Morgunblaðið - 14.06.1994, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚNÍ 1994 B 3
ÍÞRÓTTIR
tofamt
FOLK
■ BJÖRGVIN Þorsteinsson
kylfingur úr Golfkúbbi Akureyrar
og margfaldur íslandsmeistari, fór
holu í höggi í fimmta sinn á laugar-
daginn. Björgvin var meðal kepp-
enda á stigamótinu í Grafarholti
og gerði sér lítið fyrir og fór aðra
holuna á einu höggi. Boltinn fór
beint ofan í holuna án þess að lenda
fyrst á flötinni og sagði Björgvin
að þetta væri í annað sinn sem
hann færi holu í höggi á flugi.
■ BJÖRGVIN Sigurbergsson úr
Keili lék í kvennariðli fyrri dag
keppninnar. Hann var í riðli með
tvíburasystu sinni, Onnu Jódísi og
Ragnhildi Sigurðardóttur úr
Golfklúbbi Reykjavíkur.
■ ÁSTÆÐAN var sú að unnusta
Björgvins var að útskrifast úr
Kennaraháskólanum og tímasetn-
ingin hentaði því betur fyrir Björg-
vin. Ragnhildur var einnig að út-
skrifat úr Kennaraháskólanum og
5ví þótti þessi lausn best.
I ÞETTA olli nokkrum vandræð-
um á fyrsta teig því ræsirinn skildi
ekkert í því hvað karlmaður var að
dunda sér uppi á hvíta teig á með-
an stúlkurnar voru að slá á rauða
teignum. Eftir að málið var útskýrt
fyrir ræsi gekk allt vel. Björgvin
átti teiginn allan hringinn, enda lék
hann af karlateigum, sem eru nokk-
uð aftar en kvennateigarnir og því
þægilegra að láta hann slá fyrst.
■ BJÖRGVIN kunni vel við sig í
kvenna„hollinu“ enda skrifaði systir
hans skorið og því ekki að furða
þó hann væri með forystu eftir fyrri
daginn!
■ ATVINNUMENNIRNIR
kepptu einnig í mótinu og þar sigr-
aði Sigurður Pétursson golfkenn-
ari hjá Golfklúbbi Reykjavíkur,
lék á 152 höggum, einu höggi betur
en Jón H. Karlsson.
■ SIGURÐUR setti niður langt
og mjög erfitt pútt á síðustu hol-
unni og tryggði sér þannig sigur.
Árangur hans hefði dugað í þriðja
sætið í keppninni, en atvinnumenn-
imir keppa sem gestir.
■ SIGURÐUR var ánægður með
síðasta púttið og gárungarnir höfðu
áhyggjur af því að nú yrði ekki
friður í golfskálanum þar sem hann
yrði stöðugt að lýsa púttinu sínu.
Hannes Eyvindsson var í riðlinum
á eftir Sigurði og var talsvert fýrir
utan 18. flötina í öðru höggi, en
vippaði beint í. Þar með hafði Sig-
urður ekki lengur ástæðu til að
hrósa sér af púttinu.
■ STÚLKUNUM virðist vera að
fjölga í golfínu því tíu stúlkur tóku
þátt í stigamótinu að þessu sinni
og hafa sjaldan eða aldrei verið
fleiri. Anna Jódís varð raunar að
hætta keppni eftir fýrri dag þar sem
hún var tognuð.
■ SYSTKININ úr Keili komu
mikið við sögu að þessu sinni. Auk
þess sem áður eg getið með Björg-
vin og Onnu Jódísi var „stóri“
bróðir þeirra, Guðbrandur nærstur
holu á 18. braut eftir tvö högg,
aðeins 68 sentimetra.
■ GÓÐ þátttaka var í mótinu því
auk stúlknanna var 61 keppandi í
karlaflokki og 75 í forgjafarflokki,
alls 146 keppendur. Verðlaun, sem
gefin voru af Sævari Karli voru
glæsileg.
■ MIKIÐ er talað um að kyn-
slóðaskipti séu að verða í golfinu
hér á landi. Sigurður Hafsteins-
son, úr Golfklúbbi Reykjavíkur
sagði greinilegt að svo væri því
hann hefði leikið með tveimur í riðli
sem hefðu samtals verið 28 ára
gamlir.
■ EINS og svo oft áður setti veðr-
ið mark sitt á stigamótið um helg-
ina og virðast það vera álög á kylf-
ingum að þar sem stigamót er hald-
ið þar er leiðinlegt veður. Að þessu
sinni var sannkallað „Þjóðhátíðar-
veður“, strekkingur og gekk á með
skúrum.
GOLF / STIGAMOT
Fyrsti sigur Birgis
Leifs á stigamóti
Karen er örugg
Islandsmeistari kvenna síðustu
fimm árin, Karen Sævarsdóttir
úr Golfklúbbi Suðurnesja, sigraði í
kvennaflokki og lék á sex höggum
minna en Herborg Arnarsdóttir úr
GR. Karlen lék á 158 höggum, Her-
borg á 164 og Ólöf María Jónsdóttir
úr Keili á 165 eins og Þórdís Geirs-
dóttir, en Ólöf María hafði betur í
bráðabana.
„Þetta gekk svona þokkalega
nema hvað rpér finnst ég nota allt
of mörg pútt, án þess samt að ég
sé að pútta illa,“ sagði Karen eftir
sigurinn. Hún lék báða hringina á
79 höggum, notaði 39 pútt fyrri
daginn og 37 seinni daginn þannig
að það lætur nærri að helmingur
högga hennar hafi verið pútt og það
er of full mikið.
Herborg lék á 81 höggi fyrri dag-.
inn og var því aðeins tveimur högg-
um á eftir Karenu. Síðari daginn dró
í sundur með þeim því Herborg lék
á 83 höggum. Ólöf María var í 4.
sæti eftir fyrri daginn en tókst að
skjótast upp fyrir Ragnhildi Sigurð-
ardóttur úr GR seinni daginn, lék á
82 höggum en Ragnhildur á 84.
Þórdís lék á 81 höggi síðari daginn
og skaust einnig upp fyrir Ragnhildi
en tapaði síðan fyrir Ólöfu Maríu í
bráðabana og varð í fjórða sæti.
r þriðja sætið bæði í karla
og kvennaflokki. í kyennaflokki
léku tvær stúlkur, Ólöf María
Jónsdóttir úr Keili og Þórdís
Geirsdóttir, einnig úr Keili. í
karlaflokki léku Tryggvi
Traustason úr Keili, Þórður
Ólafsson úr Leyni og Hjalti Páls-
son úr Golfklúbbi Reykjavíkur.
Alls voru því fimm kylfmgar í
bráðabana.
Ólöf María sigraði Þórdísi í
bráðabana um þriðja sætið strax
á fyrstu braut en þær stöllur
höfðu báðar leikið holurnar 36
á 165 höggum.
í karlaflokki helltist Akurnes-
ingurinn ungi, Þórður Emil
Ólafsson úr lestinni á fyrstu
holu, fékk skolla á meðan
Tryggvi og Hjalti fengu par. Á
annari holu fékk Tryggvi par
en Hjaiti skolla og þar með voru
úrslitin ljós.
BIRGIR Leifur Hafþórsson frá
Akranesi sigraði á þriðja stiga-
mótinu í golfi, Boss-mótinu, sem
fram fór á Grafarholtsvelli um
helgina. Þetta var fyrsti sigur
Birgis Leifs á stigamóti, og ekki
sá síðasti, ef marka má spila-
mennsku drengsins að þessu
sinni. Einu höggi á eftir varð
Björgvin Sigurbergsson úr Keili
og félagi hans í Hafnarfirði,
Tryggvi Traustason varð þriðji
eftir bráðabana við tvo aðra kylf-
inga.
Birgir Leifur lék á 74 höggum
báða dagana, eða 148 höggum
samtals sem er sex höggum yfír
pari vallarins. Hinn
Skúh ungi kylfingur var
Sveinsson öiyggið uppmálað á
skrífar seinni hring, sem og
þeim fyrri, og ef
hann lenti í einhveijum vandamálum
leysti hann þau vel.
„Heppnin var nú með mér seinni
partinn í dag. Ég lenti í vandræðum
á fjórtándu braut, boltinn lá í snarr-
rót eftir teighöggið, þaðan sló ég í
brautarglompu og var hætt að lítast
á. En þriðja höggið var alveg upp
að pinna og ég fékk auðvelt par,“
sagði Birgir Leifur í samtali við
Morgunblaðið eftir mótið. Hann
bjargaði sér líka skemmtilega á
næstu braut. „Maður verður að hafa
heppnina með sér til að vinna í svona
móti/‘ sagði kappinn.
„Eg fór út á völl til að gera mitt
besta og leika mitt golf. En ég neita
því ekki að þegar ég kom á átjándu
brautina var ég orðinn dálítið stress-
aður. Maður er ekki ennþá orðinn
nógu sjóaður í svona stöðu og ég er
því ánægður með að ná að klára án
þess að klikka," sagði Birgir Leifur,
en hann setti niður þriggja feta pútt
eftir að hafa grandskoðað allar að-
stæður. „Ég ætlaði ekki að klikka á
þessu pútti, enda á maður ekki að
gera að því maður hefur æft svona
pútt svo mikið," sagði sigurvegarinn.
„Ég æfði heldur meira í vetur en
veturinn þar á undan. Við höfum
ágæta aðstöðu á svölunum í íþrótta-
húsinu og þar æfum við á vetuma.
í vor fór ég í æfingaferð með ungl-
ingalandsliðinu til Englands þannig
að maður hefur æft vel. Stutta spilið
hefur gengið mjög vel að undanförnu
enda hef ég lagt mikla áherslu á
það.“
Ertu á golfvellinum frá morgni til
kvölds?
„Já, ég vinn þar! Ég mæti þama
á morgnanna og er að vinna fram
undir tvö eða þijú, skýst heim í sturtu
og aftur upp á golfvöll og æfi síðan
fram á kvöld. Ég er því á golfvellin-
um frá morgni til kvölds," sagði Birg-
ir Leifur, sem er nýorðinn 18 ára.
Björgvin átti eitt högg á Skaga-
mennina Birgi Leif og Þórð Emil
Ólafsson eftir fyrri dag. Þessir þrír
voru saman í riðli síðari daginn og
tókst Skagamanninum unga með
yfirvegun og góðum leik að vinna tvö
högg af Björgvini á síðari 18 holun-
um og sigra með einu höggi.
Morgunblaðið/Þorkell
Púttað til sigurs
BIRGIR Leifur Hafþórsson frá Akra-
nesi sýndi mikið öryggi á þriðja stiga-
móti sumarsins og sigraði.