Morgunblaðið - 15.05.1994, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 15. MAÍ 1994 31
MINNINGAR
ÞÓRHALLUR
PÁLSSON
+ Þórhallur Páls-
son, Hafnar-
stræti 39 á Akur-
eyri, var fæddur 27.
apríl 1913. Hann
lést 8. maí 1994.
Útför hans verður
gerð frá Akur-
eyrarkirkju á
mánudaginn.
Kveðja frá
íslenskum
radíóamatörum
HUÓÐNAÐUR er
lykill Þórhalls Pálsson-
ar, TF5TP. Svona taka radíóamat-
örar til orða um þá félaga sína sem
hverfa yfir móðuna miklu og aldrei
fyrr hefur þögnin heyrst jafn langt
né verið jafn sterk. Hátt á sjöunda
áratug sló Þórhallur lykilinn og kom
íslandi á blað í fjarlægustu heims-
hornum, óslitið lengur en nokkur
annar íslenskur amatör til þessa.
Oft eru þeir sem nú eru hvað virk-
astir í utanlandssamböndum spurðir
frétta af „Thor“ og beðnir fyrir
kveðjur, nú verða svörin með öðrum
hljóm.
Þórhallur ólst upp á Akureyri á
fyrri hluta aldarinnar og gerðist
ungur að árum sendill á ritsíman-
um, mun það hvorki vera í fyrsta
né síðasta sinn sem krókurinn beyg-
ist snemma með þeim hætti. Theo-
dór Lillendal var nágranni Þórhalls
og kom honum í kynni við þráðlaus-
an heim radíóamatöra. Stuttbylgju-
tæknin var ávöxtur tilrauna þeirra
um víða veröld og piltur var fljótur
að tileinka sér fræðin. Þekkingu
Þórhalls á því sviði var viðbrugðið
alla tíð. Ekki sakaði heldur að vera
hagur vel, því þá urðu amatörar
að smíða tækin sín sjálfir og hélt
Þórhallur lengi uppteknum hætti í
því efni. Til er mynd eftir Vigfús
Sigurgeirsson ljós-
myndara sem sýnir
Þórhali við haganlega
smíðuð tæki 1927, árið
sem hann hóf sending-
ar.
Hann kom til Kaup-
mannahafnar sem
léttadrengur á Lagar-
fossi og þótti þá mest
um vert að komast í
firma M. Pedersen til
að kaupa sér efni til
tækjasmíða, íhluti eins
og það heitir nú til
dags. Þetta var 1930
og hann munstraði af
til að komast á þjóðhátíðina á Þing-
völlum. Upp úr því fékk hann starf
hjá Ottó Arnar sem leigði út við-
tæki, en fór fljótlega yfir til vinnu-
stofu Ríkisútvarpsins þar sem smíð-
uð voru næm útvarpstæki er hent-
uðu dreifðum byggðum landsins og
einnig talstöðvar fyrir fiskibáta.
Eftir u.þ.b. tvö ár í Reykjavík
var Þórhallur sendur til að annast
viðgerðir og þjónustu á Akureyri. í
þá daga hlustaði landið allt beint á
langbylgjusendinn á Vatnsenda,
sem þó var aðeins 16 kW. Viðtæki
þeirra tíma voru líka opnari en nú
gerist, og því voru það oft truflanir
frá raftækjum sem takmörkuðu
móttöku. Árið 1935 gerðist Þórhall-
ur starfsmaður Rafmagnsveitu Ak-
ureyrar í embætti truflanaeyðis.
Sagðist honum sjálfum svo frá að
það hefði verið erilsamt starf en
fljótt borið góðan árangur. Síðan
var hann við rafmagnseftirlit á
Akureyri.
Lönd sem eiga í stríði banna jafn-
an radíósendingar aðrar en á vegum
yfirvalda. Þegar Bretar hernámu
Island gáfu þeir út tilskipun þessa
efnis, en alkunna er hve Islending-
um er ósýnt að taka hervald hátíð-
lega. Ekki dró það úr áhyggjuleysi
RAGNAR HJALMAR
RAGNARSSON
+ Ragnar Hjáltn-
ar Ragnarsson
fæddist í Hafnar-
firði 1. maí 1959.
Hann starfaði við
umönnunarstörf í
húsi Sjálfsbjargar i
Reykjavík. Hann
lést 8. maí sl. Jarð-
arför hans fór fram
frá Víðistaðakirlgu
þann 13. maí.
Kveðja frá
systkinum
OKKUR systkinin
langar til að minnast
bróður okkar, sem kvaddi þennan
heim ungur maður, 35 ára gamall.
Við erum harmi slegin og eigum
vart orð til að lýsa þeim tilfinning-
um sem hrærast með okkur. Mikill
er missir okkar og foreldra okkar
en mestur er missir sonanna
tveggja Birkis Freys 9 ára og
Sindra Rafns 7 ára, sem svo ungir
sjá á bak góðum föður. Við biðjum
algóðan guð að styrkja þá í sinni
miklu sorg. Kæri bróðir, með þitt
viðkvæma lundarfar fékkst þú að
reyna margt í lífinu, en við vonum
svo innilega að þér líði vel núna.
Við viljum þakka þér fyrir allar
góðu samverustundim-
ar og kveðjum þig með
trega. Þú munt alltaf
eiga samastað í hjört-
um okkar. Blessuð sé
minning þín.
í einlægri trú við fetum
okkur áfram
á lífsins grýttu braut
vonum eilíflega
að um okkur sé
farið mjúkum höndum
í blindri trú
þreyfum okkur áfram
á lífsins bugðóttu leið
treystum stöðugt
að hver hrösun
sé sú síðasta
í hæfilegri trú
tökumst á við
duttlunga lífsins
lærum að þekkja
hvassa odda
þýðar öldur
vitum að ganga
um stórbrotið landslag
er margbrotin
aldrei eins
(Höf.: Anna María Jónsdóttir)
Bella, Sonja, Aðalheiður,
Konráð og Rúnar.
Þórhalls að yfirmaður Breta á Ak-
ureyri var sjálfur radíóamatör og
góður kunningi. Hærra settir menn
á fjarlægari stað kunnu ekki að
meta merkin sem enn bárust úr fífil-
brekku norður við íshaf og Þórhall-
ur var tekinn fastur.
Hann sat í kjallaradýflissu í
Lundúnum þegar húsin umhverfis
hrundu í sprengjuregni, en vistin
varð bærilegri þegar út á eyna Mön
kom. Þar var Þórhallur kominn til
metorða í eldhúsi þegar herforingi
kom í kynnisferð og spurði hvort
Bretar væru virkilega komnir í stríð
við íslendinga. Hann kannaði málið
og stuttu síðar var Þórhallur laus,
en þessi þolraun setti mark sitt á
hann æ síðan.
Gæfa Þórhalls hin mesta var
öðlingskonan Hjördís Stefánsdóttir
myndskera. Þau drógu sig saman
á Reykjavíkurárum Þórhalls og lét
hún þess eitt sinn getið með glampa
í augum að hann hefði verið glæsi-
legasti sjarmör bæjarins. Það var
reyndar sérstakt heimsmannssnið á
Þórhalli alla tíð.
Þau hjón voru heiðursgestir á 30
ára afmæli félagsins íslenskir
radíóamatörar 1976, og Þórhallur
'■heiðursfélagi upp frá því. Bömin
urðu þijú, Sigrún búsett í Banda-
ríkjunum, Páll læknir og Stefán
radíóvirki og amatör, báðir búsettir
í Reykjavík. Hjördís lést fyrir
nokkrum árum.
Kveðjustundin er komin, loka-
merkið hefur verið sent. Félagar
Þórhalls þakka honum óteljandi
ánægjustundir í loftinu og ávallt
hlýjar móttökur á Akureyri. Við
sendum honum alþjóðlegt kveðju-
merki amatöra í síðasta sinn, „73“.
TF3XDX.
t
Elsku faðir okkar, tengdafaðir og afi,
HÁKON HÓLM LEIFSSON,
bifreiðastjóri,
Breiðagerði 31,
verður jarðsunginn frá Akraneskirkju miðvikudaginn 18. maí
kl. 14.00.
Bílferð verður frá Seljakirkju sama dag kl. 12.00.
Synir, tengdadætur ng barnabörn.
t
Ástkær faðir minn og tengdafaðir,
MAGNÚS SIGURJÓNSSON
húsgagnabólstrari,
Ægisgötu 1,
Akureyri,
verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju þriðjudaginn 17. maí
kl. 13.30.
Lilja Magnúsdóttir,
Birgir Sveinarsson.
t
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
KRISTMAR ÓLAFSSON
frá Siglufirði,
síðast til heimilis á Hrafnistu í Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 17. maí
kl. 13.30.
Kristfríður Kristmarsdóttir, Eyjólfur Ágústsson,
Haraldur Kristmarsson, Anna Jóna Kristjánsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Skeljungur býður þér að sjá þáttinn
í sjónvarpinu kl. 22:05 í kvöld
Síöasti þátturinn af fimm um íslenska skóga og skógrækt er á dagskrá (
Ríkissjónvarpinu í kvöld í boði Skeljungs hf. í þessum þætti er fjallað
um skógræktina í Haukadal í Biskupstungum.
Pættirnir eru unnir í samvinnu viö Skógrækt ríkisins, sem leggur áherslu á
að sem flestir landsmenn bætist í hóp þeirra sem vilja sinna skógrækt.
Skeljungur hf. leggur Skógrækt rlkisins liö meö árlegu framlagi. Pegar þú
verslar á bensínstöðvum Skeljungs leggur þú þitt af mörkum til skógræktar
á íslandi. Saman getum við lyft grettistaki undir faglegri forystu Skógræktar
ríkisins og í samvinnu viö alla sem eiga þá hugsjón aó klæöa landið skógi.
Skeljungur leggur rœkt við land og þjóð
w
Skógrækt með Skeljungi