Morgunblaðið - 14.06.1994, Síða 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
Jflcrgu«Míiíiíi»
B
1994
ÞRIÐJUDAGUR 14.JUN!
BLAD
adidas
l Evrópumeistarar Svía
í handknattleik
leika í Adidas
HANDKNATTLEIKUR / HM 1995
Styrkleika-
flokkamir á
íslandi klárir
NÚ er það Ijóst eftir EM í Port-
úgal hvernig Evrópuþjóðirnar
skiptast í styrkleikaflokka í
heimsmeistarakeppninni hérá
landi á næsta ári. Dregið verð-
ur í riðla í Perlunni í Reykjavík
23. júní næstkomandi.
Styrkleikaflokkamir verða eftir-
farandi:
1. flokkur: Svíþjóð, Rússland, Frakk-
land og Sviss.
2. flokkur: ísland, Spánn, Tékkland og
Þýskaland.
3. flokkur: Danmörk, Króatía, Ung-
verjaland, Egyptaland.
4. flokkur: Hvíta-Rússland, 1. Amer-
íkuþjóð, 1 Asíuþjóð og 2. Afríkuþjóð.
5. flokkur: Slóvenía, 2. Ameríkuþjóð,
2. Asíuþjóð og 3. Afríkuþjóð.
6. flokkur: Rúmenía eða Ástralía, 3.
Ameríkuþjóð, 3. Asíuþjóð, 4 Afríkuþjóð.
íslendingar geta valið sér mót-
heija í riðlakeppninni.. .Fyrirkomu-
lagið í drættinum 23. júní verður
þannig að fyrst verður dregið úr
styrkleikaflokkum eitt, þijú, fjögur,
fimm og sex. Þegar það er afstaðið
eru aðeins eftir þjóðirnar úr styrk-
leikaflokki tvö. Islendingar fá þá
að velja sér riðil.
EMáSpáni 1996
Islendingar sleppa við að fara í forkeppni
slitakeppni Evrópumóts
landsliða í handknattleik
karla 1996 verður á Spáni og
verður dregið í riðla í haust. 34
lið taka þátt í Evrópukeppninni
að þessu sinni og verður sama
fyrirkomulag á keppninni og var
í Portúgal, þ.e.a.s 12-liða úrshta-
keppni.
Fimm fjögurra þjóða riðlar
verða í undankeppni Evrópumóts-
ins. Þær 12 þjóðir sem léku í
Portúgal komast beint í riðla-
keppnina, auk Svisslendinga og
íslendinga. En 14 Evrópuþjóðir
þurfa að leika í sérstakri for-
keppni um þessi sex lausu sæti í
riðlakeppninni. Eftir riðlakeppn-
ina fara tvö efstu liðin í hveijum
riðli í úrslitakeppnina sjálfa, eða
10 lið og síðan bætast Evrópu-
meistarar Svía og heimamenn,
Spánveijar, við.
Evrópukeppni kvenna verður í
Danmörku 1996.
Geir í Hauka?
Miklar líkur eru á því að lands-
liðsfyrirliðinn Geir Sveinsson
gangi til liðs við Hauka á næstu
dögum. Samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins mun Jóhann Ingi
Gunnarsson halda áfram sem þjálf-
ari liðsins svo fremi að félaginu tak-
ist að krækja í línumann. Geir er á
Spáni en kemur heim á morgun og
Jóhann Ingi er í Portúgal og kemur
heim á fímmtudaginn og þá mun
skýrast hvort af þessu verður, en
nokkur félög munu hafa rætt málin
við Geir.
FH-ingar ætla að fá sér nýjan
markvörð í stað Bergsveins Berg-
sveinssonar, sem gekk til liðs við
UMFA um helgina. Magnús mun
hann heita, en ekki var ljóst í gær-
kvöldi hvort það yrði Árnason, úr
Haukum, eða Sigmundsson úr ÍR,
en báðir koma þeir upphaflega úr
FH. Báðir fóru frá FH með þeim
formerkjum að ef þeir færu aftur í
FH væri það án kostnaðar fyrir fé-
lagið.
FH-ingar eru að ljúka við að ganga
frá samningum við þá leikmenn sem
léku með félaginu í vetur og reiknað
er með að þeir verði flestir áfram.
FRJALSÍÞROTTIR
Met Mörthu í Dublin
Martha Emstsdóttir setti glæsilegt íslándsmet í 10.000 metra hlaupi í Evrópubikarkeppninni sem haldin var
í Dublin á írlandi um helgina. Martha hljóp á 32 inínútum 47,40 sekúndum og bætti eigið met um 23
sekúndur. Hún sagði í samtali við Morgunblaðið alveg eins hafa átt von á því að bæta metið. „Kannski ekki
svona mikið, en ég vissi að ég gæti þetta,“ sagði Martha. Það var ekki einungis Martha sem hljóp frábærlega,
írska hlaupakonan Catherina McKiernan sigraði og náði besta tíma sem náðst hefur í heiminum í ár. Á mynd-
inni virðir Martha fyrir sér árangurinn og hvernig hún hljóp hvern hring, ásamt landsliðs- og sambýlismannin-
um Jóni Oddssyni, Þorsteini Þorsteinssyni fararstjóra og þjálfaranum Gunnari Páli Jóakimssyni, sem er lengst
til hægri. -------------------------------------
■ Allt um Evrópubikarkeppnina í Dublin / B4,B5
TORFÆRA: MEISTARINN Á SIGURBRAUT / B6,B7