Morgunblaðið - 09.07.1994, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 09.07.1994, Blaðsíða 12
12 LAUGARDAGUR 9. JÚLÍ 1994 MORGUNBLAÐIÐ NEYTEIMDUR Sérhæft fyrirtæki í grænmetisréttum Uppskrift vikunnar Morgunblaðið/Árni Sæberg FRÍÐA og Júlía að undirbúa rétt dagsins. Að borða Engjaþykkni er eins og að borða ís HNETULASAGNA, sveppabuff og grænmetispaté. Þetta er ekki þessi sígildi bakkamatur með venjulegum heimilismat á við ýsu eða raspaðar kótilettur. Um er að ræða grænmet- isfæði sem Grænt og gómsætt framleiðir en það er nýtt fyrirtæki sem sérhæfir sig í grænmetisréttum og sendir bakka með tilbúnum rétt- um í fyrirtæki í hádeginu. Það eru þær Fríða Sophia Böð- varsdóttir sem lengi sá um veiting- ar á Listasafni íslands og Júlía Sig- urðardóttir sem reka fyrirtækið. Fríða sér um eldamennskuna en Júlía um rekstur fyrirtækisins. Fríða hefur sjálf verið á grænmetis- fæði í níu ár og segist hafa lært mest af því að fikra sig áfram. Hún hefur kennt í Heilsuskólanum, kvöldskóla Kópavogs og skrifað greinar um grænmetisrétti í Gest- gjafann. En hvað ætla þær að bjóða viðskiptavinum sínum uppá í hádeg- inu? „Uppskriftirnar bý ég margar hveijar til sjálf. Ég hef lengi haft áhuga fýrir íslenskum villijurtum og villisveppum og hvorutveggja nota ég mikið við matargerðina,“ segir Fríða. „Þetta er alveg fullkom- in máltíð sem við erum að bjóða uppá í hádeginu, aðalréttur með grænmeti, heimabökuðu brauði, sósu og salati. Það verður ýmislegt á matarbökkunum, bökur, paté, buff, pottréttir og pasta. í framtíð- inni mun eftirréttur einnig vera með matnum á föstudögum." Fríða segir að þetta sé hitaein- ingasnautt fæði og próteinríkt. Vikulega kemur nýr matseðill hjá þeim og í hádeginu sjá þær um að koma bökkunum á staðinn, þeir eru pantaðir að morgni og kosta 490 krónur á mann nema ef fleiri en þrír taka sig saman þá kostar hann 450 krónur. Auk þess sem Grænt og gómsætt verður með bakkamat fyrir fyrirtæki þá eru Fríða og Júl- ía að þróa tilbúna grænmetisrétti sem á að selja í verslunum og þær hyggjast einnig bjóða upp á veislu- þjónustu fyrir þá sem þann kost kjósa þegar eitthvað stendur til. Grænt og gómsætt er til húsa í Kópavoginum að Dalvegi 24 á sama stað og Afbragðssamlokur. Að lakka tölur ÞAÐ getur verið hvimleitt að fara út í fyrsta sinn í nýrri flík, og koma svo heim og uppgötva að það vant- ar tölu. Talan er týnd einhvers stað- ar í bænum og engin ráð að finna nýja. Hjá þessu er hægt að komast með því að lakka með glæru nagla- lakki yfir saumana á tölunni bæði að utan og innan um leið og flíkin er tekin upp úr innkaupapokanum. Þannig helst talan á jafnvel í þvotti. Linsubaunaspaghettí Linsubaunaspaghetti Fríða ætlar að gefa lesendum uppskrift af linsubaunaspaghettí sem hún segir að sé mjög góður en auðveldur réttur. Puylinsubaunir eru litlar, grænar og mjög bragðgóðar linsubaunir sem tilvaldar eru í allskyns pott- rétti. Með þessum rétti er tilvalið að hafa hvítlauksbrauð og ferskt salat. 300 g heilhveitispaghettí eða __________onnað pastg___________ ____________1 msk. olía_________ __________1 tsk. picanta________ _________150g linsubaunir_______ ___________1 rauðlaukur_________ __________2 hvítlauksrif________ 1 msk. smjör ________1 msk. olía______ 'h dós tómatar í dós eða 6 fullþroskaðir tómator 2 msk. soyasósa 1 msk. súrsæl sósa _______1 tsk. sinnep_____ ______1 tsk. hunang______ _____1 tsk. baselíkum____ 1 msk. tómatpúrra 1 tsk. grænmetissalt ‘Atsk. rósapipar 2 msk. maisenamjöl 2 msk. rjómaostur 1 dl rjómi 2 dl vatn Sjóðið spaghettí en athugið að rétt- urinn er borinn fram um leið og spaghettíið er soðið. Sigtið og skolið baunir fyrir og eft- ir suðu. Sjóðið þær við vægan hita í 20-30 mínútur. Léttsteikið lauk upp úr olíu og smjörí við vægan hita í 3 mínútur. Afhýðið hvítlauk, saxið hann smátt og bætið honum saman við. Setjið tómata í dós í blandara, hrærið þar til þeir eru orðnir að mauki og bætið þeim sam- an við ásamt 2 dl af vatni. Kryddið réttinn með tilheyrandi kryddi, bætið rjómaosti við og látið leysast upp við vægan hita. Að síðustu bætið þið ijóma sam- an við og þykkið með maisenamjöli. EF MJÓLKURVARA er kölluð þykkni, t.d. Engjaþykkni eða Þykkmjólk er yfirleitt um að ræða vörur sem innihalda ijóma. Laufey Steingrimsdóttir for- stöðumaður Manneldisráðs segir að vörurnar séu bæði svo feitar og sætar að fólk gæti eins borðað góðan ábætisrétt. Það væri leitt að fólk sem héldi í við sig í mat, borðaði þykkni í góðri trú um að um venjulegan og hollan morgunmat sé að ræða. Vörurnar eru markaðsettar eins og venjulegur morgunmat- ur, en fólk áttar sig oft ekki á að til eru aðrar sýrðar mjólkur- vörur sem eru mun heppilegri og hollari en þykknivörurnar. BÚIÐ er að loka fyrir innflutning á kartöflum nema gegn sérstökum leyfum sem verða veitt fyrirfram. Vegna góðrar tíðar að undan- förnu er búist við að innlendar kart- öflur komi til sölu eftir tvær vikur og búist er við að fljótlega upp úr því muni framleiðendur hér heima anna eftirspum. Mikill innflutning- ur hefur verið undanfarnar vikur og þvl töluvert til af kartöflum auk þess sem nokkuð er á leið til lands- ins. Eftir sem áður verður heimilt að Laufey segir að furðu sæti hve mikið sé framleitt af mjólkurvör- um með miklum sykri eða öðrum sætuefnum. Þó að framleitt sé Iéttjógúrt úr léttmjólk þá verði margir fyrir vonbrigðum af sæt- unni sem er í vörunni. Annars er til ýmislegt ósætt eins og súr- mjólk, sýrð léttmjólk og hrein jógúrt sem er með venjulegt fitu- innihald og hefur alltaf staðið fyrir sínu. Það er mikið úrval af mjólkurvörum og ef fólk vill rýna í merkingar á umbúðum mjólkur- vara og íhuga næringarinnihald þá ættu flestir geta fundið eitt- hvað við sitt hæfi, sem hægt er að borða daglega og er ekki eins og feitur sparimatur. flytja til landsins bökunarkartöflur en þær verða að vera 60 mm eða stærri. Í fréttatilkynningu frá land- búnaðarráðuneytinu kemur fram að á síðasta hausti voru innfluttar kartölfur boðnar til sölu löngu eftir að innflutningi lauk, en skv. bú- vörulögum á innlend framleiðsla að hafa forgang á markaði þegar hún er til. Þeir sem hafa hug á að sækja um frekari innflutning eiga að snúa sér til ráðuneytisins og verða um- sóknir afgreiddar vikulega. Minna borðað af súkkulaði í hitanum í BLÍÐSKAPARVEÐRINU sem ríkt hefur að undanförnu virðist fólk ekki vera eins hrifið af að borða súkkulaði, en það segir Gísli Halldórsson eigandi sjoppunar Mekka sem er í Borgarkringlunni. „Eftir að veðrið varð svona gott hefur lítið farið út af súkkulaði og af þyngra sælgæti eins og lakkrís. Hins vegar hafa svaladiykkir, gos, djús og ís rokselst. Kannski langar fólk ekki í súkkulaði í hita. Kókos- bollur hreyfast ekki í sölu. En snakkvörunar seljast alltaf jafn- mikið. Ég hef verið hér í sjoppu- rekstri í sex ár og aldrei orðið var við jafn miklar sveiflur og nú. Börnin fá sér samt sem áður alltaf jafnmikið af blandi í poka, og ekk- erí breytir þeirra venjum". Stofublóm verða ljót af of mikilli næringu HVAÐ gerist ef við gefum stofublómunum of mikla næringu? Blaðamaður Neytendasíðunnar hringdi I Blómaval til að leita svara við þessu. Lára Jónsdóttir garðyrkjufræðingur í Blómaval sagði að ef of sterk blanda væri gefin t.d. í þurra mold, gætu rætur plantanna sviðnað, og brúnir blettir mynduðust á blöðin. Ef fólk tæki ekki eftir breytingunum og héldi áfram að gefa of mikinn áburð gætu plönturnar drepist. Ann- ars er hægt að bjarga blómunum með því að hætta að gefa áburð í einhvern tíma eða að láta volgt vatn renna í gegnum moldina og skola hana. Það er misjafnt hvernig blómin bregðast við of miklum áburði, blóm geta hætt að blómstra, og fara að vaxa kynlausum blaðavexti. Plöntur verða oft ljótar og grænmetisplöntur, eins og tómatplantan, geta borið minni tómata. Á mesta vaxtartímanum er áburður nauðsyn- legur fyrir plöntur þegar birta tekur í febrúar, og til október. Vegna meiri vaxtar í birtu þurfa BLÓMSTRANDI pottaplöntur geta hætt að blómstra ef þau fá of mikla næringu. plöntur sem eru í góðu ljósi, t.d. í glugga, meiri áburð en plöntur í skugga. Misjafnt er hvað plöntur þurfa mikinn áburð, en best er að fylgja leiðbeiningum á umbúðunum. Ef planta er ný umpottuð skal ekki gefa áburð, a.m.k. ekki fyrst um sinn þar sem gnótt er af næringu fyrir. Búið að loka fyrir mnflutning á kartöflum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.