Morgunblaðið - 15.05.1994, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 15.05.1994, Blaðsíða 28
28 SUNNUDAGUR 15. MAÍ 1994 TISKA MORGUNBLAÐIÐ okkaskinn, hreindýra- skinn, selskinn, fiskroð og ullarflóki. Flíkurnar eru þjóðlegar en sígild- ar.Þær eru islenskar og þær eru hátísku- vara. Fatahönnuður- inn Sigríður Sunneva Vigfúsdóttir stefnir á útflutning og segir flíkurnar samkeppnis- færar við erlendan markað. Hún hefur nú opnað gallerí Kiðagil í Listagilinu á Akureyri og með hverjum deginum sem líður bætast við flíkur þar, fatnaður sem seldur er undir nafninu Sigríð- ur Sunneva. Hún er að leggja lokahönd á hönn- un tveggja fatalína. ÍSLENSK HÁTÍSKUVARA Austurlensk áhrif á tískuföt Á KYNNINGUM helstu tískufrömuða í Evrópu á vörum upp á síðkastið hefur vakið eftirtekt að þeir hafa beint sjónum til Austurlanda fjær og eru augljós áhrif þaðan í fatnaði á Evrópumarkaði. Þetta á einkum við um kvenfatnað enda ekki víst að evrópskir karlar væru fúsir að klæðast pilsum og stökkum eins og karlar gera víða í Austurlöndum. Ýmsir tískuhönnuðir sem eru að brjóta sér leið í Evrópu og Bandaríkj- unum eru ættaðir að austan og hafa vakið athygli og Tiiykja sumir hafa sýnt dirfsku og smekkvísi í nýj- um flíkum og hika ekki við að fara ótroðnar leiðir. Þar í hópi er Rifat Ozbek sem er höfundur þessa klæðnað- ar. Þar tvinnast saman tyrkneskar hefðir í höfuð- búnaði og úzbekistönsk áhrif í efnislítilli dýrindis „blússu". „Þegar ég kom frá Ítalíu á sínum tíma var tilgangurinn að athuga hvort ekki væri hægt að gera hér heima það sem ítalir voru að gera úr okkar hráefni, gæðaflíkur úr mokkaskinni sem mikil eftirspurn er eftir. Þetta tók allt tíma og það voru ýmis ljón á veginum en nú er ég búin að stofna eigin fyrirtæki og ætla að sýna fram á að þetta er hægt.“ Hún hælir íslensku hráefni, segir nýtt hrá- efni, ullarflóka, mjög skemmtilegt efni að vinna með og talar um að íslenskt leður sé mjúkt og gott og sútun og litun á selskinni til fyrirmynd- ar. Þá segir hún að á Akureyri fáist fiskroð sút- að þannig að það verði eins og silki og mokka- skinnið telur hún að sé orðið eitt það besta í heimi. „Okkur er ekkert að vanbúnaði hér á Akur- eyri að keppa við stærri þjóðir á þessu sviði. Við byggjum á sérþekkingu og verkkunnáttu hér fyrir norðan og við getum þetta. Þetta verður hæf útflutningsvara,“ segir hún. Sigríður Sunneva ætlar að hanna fatalínu með íslenskum einkennum en um leið heims- borgaralega. í þetta skipti eru það tvær fatalínur, önnur er fyr- ir ungt fólk, nýstárlegur tísku- fatnaður, en hin línan er dýrari, fötin vönduð og framleidd í tak- mörkuðu magni. Sá fatnaður verður með þjóðlegum einkenn- um en engu að síður sígildur og vandaður. Sigríður Sunneva hefur fengið styrki til að koma rekstrinum af stað, atvinnumálanefnd Akur- eyrar hefur lagt henni lið og svo fékk hún styrk úr sérstökum sjóði sem heyrir undir Félags- málastofnun og ætlað er að örva atvinnuskapandi verkefni fyrir konur. í galleríi Kiðagili hanga sýnis- horn af fatnaði Sigríðar Sunnevu og hér á myndunum eru nokkrar af flíkunum. Tískufatnaðurinn verður seldur í Frikka og dýrinu hér í Reykjavík en í Centro á Akureyri og sá vandaðri verður seldur hjá íslenskum heimilis- iðnaði. Morgunblaðið/Rúnar Þór Mokkaskinn - hreindýraskinn - selskinn - fiskroð - ullarflóki grg

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.