Morgunblaðið - 15.05.1994, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ
Útsýnisflug í
Boeingþotu
Eitt af því sem íslenski hópurinn
mun trúlega seint gleyma var
flugferðin frá Rio de Janeiro til
Florianópolis með viðkomu í Sao
Paulo. Brasilíska knattspyrnusam-
bandið tók Boeing 737-300 á leigu
hjá brasilíska flugfélaginu Varig
til að flytja íslenska liðið og það
brasilíska á áfangastað.
Vel rúmt var um alla enda að-
eins um 50 manns í vélinni sem
tekur 130 farþega. Lagt var af
stað frá Rio kl. 16 að staðartíma
og flogið sem leið lá til Sao Paulo,
eða það héldum við, en flugstjórinn
var á öðru máli. Hann ákvað að
fara í útsýnisflug yfir Rio. Veður
var fallegt og ef ský voru á leið
okkar stakk flugstjórinn vélinni
niður fyrir þau og hallaði henni
fram og til baka til að menn misstu
ekki af neinu. Og þvílíkt útsýni.
Bæjarstæðið í Rio er einstaklega
fagurt og þessi flugferð mun ekki
gleymast.
Flogið var með sömu vél til
baka eftir leikinn og þá hafði var-
ið samið við brasilíumenn um að
Arnheiður Elísa, önnur íslenska
stúlkan sem aðstoðaði íslenska lið-
ið í Florianópolis, fengi að koma
með til Sao Paulo þar sem hún
býr. Hún hafði komið með rútu
til Florianópolis og tók það ferða-
lag 11 klukkustundir, eða jafn
langan tíma og að fljúga frá Amst-
erdam til Rio.
Það gekk ekki átakalaust að fá
leyfi fyrir Arnheiði Elísu að koma
með. Brasilíumenn sögðu að það
væri regla að kvenfólk fengi ekki
að ferðast með brasilíska liðinu.
En eftir samningaviðræður féllust
þeir á að gera undantekningu að
þessu sinni. íslenska stúlkan Arn-
heiður Elísa Ingjaldsdóttir er því
fyrsti kvenmaðurinn sem f&r að
fljúga með brasilíska landsliðinu í
knattspymu.
Raufarhöfn
Stórglæsilegt einbýlishús við Aðalbraut 31 er til sölu.
Veðbandalaust. Verðtilboð óskast. Fæst jafnvel í maka-
skiptum fyrir íbúð á Stór-Reykjavíkursvæðinu.
Upplýsingar gefur Jón Egilsson hdl., Knarrarvogi 4, 104
Reykjavík, sími 683737.
V
Hef opnað aftur
læknastof u mína í Læknastöðinni hf
Álfheimum 74.
Jóhann Ragnarsson, læknir.
Sérgrein: Lyflækningar og nýrnasjúkdómar.
Tímapantanir í síma 686311.
Glerlistanómskeið
Nokkur sæti laus á glerlistanámskeið sem
Jónas Bragi Jónasson, glerlistamaðurheldur.
Nánari upplýsingar 7 síma 15054.
SUNNUDAGUR 15. MAÍ 1994 47
BÍLAVERKSTÆDI
MÓTORLYFTUR
á hagstæðu verði.
Höíum einnig fyrirliggjandi:
Rafstöövar
Rafmagnstalíur
Sambyggöarafstöð og
rafsuöuvél
Brettalyftur
Flísasagir
SALA - SALA- SALA - SALA
LEIGA - LEIGA - LEIGA - LEIGA
Fallar hi.
Vesturvör 6, Kópavogi,
símar 641020 og 42322.
Mikið öryggi
Brasilíumenn taka það greini-
lega alvarlega þegar erlendir
knattspyrnumenn koma í heim-
sókn. Oryggisgæslan var gríðarleg
og áttu Islendingarnir bágt með
að sætta sig alveg við hana, enda
ekki vanir slíku.
Á hótelinu voru alltaf tveir til
þrír öryggisverðir í anddyrinu auk
þess sem lögreglan var aldrei langt
undan. Öryggisvörður var við
lyftudyrnar á öllum hæðunum þar
sem Islendingar voru og ef ein-
hver vildi fara eitthvað þá var gjör-
samlega útilokað að gera það án
þess að fá lögreglufylgd og/eða
fylgd öryggisvarða.
I rútunni voru alltaf þrír ör-
yggisverðir og sáu þeir meðal ann-
ars um að allt væri í lagi áður en
leikmenn fíru úr rútunni. Þegar
farið var á æfingar voru lögreglu-
menn á mótorhjólum með í för og
stöðvuðu alla umferð þannig að
rútan þyrfti ekki að stoppa á leið-
inni. Gott dæmi um hversu hart
þeir gengu fram í starfí sínu var
að einu sinni á leið á æfíngu stöðv-
uðu þeir umferð í hringtorgi þann-
ig að við kæmumst leiðar okkar
og þurfti sjúkrabíll með blikkandi
ljós að bíða á meðan íslenska liðið
hélt óhindrað áfram.
Eitt kvöldið voru nokkrir úr ís-
lensku fararstjórninni að hugsa
um að bregað sér á öldurhús en
þegar ljóst var að ekki var hægt
að fara nema í lögrelgufylgd hættu
menn hið snarasta við, enda ís-
lendingar ef til vill vanari því að
fá „lögreglufylgd“ af öldurhúsum
en á þau.
Að sögn heimamanna taka
Brasilíumenn alltaf svona á móti
knattspymuliðum sem koma til
landsins. Ástæðan er einföld. Þeir
vilja hafa allt sitt á hreinu og
koma í veg fyrir óhöpp. Sem dæmi
um móttökumar voru alltaf tveir
fólksbílar til taks fyrir hina ís-
lensku gesti og bílstjórarnir ætið
reiðubúnir ef menn þurftu að fara
eitthvað, en öryggisverðirnir
fylgdu alltaf í kjölfarið.
Einn eftirmiðdaginn fóm nokkr-
ir úr fararstjóminni í nýja
„Kringlu" þeirra í Florianópolis.
Þar fylgdust þrír öryggisverðir
með ferðum okkar og það varð
uppi fótur og fít þegar einn íslend-
ingur varð viðskila við hópinn.
Kallað var á öryggisverði verslun-
armiðstöðvarinnar til hjálpar og
það liðu ekki margar mínútur þar
til maðurinn fannst. Hann hafði
þá fengið sér ís í rólegheitunum
og misst af hópnum á meðan.
i Sorgoggleði
að er oft stutt á milli hláturs
og gráturs, segir máltækið
og það eru orð að sönnu. í mikilli
veislu sem sjónvarpsstöðin RBS
hélt fyrir íþróttafréttamenn kvöld-
ið fyrir leikinn í Florianópolis voru
veitt fjölmörg verðlaun til þeirra
blaða- og fréttamanna sem þóttu
hafa staðið sig vel á síðasta ári.
Mikil gleði ríkti meðal þeirra rúm-
lega 200 gesta sem í veislunni
vom en í miðri veislu kvaddi sjón-
varpsstjórinn sér hljóðs og hélt
magnþrungna minningarræðu um
kappaksturhetjuna Ayrton Senna
sem lést í kappakstri á Ítalíu
tveimur dögum áður. Senna var
vinsælasti íþróttamaður Brasilíu,
Ísíðan knattpsyrnusnillingurinn
Pele var og hét, og því mikill miss-
ir fyrir Brasilíu þegar hann féll frá.
I ræðu sinni minnstist sjón-
varspsstjórinn kappaksturshetj-
| unnar með grátstafinn í kverkun-
um og viðstaddir hágrétu. Hann
sagðist hafa snætt með Senna
fyrir nokrum vikum og þá hefðu
þeir rætt um að Brasilía yrði tvö-
faldur heimsmeistari í ár. Senna
ætlaði að sigra í Formula 1 og
knattpsyrnumennirnir ætluðu að
koma heim með heimsmeistaratit-
ilinn frá Bandaríkjunum.
„Nú er Senna fallinn frá og því
bið ég landslið okkar í knattspymu
að koma heim með styttuna góðu.
Gerið það fyrir Senna. Gerið það
fyrir fólkið í landinu. Lengi lifi
minning Senna. Áfram Brasilía,“
sagði sjónvarpsstjórinn og grétu
áhorfendur þá enn meir en áður.
Um leið og hann hafði lokið ræðu
sinni hóf hljómsveitin að leika íjör-
ugt sambalag. Viðstaddir þurrkuðu
sér um augun og tóku gleði sína á
ný. Tími sorgar var liðinn og við
tók tími gleði. Já, það er oft stutt
á milli hláturs og gráturs.
á Hótel Loftleiðum sunnuda?skvöld!
Túnis er nýr og töfrandi
áfangastaður Samvinnuferða
- Landsýnar sem hefur svo
sannarlega slegið í gegn.
Til að íslendingar í ferðahug
geti kynnt sér nánar þessa
heillandi sumarleyfisparadís
verður haldinn kynningar-
fundur um Túnis á Hótel
Loftleiðum sunnudagskvöldið
15. maí kl. 20:30.
Khaled Cheikh og Mahmoud
Chenikfrá Ferðamálaráði
Túnis kynnafagurt land og
gestrisna þjóð í máli og
myndum.
Þórdís Ágústsdóttir, fararstjóri
okkar íTúnis í sumar, sýnir
myndir og fjallar um allt það
sem þar verður í boði.
Næstu brottfarardagar 31. maí, 7., 14. og 21. júní.
KYNNIÐ YKKUR ÞENNAN NÝJA 0G
SPENNANDI MÖGULEIKA!
Samvíniuifsrúií-L anúsýn
Reykjavík: Auslurstræti 12 • S. 91 - 691010 • Innanlandslerðir S. 91 - 6910 70 • Slmbrél 91 - 2 77 96 / 6910 95 • Telex 2241 •
Hótel Söqu við Hagatorg • S. 91 - 62 22 77 • Slmbréf 91 - 62 24 60 Halnarfjörður. Bæjarhrauni 14 • S. 91 - 65 11 55 • Simbróf 91 - 655355
Keflavfk: Hafnargötu 35 • S. 92 - 13 400 • Slmbróf 92 - 13 490 Akranes: Breiðargötu 1 • S. 93 -1 33 86 • Slmbréf 93 -1 11 95
Akureyri: Ráðhústorgi 1 • S. 96 - 27200 • Simbrél 96 -1 10 35 Vestmannaeyjar. Vestmannabraut 38 • S. 98 -1 12 71 • Slmbrél 98 -1 27 92
OATLAS*
VjS / QISQH VljAH