Morgunblaðið - 15.05.1994, Page 42

Morgunblaðið - 15.05.1994, Page 42
42 SÚNNUDAGUR 15. MÁÍ 1994 MORGUNBLAÐIÐ FÓLK í FRÉTTUM Sjónuarpsstjörnur Bruðkaupsfaraldur í Beverly Hills þess eins, en ef hlutverkið krefst þess að ég sé kynþokkafull og brjóstin verða að sjást þá finnst mér það í lagi.“ LUKE Épftist Minnie í fyrra. Reuter ROSIE PEREZ ►ROSIE Perez segist fram til þessa ekki hafa þurft á leiðsögn að halda varðandi leik sinn. Öðru máli gegni um hlutverkið í mynd- inni Ottalaus (Fearless), sem sýnd er í kvikmyndahúsum um þessar mundir. Aður hefur hún leikið í myndunum „Do the Right Thing“, „White Men can’t jump“ og „Unt- amed Heart“. „Eg geri það sem leikstjórinn fer fram á og treysti honum. Mér líka vel áhrifamiklir leikstjór- ar,“ sagði hún í nýlegu viðtali við tímaritið Emp- ire. Hún segist jafnvel sýna likama sinn beran þurfi þess með — en ein- ungis ef þarf. „Eg sýni ekki á mér brjóstin bara til þess eins, en ef hlutverk- ið krefst þess að ég sé kyn- þokkafull og brjóstin verða að sjást þá finnst mér það í lagi. Annars er leikstjórinn að notfæra mann og það líkar mér ekki. Því miður notfærði Spike Lee mig þannig. Ég var mjög ung þá,“ sagði hún. Hún segist ekki vilja að aðrir taki sér hana til fyrirmyndar, „vegna þess að ég klúðra of mörgu“, sagði hún og bætti við að lestir hennar og veikleikar væru of margir. LEIKARARNIR í Beverly Hills 90210 ganga nú út hveijir á fætur öðrum. Sá fyrsti sem gifti sig var Luke Perry sem gekk í hjónaband með Minnie Sharp í fyrra. I kjölfarið kom Shannen Doherty, sem gifti sig eftir nokkurra vikna kynni, en nú er hún fráskilin eftir fimm mánaða hjónband. Fyrir skömmu giftst Jennie Garth, sem leikur Kelly, tónlistarmanninum Dan Clark. Þrátt fyrir að Jennie hafi verið ráðlagt frá því að giftast Clark, þar sem hann er at- vinnulaus, lét hún það eins og vind um eyru þjóta. Þar sem hún er moðrík getur hún farið illa út úr skilnaði ef til hans kem- ur og þurft að láta af hendi helming af eigum sínum. Hún heftur þó trú á að hjón- bandið haldi og segir að nú vilji þau gjarn- an eignast barn. Brúðkaupið var hið glæsilegasta og með- al 120 gesta voru meðleikarar Jennie úr þáttaröðinni. Hafði brúðkaup- ið þau áhrif að piparsveinn- inn Ian Ziering, sem leikur Steve, bað kærustu sinnar, Nicole, á kirkjutröppunum. Stefna þau á brúðkaup í sumar. Brian Austin Green, sem er einungis 20 ára, lét einnig rómantíkina ráða ferðinni og bað leikkonunnar Tiffani Amber-Thiessen, sem er jafn- aldra hans. Er hún þegar flutt inn til hans í San Femando- dalnum. BRIAN hefur beðið Tiffani og Ian hefur beðið Nicole. Muhammed Ali heimsækir Víetnam ►FYRRVERANDI heimsmeist- ari í boxi, Muhammad Ali, heim- sótti Víetnam í vikunni. Hér ber hann ýmsa minjagripi eins og stuttermabol og hjálma sem hon- um hafa verið gefnir. Mu- hammad AIi, sem hét reyndar Cassius Clay, var sviptur heims- meistaratitiinum eftir að hann neitaði árið 1967 að gegna her- skyldu en þá stóð Víetnamstríðið yfir. „Ég sýni ekki á mér brjóstin bara til JENNIE Garth hefur gifst Dan Clark. FOLK f, , • t y. , haskólabíó SfMI 22140 Háskólabíó Aðgöngumiði að Backbeat gildir sem 300 kr. afsláttur af geislaplötunni með rokktónlistinni dúndrandi úr myndinni í verslunum Skífunnar. Morgunblaðið/Árni Sæbcrg Fegurðardrottningar njóta sín pelsklæddar ►STÚLKURNAR sem taka þátt í Fegurðarsam- keppni íslands komu við hjá Eggert feldskera fyrir helgi til að velja sér pels til að koma fram í á úrslitakvöldinu næsta föstudag. Hér sést Ásdís Elva Rögnvaldsdóttir frá Akureyri máta einn pelsinn, en Særós Tómasdóttir frá Akranesi, Margrét Skúladóttir, ungfrú Reykjavík, Bryndís Fanney Guðmundsdóttir úr Hafnarfirði og fleiri fylgjast með. Það er ekki á hveijum degi sem þeim gefst kostur á að vera íklæddar fallegum pelsum og skemmtu þær sér því konunglega.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.