Morgunblaðið - 15.05.1994, Page 24

Morgunblaðið - 15.05.1994, Page 24
24 SUNNUDAGUR 15. MAÍ 1994 MORGUNBLAÐIÐ KVIKMYNDIR/Laugarásbíó og Stjörnubíó hafa tekið til sýninga kvikmyndina The Chase, eða EftirfÓrina, með Charlie Sheen og Kristy Swanson í aðalhlutverkum. Þetta er spennu- mynd með gamansömu ívafi og er níutíu mínútna eltingarleikur á bílum aðaluppistaða. Gísl HINN seinheppni Jack Hammond (Charlie Sheen) tekur Natalie Voss (Kristy Swanson) sem gísl þegar hann leggur á flótta undan laganna vörðum. Á flótta til frelsis á 160 km hraða Ólíkt mörgum hasar- myndum þá byggir The Chase ekki á klassískum myndum af svipaðri gerð. í myndum eins og Bullit, The French Connection og To Live and Die in L.A. eru æsilegir eltingaleikir á bíl- um, en í þessum myndum spanna þeir aðeins lítinn hluta af sýningartímanum. í The Chase er meðalhrað- inn hins vegar um 160 km/klst. nánast alla mynd- ina frá byijun til enda. Þekkt andlit Þrátt fyrir alla þá áherslu sem varð að leggja á tækni- lega hlið myndarinnar var samt aðaláherslan lögð á að velja leikarana í helstu hlutverkin. Þegar Charlie Sheen hafði gefið kost á sér var Kristy Swanson valin í hlutverk Natalie Voss, far- þegans sem í fyrstu er þvingaður til fararinnar en fyllist síðan virðingu og ást í garð þess sem hefur fang- að hana. Hin 24 ára gamla Swanson er væntanlega þekktust fyrir hlutverk sitt í Buffy the Vampire Slayer, en nýlega lék hún í dra- manu The Program á móti James Caan og Craig Shef- fer. Hún var aðeins 9 ára gömul þegar hún byijaði að koma fram í sjónvarps- auglýsingum, en í kjölfarið fylgdu margvísleg hlutverk í sjónvarpsþáttum. Fyrsta kvikmyndahlutverk Swan- son var í spennumyndinni Deadly Friend, en alls hefur hún leikið í 9 kvikmyndum. Rokkstjarnan Henry Rollins og gamanleikarinn Josh Mostel leika lögreglu- menninna tvo sem fyrstir hefja eftirförina á eftir skötuhjúunum. Rollins, sem áður var söngvari hljóm- sveitarinnar Black Flag en er nú með eigin hljómsveit, The Rollins Band, er í The Chase í fyrsta kvikmynda- hlutverki sínu. Josh Mostel er sonur hins þekkta gam- anleikara Zero Mostel, en hann hefur leikið í kvik- myndum undanfarin 20 ár. Meðal mynda sem hann hefur leikið í eru Sophie’s Choise, Hannah and her Sisters, Wall Street og City Slickers. í The Chase eru fjöl- margir aðilar úr kvik- myndaheiminum, tónlistar- lífi og fréttamennsku í gestahlutverkum. Þannig er Bree Walker, sem er ÞAÐ hefur svo sannarlega ekki allt gengið í haginn hjá Jack Hammond (Charlie Sheen), en hann hefur verið sakfelldur fyrir bankarán sem hann framdi ekki. Honum tekst samt sem áður að flýja skömmu áður en það á að handtaka hann. En þegar hann gerir stuttan stans í verslun á flóttanum gengur hann beint í flasið á tveimur lögreglumönnum. Flóttamað- urinn lánlausi á þvi ekki annarra kosta völ en að taka gísl og verður Natalie Voss (Kristy Swanson) fyrir valinu. Hann stelur síðan glæsilega rauða BMW- inum hennar, og æðisgenginn eltingaleikur um suður- Kaliforníuhraðbrautina er þar með hafinn. A Ameðan bíllinn þeytist eftir hraðbrautinni þróast samband Jack og Natalie úr þvi að vera fullt tortryggni í að verða ástar- samband sem vex í réttu hlutfalli við sívaxandi skar- ann sem veitir þeim eftir- för. Þau er nefnilega ekki aðeins orðin þátttakendur í æðisgengnu kappi við lag- anna verði heldur eru þau jafnframt orðin fjölmiðla- fóður af bestu gerð og heill skari sjónvarpsfréttamanna hefur slegist í för með sí- fjölgandi lögreglubílum við eftirförina. Þrátt fyrir alla lestina sem fylgir þeim fast á hæla, og reyndar svífur líka yfir þeim, eru Jack og Natalie einbeitt á flóttanum til frelsis. Mexíkó er áfanga- staður þeirra, en hið eina sem getur stoppað þau í ætlun sinni að ná þangað er milljarðamæringurinn faðir hennar, tveir ökuníð- ingar, sægur lögreglu- manna, þyrlur, slökkviliðs- bílar og hungraðir frétta- haukar. Fréttamyndirnar fyrirmynd Leikstjóri The Chase ér Adam Rifkin, sem einnig samdi kvikmyndahandritið. Þetta er þriðja myndin sem Rifkin gerir, en hann var aðeins 19 ára þegar hann gerði fyrstu myndina, Ne- ver on Tuesday, en í henni kom Charlie Sheen fram í gestahlutverki. Aðra mynd sína gerði Rifkin 1991; en það var The Dark Backw- ard, en í henni voru Judd Nelson, Bill Paxton, James Caan og Rob Lowe meðal leikenda. Charlie Sheen segir The Chase vera „90 mínútna ofsafenginn eltingaleiks- hasar ásamt sérkennilegri ástarsögu sem þróast innan um allan gauraganginn“. Sheen fékk handritið reynd- ar fyrst í hendur frá leik- stjóranum einungis til um- sagnar; en eftir að hafa les- ið það tilkynnti hann hinum himinlifandi Rifkin að hann hefði sjálfur hug á að leika aðalhlutverkið. „Mér fannst handritið frumlegt og einn- ig líkaði mér hvemig í því er deilt á fjölmiðlana," sagði hann um þessa ákvörðun sína. í myndinni er stuðst við rauntíma, en tíminn sem eltingaleikurinn tekur er sá sami og sýningartími myndarinnar. Þetta höfðaði líka til Sheen, og Rifkin segir að með þessu hafi hann viljað ná fram áhrifum eins og í heimildamyndum, og láta líta út fyrir eins og um fréttamynd væri að ræða, en þær eru að mörgu leyti fyrirmyndir hans í gerð myndarinnar. Annar framleiðandi myndarinnar, Cassian Elwes (Men at Work), segir að þó það séu hraðakstursatriði á tjaldinu nánast á þriggja til fjögurra mínútna fresti, eigi hin hug- Ijúfa ástarsaga í myndinni ekki síst að vekja athygli áhorfenda. Atgangur MIKILL atgangur er á hvíta tjaldinu meðan á hinum 90 mínútna eltingarleik stendur. Leikstjóriim LEIKSTJÓRI The Chase, Adam Rifkin, sem einnig samdi kvikmyndahandritið, var 19 ára þegar hann gerði sína fyrstu mynd. einn þekktasti fréttaþul- urinn í Los Angeles, í sínu fyrsta kvikmyndahlut- verki, og framleiðendur The Chase, Brad Wyman og Cassian Elwes, fara með hlutverk fréttaþular og lögfræðings í myndinni. Þá koma meðlimir tveggja þekktustu rokkhljómsveita samtímans fram í mynd- inni í hlutverkum tveggja ökuníðinga. Lykilhlutverkið í kvik- myndinni er samt sem áður hraðbrautin þar sem hinn æðisgengni eltingaleikur á sér stað. Þrátt fyrir að sögusviðið sé sunnanverð Kalifomía var myndin tekin { Houston í Texas síðastlið- ið sumar. Þar fékkst greið- ari aðgangur að hrað- brautunum en, í Kalifomíu, og einnig kom hin nýja Houston-hraðbraut að góð- um notum, en hún hafði þá ekki verið tekin í notkun fyrir almenning. Til að gera sögusviðið trúverðugt voru svo sett upp gervipálmatré og vegvísar og skilti til að láta líta út fyrir að akstur- inn ætti sér stað á hrað- brautinni í Kalifomíu. Frægur HINN fjölhæfi Charlie Sheen. Fræg- ur og fjölhæfur CHARLIE Sheen er einn af toppleikurum sam- tímans í Bandaríkjun- um, en verulega frægð öðlaðist hann fyrir leik sinn í óskarsverðlauna- mynd Olivers Stones, Platoon, árið 1986. She- en hefur leikið í fjölda kvikmynda sem öðlast hafa vinsældir bæði meðal almennings og eins hjá gagnrýnendum. Fyrsta kvikmyndahlut- verkið lék hann aðeins 9 ára gamall, en það var í myndinni The Executi- on of Private Slovik", en í henni lék faðir hans, Martin Sheen, aðalhlut- verkið. Hann dvaldi um skeið á Filippseyjum á meðan á tökum Apoc- alypse Now stóð, en í henni lék faðir hans að- alhiutverk, og þessi inn- sýn í heim kvikmynda- leikarans varð til þess að Sheen ákvað að gera kvikmyndaleik að ævi- starfi. Charlie Sheen byijaði á því að gera 16 mm stuttmyndir, en síðan framleiddi hann, leikstýrði og skrifaði handritið að sinni fyrstu breiðtjalds- mynd sem heitir R.P G II. Hann hefur leikið í fjölda mynda og má þar t.d. nefna Ferris Bueller’s day Off, Eight Men Out, Yo- ung Guns og Major Le- ague. Aðeins á árinu 1990 lék hann I fjórum kvik- myndum, en það voru Navy Seals, Men at Work, The Rookie og Cadence. Árið 1991 lék Sheen í gamanmyndinni Hot Shots!, sem var ein vinsæl- asta mynd ársins, og 1993 lék hann svo í framhald- mynd sem nefndist Hot Shots! Part Deux. Fyrir skömmu lék Sheen í The Three Musketeers og Maj- or League II og þá kom hann fram í gestahlutverki í sálfræðiþrillinum Dead- fall, sem Chris Coppola leikstýrði. Væntanlegar myndir eru svo ævintýra- mýndin Terminal Velocity og dramað Fixing the 'Shadow, en í henni leikur Shenn óeinkennisklæddan lögreglumann. Hfnn fjölhæfí Charlie Sheen hefur einnig lagt stund á ritstörf og innan skamms er væntanleg eft- ir hann ljóðabók með myndskreytingum eftir Adam Rifkin, leikstjóra The Chase.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.