Morgunblaðið - 15.05.1994, Page 11

Morgunblaðið - 15.05.1994, Page 11
MORGUNBLAfJIÐ SUNNUDAGUR 15. MAÍ 1994 11 i Mánaðarlaun 100.000 150.000 200.000 250.000 300.000 Greiðsla í lífeyrissjóö 4.000 6.000 8.000 10.000 12.000 Skattur (41,84% 17.925 38.845 59.765 80.685 101.605 Ráðstöfunartekjur 78.075 105.155 132.235 159.315 186.395 Greiðslugetan er 20% af brúttólaunum 20.000 30.000 40.000 50.000 60.000 Eftir er: 58.075 75.155 92.235 109.315 126.395 OH- H----h H----1---h H----1---1----h 1980 ’81 '82 ’83 ’84 ’85 ’86 '87 ’88 ’89 '90 ’91 ’92 5,0 millj. kr. 4,5 og2y°ngrri ^ ** ^ ^ ^ ^ o7g6eldri u Greiðslubyröí lana hjá RS3 Húsnæðisstofnun ríkisins O Afborganir og vextir af láni að upphæð kr. 1 milljón á 3ja mánaða fresti Afborganir lána hjá Byggingarsjóði verkamanna Félagslegar eignaríbúðir, lánstími 43 ár 1,0% vextir HHHHH 7.297 2,4%vextir HHHHHH 9.464 Afborganir iána hjá Byggingarsjóði ríkisins Lánstími allt að 40 ár 4,9% vextir Afborganir vegna húsbréfaviðskipta Fasteignaveðbréf, lánstími 25 ár 5,0% vextir 5,75% vextir 6,0% vextir 15.534 milljón króna í tekjur greiða að meðaltali 20% af tekjunum í vexti, en hjón sem eru með að meðaltali 5 milljónir króna í árstekjur og þar yfir greiða 5% sinna tekna í vexti. Skuldir heimilanna hafa vaxið jafnt og þétt frá því verðtrygging var tekin upp. Bara á síðasta ári hækkuðu skuldimar um 18 milljarða króna milli ára en árlegur vöxtur skulda heimilanna hefur verið í kringum 15% að meðaltali á þessu árabili. Mest var aukningin milli ár- anna 1982 og 1983 eða 102%. Þessi þróun endurspeglast í því að útlán Íánastofnana til heimila tvöfaldast hlutfallslega á þessu árabili. Þau voru 18-19% af heildinni 1980 en voru í fyrra 35-36%. Skuldir í hlut- falli af ráðstöfunartekjum hafa vax- ið úr 25% árið 1980 í 116% í fyrra. Til samanburðar þá skiptir mjög í tvo horn hvað þetta hlutfall varðar hjá öðrum þjóðum. Á Ítalíu og í Þýskalandi er þetta hlutfall í kring- um fimmtungur ráðstöfunartekna en í Bandaríkjunum og Japan er hlutfallið 100-120%. Ef við lítum okkur nær og til Norðurlandanna þá er það um 70% í Finnlandi, 80% í Svíþjóð og um 130% í Noregi. Þetta hlutfall hefur hins vegar farið lækk- andi í þessum löndum frá árinu 1988 á sama tíma og það hefur stöðugt farið hækkandi hér á landi ár frá ári. Fyrir þessari þróun eru ýmsar eðlilegar ástæður og alls ekki ein- göngu um að kenna skuldagleði ís- lensks almennings. Þar má meðal annars nefna að með verðtrygging- unni hættu skuldir að rýrna sjálf- krafa í verðbólgunni, eins og þær höfðu gert áður. Mjög stórir árgang- ar stofnuðu heimili á síðasta áratug og er talið að 20% af skuldaaukning- unni megi rekja til aldursdreifingar- innar og þess mikla fjölda ungs fólks sem stofnaði heimili á síðasta ára- tug. Frelsi í vaxtaákvörðunum kom til framkvæmda á miðju þessu tíma- bili og lántökumöguleikar voru stór- auknir, enda mjög litlar skuldir áhvílandi á húsnæði í landinu. Fyrst var Húsnæðislánakerfið frá 1986 sett á laggirnar en þá tvöfölduðust ián til nýbygginga miðað við það sem áður hafði verið og lán til kaupa á notuðu húsnæði þrefölduðust. Hús- bréfakerfið var síðan sett á fót 1989 í stað húsnæðislánakerfisins frá 1986 og með því voru, einkum í byijun, stórauknir möguleikar á lán- töku vegna húsnæðiskaupa, þar sem greiðsluþol viðkomandi og veðhæfni eignar var í raun og veru eina viðm- iðunin á heimild til lántöku. Þar með voru biðraðirnar sem fylgdu 1986 kerfinu einnig afnumdar en um átta þúsund umsóknir biðu afgreiðslu þar þegar húsbréfakerfið tók gildi, enda var útgáfa húsbréfa mjög mikil fljót- lega eftir að farið var að lána úr því og afföll jukust hratt vegna mik- ils framboðs. Greiðslubyrði má nema 20% af heildarlaunum Fljótlega voru sett ýmis takmörk á lántökur í húsbréfakerfinu og há- markslán nú eru rúmlega 5,2 millj- ónir til kaupa á notuðu húsnæði og tæpar 6,3 miiljónir til nýbygginga. Hafa ber í huga að um jafngreiðslu- lán er að ræða, þannig að sama greiðslubyrði er af láninu allan láns- tímann. Til að fá húsbréfalán þurfa umsækjendur að fá svonefnt greiðslumat sem er í raun og veru nokkurs konar vottorð um getu við- komandi til að kaupa húsnæði miðað við eignir og tekjur. í byijun var greiðslumatið framkvæmt á vegum Húsnæðisstofnunar en síðan var það sett í hendur innlánsstofnana. Sig- urður Geirsson, forstöðumaður hús- bréfadeildar Húsnæðismálastofnun- ar, segir að innlánsstofnunum sé fyrirlagt að miða við að greiðslu- byrði hemi ekki hærri upphæð en 20% af heildarlaunum, það er áður en skattar, lífeyrisiðgjöld og annað hefur verið dregið af launum. Það sé að áliti margra orðið hátt hlut- fall, enda sé fólk þá farið að greiða meira en helming heildarlauna í húsnæði, skatta og lífeyrisjóð og það reynisl mörgum þungt í skauti. Þó heimili reglugerð um húsbréfalán að greiðslumat sé miðað við allt að 30% af heildarlaunum að teknu tilliti til vaxtabóta. Það sé alltof mikil greiðslubyrði, því fólk standi ekki undir slíkum greiðslum til lang- frama. Miðað hafi verið við svo háa greiðslubyrði þegar greiðsluerfið- leikalánin voru veitt í húsbréfakerf- inu og það hafi sýnt sig að fólk hafi í mörgum tilvikum kiknað undan henni. Til að fá greiðslumat upp á að geta tekið hámarkslán samkvæmt núgildandi reglum þarf fólk að hafa 200-220 þúsund króna mánaðar- tekjur. Sigurður segir aðspurður að reynslan sýni að fólk nýti ekki greiðslumatið að fullu, að meðaltali kaupi það sér eign fyrir um 85% þess sem greiðslumatið segði fyrir um að hægt væri að kaupa. Greiðslu- byrði af hverri milljón með 5% vöxt- um er 5.900 krónur og rneð 6% vöxt- um 6.500 krónur á mánuði. Greiðslu- byrði af hámarksláni 5.240.000 kr. er 30.900 krónur á mánuði miðað við 5% vexti eins og hafa verið á síðustu tveimur flokkum húsbréfa, en vextirnir lækkuðu úr 6 í 5% síðla á síðasta ári. Greiðslubyrði á há- marksláni með 6% vöxtum er um 3 þúsundum hærra eða um 34 þúsund krónur á mánuði. Á ári nemur greiðslubyrði 5 milljón króna hús- bréfaláns með 5% vöxtum 354 þús- und krónum og láns með 6% vöxtum 390 þúsund. 660 umsóknir vegna greiðsluerfiðleika Samtals fengu um 1.200 manns greiðsluerfiðleikalán í húsbréfakerf- inu að upphæð 2,9 milljarðar króna, en heimildin var tímabundin og rann sitt skeið um áramótin 1991/92. Slíkur lánaflokkur hefur ekki verið opnaður eftir það, en stofnuninni er heimilt að aðstoða þá sem eru í greiðsluerfiðleikum með því að skuldbreyta lánum til að létta greiðslubyrði í samvinnu innláns- stofnanir og lífeyrissjóði þar sem samsvarandi endurskipulagning á íjármálum umsækjanda fer fram og einnig til þess að fresta greiðslum á afborgunum og vöxtum af hús- næðislánum í allt að þrjú ár ef viðko- amndi hefur orðið fyrir tekjurýrnun eða á við veikindi eða atvinnuleysi að stríða. Vigdís Hreinsdóttir, for- stöðumaður ráðgjafastöðvar Hús- næðisstofnunar, segir að frá 1; októ- ber síðastliðnum þegar samstarfið byijaði hafi borist samtals 660 um- sóknir og búið sé að afgreiða 356. Allir þeir aðilar sem hafi yfirsýn yfir fiármál fólks hafi lagst á eitt um að láta þetta ganga vel fyrir sig og það hafi gengið vonum framar að lagfæra skuldastöðuna hjá fólki. Auðvitað fái ekki allir óskir sínar uppfylltar eins og þeir helst vildu, enda sé nauðsynlegt að óskirnar séu raunhæfar. Umsóknum hafi fjölgað frá áramótum. Um 100 'umsóknir berist stofnuninni í hveijum mánuði og aðeins um 10% umsókna til við- bótar komi frá bönkunum. Greiðslubyrði er fall af þrennu, upphæð láns, vöxtum og endur- greiðslutíma. Best er auðvitað að skulda sem minnst og þurfa ekki að hafa áhyggjur af slíkum hlutum. Ef það er haft að reglu að afla fjár- ins áður en því er eytt hefur fólk meira á milli handanna þegar upp er staðið. En það reynist mörgum torvelt. Til skamms tíma hefur það ekki verið óalgengt hér á landi að fólk taki neyslulán til skamms tíma og ýti á undan sér talsverðu af skammtímalánum, eins og til dæmis yfirdráttarlánum, greiðslukortalán- um eða skuldabréfalánum sem bera hlutfallslega háa vexti miðað við aðra lánamöguleika til lengri tíma. Oft er sá möguleiki fyrir hendi að gera áætlun til lengri tíma og leysa sig þannig undan miklum fjár- magnskostnaði af skammtímalán- um, en þá þarf að vanda vel til allra áætlana og standa við þær. Fyrir- greiðslu til lengri tíma er hægt að fá í bönkum og einnig hafa þeir sem eru í lífeyrissjóðum möguleika á líf- eyrissjóðslánum. Til dæmis geta fé- lagar í Lífeyrissjóði verslunarmanna til fengið lán á íjögurra ára fresti úr sjóðnum en hámarkslán er nú 1.300 þúsund krónur og bera lánin 6% vexti. Lán til sjóðfélaga í Lífeyr- issjóði verslunarmanna sem er stærsti lífeyrissjóður Iandsins nema um 23% af heildareignum sjóðsins og um 18% af ráðstöfun fjár síðasta árs voru lán til sjóðfélaga. Saman- lögð skuld heimilanna í landinu við lífeyrissjóðakerfið nam 35 milljörð- um á síðasta ári. Ráðgjöf og greiðsluþjónusta Þá hafa innlánsstofnanir að und- anförnu verið að taka upp þjónustu fyrir fólk við að endurskipuleggja fjármál þess. Þjónustan felst í því að farið er yfir fjármálin og fólki veitt ráðgjöf um það hvernig hag- kvæmast sé að standa að útgjalda- jöfnun, en útgjöld geta verið mjög mismunandi milli mánaða. Greiðsluáætlun er útbúin, greiðslun- um jafnað á alla mánuði ársins og skuldfærð af launareikningi viðkom- andi sú upphæð sem þarf til að standa undir greiðslum á föstum útgjöldum. Bankinn tekur að sér að greiða reikninga og jafna út sveiflum á útgjöldum.. lngólfur Guðmundsson, forstöðu- maður markaðsdeildar Landsbank- ans, segir að mjög erfitt sé að gefa einhveija þumalputtareglu um það hve fólki sé óhætt að skulda mikið. Húsnæðisstofnun miði við að greiðslubyrði sé ekki meiri en sem nemi 20% af heildarlaunum, en það hafi sýnt sig að vera ekki einhlít regla. Burtséð frá launum sé það mjög mismunandi hvaða greiðslu- byrði fólk ráði við. Reynslan sé sú að það sé mjög einstaklingsbundið og þarfnist skoðunar í hveiju tilviki. Neyslumunstrið ráði mestu um nið- urstöðuna. Það sé greinilegt að margir eigi mjög erfitt með að draga úr neyslu þó þeir séu með góðar tekjur. Það væri oft ekki fyrr en fólk sæi svart á hvítu í hvað pening- arnir færu þegar gerð væri greiðsluáætlun vegna allra útgjalda heimilisins á árinu að það gerði sér grein fyrir hvar væri hægt að spara og hvernig rétt væri að skipuleggja heimilisreksturinn. Ingólfur sagði að Landsbankinn hefði fyrst byijað að feta sig inn á þessa braut árið 1990. Þá hefði sýnt sig að áhugi fyrir að skipuleggja útgjöldin væri ekki sérstaklega mik- ill meðal fólks. Nú væri áhuginn mun meiri og það væri greinilegt að átt hefði sér stað viss hugarfars- breyting hjá fólki að þessu leyti. Þegar ekki sé lengur vegna efna- hagsástandsins hægt að bjarga sér með því að auka tekjurnar sé eðli- legt að fólk hugi að því hvernig hægt sé að draga úr útgjöldunum. Fólk sé margt hvert hætt að lifa eins og happdrættisvinningur sé á næsta leyti og vilji ekki lengur velta á undan sér vandanum með dýrum neyslulánum til skamms tíma. „Það sýnir sig að margir á tiltölulega lág- um launum ná að hreinsa upp svona vandamál ekkert síður en þeir sem hafa tiltölulega góðar tekjur. Öllu skiptir að fá upp á borðið aliar skuld- irnar og setja það vel niður fyrir sér hvernig staðan sé í raun og veru. Það verður að að taka fjármálin föst- um tökum og skuldbreyta til nægi- lega langs tíma miðað við greiðslu- getu sé það nauðsynlegt," sagði Ing- ólfur ennfremur. 50% til fastra útgjalda Búnaðarbankinn er einnig með greiðslu- og ráðgjafaþjónustu í fjár- málum. Edda Svavarsdóttir, for- stöðumaður markaðssviðs Búnaðar- bankans, segir að í áætlanagerð séu tekið tillit til allra tekna og útgjalda heimilisins. Öll föst útgjöld heimilis- ins séu tekin með í reikninginn og sú regla sé höfð að leiðarljósi að föst útgjöld megi ekki vera hærri en 50% af nettótekjum. Meðal fastra útgjalda séu taldar allar afborgarnir af lánum, hvort sem um er að ræða lán til húsnæðiskaupa, námslán eða bankalán. Að auki sé tekið inn í hiti, rafmagn, fasteignaskattar, afnota- gjöld, sími, dagvistargjöld og annað slíkt sem hægt sé að telja til fastra útgjalda. Inni í þessu væru í raun- inni öll önnur útgjöld en hefðbundin neysluútgjöld svo sem vegna mat- vöru og fatnaðar og greiðslukort væri heldur ekki hægt að taka inn í föstu útgjöldin, þar sem úttektir með þeim væru óþekktar stærðir. Ekki væri hægt að búast við að fólk kæmist af með minna en helming nettótekna vegna daglegrar neyslu. Síðan væri bætt 5% ofan á til að hafa upp á að hlaupa vegna mögu- legra hækkana eða einhverra ófyrir- séðra útgjalda. Hún sagði að oft hefði fólk hlaðið upp alls kyns skuldum, bæði til langs tíma skamms tíma, vegna greiðslu- korts og annars. Upphæð heilda- skuldar viðkomandi segði ekki alla söguna um fjármálin, heldur til hve langs tíma skuldin væri og hvernig greiðslubyrðin dreifðist. Yfir þetta væri farið þegar áætlun væri gerð. Greiðslubyrðin væri reiknuð út og tillögur gerðar um hvaða skuldir sé hagkvæmt að greiða upp og hvaða lánsmöguleikar séu aðrir fyrir hendi. Edda sagði að eftirspurnin eftir þessari þjónustu væri nokkuð stöðug og hún væri alls ekki bundin við þá sem ættu í greiðsluerfiðleikum held- ut' væri þetta mjög þægileg þjónusta fyrir alla sem þyrftu að jafna sveifl- ur í tekjum og útgjöldum. Fólk sem hafi til dæmis verið í námi á Norður- löndunum eða í Bretlandi þekki þessa þjónustu þaðan og sæki tals- vert í hana. „Það er engin spurning að það er mjög mikil þörf fyrir svona þjónustu,“ segir hún. H

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.