Morgunblaðið - 15.05.1994, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 15. MAÍ 1994 33
MINNINGAR
SIGURÐUR VALUR
HALLDÓRSSON
+ Sigurður Valur Halldórsson
fæddist 3. febrúar 1954 og
lést 26. apríl 1994. Útför hans
var gerð frá Bústaðakirkju
þriðjudaginn 3. maí.
LÁTINN er, langt um aldur fram,
einn af félögum vorum, Sigurður
Valur Halldórsson.
Það var um miðjan febrúar síð-
astliðinn sem við dómarar komum
saman og héldum okkar árlega
þorrablót. Þar á meðal var Sigurður
Valur, sem þá var alkominn heim
frá Brussel, þar sem hann hafði
verið búsettur undanfarin misseri.
Það var okkur gleðiefni að Sigurður
Valur var hress í andanum, leit vel
út og virtist sem sár hans vegna
föðurmissisins fyrr í vetur væru nú
að gróa.
En skjótt skipast veður í lofti.
Skyndilega komu upp á yfirborðið
mikil og alvarleg veikindi og nú,
aðeins um tveimur mánuðum síðar,
er Sigurður Valur allur.
Upphaf dómgæslustarfa Sigurð-
ar Vals má rekja allt aftur til upp-
hafs áttunda áratugarins og ná þau
því yfir um 20 ár samfleytt. Leið
hans inn í dómgæsluna, eins og svo
margra annarra, var í gegn um
félagið sitt, ÍR, en hann var fyrrum
leikmaður félagsins og síðar mikill
og gallharður stuðningsmaður. Allt
fram til ársins 1992 naut íslenskur
körfuknattleikur krafta hans á leik-
vellinum í því oft mjög svo óvin-
sæla hlutverki dómarans. í gegnum
tíðina dæmdi hann marga stórleiki
en vert er að geta eins af hápunkt-
um ferils Sigurðar Vals, sem var
þegar hann öðlaðist alþjóðleg dóm-
araréttindi fyrir FIBA, Alþjóða-
körfuknattleikssambandið. Sem
slíkur dæmdi hann fjölda leikja
bæði hér á landi og erlendis.
Sigurður Valur sat i dómara-
nefnd KKÍ og starfaði á þeim vett-
vangi ötullega að útbreiðslumálum
Birting afmælis- og
minningargreina
MORGUNBLAÐIÐ tekur
afmælis- og minningar-
greinar til birtingar endur-
gjaldslaust. Tekið er við
greinum á ritstjórn blaðsins
Kringlunni 1, Reykjavík, og
á skrifstofu blaðsins í Hafn-
arstræti 85, Akureyri.
Athygli skal á því vakin, að
greinar verða að berast með
góðum fyrirvara. Þannig verð-
ur grein, sem birtast á í mið-
vikudagsblaði að berast síðdeg-
is á mánudegi og hliðstætt er
með greinar aðra daga.
Mikil áhersla er á það lögð
að handrit séu vel frá gengin,
vélrituð og með góðu línubili.
Ákjósanlegast er að fá grein-
arnar sendar á disklingi.
Fnófinns
Suðuriandsbraut 10
108 Reykjavík. Sfmi 31099
Opið öllkvöld
tll kl. 22,- einnig um helgar.
Skreytingar við öll tilefni.
Gjafavörur.
m
innan hreyfíngarinnar, hélt fjölda
dómaranámskeiða og sá meðal ann-
ars um þýðingu leikreglnanna á ís-
lensku enda kom enginn að tómum
kofunum þegar leikreglur eða túlk-
un þeirra var annars vegar. Margir
þeirra dómara sem í dag eru í eldlín-
unni stigu sín fyrstu skref með Sig-
urð Val sér við hlið.
Sigurður Valur var skarpgreind-
ur og hæfileikaríkur maður en tókst
ekki á stundum að halda þeim tök-
um á lífi sínu, sem hann og fleiri
hefðu kosið. Við dómarar áttum
mest og best samskipti við Sigurð
Val innan leikvallar þar sem hann
var réttsýnn og skildi leikinn til
fullnustu. Utan leikvallar voru sam-
skiptin minni, en þó var ljóst að
hann átti fáa en trausta vini. Þá
voru honum hugstæð náin tengsl
sín við foreldra sína og sér móðir
hans nú á eftir mætum dreng.
Dómarar vilja að lokum þakka
Sigurði Val samfylgdina. Við vitum
að krafta hans nýtur nú við í því
sem hann hafði hvað mest dálæti
á, körfuknattleiknum, á körfuknatt-
leiksvelli eilífðarinnar. Og að sjálf-
sögðu hefur hann eins og alltaf góð
tök á leiknum.
Móður hans, systkinum og öðrum
ættingjum vottum við okkar dýpstu
samúð. Hvíl í friði.
Körfuknattleiksdómarar.
Fyrir hönd Körfuknattleikssam-
bands íslands langar mig til að
minnast Sigurðar Vals nokkrum
orðum. Sigurður Valur, eins og
hann var kallaður, var flestum inn-
an körfuknattleikshreyfingarinanr
að góðu kunnur. Hann var einn af
betri körfuknattleiksdómurum
landsins og var hann annar íslend-
ingurinn til að fá alþjóðleg dómara-
réttindi í körfuknattleik. Siggi Val-
ur starfaði mikið fyrir körfuknatt-
leiksdeild ÍR og var m.a. formaður
deildarinnar um tíma. Hann sat í
stjórn KKÍ í tvö ár ásamt því að
starfa mikið fyrir sambandið alla
tíð. Hann sat í nefndum og ráðum
á vegum KKÍ og hann þýddi leik-
reglur í körfuknattleik 1985. Hann
hafði mikla þekkingu á öllu sem
við kom körfuknattleik og oftar en
ekki var hringt í Sigga Val þegar
álitamál komu upp til að fá upplýs-
ingar og úrlausn mála.
Það var gott að leita til Sigga
Vals. Hann var alltaf tilbúinn til
starfa þegar eftir því var leitað,
hvort heldur það var að dæma leik
með stuttum fyrirvara eða starfa
fyrir sambandið á öðrum vettvangi.
Síðastliðin tvö ár dvaldist Siggi
Valur í Belgíu, en það aftraði hon-
um ekki frá að fylgjast með því sem
var að gerast í körfuboltanum
heima á íslandi. Fékk hann sendar
fréttir frá KKÍ og þegar hann kom
til landsins þá kom hann í heimsókn
til að fylgjast með og ræða málin.
Það var mikið áfall að frétta af
alvarlegum veikindum Sigga. Það
var þó lýsandi fyrir hann að þrátt
fyrir veikindin lét hann sig ekki
vanta í íþróttahús Seljaskóla til að
fylgjast með er ÍR-ingar léku í úr-
slitum 1. deildarinnar. Nærvera
hans þar var hinum ungu leikmönn-
um ÍR mikil hvatning og um leið
lýsandi dæmi um þau heilindi sem
Siggi Valur sýndi íþrótt sinni.
Með Sigurði Val er genginn mað-
ur sem starfaði mikið fyrir körfu-
knattleikinn í landinu. Við hjá KKÍ
minnumst hans með söknuði.
Fyrir hönd Körfuknattleikssam-
bands íslands vill undirritaður votta
móður Sigurðar Vals og fjölskyldu
samúð sína.
Pétur Hrafn Sigurðsson.
Fallinn er frá góður vinur og
félagi langt um aldur fram.
Ég kynntist Sigga Val fyrst sem
fyrirferðarmiklum unglingi í yngri
flokkum ÍR í körfuknattleik og leist
mér, KR-ingnum, ekki meira en svo
á piltinn. En mörgum árum síðar
lágu leiðir okkar saman sem dóm-
ara í körfuknattleik og fór mjög
vel á með okkur og kynntist ég þar
mjög góðum dreng sem ég sé mik-
ið eftir. Við dæmdum ótal leiki sam-
an, sérstaklega þótti mér gott að
dæma með Sigga þar sem hann var
manna best að sér í leikreglum og
túlkunum á þeim og gott að ræða
við hann eftir leiki um það sem vel
fór eða miður.
En nú er þessi góði drengur genginn,
á guðs síns fund og allt er orðið hljótt.
Og allir taka eins í sama strenginn,
að allt of snemma kæmi þessi nótt.
Því döggvast brár og hjörtun myrkvast harmi
og hart er það, að ganga þessi spor.
Vér hneigjum döpur höfuðið vor að barmi
í heitri samúð, það er kveðja vor.
(Jens Hannesson.)
Ég sendi eftirlifandi móður og
systkinum Sigurðar minar innileg-
ustu samúðarkveðjur.
Jón Otti Ólafsson.
„Jöfn dreifing
útgjalda
... gjörið svo vel“
Þú gerir fjárhagsáætlun fyrir næstu 12
mánuöi og þjónustufulltrúinn sér um
að dreifa útgjöldunum jafnt á áriö.
Varðan vísar þér leiðina að
fyrirhyggju ífjármálum.
varða
víðtæk
f jármálaþ jónusta
/W/ ~/(f ff/€ff
Suðurlandsbraut 54 v/Faxafen - Sími 682866
Iðavellir 14 Keflavík Sími 92 11099
t)//(//// ttf/>o/Hjtf/i • (H'S'tr/<!)tf/,o /Htf}(//*&ti/t/tf/* f (f/// (t(J /iV ///(///.