Morgunblaðið - 14.06.1994, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÓTTIR
ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚNÍ1994 B 5
að hlaupa undir 11 sekúndum. Hann
hljóp á 10,95 sekúndum og lenti í
6. sæti. Haukur er aðeins 19 ára
gamall og á framtíðina fyrir sér í
greininni.__________________________
1500 M HLAUP
Finnbogi Gylfason keppti í 1500
metra hlaupi og var frammistaða
hans verri en við var búist. Hann
missti keppinauta sína fljótt fram úr
sér og virtist hreinlega gefast upp.
Hann kom síðastur í mark á 4.05,45
mínútum, sem er nokkuð frá hans
besta árangri.__________________
HASTOKK
Einar Kristjánsson bætti árangur
sinn á þessu ári um tvo sentimetra.
Hann stökk 2,08 metra í annarri til-
raun og gerði þijár góðar tilraunir
við 2,11 metra, og var mjög nálægt
því að komast yfir. Hann jafnaði
besta árangur íslands í Evrópubikar-
keppninni og hafnaði í fjórða sæti.
400MHLAUP
Ingi Þór Hauksson hljóp 400 metra
hlaupið líkt og pabbi hans, Haukur
Sveinsson, gerði í Evrópubikarkeppn-
inni 1970. Árangur Inga Þórs var
viðunandi, hann hljóp á 50,34 sek-
úndum og hafnaði í sjötta sæti. Hann
var ekki nógu ákveðinn fyrstu tvö
hundruð metrana, sem gerði það að
verkum að hann fór ekki undir 50
sekúndur eins og vonast var eftir.
Hins vegar sló hann pabba sínum
við, sem hljóp á 50,8 sekúndum árið
1970.
SPJOTKAST
Sigurður Einarsson náði viðunandi
árangri í spjótkastinu. Hann kastaði
76,86 metra og varð annar. írinn
Terry McHugh sigraði með 79,60
metra kasti. Sigurður á best 79,10
metra í ár og hefði þurft að bæta
þann árangur til að sigra. Spjótin
hans týndust á leiðinni til Dublin og
komu ekki í leitimar fyrr en of seint
fyrir keppnina. Hann gat því ekki
notað eigin spjót, sem hefur eflaust
haft sitt að segja.___________________
LANGSTOKK
Jón Amar Magnússon keppti í
langstökki, en náði aðeins að stökkva
7,14 metra, og hafnaði í sjötta sæti.
Hann átti í erfíðleikum vegna óhag-
stæðs vinds auk þess sem honum
gekk illa að hitta á plankann. Fjögur
af sex stökkum vom ógild, en þar á
meðal vom stökk yfir 7,70 metra.
Hefði allt verið í lagi og hlutimir
gengið upp hefði hann átt að lenda
í þriðja sæti.________________________
10.000 M HLAUP
Gunnlaugur Skúlason stóð sig frá-
bærlega í 10 km hlaupinu. Hann hljóp
á 31 mínútu 27,98 sekúndum, lenti
í sjötta sæti og bætti eigin árangur
um 23 sekúndur.
KULUVARP
Pétur Guðmundsson stóð fyrir sínu
í kúluvarpinu og sigraði ömgglega.
Lehgsta kast hans var 19,46 metrar,
en fimm af köstunum sex flugu yfir
nítján metra. Það sjötta var ógilt.
Pétur lagði þama að velli m.a. Lithá-
an Saulius Kleiza, sem kastað hefur
yfir 20 metra á þessu ári.___
4x100
Síðasta grein fyrri dagsins hjá
körlunum var 4x100 metra boðhlaup.
íslenska sveitin, sem skipuð var þeim
Bjama Traustasyni, Agli Eiðssyni,
Hauki Sigurðssyni og Jóni Arnari
Magnússyni, hljóp á 41,96 sekúndum
sem er þriðji besti árangurinn í Evr-
ópubikarkeppninni frá upphafi. Sveit-
in hafnaði í íjórða sæti. Sprettirnir
allir voru mjög góðir en fyrsta skipt-
ingin var slök.___________________
SLEGGJUKAST
Guðmundur Karlsson hóf seinni
daginn vel fyrrir karlaliðið. Hann kast-
aði lengst 64,28 metra og hafnaði í
öðru sæti. Hann bætti árangur sinn
■á þessu ári um tæpa tvo metra og
hélt fyrir aftan sig mönnum sem eiga
miklu betri árangur._______________
110MGRIND
Jón Amar Magnússon náði góðri
útkomu út úr grindahlaupinu. Hann
átti sjötta besta tímann af keppend-
unum en náði fjórða sæti, hljóp á
14,61 sekúndu. Reyndar var hann
nokkuð frá metinu sem hann setti
fyrir nokkra, 14,36 sekúndum, en
útkoman var engu að síður góð.
800 METRAR
Finnbogi Gylfason hljóp 800 metr-
ana, og gekk betur en í 1500 metra
hlaupinu. Þrátt fyrir það kom hann
síðastur í mark, á 1.56,13 mínútum,
sem er nokkuð frá hans besta árangri.
ÞRISTOKK
Jón Oddsson var mjög óheppin í
þrístökkinu. Hann meiddist í fyrsta
stökki, sem mældist 13,54 metrar og
gerði hann því ekki fleiri tilraunir.
Hann lenti í sjöunda sæti.____________
3.000 METRAR
Rögnvaldur Ingþórsson náði sínum
besta árangri í ár þegar hann hljóp
á 9 mínútum 16,69 sekúndum. Bæt-
ingin var upp á fimm sekúndur en
auk þess var þetta næst besti árang-
ur í Evrópubikarkeppni frá upphafi.
Hann lenti í sjötta sæti.________
200 M HLAUP
Haukur Sigurðsson kom inn í þetta
hlaup á síðustu stundu, þar sem Jón
Arnar Magnússon stífnaði upp í kálfa
og gat ekki hlaupið. Haukur fékk því
lítinn undirbúning, og náði aðeins
sæmilegu hlaupi, en auk þess var
mótvindur upp á 1.72 metra á sek.
sem gerði þetta erfiðara. Hann hljóp
á 22,87 sekúndum og varð í sjötta
sæti.
KRINGLUKAST
Kringlukastinu var stillt upp sem
einyígi milli Vésteins Hafsteinssonar
og írans Nick Sweeney, en þeir höfðu
báðir náð kasti upp á 64,28 metra á
þessu ári. Sweeney hafði betur, kast-
aði 63,16 metra, en Vésteinn kastaði
58,98 metra lengst, jafn langt og
Litháinn Alekna, en hann átti lengra
næstlengsta kast og hafnaði því í
öðra sæti. Vésteinn varð því að gera
sér þriðja sætið að góðu og á harma
að hefna nk. laugardag á Reykjavík-
urleikunum, þar sem Sweeney mætir
til leiks.
5000 M HLAUP
Sigmar Gunnarsson náði um sek-
úndu betri árangri en hann náði í
fyrra, en ætlaði sér að ná enn betri
árangri og var hlaupið heldur slakt.
Hann keppti í 10.000 metra hlaupi
helgina áður, þar sem hann bætti sig
veralega, og sat það líklega í honum.
Hann hljóp á 14.57,52 og lenti f sjö-
unda sæti.
STANGARSTOKK
Sigurður T. Sigurðsson keppti í
stangarstökki í sjöunda sinn í Evr-
ópubikarkeppni og stóð sig prýðilega.
Hann náði besta árangri sínum f ár,
stökk 4,80 metra og hafnaði í þriðja
sæti. Hann átti mjög góða tilraun við
5,00 metra, fór hátt yfir en felldi
samt naumlega. Árangur hans var
mun betri en ráð hafði verið fyrir
gert._____________________________
4x400
í íslensku sveitinni voru Ólafur
Guðmundsson, sem kom inn sem
varamaður fy'rir Jón Amar Magnús-
son, Geir Sverrisson, Ingi Þór Hauks-
son og Egill Eiðsson. Þeir hlupu allir
eins og við mátti búast, en Ingi Þór
náði góðum spretti og reyndar mun
betri en í 400 metra hlaupinu daginn
áður. Sveitin hljóp á 3.19,01 mínútu
og varð í fímmta sæti. Lokastaðan
eftir báða keppnisdagana var sú að
Belgía var í fyrsta sæti með 102 stig,
svo komu í þessari röð Holland 97
stig, Portúgal 95 stig, írland 90 stig,
Litháen 77 stig, ísland 63 stig og
sináþjóðir Evrópu 35 stig.
ánægður
með kast-
lengdina
þessu nú
- sagði Martha Emst-
dóttir eftir að hafa
sett íslandsmet í
10.000 metra hlaupi
ÉG átti alveg von á að ná
þessu meti nú, kannski ekki
að bæta það svona mikið,
en ég vissi aðég gæti þetta,“
sagði Martha Ernstdóttir eft-
ir að hafa sett glæsilegt ís-
landsmet í 10.000 metra
hlaupi, 32 mínútur 47,40 sek-
úndur, og náði um leið lág-
marki fyrir Evrópumeistara-
mótið. Aðspurð sagðist hún
ekki hafa átt í neinum erfið-
ieikum með þetta. „Þetta var
ótrúlega létt, en þannig er
það þegar maður er í góðu
formi.“
Martha hefur átt við veik-
indi að stríða síðan ’92, en
hefur verið að ná sér síðast-
liðið ár. „Það fóru þarna tvö
ár í súginn, en núna er ég
orðin rosalega frísk,“ sagði
Martha. Hún sagði að mótið
hefði verið mjög skemmti-
legt, það væri góður andi í
hópnum og hún væri mjög
kát með að vera komin aftur
í landsliðshópinn.
Sátturvið
árangurinn
hjá mörgum
Eg er mjög sáttur við árangur-
inn hjá mörgum, en þegar
á heildina er litið náðu stelp-
urnar betri árangri og voru nær
því að gera það sem við var búist.
I kvennakeppninni settu meiðsli
strik í reikninginn, líka mistök
og óheppni, og því náðum við
ekki að vinna Irana í stigakeppn-
inni,“ sagði Þráinn Hafsteinsson
landsliðsþjálfari eftir Evrópu-
bikarkeppnina í Dublin.
Aðspurður um karlakeppnina
sagði Þráinn að útkoman hefði
verið ágæt hjá kösturunum,
fyrsta til þriðja sæti í öllum grein-
um, stökkvurunum hefði líka
gengið ágætlega, örlítil framför
hefði verið í langhlaupunum en
spretthlaupin væru enn veiki
hlekkurinn. „Það eru ennþá alltof
margar greinar veikar hjá okkur
til þess að eiga einhverja mögu-
leika í stigakeppninni hjá körlun-
um,“ sagði Þráinn.
Evrópubikarkeppnin er nú
haldin á hverju ári, en áður var
hún haldin annað hvert ár. Þráinn
sagði að það væri ekki spuming
að þessi breyting væri mjög til
bóta og til þess fallin að efla
Martha Ernstdóttir.
starfið enn frekar. „Það er mjög
gott að þessi keppni skuli vera
hvert ár og það er alls staðar
lagt meira og meira upp úr þess-
ari keppni, eins og sást hér þar
sem voru íþróttamenn í heims:
klassa í fyölmörgum greinum. í
framtíðinni þarf að byggja upp
stemmningu í kringum þessa
keppni, og það hefur tekist sæmi-
lega til þessa,“ sagði Þráinn.
Gaf alrt
semégátti
í hlaupið
- sagði Þuríður Ing-
varsdóttir sem sýndi
mikið keppnisskap
Þuríður Ingvarsdóttir var
varamaður í kvennaliðinu og
keppti í tveimur greinum. Fyrri
greinin var 400 metra grinda-
hlaup þar sem hún sýndi fádæma
hörku og náði þriðja sæti. Hún
bætti eigin árangur vemlega og
aðspurð sagðist hún ekki hafa
átt von á því. „Ég bjóst alls ekki
við því að verða í einhverri bar-
áttu, en þegar ég sá að ég átti
möguleika gaf ég allt sem ég
átti,“ sagði Þuríður.
Þuríður hefur æft fijálsar síð-
an hún var 13 ára eingöngu, en
hún er 22 ára gömul. Hún hefur
einbeitt sér að keppni í sjöþraut,
og hefur sett stefnuna á Islands-
met Birgittu Guðjónsdóttur. „Mig
vantar enn 200 stig upp á metið,
en það er ekki óyfirstíganlegt
bil. Ég þarf að bæta mig í spjóti
og kúluvarpi til þess að svo
verði,“ sagði Þuríður.
Ekki
Pétur Guðmundsson.
keyrslan of mikii. Eg keppi á
Reykjavíkurleikunum um
næstu helgi og ef ég kasta
ekki lengra þar verð ég að
fara yfir þetta allt frá byrjun
og endurskipuleggja undir-
búninginn fyrir Evrópumeist-
aramótið,“ sagði Pétur.
Jákvæð útkoma
Guðmundur Karlsson náði
öðru sæti í sleggjukasti og
bætti árangur sinn á þessu
ári nokkuð. „Þetta var jákvæð
útkoma, sá sem var í þriðja sæti
nú vann í fyrra og það var gott
að halda honum fyrir aftan sig.
Kastaramir hafa staðið sig vel
og það er gaman fyrir mig að
geta haldið mig á svipuðum nót-
um, því ég er langt því frá að
standa jafn framarlega og þeir í
sínum greinum. Þetta var gott
mót fyrir mig, þama voru fímm
jafnir kastarar, og ég hefði getað
verið hvar sem var í þeirri röð,“
sagði Guðmundur.
Aðspurður sagði hann að stefnan
væri að setja nýtt íslandsmet í
ágúst; „Ég þori ekki að lofa því
fyrr,“ sagði Guðmundur.
Átli alveg
eins von á
Þráinn Hafsteinsson.
PÉTUR Guðmundsson var
eini íslendingurinn sem náði
því að verða efstur í sinni
grein. Hann kastaði lengst
19,46 metra í kúluvarpinu
og sigraði örugglega. Pétur
sagði að hann hefði náð
settu marki, sem var sigur,
en hann væri ekki ánægður
með lengdina. „Það er eitt-
hvað að, því ég var fyrir tíu
dögum að kasta yfir 19
metra án atrennu. Ég er
kannski þreyttur, kannski er Guðmundur Karlsson.