Morgunblaðið - 09.07.1994, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 09.07.1994, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. JÚLÍ 1994 25 Í____________ ' SVEA MARÍA NORMANN + Hún var fædd á ísafirði 23. nóv- ember 1917. Hún a lést í Vestmanna- eyjum 26. júní síð- astliðinn á 77. ald- j ursári. Hún var dóttir Vilborgar Jakobsdóttur frá ísafirði og Sven Normann, vega- verkfræðings frá Svíþjóð, sem bjó á Akureyri. Hún átti tvö alsystkini, í Betty Olgu, búsetta í Reykjavík og Karl . Jóhann sem er látinn, en hann i flutti ungur til Bandaríkjanna. Svea ólst upp frá fimm ára aldri hjá hjónunum Margréti Arnadóttur og Hallgrími Kristjánssyni á Grímsstöðum við Hjalteyri í Eyjafirði, en Hallgrímur stundaði sjósókn með búskapnum. Svea átti tvær uppeldissystur, Sigríði Eiríksdóttur, búsetta á Akur- eyri, og Jónínu Jónsdóttur, á búsetta í Eyjafirði. 14 ára fer Svea til Akureyrar að læra að sauma. Eftir það fer hún í vist hjá Oddi Thorarensen lyfsala. Til Vestmannaeyja ræður hún sig í vist á 18. ári þjá Páli Þorbjörnssyni skipstjóra og síðan hjá Siguijóni Sigur- björnssyni tollara. Hinn 17. desember 1938 giftist hún Bergsteini Jónassyni hafnar- verði. Stofnuðu þau heimili i ( austurendanum á Múla, flytja þaðan að Litla-Bæ og þaðan að Múla sem varð heimili þeirra allt fram að gosi, þar sem þau urðu að flýja eins og aðrir Vestmannaeyingar. Svea og Bergsteinn eignuðust sex börn, fjögur komust til fullorð- insára, auk þess sem þau ólu { upp frá fimm ára aldri Krist- | ínu barnabarn sitt. Börn þeirra eru: 1. Kjartan Þór, f. 1938. * Hans börn og Ingibjargar And- ersens eru Kristín og Knútur. Kona Kjartans er Amdís Egils- son, þau eiga Amdísi Maríu og Kjarlan Þór og kjördóttur, Kolbrúnu. Auk þess ól hann upp dætur Arndísar, Helen og Vilborgu; 2. Margrét Ilalla, f. 1941. Henn- ar maður var Sigur- geir Sigurjónsson, nýlátinn. Þeirra dóttir er Svea Soffía; 3. Jónas, f. 1948. Hans kona er Þór- hildur Oskarsdóttir, þau eiga þrjú börn: Bergstein, Örlyg Þór og Hildi; 4. Vilborg Betty er yngst, f. 1950. Hún er ógift og barnlaus. Útför Sveu fer fram frá Landakirkju í Vest- mannaeyjum í dag. LÁT vinkonu okkar Sveu Maríu Normann bar frekar brátt að, þó við því hefði kannski mátt búast. Það er alltaf sárt að sjá á eftir vinum sínum, sem á ævikveldi ættu að fá að njóta lífsins, en verða í stað þess rúnir heilsu og þreki. Sveu og manni hennar Berg- steini Jónassyni kynntumst við hjónin, þegar við ung að aldri flutt- um til Vestmannaeyja. Þau voru fyrsta fólkið, sem við kynntumst í Eyjum og reyndust okkur alltaf sem sannir vinir. Þau hjálpuðu okkur að flytja og sáu um að við gengjum í Iþróttafélagið Þór. En það var stórt mál í þá daga hvort fólk sem flutti til Evja lenti í Þór eða Tý. Á Múla var alltaf gott að koma, þar sem húsmóðirin réð ríkjum. Yfirleitt var þar þétt setinn bekkur í eldhúsinu hjá henni í morgun- kaffi og eftirmiðdagskaffi. Dáð- umst við að því mikla þreki sem hún og aðrar húsmæður höfðu á þessum árum við að gefa kaffi og með því alla daga. Það var aldrei friður, en heimsmálin, íþróttamál- in, og bæjarpólitíkin rædd fram og aftur oft við ótrúlegar rökræð- ur. Þau voru Þórsarar og Sjálf- stæðismenn fram í fingurgóma og vei þeim sem voru á öndverðum meiði. Steini maður hennar var hafnar- vörður, mikill og góður verkstjóri, sem sá um að allt væri í lagi niðri við bryggjur. Hafði hann aðeins einn mann sér til aðstoðar. Þá voru miklu meiri umsvif en nú, ÞORLÁKUR GUÐMUNDSSON + Þorlákur fæddist í Saurbæ í Fþ’ótum 22. júlí 1894. Hann lést á Siglufirði 5. júní síðastliðinn. Foreldrar hans voru Guðmundur Jóhannesson og Rósa Sigurðardóttir. Sjö nátta fór hann í fóstur vegna barnafjölda foreldra sinna, en | þau voru tólf. Fósturforeldrar hans voru Ingibjörg Sveins- dóttir og Hallgrímur Björnsson og ólst hann upp hjá þeim til fermingaraldurs. Eftir það vann hann ýmis störf í Fljótum, þar til hann flutti til Siglufjarð- ar árið 1912. Árið 1924 giftist hann Guðrúnu Jóhannesdóttur | og eignuðust þau tíu börn. Átta þeirra eru nú á lífi, en tveir synir þeirra drukknuðu ungir. ( Guðrún dó 1963 og árið 1967 gerist Þorlákur vistmaður á öldrunardeild Sjúkrahúss Siglufjarðar. Þorlákur var verkamaður alla sína tíð og vann á mörgum stöðum. Útför hans fór fram frá Siglufjarðar- kirkju 11. júní síðastliðinn. ^ AFI MINN mundi tímana tvenna, | því að hann var fæddur fyrir alda- j mót. Lífsbaráttan var hörð enda " fyrir tíu börnum að sjá. Duglegur var hann og einsetti sér að sjá fyr- ir sér og sínum alla tíð. í æsku var ég mikið hjá afa og ömmu en afa kynntist ég lítið. Hann var hljóðlát- ur maður og fáskiptinn. Vildi hann helst vera einn út af fyrir sig og sjálfum sér nógur. Það var ekki fyrr en 1981 að ég kynntist honum og mikil vinátta og traust myndað- ist á milli okkar. Er ég ævinlega þakklát fyrir að hafa fengið að njóta þeirra samvista við hann. Ern var afi og fylgdist ákaflega vel með öllu, þrátt fyrir að vera farinn að tapa heyrn og sjón í seinni tíð. Ævinlega sagði hann mér ein- hveijar nýjar fréttir, jafnvel utan úr heimi er ég heimsótti hann. Hafði hann líka gaman af að heyra frétt- ir allt til dauðadags. Mér er minnis- stætt þegar hann sagði mér rétt fyrir andlát sitt frá ferð sinni til Noregs með bátnum Hugo er hann var bátsmaður á. Hafði hann greini- lega mjög gaman af þeirri ferð. Eftir að hann hætti að vinna árið 1967 hefur hann beðið eftir að fara á fund Drottins síns. Þó sú bið reyndist löng hefur hún loks tekið enda. Þó að ég sakni hans sárt, veit ég að honum líður vel og langþráðu marki hans er náð. Elsku afi, Drottinn blessi þig og varðveiti. Guðfinna Ingimarsdóttir. MIIMNINGAR fleiri bátar og erfiðari aðstæður og unnið myrkranna á milli. Nú er öldin önnur og þarf heilt batterí í kringum mun minni umsvif. Starfi Steina fylgdi ótrúlegur erill og þau hjónin vakin upp um nætur hvenær sem á þurfti að halda. Var því Svea oft vansvefta á morgnana. stundum fór hún líka í fiskvinnu til að næla sér í aura til að geta gert ýmislegt fyrir sjálfa sig, heimilið eða börnin. Auk þess var ærið starf að hugsa um fjögur börn og fósturbarn, þvo, þrífa, baka, brasa, út á það gekk lífið í þá daga. Maturinn var ekki af skornum skammti, enda þurfti' húsbóndinn góðan og kjarnmikinn mat við svona mikla vinnu, að ótöldum pönnukökunum og alls konar bakstri. Frístundirnar voru því ekki mikl- ar í þá daga, staða húsmóðurinnar var í eldhúsinu, þar átti hún að una hag sínum. í stúku var hún til fjölda ára og með manni sínum í Iþróttafélag- inu Þór þar sem þau voru meðal máttarstólpa félagsins. Hún var í kvenfélaginu Líkn og sá um jóla- trésskemmtanir til margra ára, einnig í stjórn Samkomuhúss Vest- mannaeyja. Einnig munum við eftir því að falast var eftir að hún tæki sæti á lista Sjálfstæðisflokksins, en þar sagði hún þvert nei sem og marg- ar kynsystur hennar. Það var í lagi að vinna að framgangi flokks- ins, en fara á lista, það kom ekki til geina. Þegar þau eignuðust bíl, fóru þau í sumarfrí norður á hveiju ári. Var farið að heimsækja Diddu systur og hennar fjölskyldu og einnig farið í Mývatnssveitina að heimsækja frænkur Steina, Vil- borgu að Arnarvatni II, Ingibjörgu í Baldursheimi, auk Þóru á Sauðár- króki. Öllum þessum aðilum er þökkuð frændsemi og vinátta. Auðvitað skiptast á skin og skúrir í lífi manns og fór Svea ekki varhluta af því frekar en aðr- ir. En hún var ein af þessum þöglu hetjum þessa lands, sem stunda störf sín af kostgæfni. Árið 1973 urðu þáttaskil í lífi þeirra hjóna. Það fór að gjósa í Vestmannaeyjum og allir urðu að flýja upp á land. Þau hjónin komu sér fyrir að Reynigrund í Kópavogi ásamt Vilborgu dóttur sinni og fluttu ekki út í Eyjar aftur. Er þetta sá aldurshópur eða frá 50 ára og upp úr sem ekki treysti sér til að snúa aftur til Eyja. Þar sem allt var á kafi í vikri og húsin meira og minna skemmd, lái þeim hver sem vill, en okkur sem fluttum heim aftur, þótti sem mikið á vanta og söknuðum þessa fólks sárt. Um langan tíma vantaði heila kynslóð í bæjarlíf Vestmannaeyja. Auðvit- að komu þau árlega að heimsækja börnin sín og barnabörn, en þau búa hér öll nema Vilborg. Erfitt reyndist þeim hjónum og íjölskyldunni allri að fylgjast með veikindum og dauðastríði tengda- sonarins Sigurgeirs sem lést á síð- asta ári langt um aldur fram. Fyrir tveimur til þremur árum fór að bera á hrörnunarsjúkdómi hjá Sveu og átti hún oft erfiða SIG URBJÖRG • • * OGMUNDSDOTTIR + Sigurbjörg Og- mundsdóttir fæddist á Sauðár- króki 23. október 1907. Hún lést í Sjúkrahúsi Skag- firðinga á Sauðár- króki 29. júní sl. Foreldrar hennar voru hjónin Kristín Björg Pálsdóttir, f. í Gröf í Víðidal 15. apríl 1884, d. 17. ágúst 1942, og Ög- mundur Magnús- son söðlasmiður, f. á Brandaskarði á Skagaströnd 31. mars 1879, d. 9. ágúst 1968. Sigurbjörg gift- ist 23. janúar 1927 Svavari Guðmundssyni, skrifstofu- manni á Sauðárkróki, f. 5. des- ember 1905, d. 6. júní 1980. Móðir hans var Anna María Stefánsdóttir og faðir Guð- mundur Guðmundsson. Sigur- björg og Svavar eignuðust sjö börn. Þau eru: 1) Eymundur Stefán, f. 23. febrúar 1927, d. 3. júní 1927. 2) Ögmundur Ey- þór, f. 30. mars 1928, maki María Pétursdóttir, f. 11. nóv- ember 1927. 3) Ásdís, f. 24. febrúar 1931, d. 29. september 1988. Fyrri maður Ásdísar var Egill Halldórsson, f. 26. janúar 1928, seinni maður Gunnlaug- ur Sigurgeirsson, f. 14. apríl 1937. 4) Guðrún Ólöf, f. 14. júní 1932, maki Þorsteinn Vig- fússon, f. 31. júlí 1927. 5) Krist- ín Björg, f. 1. júlí 1933, maki Hjalti Guðmundsson, f. 13. júní 1929. 6) Sverrir, f. 24. nóvem- ber 1934, fyrri kona Ester Magnúsdóttir, f. 4. júní 1934, seinni kona Sverris er Sigrún Halldórsdóttir, f. 30. maí 1942. 7) Sigríður, f. 25. desember 1937, maki Birgir Þórðarson, f. 18. desember 1932. Afkom- endur Sigurbjargar voru orðn- ir 108 talsins er hún lést. Hún verður jarðsungin frá Sauðár- krókskirkju í dag. í DAG kveðjum við okkar elskulegu Sigurbjörgu Ögmundsdóttur sem lést hinn 29. júní síð- astliðinn. Ég kynntist Sigurbjörgu eða Sibbu ömmu eins og hún var oftast kölluð fyrir rúmu einu og hálfu ári síðan. Þá eignuðumst við Svavar dóttur okk- ar Helgu Dís sem er langömmubarn Sibbu. Á þeim tíma bjó ég ein með dóttur okkar Svavars í Kópavogin- um. Hún sendi mér svo fallega gjöf á sængina. í pakkanum var líka bréf með mynd af Sibbu sjálfri og Svavari sem tekin var á afmæli hennar þegar hún varð 85 ára. Ég hringdi strax í hana og þakk- aði henni fyrir gjöfma sem mér þótti svo vænt um að hafa fengið. Eftir það urðum við Sibba miklar vinkonur. Enda þótt aldursmunurinn væri mikill náðum við vel saman. Við töluðum saman í síma oft í viku. Við virtumst endalaust geta spjall- að saman. Heilu klukkutímarnir fóru í að ræða lífið og tilveruna. Mér þótti alltaf svo vænt um sam- band okkar, það var eitthvað svo sérstakt. Hún kenndi mér líka svo margt um lífið og að meta hlutina á annan hátt. En við hittumst að- eins einu sinni. Þá fórum við Svav- ar með syni Svavars, Svavar Orra og Guðmund Karl og svo dóttur okkar, Helgu Dís, í heimsókn á Krókinn. Það var ógleymanleg stund. Þá hittumst við Sibba í fyrsta sinn. Ég var svolítið feimin að hitta hana því ég hafði aðeins séð hana á mynd. En eftir að hafa hitt hana einu sinni fannst mér ég alltaf hafa þekkt hana. Hún tók svo vel á móti okkur, kyssti okkur og faðmaði að sér þannig að maður fann svo vel hlýjuna streyma frá henni. Þessi dagur var alveg yndisleg- ur. Við borðuðum mikið af kökum og alls kyns góðgæti sem hún hafði borið á borð. Það var sko ekki að sjá á henni að hún væri orðin 85 ára. Hún var svo ungleg og falleg, alltaf hress og kát. Við sátum öll daga. Svo fór að vegna velvilja Einars Vals yfirlæknis á sjúkra- húsi Vestmannaeyja komst hún inn á sjúkrahúsið. Er læknum og hjúkrunarfólki innilega þökkuð umhyggja og alúð í garð Sveu. Hér dvaldi Svea aðeins í nokkra mánuði, en henni hrakaði óðum þar til yfir lauk. Við þökkum henni samfylgdina og kveðjum kæra vinkonu með virðingu og þökk. Hvíli hún í friði. Sigurbjörg Axelsdóttir, Axel Ó. Lárusson. í dag kveðjum við elskulega ömmu og langömmu sem við eigum eftir að sakna mikið. Okkur langar að þakka henni fyrir allar góðu stundirnar sem við áttum saman á heimili sem alltaf stóð okkur opið. Elsku afi, Guð gefi þér styrk. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fyigi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Svea og Halla María. Elsku Svea frænka mín. Mig langar að þakka þér fyrir allar þær góðu stundir sem ég átti með þér. Þú varst mér alltaf svo góð. Þakka þér fyrir allt og allt. Minning þín mun lifa með mér um ókomin ár. Góður Guð geymi þig. Vilborg Arinbjarnar. og spjölluðum saman og skoðuðum myndir af fjölskyldunni og svo sýndi hún okkur allar fallegu mynd- irnar sem hún hafði saumað út. Hún Sibba var svo dugleg í höndun- um og bjó til fallega hluti. Þannig var heimilið hennar líka fallegt og hver og einn hlutur átti sína sögu sem hún sagði okkur frá. Elsku Sibba mín, ég vil kveðja þig með þessum fáu orðum. Minn- inguna um allt það fallega og góða sem þú kenndir mér geymi ég í huga mínum. Ég vil votta fjölskyldunni og mínum elskulega sambýlismanni Svavari mína dýpstu samúð á þess- ari erfiðu stundu. Guð blessi minn- ingu þína. Berglind Ólafsdóttir. Sibba amma mín er dáin. Með réttu var hún amma mín, þó svo að allir krakkarnir í hverfinu hafi kallað hana Sibbu ömmu. Það tók mig nokkurn tíma að skilja að hún var hálfgerð amma allra hinna barnanna, því alltaf var hún svo blíð og ljúf. Planið hjá ömmu og afa á Öldustígnum var lengi vel það eina sem var steypt í hverfinu og oft voru þar börn að hjóla og í öðrum leikjum. Svo að það er ekki skrýtið að hún þekktist varla undir öðru nafni en Sibba amma. Mér er minnisstætt atvik þegar ég var lítil stúlka, að vinur minn einn vildi endilega leika með mér, því ég átti Sibbu ömmu og Sibba amma bakaði svo góðar piparkök- ur. Þegar við svo fórum fyrir hana í sendiferðir beið hún eftir okkur með krónu, piparkökur eða eitthvað annað gómsætt. Strax í æsku kynntist ég góðvild og gjafmildi ömmu og ósjaldan stakk hún ein- hverju að strákunum mínum, og í gegn um mig og okkur öll á minn- ing hennar eftir að lifa áfram með þeim og öllum hinum afkomendum hennar. Með þessum orðum vil ég kveðja þig, elsku amma mín. Hvert örstutt spor var auðnuspor með þér, - hvert andartak er tafðir þú hjá mér var sólskinsstund og sæludraumur hár, minn sáttmáli við guð um þúsund ár. (Halldór Laxness) Elsku amma, hafðu þökk fyrir allt og allt. Jóna Hjaltadóttir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.