Morgunblaðið - 15.05.1994, Page 18

Morgunblaðið - 15.05.1994, Page 18
18 SUNNUDAGUR 15. MAÍ 1994 MORGUNBLAÐIÐ Fegurðarsamkeppni íslands 1994 fer fram á Hótel íslandi nk. föstudagskvöld 20. maí. Að þessu sinni tekur 21 stúlka þátt í keppninni og koma þær víða af landinu. Boðið verður upp á skemmtidagskrá með dansi, söng, gríni og gleði, byggð á Stuðmannaverkinu Með allt á hreinu, sem Helen Jónsdóttir dansari hefur haft veg og vanda af. Battu dansflokkurinn leikur aðalhlutverk ásamt fegurðardísunum. Borin verður fram fjórréttuð veislumáltíð. Stúlkurnar koma fjórum sinnum fram á kvöldinu; í pels, sundbol, tískufatnaði og síðkjól. Hápunktur kvöldsins verður á miðnætti, þegar Fegurðardrottning íslands 1994 verður krýnd. Sjö manna dómnefnd velur hana, en dómnefndin er þannig skipuð: Sigtryggur Sigtryggsson fréttastjóri, formaður, Bryndís Ólafsdóttir fyrirsæta, Krist- ín Stefánsdóttir förðunarmeistari, Sigrún Sævarsdóttir framkvæmdastjóri, Sigurður Kolbeinsson framkvæmda- stjóri, Þórarinn J. Magnússon ritstjóri og Þórunn Lárusdóttir Fegurðardrottning Norðurlanda 1992. Hér á eftir verða 10 stúlkur kynntar, hinar 11 verða kynntar nk. þriðjudag. Ljósmyndimar tók Þorkell Þorkelsson. Hárgreiðslu annaðist starfsfólk á hárgreiðslustofunni Kompaníinu, Ármúla 17. Förðun önnuðust Gréta Boða, Þórunn Jónsdóttir, Guðrún Harðardóttir og Svanhvít Valgeirsdóttir með Yves Saint Laurent snyrtivörum. Skartgripir eru frá Jens í Kringlunni, smíðaðir af Jóni Snorra Sigurðssyni, Hansínu Jensdóttur og Jens Guðjónssyni. Alda Jóna Nóadóttir er 17 ára gömul, frá Hellu. Hún býr í höfuðborginni í vetur og stundar nám í MH. Foreldrar hennar eru Nói Sigurðsson og Kristborg Hafsteinsdóttir. Kjóll Öldu er úr koparlituðu pallíettuefni. Alda hannaði kjólinn ásamt móður sinni, Kristborgu, sem saumaði kjólinn. Alda er 1,74 cm á hæð. Anna Karen Xristjánsdóttir er Fegurðardrottning Norðurlands og einnig Ljósmyndafyrirsæta Norðurlands. Hún er 19 ára gömul frá Akureyri og vinnur í tískuvöruverslun þar í bæ. Foreldrar hennar eru Kristján Halldórsson og Olga Guðnadóttir. Kjóll Önnu Karenar er kremlitaður úr polyestercrepe-efni og blúndu með perluskrauti. Filippía Elísdóttir hannaði og saumaði kjólinn. Anna er 1,73 cm á hæð. Arnfríður Kristfn Arnardóttir er 19 ára gömul og frá Hafnarfirði. Hún stundar nám í MR og starfar jafnframt fyrir Icelandic Models. Foreldrar hennar eru Örn S. Jónsson og Friðbjörg Haraldsdóttir. Kjóll Arnfríðar er úr grænu tafti og blúnduefni, skreyttur pallíettum og perlum. Lára Jens hannaði og saumaði kjólinn. Arnfríður er 1,70 cm áhæð. Ásdís Elva Rögnvaldsdóttir er 19 ára gömul og kemur frá Akureyri. Hún stundar nám við Verkmenntaskólann á Akureyri. Foreldrar hennar eru Rögnvaldur Jónsson og Freygerður Friðriksdóttir. Kjóll Ásdísar er kremlitaður úr útsaumuðu, perluskreyttu silki. Freygerður móðir Ásdísar hannaði og saumaði kjólinn. Ásdís er 1,74 cm á hæð.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.