Morgunblaðið - 15.05.1994, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 15. MAÍ 1994 15
lagðist gegn því að fjallað yrði um
viðkvæmar niðurstöður eins og stöðu
barna heimavinnandi mæðra í fjöl-
miðlum og þeir sem vildu kynna sér
skýrsluna áttu í erfiðleikum með að
nálgast hana, þar sem hún var aldr-
ei gefin út. í umfjöllun um niðurstöð-
ur í skýrslu yfir rannsóknina segir
m.a.:„Athyglisvert er að geðheilsa
barna, sem eru heima, virðist vera
alvarlegri, en hjá þeim sem eru í
gæslu utan heimilis. Margir myndu
eflaust álíta að þessu væri öfugt
varið. Málið er hins vegar flóknara
en svo, að hægt sé að bera þessa
hluti einhliða saman.“ Síðar segir:
„Sum börn geta t.d. verið heima af
því að þau hafa átt við líkamlega
sjúkdóma að stríða eða eru fötluð
að einhveiju leyti. Geðrænir erfíð-
leikar geta einnig valdið því að böm-
in eru höfð heima. Einnig geta ýms-
ar ástæður foreldra - persónulegar
og/eða félagslegar valdið því að börn
eru heima“ og það var raunar svo í
mörgum tilvikum," segir Guðfinna.
„Hvað snertir kenningar Penelope
Leach þá tel ég að hún reyni að
koma með ögrandi skoðanir á börn-
um og barnauppeldi til þess að fá
fram umræður í samfélaginu, hvetja
til umfjöllunar til að meira tillit sé
tekið til þarfa barna af foreldrunum
sjálfum og samféiaginu í heild. Hins
vegar er hægt að nota ýmis sjónar-
mið sem hún setur fram gegn henni
sjálfri. Umræður um þessi mál eiga
hins vegar ekki að fara út í karp um
atriði sem litlu máli skipta, þannig
að meginmarkmiðið, líðan og aðbún-
aður barna, gleymist. Uppeldisað-
ferðir eiga heldur ekki að vera meg-
inmál í sjálfu sér heldur hitt að ala
upp fólk sem verður að nýtum
borgurum. Til þess tel ég nauðsyn-
legast af öllu að börnum séu sett
mörk í uppeldinu. Ég álít að agaieys-
ið, sem hér er mikið vandamal í sam-
bandi við börn, stafi af því að börnum
sé ekki sett nógu skýr mörk af upp-
alendum sínum. Agi og að setja
mörk er ekki eitthvað neikvætt held-
ur eru meiri líkur á að sjálfsstjórn
eflist og gildismat þroskist þar sem
slíkt er fyrir hendi. Gildismat barna
þroskast betur hjá börnum ef foreldr-
um þeirra tekst að setja mörk og
beita kærieiksríkum aga. Líkamsr-
efsingar virðast hins vegar ekki væn-
legar til árangurs og hér á íslandi
hafa þær ekki verið notaðar sem við-
urkenndar uppeldisaðferðir - þó svo
þeim sé beitt í meiri mæli en opinber-
lega er vitað um.
Mjög varhugavert er að gefa al-
gild ráð um barnauppeldi. Börn eru
mjög mismunandi að upplagi og
þroskast mismunandi vegna uppeld-
isáhrifa. Uppeldi ber að líta á sem
þróun sem tekur mjög langan tíma
en ekki sem röð af einstökum
skammtímaáhrifum. Það er fráleitt
að gefa einhveija eina línu um að
svona skuli uppeldi vera og svona
alls ekki. Börn geta þroskast'eðlilega
við mismunandi, ólíkar aðstæður.
Það væri hins vegar æskilegt að for-
eldrar og aðrir sem hafa með börn
að gera hefðu grundvallarþekkingu
á bömum og hvernig þau þróast á
ólíkum aldursskeiðum. Slíkt gæti
hjálpað uppalendunum til að átta sig
sjálfir á hvenær á að grípa inn í og
hvað á að gera þegar vandi kemur
upp.
Ég tek undir kenningu Penelope
Leach um þörf ungbarns fyrir skjóta
aðhlynningu. Ungabarnið er algjör-
lega háð öðrum og á því skilyrðis-
lausan rétt á að komið sé til móts
við þarfir þess eins og mögulegt er,
kröfur barna í þessum efnum eru
hins vegar mismunandi og því þarf
að sýna sveigjanleika. Aldrei er hægt
að gera of mikið úr þýðingu mikillar
samveru móður og ungbarns. Að
halda því fram að börnum sé skað-
legt að vera í umönnun á dagvistar-
stofnunum eru hins vegar öfgar.
Slíkt fer eftir gæðum stofnunarinnar
og því hvemig hlúð er að börnunum
heima hjá þeim. Börn hafa þörf fyr-
ir að aðgreina sig smám saman frá
foreldrunum og verða félagsverur.
Dagvistarstofnanir gera þeim þetta
kleift fyrir utan að aðstoða foreldr-
ana við að fá smáhvíld frá barnaupp-
eldinu eða vinna utan heimilis. Ég
er svo að endingu hjartanlega sam-
mála Penelope Leach þegar hún
gagnrýnir vinnustaði, stjórnvöld, lög-
gjafarvaldið og foreldra fyrir að setja
ekki velferð barna í öndvegi. Þessum
málaflokki þarf að sinna miklu meira
og af meiri áhuga og heilindum en
nú er gert. Það er ekkert að börnun-
um okkar, það er framkoma okkar
við þau sem er athugaverð. Það er
ekki bara meðal barna sem agaleysi
og skortur á sjálfsstjórn er vanda-
mál, við sjáum þetta jafnt innan
æðstu valdastofnana sem í daglegu
lífi manna - jafnvel á Alþingi íslend-
inga sjáum við stjórnmálamenn haga
sér eins og þeir séu á mótþróaaldrin-
um - oft án þess að þeir líði nokkuð
fyrir það. Það má ekki gleyma að
fyrirmýndir eru mikilvægar, þær
valda miklu um hvers konar mann-
eskjur við verðum."
27. MAI - 27.JUNI
AGSKRÁ
Lau 11. júní
Forsala aðgöngumiða
á eftirtalin atriði
stendur yfir í
íslensku óperunni
opið virka daga
kl. 16.00 -19.00
og frá 24. maí daglega
kl. 15.00-19.00
-sími 11475
Forsala aðgöngumiða
á eftirtalin atriði
stendur yfir í
Þjóðieikhúsinu
sími 11200
opið alla daga nema
mánudaga kl. 13.00 -18.00,
sýningardaga til kl. 20.00.
Tekið á móti símapöntunum
virka daga frá ki. 10.00
- Græna línan 996160
Mótettukórinn, stj. Hörður Askelsson
m.a. frumfl. verk eftir Pál P. Pálsson
Hallgrímskirkja kl. 17.00
Guido Pikal, tenor, Alfred Walter, píanó
Sönglög eftir þekkta hljómsveitarstjóra í Bayreuth
íslenska óperan kl. 20.00
Blásarakvintett Reykjavíkur og Vovka Ashkenazy, píanó
Verk eftir Mozart, Poulenc og Rimsky-Korsakov
íslenska óperan kl. 20.00
Barnaleikhúshátíð í IVIöguleikhúsinu við Hlemm
Mið 1.6.Leikhópurinn Mariehonen - Den lille heks kl.
Fim 2.6.Mókollur umferðarálfur kl. 17.00
Lau 4.6.Den lille heks kl. 15.00
Sun 5.6.Mókollur umferðarálfur kl. 15.00
mpiiierry Mulligan & The Gerry Mulligan Quartet
Háskólabíó kl. 20.00
tz.oo
Mán 6. júní
Þri 7. júní
Mið 8. júní
Fim 9. júní
Mið 8. júní
Fim 9. júní
Igor Oistrakh, fiðla, Natalia Zertsalova, píanó
Verk eftir Beethoven (Vorsónatan), Brahms,
Paganini/Schumann, Chausson, -
Rimsky-Korsakov/Zimbalist
íslenska óperan kl. 17.00.
Barpar eftir Jim Cartwright
Leikfélag Akureyrar
Lindarbæ kl. 20.30.
Macbeth eftir Shakespeare
Frú Emilía
Héðinshús, Seljavegi 2 kl. 20.00
Beethoven : Sinfónía nr. 9
Sinfóníuhljómsveit íslands
Hamrahlíðarkórarnir og einsöngvarar,
Stj. Osmo Vánská
Hallgrímskirkja kl. 20.00
verk eftir Tómas R. Einarsson
„Einslags stórt hrúgald af grjóti", tónleikur um ísland fyrir
5 einsöngvara og 6 manna jazzhljómsveit
fslenska óperan kl. 21.00
Niflungahringurinn eftir Richard Wagner
valin atriði sviðsett og skeytt saman með tengitextum
Listræn yfirumsjón : Wolfgang Wagner ’
Hljómsveitarstjóri: Alfred Walter ■
Leikstjóri : Þórhildur Porleifsdóttir - Leikmynd og
búningar: Sigurjón Jóhannsson
Einsöngvarar - Kór íslensjcu ópewirriaR
Sinfóníuhljómsveit íslands
Þjóðleikhúsið kl. 18.00 IJlLu-■
/J '3
WÖá
Ifslenski dansflokkurinn - Lýðveldisdansar
j Frumfl. verk eftir Hlíf Svavarsdóttur, Nönnu Ólafsdóttur,
' Maríu Gísladóttur
Borgarleikhúsið lau. kl.14.00 og sun. kl.14.00 og 20.00
Tíminn og vatnið eftir Atla Heimi Sveinsson (frumfl.)
Kammersveit Reykjavikur, kór og einsöngvararnir Marta
G. Halldórsdóttir, Sverrir Guðjónsson og Bergþór
Pálsson, Stj. Paul Zukofsky
Langholtskirkja kl. 20.00
Kvennakórinn Dzintars frá Lettlandi
Víðistaðakirkja kl. 17.00
Fella og Hólakirkja kl. 20.00
Vladimir Ashkenazy, píanó
Verk eftir Beethoven og Prokofietf L -
Háskólabíó kl 20 00
Dansk Saxofon Kvartet
M.a. frumflutt verk eftir Per Norgárd
Norræna húsið kl. 20.00
Erling Blöndal Bengtsson, selló
Verk fyrir einleiksselló eftir J.S.Bach og
Atla H. Sveinsson
íslenska óperan kl. 20.00
Jóhannsson - Hátíðartónleikar
Sinfóníuhljómsveit fslands, stj. Rico Saccani
Laugardalshöll kl. 19.00
Miðasalan hefst 17. maí
Milska, oratorio eftir Kjell Mörk Karlsen, samið við
samnefnt islenskt miðaldakvæði Asker Kirkekor og
Tonsberg Domkantori, einsöngur og talrödd
Hallgrímskirkja kl. 16.00
Björk
Underworld - Bubbleflies
Laugardalshöll kl. 20.00
Miðasalan hefst 17. maí
The Street of Crocodiles
eftir Bruno Schulz
Theatre de Complicité frá Bretlandi
Borgarleikhúsið kl. 20.00
Sannar sögur af sálarlífi systra
eftir Guðberg Bergsson og Viðar Eggertsson
Þjóðleikhúsið, Smíðaverkstæði
Tilraunin Island í 50 ár
12. júníkl. 16:00
Hringurinn lokast - Wagnerdagar í Reykjavík .
1. Niflungahringur Wagners
og íslenskar bókmenntir. . .
Málþing. . .
Norræna húsið, 23. maí kl. 14:00-
2. Richard Wagner and Ring des Nibelungen -
introduced by Barry Millington. • •
• íslenska óperan kl. 20:30.
3. Wagner og ísland. Alþjóðlegt málþing á ensku.
Meðal fyri.rlesara Barry Millington og
.Vésteinn Ólason. , ;
Norræna húsið. 29. maíkl. 13:30
4. Kynning á Niflungahringnum með tóndæmum
Anna Magnúsdóttir og Reynir Axelsson • ■
Norræna húsið, 24. og 30.maí kl. 17:00
í£'€£SA ýníngar
Frá Alþingishátíð til Lýðveldisstofnunar
íslensk menning 1930-1944. Sögusýning
Listasafn íslands - 3. júní - 30. okt.
íslensk samtímalist
Kjarvalsstaðir - 21. maí - 24. júlí
Myndlistarsýning barna og -unglinga
ísland sækjum það heim
Ráðhús Reykjavikur - 27. maí - ö.júni
llya Kabakov,
teikningar og frumdrættir að ógeröum
"innsetningum"
Önnur hæð - 5. júní - 31. ágúst
Dieter Roth
hreyfilistaverk, grafíkmyndir, bókverk
Nýlistasafnið -11. júní -10. júlí
Helgi Þorgils Friðjónsson
Vatnslitamyndir
Listasafn ASÍ - 28. maí -12.
jum
Jón Engilberts
FÍM-salur, Garðastræti 6
Norræna húsið - 4. júní-3. júlí
John Greer
kanadískur myndhöggvari
Gallerí I111. júní- 26. júní
Sigurjón Ólafsson
Tilurð súlnamynda Sigurjóns
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar -
3. júní til ársloka
Tryggvi Ólafsson
Myndir fyrir börn
Gallerí Borg -11. júní - 21. júní
Leifur Kaldal
Gull- og silfursmíði
Stöðlakot - 3. júní - 3. júlí
Rutiy Autio
Bandarískur leirlistamaður
Gallerí Úmbra - 2. júní - 22. júní
Sigurður Guðmundsson
Sólon íslandus - 28. maí - 27. júní
Mannvirki - iandslag - rými
Sýning Arkitektafélags íslands
Ásmundarsalur 4. júní - 25. júní
Handritasýning
Stofnun Árna Magnússonar 27. maí -
Joel - Peter Witkins Ijósmyndir
Mokka 1. júní-15. júlí
Sex gullsmiðir
Anddyri Norræna hússins 4. iúní - 26. iúní