Morgunblaðið - 14.06.1994, Blaðsíða 8
8 B ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚNÍ 1994
ÍÞRÓTTIR
JHORGUNBLAÐIÐ
ítmnw
FOLK
■ VASILIV Kudinow frá Rúss-
landi var markahæstur í riðla-
keppninni á Evrópumótinu í hand-
knattleik sem lauk í Portúgal á
sunnudag — skoraði 33 mörk. Hann
var einnig markahæstur í úrslita-
leiknum gegn Svíum á sunnudag
með 9 mörk. Eslidor Vojca, Rúm-
eníu, var næstur með 32 mörk,
Carlos Resenda frá Portúgal
þriðji með 30 mörk og Svíinn Erik
Hajas kom næstur með 29 mörk.
■ MAGNUS Anderson frá Sví-
þjóð var valinn besti leikmaður
Evrópumótsins.
■ DOUICHEBAEV, handknatt-
leiksmaðurinn snjálli frá Rússlandi
sem var markahæstur á Ólympíu-
leikunum í Barcelona, lék ekki
með rússneska landsliðinu á Evr-
ópumeistaramótinu. Ekki var gef-
in skýring á fjarveru hans, en að
sögn spænskra íþróttafréttamanna
er hann að sækja um spænskan
ríkisborgararétt og vildi því ekki
vera með. Hann lék með Teka á
Spáni í vetur. Ef rétt reynist mun
hann leika með Spánveijum í
heimsmeistarakeppninni hér á landi
í maí á næsta ári.
■ JOSIP Weber, framherji
Cercle Brugge, leikur með And-
erlecht næsta keppnistímabil.
Hann er 29 ára Króati, sem nýlega
gerðist belgískur ríkisborgari. Hann
hefur verið markahæstur í belgísku
1. deildinni síðustu þijú ár og vann
hug og hjörtu Belga er hann gerði
6 mörk í fyrstu tveimur landsleikj-
um sínum fyrir Belgíu, gegn
Zambíu og Ungverjum.
■ ANTONIO Oliveira, fyrrum
landsliðsmaður, hefur verið ráðinn
landsliðsþjálfari Portúgals. Hann
þjálfaði Braga síðasta keppnistíma-
bil, en var áður með Sporting.
Oliveira tekur við af Nelo Vingada
sem tók við liðinu tímabundið af
Carlos Queiros, sem hætti í desem-
ber og gerðist þjálfari hjá Sporting.
■ JOZSEF Verebes er hættur
sem þjálfari ungverska landsliðsins
í knattspymu eftir slakt gengi liðs-
ins í vináttuleikjum að undanfömu.
Ekki hefur verið ákveðið hver tekur
við þjálfun landsliðsins.
■ SILKEBORGv arð á sunnudag-
inn danskur meistari í knattspyrnu
í fyrsta sinn í sögu félagsins. En
þjálfari liðsins er enginn annar en
Sviinn Bo Johannsson, sem var
landsliðsþjálfari íslands fyrir
nokkmm ámm. Silkeborg vann
AaB á heimavelli 2:0, en á sama
tíma tapaði hitt toppliðið FC Kaup-
mannahöfn fyrir OB 2:3.
■ 2.000 Búígarir hafa sótt um
vegabréfsáritun til Bandaríkjanna
vegna HM, en aðeins 400 hafa feng-
ið áritun. Sömu sögu er að segja
um Rúmena, en aðeins nokkur
hundrað hafa fengið áritun. 2.000
Nígerímenn hafa sótt um að kom-
ast frá Lagos, en aðeins 150 hafa
fengið áritun. Það má því segja að
færri komast til Bandaríkjanna en
vilja til að sjá HM.
■ THOMAS Strunz, miðvallar-
leikmaður Þjóðveija, verður ekki
með í opnunarleiknum gegn Bóliviu
í Chicago 17. júní vegna meiðsla
sem hann hlaut í æfingaleik gegn
Kanada í síðustu viku. „Ég reiknað
með að verða orðinn góður fyrir
fyrsta leik, en nú stefni ég á leikinn
gegn Spánveijum 21. júní,“ sagði
Strunz. Talið er líklegt að Mario
Basler frá Bremen taki stöðu hans
á miðjunni gegn Bólivíu.
■ GUIDO Buchwald, fyrirliði
Stuttgart, hefur einnig verið
meiddur en æfði með liðinu um
helgina í Alliston í Torontó í
Kanada þar sem liðið hefur undir-
búið sig fyrir átökin sem framundan
em. Hann verður því væntalega til-
búinn í slaginn á föstudaginn og
eins þeir Thomas Haessler og
Jiirgen Kholer, sem meiddust í
leiknum gegn Kanada.
HANDKNATTLEIKUR / EVROPUMOTIÐ I PORTUGAL
Svíar tóku Rússana í
kennslustund í Porto
SVÍAR tóku Rússa í kennslu-
stund í handknattleik í úrslita-
leik Evrópumóts landsliða sem
lauk í Portúgal á sunnudaginn.
Svíar unnu með hreint ótrúleg-
um mun, 34:21. Þeir léku frá-
bæran varnarleik og Tomas
Svensson, markvörður, var í
banastuði og nánast lokaði
markinu. Króatar sigruðu Dani
í leik um bronsverðlaunin,
24:23.
Svíar höfðu leikinn í hendi sér frá
fyrstu mínútu. Rússar skorðu
fyrsta mark sitt eftir 7,25 mínútur
en þá höfðu Svíar gert fimm mörk
og komust síðan í 13:5 og staðan í
hálfleik var 18:9. Tomas Svensson
fór á kostum í markinu og varði alls
15 skot í hálfleiknum, þar af 4 víta-
köst. Það gekk allt upp og sóknarnýt-
ing Svía í hálfleiknum var yfir 70
prósent.
Síðari hálfleikur var aldrei spenn-
andí því úrslitin vom ráðin og Rúss-
ar búnir að sætta sig við tapið. Að
sögn Þorbergs Aðalsteinssonar,
landsliðaþjálfara, sem fylgdist með
keppninni, léku Svíar sína hefð-
bundnu 6-0 vöm sem var eins og
múrveggur. „Rússar áttu aldrei
möguleika. Þessi sigur sýnir og sann-
ar að Bengt Johansson, þjálfari Svía,
hafði rétt fyrir sér að velja þessa
eldri og reyndari leikmenn í liðið, en
heimafyrir var hann hart gagnrýndur
fyrir að gefa yngri leikmönnum ekki
möguleika. Nú kemur hann til Sví-
þjóðar með enn einn titilinn og þagg-
ar niður í öllum óánægju röddun-
um,“ sagði Þorbergur.
Erik Hajas var markahæstur í lið-
ið Svía með 8 mörk, Per Carlén,
Magnus Wislander og Staffan Olsson
5 mörk hver, Stefan Lövgren 4, Pi-
erre Thorsson 23, Magnus Anderson
3/1 og Robert Anderson 1. Vasilij
Kudinov var besti leikmaður Rússa,
gerði 9 mörk, Valeiji Gopin 5, Oleg
Grebnev 2, Dimitrij Torgovanov 2,
Igor Vasiljev 2 og Dmitrij Karlov 1.
Danir komu mjög á óvart í keppn-
inn með því að komast í undanúrslit
með sitt unga og óreynda lið. Þeir
vom yfir í 57 mínútur í leiknum um
3. sætið við Króatíu, 13:12, yfir í
hálfleik, en misstu unninn leik niður
í lokin og töpuðu með eins marks
mun, 23:24.
A-riðill
Þorbergur sagði að Rússar hafi
verið með yfirburðarlið í A-riðli. „Þeir
léku góða vöm og byggðu síðan á
hraðaupphlaupum. Kudinov var
þeirra besti maður. Ef frá er talinn
úrslitaleikurinn Iéku þeir mjög agað.
Það var einhver deyfð yfir Frökk-
um og þeir náðu aldrei sið sýna sitt
rétta andlit. Það var einhver óánægja
Reuter
Magnus Wislander lék vel með Svíum og skoraði fimm mörk gegn Rússum. Hér sækir hann að marki Rússa, en
Oleg Kiselev er til vamar.
á milli leikmanna og þjálfarans og
það sást á leik þeirra.
Þýskaland olli vonbrigðum. Þjóð-
verjar hafa alltaf átt góða markverði
og spilað grimma vöm, en nú léku
þeir illa bæði í vöm og sókn og
markvarslan var slök að sama skapi
hjá þeim Stefan Hecker og Holpert.
Rúmenar em að byggja upp nýtt
lið og ég held að það eigi framtíðina
fyrir sér. Þeir em með fjóra leikmenn
sem era yfir tveir metrar á hæð og
flóra um 1,95 á hæð. Þeir gætu orð-
ið erfiðir f HM á íslandi.
Króatar em sterkir þó svo að besti
leikmaður þeirra, Puc, hafi ekki ver-
ið í toppæfingu. Eins vantaði aðal
Ieikstjómanda liðsins og því tel ég
það gott hjá þeim að enda í þriðja
sæti.
Hvít-Rússar léku vel þangað til
þeir vom öryggir með sæti á HM á
Islandi, eftir það var eins og áhuga-
leysi gripi um sig. Þeir vom greini-
lega sáttir við að vera komnir með
farseðilinn til íslands."
B-riðM
Þorbergur sagði að svipað hafi
verið upp á teningnum í B-riðli, Svíar
vom þar með sömu yfirburði og
Rússar í A-riðli. „Svíar em gríð-
arlega sterkir. Þeir em búnir að
keyra næstum á sama liðinu í 8 ár,
eða frá því á HM í Sviss 1986. Núna
vora þeir með sjö leikmenn sem léku
í Sviss. Þeir em allir tilbúnir að vera
áfram í landsliðinu fram yfir Ólymp-
íuleika í Atlanta 1996 og sönnuðu
að þeir em til alls liklegir þar.
Spánveijar náðu sér ekki á strik
og vom ekki eins sannfærandi og
oft áður. Rico markvörður er greini-
lega farinn að dala. Þó að Spánveij-
ar séu með gott lið á papímum, ná
þeir aldrei árangri í stórmótum.
Danir komu mjög á óvart í keppn-
inni. Þeir em með ungt lið og það
er greinilega kominn sænskur blær
á leik liðsins eftir að sænski þjálfar-
inn Uif Schefvert tók við. Besti leik-
maður liðsins í keppninni var Jan
Jörgensen og eins kom ung skytta,
Flemming Petersen, mjög vel út. Ég
spái því að þeir geti gert góða hluti
á HM á íslandi.
Ungveijar vom slakir og eiga
langt i land. Þeir em frekar lágvaxn-
ir og eini leikmaðurinn sem sýndi
góða leiki var József Éles.
Portúgalir þoldu ekki pressuna á
heimavelli. Þeir þurftu aðeins að
vinna einn leik til að tiyggja sér
sæti á HM hér á landi, en það tókst
ekki. Þeir æfðu mjög stíft fyrir mót-
ið og kannski var álagið of mikið.
Ég hefði viljað sjá Portúgal hér á
íslandi því handboltinn er mjög vin-
sæll þar.
Slóvenía er ekki með gott lið og
ég hef ekki trú á því að það geri
stóra hluti á HM,“ sagði Þorbergur.
GOLF
ÚMar áljándi íÁlaborg
Ufar Jónsson varð í 18. sæti á
golfmóti sem fram fór skammt
frá Álaborg í Danmörku um helgina.
Úlfar lék á pari vallarins, 216 högg-
um (73-72-71) en Svii sigraði á 7
höggum undir pari eftir bráðabana.
„Þetta gekk ágætlega. Ég rétt
komst í gegnum niðurskurðinn eftir
tvo daga, það þurfti að leika á tveim-
ur yfír til að komast áfram og síð-
ustu sex holurnar lék ég á þremur
undir þannig að ég slapp í gegn.
Pútterinn minn fór í gang einmitt
þegar á þurfti að halda," sagði Úlfar
í samtali við Morgunblaðið í gær.
Völlurinn er 6.400 metra langur
og erfíðleikastuðullinn er 74. „Það
var ein par sex hola á vellinum, en
við vomm látnir spila af kvennateign-
um þannig að holan var aðeins 550
metra löng og par fimm.“
Úlfar hefur nóg að gera því á föstu-
dag hefst annað mót sem stendur
fram á sunnudag og síðan hefst úr-
tökumót á þriðjudaginn. Úlfar þarf
að taka þátt í því og verður að kom-
ast í eitt af 60 efstu sætunum til að
fá rétt til að leika áfram á sænsku
mótaröðinni.
„Fyrsta árið er mjög erfitt í þess-
ari mótaröð en síðan segja Svíamir
að það sé erfitt að detta út af listan-
um sé maður einu sinni kominn inn
á hann. Ég verð að fara í þetta úr-
tökumót þó svo mér hafí gengið
ágætlega hingað til. Til að vera ör-
uggur á þessum mótum þarf maður
að vera meðlimur í sænska PGA og
vera á topp 50 peningalistanum, en
á honum era allir Svíar, líka þeir 25
sem leika á Evrópumótaröðinni, eins
og Anders Forsbrand og félagar.
Ég verð trúlega í vondum málum
ef ég kemst ekki áfram í úrtökumót-
inu, en þar verða um 300 keppend-
ur. Komist ég hins vegar áfram er
ég trúlega kominn með skýrteini fyr-
ir næsta ár ef ég hef áhuga á því.
Ég hef spilað ágætlega að undan-
fömu og ætti því að komast áfram
en maður veit aldrei hvað gerist á
svona úrtökumótum," sagði Úlfar.
Ragnarvelur
landsliðið
RAGNAR Ólafsson, landsliðsein-
valdur í golfi, valdi um helgina ungl-
ingalandsliðið, skipað leikmönnum
19-21 árs, sem tekur þátt í Evrópu-
keppni í Esbjerg 6.-10. júlí.
Þrír efstu kylfmgamir úr þremur
stigamótum sumamins eru í hópnum
en þeir eru Þórður Emil Ólafsson
úr Leyni (með 150 stig) og Akur-
eyringamir Sigurpáll G. Sveinsson
(107 stig) og Öm Amarsson (104
stig). Ragnar valdi síðan tvo þá
næstu úr stigamótunum, Vilhjálm
Ingibergsson úr NK (97 stig) og
Tómas Jónsson úr GKj (96 stig).
Sjötti maður inn er síðan Tryggvi
Pétursson úr GR (84 stig), sem var
í áttunda sæti eftir stigamótin þrjú.