Morgunblaðið - 15.05.1994, Qupperneq 46

Morgunblaðið - 15.05.1994, Qupperneq 46
46 SUNNUDAGUR 15. MAÍ 1994 MORGUNBLAÐIÐ KNATTSPYRNA Fylgst með ævintýraferð íslenska landsliðsins til Brasilíu Guðimir voru góðir knattspymumenn LANDIA pra vocé iRE Mikið skrifað ARNÓR Guðjohnsen veitir ungum aðdáendum eiginhandaráritanir. Á minni myndinni eru ungar upprenn- andi knattspyrnuhetjur að fylgjast með æfingu íslenska liðsins af áhuga. ÞAÐ hefur oft verið sagt að knattspyrnan sé fólki í Suður-Amer- íku sem trúarbrögð. Fyrir íslendinga hefur þetta ef til vill ekki mikla merkingu, en eftir að hafa fylgt íslenska landsliðinu til Brasilíu hefur þessi setning öðlast aðra og dýpri merkingu. Knatt spyrnan er Brasilíumönnum allt. Það var hreint ótrúlegt að fylgj- ast með móttökunum sem brasilísku guðirnir fengu við komuna til Florianópolis, þar sem leikurinn fór fram. aðrir leikmenn tóku í sama streng. En þetta var bara byrjunin því það var sama hvert farið var þá daga sem dvalið var í Florianópolis, alls staðar var fólk að fylgjast með og algengustu köllin voru „Sorte Bras- il“ sem útleggja má: „Áfram Brasil- ía“. íslenska liðið fór á æfingu á leik- vanginum sama kvöld og komið var til Florianópolis. Á leikvanginum, sem tekur 25 þúsund manns, voru um 1.500 áhorfendur að fylgjast með. Óvenjulegt fyrir íslenska liðið en alvanalegt fyrir það brasilíska enda voru 15.000 manns á vellinum egar sagt er að knattspyrnan sé Brasilíumönnum sem trúar- brögð gerum við íslendingar okkur ekki grein fyrir hvað SkúliUnnar átt er við. Trúar- Sveinsson brogð eru alls ekki skrifar eins stór þáttur af lífi okkar og þeirra, þannig að við skiljum varla hvað við er átt. En íslenska landsliðið veit það núna. Trúarbrögð eru stór þáttur í lífi fólks, en svei mér þá ef knattspyman er fólkinu ekki enn mikilvægari, enda sagði einn ör- yggisvarða íslenska liðsins að guð- imir hafí verið góðir knattspyrnu- menn. Þrátt fyrir mikla fátækt fylg- ist fólk gífurlega vel með þegar 'knattspyman er annars vegar. Knattspyrnumenn era sem guðir og alla unga pilta dreymir um að ná langt, enda er framtíð fjölskyld- unnar trygg, fjárhagslega að minnsta kosti, nái einhver úr henni að verða háttskrifaður knattspyrnu- maður. Leikur íslands og Brasilíu var fyrsti landsleikurinn í knattspyrnu sem fram fer í Florianópolis, en borgin er á lítilli eyju skammt frá meginlandinu, í um 800 kílómetra loftlínu suður af Rio de Janeiro. Á eynni búa um 230 þúsund manns, heldur færri en á Islandi, og þar með líkur samanburði á eyjunum tveimur, Florianópolis og íslandi. Það ríkti greinilega mikil spenna vegna leiksins meðal eyjaskeggja enda haðfí ein af sjónvarsstöðvum Santa Catarina héraðsins, þar sem Florianópolis er, keypt leikinn til eyjarinnar til að minnast 15 ára afmælis síns og allir vissu af leikn- um. Ótrúlegar móttökur íslenska liðið flaug frá Amster- dam til Rio de Janeiro og þaðan eftir nokkurra klukkustunda hvíld með leiguflugi til Florianópolis með viðkomu í Sao Paulo til að sækja nokkra brasilíska leikmenn. Þegar komið var til Florianópolis byijaði ballið. Flugstöðin var troðfull af fólki, bæði inni og einnig utan á henni og allt um kring. Auðvitað voru eyjaskeggjar að taka á móti guðunum sínum, brasilíska landslið- inu, en fslendingarnir fóru ekki varhluta af mótttökunum. Fólksfjöldinn hrópaði hvatning- aróp til sinna manna, sem fóra bein- ustu leið upp í rútu sem flutti þá á hótel. íslenska liðið fór ekki eins hratt í gegnum flugstöðina og fólk- ið tók lítið verr á móti því en guðun- um frá Brasilíu. „Maður hefur lent í ýmsu en svona mótttökum hef ég aldrei upplifað," sagði Arnór Guðjó- hnsen fyrirliði íslenska liðsins og Morgunblaðið/Skúli U. Sveinsson Rosaleg öryggisgæsla FJÖLMENNI var á flugvellinum í Florianópolis þegar liðin komu þangað og mynduðu hermenn göng fyrir leikmenn í gegnum þvöguna. Öryggisgæsla var mjög mikil allan tímann. Morgunblaðið/Skúli Unnar Sveinsson íslenska landsliðið á toppnum! FARIÐ var á Sykurtoppinn heimsfræga í Rio og var þessi mynd tekin af íslenska lansliðinu ásamt fararstjórn, þjálfurum og aðstoðarmönnum þeirra, lækni og nuddara. kvöldið eftir þegar brasilíska lands- liðið æfði þar. Sigurður Jónsson var vinsælasti maður íslenska liðsins á æfingunni. Trúlega vegna þess að snemma á æfingunni ætlaði hann að skjóta frá vítateig en kiksaði illa og gerði góðlátlegt grín af sjálfum sér með því að veifa til áhorfenda og hneygja sig. Eftir það átti hann hug og hjörtu þeirra. „Plís sör!“ „Plís sör, plís sör!“ hljómaði í kringum rútuna þegar íslensku leik- mennirnir höfðu lokið æfíngunni. Ungir Brasilíumenn vildu endilega fá eiginhandaráritanir og voru einn- ig æstir í að skipta á treyjum. Strák- arnir veittu eiginhandaráritanir en vora tregir að skipta á peysum. Þannig var ástandið fyrir og eftir hveija einustu æfingu og eftir eina náði einn ungur brasilískur knatt- spyrnuáhujgamaður að næla í æfin- gapeysu Asgeirs Elíassonar þjálf- ara. Þegar liðð gekk í gegnum röð lífvarða og hermanna stoppaði Ás- geir og fleiri til að veita eiginhand- aráritanir og Ásgeir var með peys- una undir hendinni. Á meðan hann skrifaði nafn sitt náði ungur aðdá- andi í peysuna ojg var fljótur að láta sig hverfa. „Eg hélt nú ekkert rosalega fast,“ sagði Ásgeir og hafði gaman af. Best gæti ég trúað að íslensku strákarnir hafi aldrei skrifað nafn sitt eins oft á jafn skömmum tíma og þessa daga í Brasilíu. Meira að segja íslenska fararstjórnin og und- irritaður komust ekki hjá því að skrifa nafn sitt nokkur hundruð sinnum, slíkur var ágangurinn. Ágangur fjölmiðla var engu minni. A hverri æfingu vora að minnsta kosti menn frá þremur til fjórum sjónvarpsstöðvum og mun fleiri frá útvarpsstöðvum auk blaða- manna. Á hótelinu, þar sem íslenska liðið dvaldi, var ætíð fólk frá tveim- ur sjónvarpsstöðvum og menn voru óspart gripnir í viðtöl. Ella María Gunnarsdóttir, dóttir Gunnars Sig- urðssonar formanns Knattspyrnu- félags ÍA, hafði í nógu að snúast, ásamt Arnheiði Elísu Ingjaldsdótt- ur, en þær hafa verið skiptinemar í Brasilíu í tæpt ár. Þær stöllur þurftu oftar en ekki að túlka fyrir fjölmiðlafólkið því fæstir töluð nokkuð nema portúgölsku. Ferðin til Brasilíu var sannkallað ævintýri fyrir landsliðið, ævintýri sem seint gleymist. Móttökurnar voru frábærar og það að leika við sjálfa Brasilíumenn í Brasilíu er nokkuð sem íslensku strákarnir munu ekki gleyma. Eitt er víst að þegar flautað verður til leiks í Heimsmeistarakeppninni í Banda- ríkjunum á þjóðhátíðardaginn munu íslensku ladsliðsmennirnir, margir hveijir að minnsta kosti, klæðast gulum peysum og halda með Brasil- íumönnum, „þó ekki væri nema vegna fólksins ílandiun. Það á svo sannarlega skilið að liðið verði heimsmeistari,“ eins og Sigurður Jónsson orðaði það. Og hann ætlar að vera í brasilíska búningum sín- um.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.