Morgunblaðið - 14.06.1994, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 14.06.1994, Blaðsíða 6
6 B ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚNÍ 1994 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ TORFÆRA / ISLANDSMOTIÐ Margir eiga möguleika segirGísliG. Jónsson Gísli G. Jónsson varð íslands- meistari í flokki sérútbúinna jeppa í torfæru í fyrra. Hann ekur jeppa sem kaljast Kókómjólkin og er í miklu uppáhaldi hjá ungum krökkum, sem fylgjast með tor- færunni. Þó hefur styrktaraðiia hans ekki tekist að skapa sömu ímynd og Coke gerði í kringum Árna Kópsson, sem varð meistari þijú ár í röð. Gísii vann keppnina á Hellu og þótti sýna skemmtilega takta. Hann er ekki óvanur að kljást við erfiða keppinauta, var glímu- kappi mikill á árum áður, en Gísli býr í Þorlákshöfn og rekur bif- reiðaverkstæði. „Það kostar mikla vinnu að keppa heilt keppnistíma- bil í torfæru. Ég gæti trúað því að rekstur jeppa kosti um eina milljón, það er fyrir utan smíði og hönnun. Ég gæti trúað því að það kostaði á þriðju milljón að smíða jeppa í dag, sem gæti keppt við þá bestu," sagði Gísli í sam- tali við Morgunblaðið. Hann var kjörinn akstursíþróttamaður árs- ins í fyrra, náði góðum árangri og þótti sýna íþróttamannslega framkomu í hvívetna. „Ég ætla að hanga á íslands- meistaratitlinum þó keppnin sé harðari og andstæðingarnir á betri jeppum en í fyrra,“ sagði Gísli. „Ég var ekkert orðinn óró- legur þótt Einar hefði unnið mót hér heima og tvö í Norðurlanda- mótinu. Ég var óheppinn á Akur- eyri, þá bilaði sjálfskipting í miðri þraut og eftir það átti ég mér ekki viðreisnar von, varð sjötti. Sigurinn á Hellu kemur mér á skrið. Þrautirnar í keppninni voru mjög skemmtilegar, þó hraðinn hefði mátt vera meiri á köflum, þannig að við næðum að stökkva upp erfið börð. Þá býður það upp á meiri tilþrif að hafa ekki of mörg dekk í þrautum, stundum liggur við að betra sé að fara stutt, því refsing fyrir að aka á dekk er svo mikil." „Ég prófaði að vera með skóflu- dekk að framan, í stað þess að hafa þau að aftan. Það virkaði vel í börðunum, en kom verr út i hliðarhalla. Þessi útfærsla skilaði sér ágætlega í mýrinni, sem var gaman að aka. Það gefur sérstaka tilfinningu að ösla mýrina á 100 km hraða, æða áfram á mikilli ferð, sjá lítið út fyrir drulluaustr- inum og þræða á milli hliða. Þetta gefur mikla útrás í lok keppni, ekki sfst þegar fáir komast á leið- arenda. Sitja fastir. Keppnistíma- bilið á eftir að vera erfítt. Það eiga margir góða möguleika, en ég held að erfíðastir verði Þórir Schiöth, Einar Gunnlaugsson og Haraldur Pétursson. Svo er spurn- ing hvemig Sigurður Axelsson, Þorsteinn Einarsson og Helgi Schiöth standa sig. Við erum aliir á öflugum keppnistækjum, reynsla og heppni mun ráða miklu. Ég vona að heppnin lendi mín rnegin," sagði Gísli. Flotið á vatni SIGURVEGARINN í sérútbúna flokknum, Þorlákshafnarbúinn Gísli G. Jónsson þeysir yfír á í tímaþraut. Hann vann keppr tveggja keppenda til að ljúka þrautinni. Meistarínn á s Ragnar Skúlason frá Keflavík er efstur til íslandsmeistara í flokki götu- jcppa og hefur unnið bæði mót ársins. íslandsmeistarinn íflokki sérútbúinna jeppa ítorfæru, Þoriáks- hafnarbúinn Gísli G Jónsson, vann langþráðan sigur þegar hann fagnaði sigri ítorfærumóti Flugbjörgunarsveitarinnar á Hellu á laugardaginn. Gísli hafði fyrir mótið ekið íþremur mótum án þess að vinna sigur. Hann háði harða keppni við Reykvíkinginn Harald Pétursson, sem varð annar. Með því að ná þriðja sæti heldur Akureyringurinn Einar Gunnlaugsson forystu til íslands- meistara. í fiokki götujeppa ók Keflvíkingurinn Ragnar Skúlason geysilega vel, sigraði og hefur gott forskot til íslandsmeistara. Þrautirnar í keppninni voru margar hinar skemmtilegustu og lengri en oft áður. Þá vom tvær tímaþrautir, sem buðu upp á RögnvJídsson skemmtileg tilþrif. skrifar Hms vegar hefði mótshaldið mátt ganga hraðar fyrir sig. Einari Gunnlaugsssyni, sem hefur verið ósigrandi í mótum árins, fataðist flugið í þessari keppni. Mistókst strax í fyrstu þraut og fékk lága stigagjöf í þeim þremur næstu, þannig að þeim loknum var hann aðeins með 400 stig af 1.200 mögu- legum. En það vom fleiri í vandræð- um. Vélin í endurbættum jeppa Gunnars Egilssonar frá Selfossi sprengdi blokkina fyrir keppni og hann var úr leik. Sömuleiðis fór Gísli G. Sigurðsson ekki langt, milli- kassinn brotnaði í fyrstu þraut. Enn vora heilladísirnar fjarri Egils- staðabúanum Þóri Schiöth og Jaxl- jeppi hans braut drifskaft í fjórðu þraut. Bilanir plöguðu hann frá byijun og ráku að lokum smiðshögg á þátttöku hans. Dýrasta keppnis- tæki landsins hefur ekki náð að sanna sig á árinu og möguleiki á meistaratitli ijarlægist með hverri keppni. Meistarinn Gísli G. Jónsson hélt sínum möguleikum opnum og barð- ist af hörku í titilvörninni, en fjögur mót af sex sem gilda í íslandsmót- inu gilda til lokastiga. Gísli skiptist á við Harald Pétursson að hafa for- ystu í þrautunum, en eftir íjórar munaði aðeins fimm stigum á þeim, Haraldi í vil. í fimmtu þraut seig Gísli 35 stigum framúr, en Harald- ur náði að bíta frá sér í næstu þraut og bilið minnkaði um 15 stig. Tíma- þraut í vatni reyndist síðan Haraldi happadijúg, hann fékk mun fleiri stig en Gísli og náði 40 stiga for- skoti. Aðeins einni þraut var ólokið þegar hér var komið sögu. Mýrin. Uppáhaldsþraut margra keppenda, akstur í mýrlendi um hlykkjótta braut. Skemmtileg þraut en að sama skapi viðsjárverð. I fyrra náði aðeins Einar Gunnlaugsson að ljúka henni og hann óð hana að nýju til enda fyrstur keppenda. Hann átti möguleika á sigri, ef Gísla og Har- aidi mistækist hrapallega í mýr- inni, hafði unnið sig upp hægt og sígandi í lokaþrautunum. Gísli setti allt á fullt, óð mýrina á jeppanum eins og hann ætti lífið að leysa, enda sigurinn í húfi. Hann kláraði þrautina á betri tíma en Einar. Haraldur varð því að ljúka þrautinni og á góðum tíma.til að eiga möguleika á sigri. Haraldur fór hins vegar skammt, fór á bóla- kaf í drullupytt og sömuleiðis mögu- leikinn á gullinu. Hann hélt hins vegar silfrinu, enginn annar náði að ijúka þrautinni og reyndari kapp- ar verða að vara sig á Haraldi í komandi mótum. Hann er nú í þriðja sæti til íslandsmeistara ásamt Helga Schiöth, einu stigi á eftir Gísla og síðan Einari í efsta sæt- inu. Um tíma leit út fyrir að Sigurð- ur Axelson léti að sér kveða, en fjórða þrautin reyndist honum dýr- keypt eins og mörgum. Hann er vaxandi ökumaður, náði fimmta sæti á Hellu á eftir Helga. íslands- meistari síðasta árs í flokki götu- jeppa, Grindvíkingurinn Þorsteinn Einarsson, keppir nú í sérútbúna flokknum. Hann fann ekki rétta taktinn í þessari keppni vegna bil- ana. Jón A. Gestsson slapp með skrekkinn þegar jeppi hans tók harkalegar kollsteypur í lok tíma- þrautar, en jeppi hans skemmdist talsvert í tveimur endastungum. Hann hætti keppni. Ragnar Skúlason hafði mikla yfirburði í flokki götujeppa og virð- ist fátt geta stöðvað það að hann verði meistari. Bæði er jeppi hans mjög vel útbúinn og ökulagni hans slík að enn stendur honum enginn að sporði. Hann hefur unnið bæði mót ársins, en búnaður bestu jepp- anna í flokki götujeppa er mjög nálægt því sem gerist í sérútbúna flokknum. Mesti munurinn liggur í dekkjabúnaðinum. Næsta keppni til íslandsmeistara verður á Egilsstöð- um eftir hálfan mánuð. Eins og staðan er í dag í sérútbúna flokkn- um eiga sex ökumenn verulega góða möguleika á titlinum. . r r Hi Hí

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.