að minnsta kosti ef framhald verður á sköru- leik stjórnarinnar. Líkur á hvala- griðasvæði á suðurslóðum Kaupmannahöfn. Morgunblaðið. ALLT bendir til að á næsta fundi Alþjóða hvalveiðiráðsins, sem haldinn verður í Mexíkó í lok mánaðarins, verði samþykkt að koma á griðasvæði fyrir hvali á suðurslóðum. Að mati Grænfriðunga gæti griðasvæði mark- að endalok hvalveiðiiðnaðarins. Einnig eru líkur á að hrefnukvóti Græn- lendinga verði aukinn. Áætlanir um griðasvæði hafa ver- ið í deiglunni undanfarin ár, en fyrst nú virðist sem meirihluti sé í ráðinu fyrir hugmyndinni. Svæðið á að vera fyrir sunnan 40. breiddargráðu. Grænfriðungar hafa unnið að fram- gangi áætlunarinnar og samkvæmt þeim eru nú líkur á að hún nái fram að ganga. Hún bitnar fyrst og fremst á hvalveiðum Japana og Grænfrið- ungar halda því fram að Japanir hafi reynt að bera fé á smáríki til að fá þau til að greiða atkvæði gegn tillögunni. Grænfriðungar álíta að griðasvæði geti orðið til að gera endanlega út af við hvalveiðiiðnað- inn. í febrúar voru greidd atkvæði um áætlunina í ráðinu, en þá sátu Danir hjá. Nú virðist svo sem þeir muni greiða atkvæði með henni. Búist er við að hrefnukvóti Græn- lendinga verði aukinn, en þeir hafa sérstakan kvóta, sem eingöngu er veittur frumbýlisþjóðum. Kvóti þeirra er þó lítill, nemur aðeins um hundrað hrefnum á ári. Reuter Hreinlætið næst guðdómnum SKÓSMIÐUR situr á gangstétt í Bombay fyrir framan vegg með myndum af Kristi og Sai Baba, kenniföður hindúa. Á veggn- um er einnig vígorð á hindí: „Hreinlætið er næst guðdómnum". Indverjar hafa tekið það til bragðs að mála myndir af guðlegum verum og trúarleiðtogum á veggi til að koma í veg fyrir að fólk skvetti úr skinnsokknum á þá. Kínversk- um andófs- manni sleppt Pekin^. Reuter. STJORNVÖLD í Kína tilkynntu í gær að þau hefðu leyst Chen Zim- ing, einn af leiðtogum uppreisnar- innar á Torgi hins himneska friðar árið 1989, úr fangelsi. Chen Ziming er 41 árs menntamaður og var dæmdur í 13 ára fangelsi fyrir gagnbyltingart.il- raun árið 1991. Systir hans sagði að hann væri veikur og hefði verið sendur í læknismeðferð í grennd við Peking í 20 daga, eða þar til eftir 4. júní þegar fimm ár verða liðin frá blóðbaðinu á Torgi hins himneska friðar. Fréttaskýrendur sögðu að þessi ákvörðun kínverskra stjórnvalda gæti stuðiað að því að Bill Clinton Bandaríkjaforseti gæti veitt Kínveij- um bestu viðskiptakjör. I \ l I -

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.