Morgunblaðið - 15.05.1994, Page 39

Morgunblaðið - 15.05.1994, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15. MAÍ1994 39 BRÉF TIL BLAÐSINS Hvað hefur orðið af peningunum ? Frá Auðunni Braga Sveinssyni: GJALDÞROT, gjaldþrot. Þetta orð heyrist býsna oft á öldum ljósvakans, svo og í blöðum. Bankar og lánastofnanir tapa gífurlegum íjárhæðum. Reynt er að klóra í bakkann, að von- um, ráðið er einfalt: innláns- vextir eru lækkaðir, en útláns- vextir haldast himinháir, þó að þeir hafi að vísu lækkað tals- vert. Sem dæmi tek ég yfirlit frá Morgunblaðinu um banka og sparisjóði, dagsett 6. maí 1994. Þar eru innlánsvextir í öllum bönkum á almennum bankabókum, sem eru lausar til inn- og útborgana, 0,5%. Almenn víxillán eru 8,25%, og hæstu forvextir 12,25%. Hér er átt við Landsbankann. Þarna er gífurlegur mismunur. En hvernig er hann til kominn, mætti spyija. Því er til að svara, að glötuð útlán eru mik- il, og þeim mætt með því að hafa vaxtamuninn þetta mik- inn. Almennir sparifjáreigend- ur verða að súpa seyðið af því, sem gjaldþrotin og vanskil- in valda. En einhvers staðar lenda að lok- um allir þeir peningar sem tapast. Ekki gufa þeir upp; það er alveg víst. Öll þau vinnulaun, sem greidd hafa verið vegna bygginga, er ris- ið hafa á undanförnum árum og það, er vektakarnir hafa fengið í hendur, hafa hins vegar tapað þessu fé, og jafna nú mismun innlána og útlána með gífur- legum vaxtamun, eins og fram hefur komið. Segjum nú, að hið opinbera hafi fengið sinn.skerf af inn- greiðslum verktakanna með skattgreiðslum, svo að þar hafi þó eitthvað komið inn, til að bæta þjóðarhag, verður að setja spurningarmerki. Sagt er, að mikið af verktakagreiðslum komi hvergi fram, og sleppi þær þannig við skattgreiðslur. Þetta mun raunar ekki vera séríslenskt fyrirbrigði. Og tak- ið eftir: Fé, sem upphaflega var fengið að láni í bankastofn- un og greiddist ekki til baka, hafnaði í vasa verktakans eða verslunarmannsins að fullu, þegar tekið er tillit til þess, að skattgreiðslur voru hvergi upp- fylltar. Hvað þýðir það að eiga heima í réttarríki eða þjóðfé- lagi? það þýðir, að þar eru lög virt og hinn almenni borgari er verndaður gegn ævintýra- mönnum, sem nota bankakerf- ið eins og þeim sýnist. Hverjir bera ábyrgðina? AUÐUNN BRAGI SVEINSSON, Hjarðarhaga 28, Reykjavík. ÚTLANSVEXTIR »>> Gllda frá 1. maí GREINARHÖFUNDUR telur mismun inn- og útlánsvaxta óeðlilega mikinn. ekki reynst raunhæf fjárfesting, hafa rannið til þeirra sem unnið hafa að þeim. Þar eru verktarkar margs konar í aðalhlutveki. Þeir hafa fengið sitt, með góðum skil- um. Bankarnir, sem lánað hafa fé STANGAVEIÐIMESSA Í PERLUNNI 12.-15. MAÍ OPNUNARTÍMI: 15. maí frá kl. 13.00-18.00: Kynning í máli og myndum á laxveiðiám og vötnum ífundarsal Perlunnar. í dag, sunnudag, kl. 15.00: Sveinn Snæland segirfrá: Langá, Fjallið. Myndbandið „Ástarlíf í Þingvallavatni" sýntalla daga. Viðurkenningarstytta Orra Vigfússonar, sem Karl prins af Wales gaf Orra, er til sýnis. Aðgangur ókeypis. Frá Mývatni Leiðrétting til Mývetninga og annarra landsmanna Frá Ásgerði Jónsdóttur: í HÁDEGISFRÉTTUM Ríkisútvarps þ. 30. apríl síðastliðinn heyrði ég svohljóðandi frétt: „Mývetningar halda vorhátíð í fyrsta sinn“. Þessi yfirlýsing um „fyrsta sinn“ kom mér ókunnuglega fyrir svo ekki sé meira sagt. Já, satt að segja trúði ég vart mínum eigin eyrum. Ég veit ekki hver hefur sent Ríkisútvarpinu þessa frétt, en hann er óskiljanlega fávís um Mýtvatnssveit og samfé- lagslega fortíð Mývetninga - nema þetta sé gert af ráðnum hug til þess að gera lítið úr henni. Ég veit ekki fyrir víst hvaða ár Mývetningar tóku upp þann sið að fagna vori með vor- hátíðum, er þeir nefndu sumarmála- fundi. Þeirra er getið í sveitablöðum á fyrstu tugum þessarar aldar. Þeir voru haldnir á sumardaginn fyrsta, ef veður leyfði. Þar fóru fram íþrótt- ir, aðallega glímur í fyrstu, en síðar margvíslegar íþróttir aðrar. Þar var fram borin orðsins list í ræðum um margháttuð málefni svo og skáld- skapur af ýmsu tagi. Þá var tónlist í hávegum höfð, s.s. söngur og hljóð- færaleikur. Undirrituð minnist sum- armálafundar frá miðjum þriðja ára- tugnum, þar sem fimm fiðluleikarar léku fyrir dansi. Gera menn betur nú? Allt þetta hefði fyrmefndur frétt- arhöfundur getað fengið að vita hjá fjölmörgum Mývetningum, ef hann hefði haft til þess vit og vilja. Mér sýnist hann skulda öðrum Mývetn- ingum afsökunarbeiðni á þessu frum- hlaupi sínu. Með þessu tilskrifi er ég að sjálf- sögðu ekki að áfellast núverandi vor- hátíð Mývetninga. Ég hef lesið dag- skrá hennar í blöðum og lízt allvel á. Mér virðist hún eiga ýmislegt sam- eiginlegt með sumarmálafundunum s.s. skáldskap og tónlist. Nýir þættir koma þar fram til skemmtunar s.s. hestamennska og dorgarveiði, sem áður voru dagleg störf, en eru nú dægradvöl. Þetta er eðlileg afleiðing breyttra lífshátta _og ekkert frekar um það að segja. í mínum huga og ótal margra annarra eru vorhátíðir Mývetninga - sumarmálafundirnir - löng ómetanleg menningarhefð, sem allir - ég endurtek og undirstrika allir Mývetningar áttu hlut að og töldu sér skylt að halda í heiðri. Að minnsta kosti var það svo meðan ég þekkti vel til í Mývatnssveit. Hér er því ekki um frumkvæði að ræða, þótt fyrirtækið sé gott að öðru leyti. Með það í huga, er skrifað stendur, að skylt er jafnan að hafa það, er sannara reynist, sendi ég þessa fram- anritaða leiðréttingu á áðurnefndri frétt úr Mývatnssveit þ. 30. apríl sl. og bið blaðið vinsamlegast að birta hana sem allra fyrst. ÁSGERÐUR JÓNSDÓTTIR, Drápuhlíð 32, Reykjavík. Kveöjuhátíö í Kolaportinu um helgina. Kolaportið kveður gðmlu bílageymsluna Kolaportið kveður gömlu bílageymsluna við Kalkofnsveg þessa helgi og opnar í Tollhúsinu næstu helgi. Margir fastagestir kunna að sakna bílageymslunnar en að- standendur Kolaportsins eru í sjöunda himni og efast ekki um að nýja húsnæðið verði til mikilla bóta fyrir markaðstorgið. „Kolaportið hefur verið í bílageymslunni í fimm ár og þar má segja að við höfum slitið bamsskónum,“ segir Jens Ingólfsson framkvæmdastjóri markaðstorgsins. „Yið teljum þetta einmitt vera rétta tímann að flytjast í framtíðarhúsnæði þar sem við fáum aukið olnbogarými og möguleika á að þróa Kolaportið áfram.“ Kolaportið aðeins um helgar Kolaportið verður fyrst um sinn aðeins opið um helgar, laugardaga kl. 10-16 og sunnudaga kl. 11-17. í framtíðinni eru áform um margvíslega nýtingu húsnæðisins utan þess tíma og stefnan er að þarna verði í framtíðinni sem margbreytilegust starfsemi alla daga. „Við erum sannfærð um að fólk sjái margvíslega möguleika á að nota þetta 3.000 fermetra húsnæði á besta stað í miðbænum,“ segir Jens, „og við gerum ráð fyrir útleigu húsnæðisins að hluta eða öllu fyrir sem fjölbreyttastar uppákomur, s.s. leiksýningar, tónleika, íþróttir, fundi, sýningar og ótal fleira.“ Kveðjuathöfn og skrúðganga í dag Þessa helgi verður sannkölluð kveðjuhátíð á gamla staðnum á léttu nótunum og í dag, sunnudag, við lok markaðsdags kl. 16.00 verður sérstök athöfn þar sem and- rúmsloftinu á gamla staðnum verður tappað á flösku, ryki safnað í poka og nágrönn- um úr Arnarhólnum, huldufólki, álfum og öðrum góðum vættum, verður boðið að flytja með í skrúðgöngu, sem vonast er til að sem flestir velunnarar Kolaportsins taki þátt í. Stórlækkað básaverð „Eitt það albesta við flutninginn er að við getum lækkað básaverðið verulega,“ segir Jens. „Yegna betri nýtingar á nýja staðnum komum við bæði að fleiri seljend- um og getum lækkað básaverðið verulega. Venjulegur sölubás mun í framtíðinni kosta aðeins 2.500 kr. fyrir daginn, þannig að nú þarf enginn að hika við að selja í Kolaportinu kostnaðarins vegna.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.