Morgunblaðið - 15.05.1994, Qupperneq 8
8 SUNNUDAGUR 15. MAÍ 1994
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Skinku-Brynka og Kalkúnlærin stinga upp á því að landbúnaðarrevían verði endurflutt.
Ný lög um Lífeyrissjóð sjómanna samþykkt
Reglugerð verði bor-
in undir þingnefnd
í NÝJUM lögum um Lífeyrissjóð sjómanna, sem samþykkt voru
á Alþingi á miðvikudag, er bráðabirgðaákvæði um að fjármálaráð-
herra skuli leita álits efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis
áður en hann staðfestir reglugerð fyrir sjóðinn. Var þetta ákvæði
sett í lögin að tillögu nefndarinnar.
Lögin eru einskonar rammalög
en stjóm sjóðsins á að semja reglu-
gerð starfsemina, meðal annars til
að bæta fjárhagsstöðu sjóðsins.
Samkvæmt lögunum þurfa Alþýðu-
sambandið, Farmanna- og fiski-
mannasambandið, Félag íslenskra
botnvörpuskipaeigenda, Landssam-
band íslenskra útvegsmanna, Sjó-
mannasambandið, Vinnuveitenda-
sambandið og fjármálaráðherra að
staðfesta reglugerðina.
Lífeyrisréttindi skert
Þegar þriðja og síðasta umræða
hófst um frumvarpið á Alþingi fyrir
þremur vikum óskaði Svavar Gests-
son þingmaður Alþýðubandalags
eftir frestun þar sem fulltrúar sjó-
mannasambanda óskuðu eftir að
ræða við efnahags- og viðskipta-
nefnd. Þá lágu fyrir drög að reglu-
gerð sjóðsstjórnarinnar og sam-
kvæmt þeim var gert ráð fyrir að
Álit umboðsmanns Alþingis
Ekki taldir vanhæfir
til setu í örorkunefnd
UMBOÐSMAÐUR Alþingis, Gaukur
Jörundsson, hefur komist að þeirri
niðurstöðu að læknarnir Brynjólfur
Mogensen og Gísli Einarsson séu
ekki vanhæfir til setu í örorkunefnd
þrátt fyrir trúnaðarstörf sem þeir
hafí innt af hendi fyrir tryggingarfé-
lög. Fimm hæstaréttarlögmenn báru
í haust fram kvörtun til umboðs-
manns Alþingis vegna skipunar
læknanna í örorkunefnd.
Hæstaréttarlögmennirnir Jón
Steinar Gunnlaugsson, Vilhjálmur
H. Vilhjálmsson, Viðar Már Matthí-
asson, Atli Gíslason og Sigurður G.
Guðjónsson báru fram kvörtun til
umboðsmanns Alþingis vegna skip-
unar þeirra Brynjólfs og Gísla í ör-
orkunefnd samkvæmt 10. grein
skaðabótalaga nr. 50/1993. Töldu
þeir að læknarnir uppfylltu ekki al-
menn hæfísskilyrði tii setu í um-
ræddri nefnd vegna starfa sinna í
þágu tryggingarfélaga. I áliti um-
boðsmanns Alþingis kemur fram að
einungis kvörtun þeirra Jóns Stein-
ars og Vilhjálms uppfyllti lagaskil-
yrði um kvartanir til embættisins,
og var hún því tekin til efnismeðferð-
ar.
í niðurstöðu umboðsmanns Al-
þingis segir að með tilliti til þeirra
gagna sem fyrir hann hafi verið lögð
verði ekki séð að læknarnir Brynjólf-
ur Mogensen og Gísli Einarsson
verði fyrirsjáanlega vanhæfír til
meðferðar svo margra mála sem
fyrir örorkunefnd muni koma að
telja beri þá almennt vanhæfa til
setu í nefndinni.
skerða lífeyrisréttindi, þar á meðal
lífeyri sjómanna undir 65 ára aldri.
Nú geta sjómenn fengið ellilífeyri
úr sjóðnum frá 60 ára aldri.
Vilhjálmur Egilsson varaformaður
efnahags- og viðskiptanefndar sagði
á Alþingi á miðvikudag að samtök
sjómanna styddu lagafrumvarpið þar
sem þau vildu ekki lofa lífeyris-
greiðslum úr sjóðnum sem ekki væri
hægt að standa við vegna slæmrar
íjárhagsstöðu. Hann vitnaði í bréf
frá Farmanna- og fískimannasam-
bandinu þar sem eindregið er lagt
til að Alþingi samþykki lögin.
Hár rekstrarkostnaður
Guðrún Helgadóttir þingmaður
Alþýðubandalagsins gagnrýndi
frumvarpið harðlega og samtök sjó-
manna fyrir að styðja það. Hún
benti á að þrátt fyrir slæma fjár-
hagsstöðu hefði verið eytt 35 millj-
ónum króna til byggja hús fyrir sjóð-
inn og rekstrarkostnaður sjóðsins
næmi 35 milljónum á ári.
Svavar Gestsson lagði til að mál-
inu yrði frestað til hausts þar sem
fram hefðu komið ábendingar um
að ríkissjóður eigi að standa undir
kostnaði við 60 ára lífeyrisaldur sjó-
manna. Guðmundur Hallvarðsson
þingmaður Sjálfstæðisflokks sagði
í þingræðu að þessu hefði verið
heitið árið 1981. Tillaga Svavars
var felld og lögin um sjóðinn síðan
samþykkt með 24 atkvæðum gegn
7 atkvæðum þingmanna Alþýðu-
bandalagsins en 7 greiddu ekki at-
kvæði.
Halldór Ásgrímsson formaður
efnahags- og viðskiptanefndar sagði
við Morgunblaðið að það væri ekki
venjulegt að setja ákvæði í lög um
að leita skuli álits þingnefnda. En
málið í heild væri óvenjulegt því
umrædd lífeyrisréttindi hefðu verið
ákveðin á grundvelli laga, sem sett
voru árið 1979 að undangengnum
kjarasamningum.
I próflestri í vorblíðunni
Latína o g
gríska erfiðust
„Bærilegt og jafnvel skemmtilegt“
Sveinn Guðmarsson
úsundir náms-
manna hafa setið
við próflestur
undanfarnar vikur. Sveinn
Guðmarsson er tvítugur
menntaskólanemi sem
stundar nám í fornmála-
deild við Menntaskólann í
Reykjavík og er að ljúka
stúdentsprófi í vor. Hann
þurfti að gangast undir
15 skrifleg og munnleg
próf í vor og á nú aðeins
eftir að þreyta tvö próf í
munnlegri íslensku og
ensku. „Þetta hefur geng-
ið ágætlega," segir hann.
„Þetta er bijáluð vinna en
ég hef bara tekið hvert
próf fyrir sig og ekki látið
mér þetta vaxa neitt í
augum. Þá hefur þetta
verið bærilegt og jafnvel
skemmtilegt," segir hann.
„Það versta er yfirstað-
ið og nú á ég bara tvö
próf eftir. Það var erfiðast
að Iæra fyrir próf í latínu og
grísku en svo kom reyndar í ljós
að hvorugt prófíð var mjög erf-
itt,“ segir Sveinn. Hann segist
vera nokkuð sáttur við hvernig til
hafi tekist í prófunum í vor. „Ég
hef stundað félagslífið grimmt í
vetur þannig að ég hef ekki getað
beitt mér eins mikið í náminu og
þess vegna hef ég þurft að leggja
aðeins harðar að mér í prófunum
núna heldur en gengur og ger-
ist,“ segir Sveinn en hann var
inspector scholae í menntaskólan-
um í vetur og var einnig í sigurl-
iði MR í spurningakeppni fram-
haldsskólanna, Gettu betur. „Það
hefur því verið í nógu að snúast.
Það er líka oft þannig, að þegar
maður hefur mjög mikið að gera,
þá er það meiri hvati til að standa
sig vel á öðrum sviðum," segir
hann.
► SVEINN Guðmarsson er að
íjúka stúdentsprófi frá Mennta-
skólanum í Reykjavík í vor.
Sveinn er fæddur 18. febrúar
árið 1974. Hann er borinn og
barnfæddur Seltirningur og
býr á Barðaströnd 23 á Sel-
tjarnarnesi.
kann að virðast, þá gengur mér
yfírleitt betur að læra þegar það
er bjart úti heldur en þegar það
er rigning og drungi. Við félag-
arnir höfum líka skroppið út í
fótbolta og slappað af á milli próf-
anna. Veðurblíðan gerir þetta
bara betra,“ sagði hann.
Túnsláttur í sumar -
landafræði í haust
Betra að lær
þegar bjart er
utan dyra
Frá átta á morgnana til
ellefu á kvöldin
Sveinn hefur stundað nám í
svonefndr fornmáladeild 1 en í
vetur lögðu óvenju margir eða
átta nemendur stund á fornmálin
í MR. „Þetta er eina deildin á land-
inu sem kennir forngrísku. Við
erum óvenjumörg núna en bæði
í árgöngunum á undan og á eftir
okkur hefur verið frekar lítill
áhugi fyrir þessu. Þetta eru nátt-
úrlega svínþungar greinar en
þessi klassísku fræði eru mjög
skemmtileg og áhugaverð," segir
hann. _________
Fyrsta prófið var
haldið 18. apríl en
Sveinn segist fara í
síðasta prófið 23. maí.
Utskriftin fer svo fram ' ”
26. maí. „Það líða yfirleitt þrír
eða fjórir dagar á milli prófa,“
segir hann þegar hann er spurður
hvernig hann hagi próflestrinum.
„Ég tek það yfirleitt rólega þegar
ég er búinn í hveiju prófi framan-
af degi en næstu daga þar á eftir
og fram að næsta prófí vakna ég
í síðasta lagi klukkan átta á
morgnana og er svo að alveg fram
undir klukkan ellefu á kvöldin.
Ég tek mér náttúrlega pásu öðru
hvoru og fer út í fótbolta," segir
hann.“
Aðspurður hvort ekki hefði
reynst erfitt að sitja daglangt við
próflestur í veðurblíðunni að und-
anförnu sagði Sveinn svo ekki
vera. „Svo furðulegt sem það
Sveinn hefur fengið vinnu í
sumar í áhaldahúsi Seltjarnarnes-
bæjar en þar hefur hann starfað
yfír sumartímann undanfarin ár
og segist einkum hafa það verk-
efni með höndum að fást við tún-
slátt. Hann kveðst þó ætla að fá
sér vinnu með háskólanáminu sem
hann er ákveðinn í að stunda
næsta vetur. Sveinn ætlar að inn-
rita sig í Háskóla íslands og hefja
þar nám í landafræði í haust.
„Frá því að ég man eftir mér, hef
ég haft mikinn áhuga á landa-
fræði, jarðfræði og náttúrufyrir-
bærum, og hef legið yfir kortum
________ og svoleiðis," svarar
Sveinn þegar hann er
spurður hvað hafi ráðið
því vali. Hann segir að
flestum kunningjum
sinum hafi gengið bæri-
lega að fínna sér sumarvinnu að
þessu sinni þó hann hafí líka orð-
ið var við að ýmsir framhalds-
skólanemar hafi fengið lítið að
gera. „Þó virðist þetta nú blessast
hjá flestum," segir hann.
Eins og að framan segir sigr-
aði lið Menntaskólans í Reykjavík
í spurningakeppni framhalds-
skólanna í vetur og unnu Sveinn
og félagar hans í sigurliðinu til
veglegra verðlauna, m.a. ferðar
til Parísar og Amsterdam. „Við
förum þó ekkert fyrr en í lok
ágúst, þegar við erum komnir
með peninga fyrir gjaldeyri. Þá
förum við allir saman og tökum
þjálfarann okkar með,“ segir
hann að lokum.