Morgunblaðið - 09.07.1994, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 09.07.1994, Blaðsíða 18
18 LAUGARDAGUR 9. JÚLÍ 1994 MORGUNBLAÐIÐ STOFNAÐ 1913 ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík. FRAMKVÆMDASTJÓRI: Haraldur Sveinsson. RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 691100. Auglýsingar: 691111. Askriftir: 691122. SÍMBRÉF: Ritstjórn 691329, frétt- ir 691181, íþróttir 691156, sérblöð 691222, auglýsingar 691110, skrif- stofa 681811, gjaldkeri 691115. Áskriftargjald 1.400 kr. á mánuði innan- lands. í lausasölu 125 kr. eintakið. Tenging’ ísk orkukerfi I SVEITARFÉLÖGIN VERÐA EINNIG AÐ TAKA SIG Á ÞAÐ SEM HELST ógnar hinum efnahagslega bata, sem farið er að örla á hér á landi, er hinn mikli hallarekstur ríkissjóðs á undanförnum árum. Er ljóst að ef ekkert verður að gert er hætta á að vaxtalækkanir undanfarinna mánaða verði skammgóður vermir. Opinber hallarekstur þýðir auðvitað ekkert annað en það að hið opinbera eyðir um efni fram og umframeyðsluna verð- ur að fjármagna með lántökum. Hin mikla lánsfjárþörf ríkis- ins á undanfömum árum hefur verið talin ein helsta skýring- in á því hversu hægt hefur gengið að lækka vaxtastig í land- inu. Ef sú lánsfjárþörf heldur áfram að aukast má búast við því að vextir fari að þokast upp á við á ný en það myndi slá á efnahagsbatann. Gagnrýnin á opinberan hallarekstur hefur til þessa fyrst og fremst beinst að ríkissjóði en minna hefur verið rætt um sveitarfélög. Það er hins vegar ekki síður mikilvægt að þau sýni ráðdeild og aðhald í rekstri sínum en hið opinbera. Þótt ekki sé um að ræða sömu upphæðir og hjá ríkissjóði er ekki óalgengt að hallareksturinn sé svipað hlutfall eða jafnvel hærra, ef miðað er við heildarveltu. Á fundi borgarstjómar sl. fimmtudag voru samþykktir reikningar borgarinnar fyrir síðasta ár en rekstrarhalli ársins 1993 hjá Reykjavíkurborg nam 2,5 milljörðum. Einnig skýrði Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri frá því á fundinum að útlit væri fyrir að halli á borgarsjóði Reykjavíkur verði 2,2 milljarðar króna á þessu ári, en fjárhagsáætlun ársins 1994 var á sínum tíma samþykkt með 859 króna halla. Margar ástæður eru fyrir því að halli þessa árs verður að öllum líkindum þetta mikið meiri en fjárhagsáætlun gerir ráð fyrir. Það sem af er árinu hefur borgarstjórn samþykkt auka- fjárveitingar að upphæð 754 milljónir; sú ákvörðun að hætta við að breyta SVR í hlutafélag þýðir að sala eigna skilar 300 m.kr. minna en ráðgert var, endurgreiðslur úr Atvinnutrygg- ingasjóði verða lfklega 200 m.kr. minni en búist var við og lokst verður að afgreiða aukafjárveitingu vegna vegagerðar og fjárhagsaðstoðar. Þegar em hafnar deilur milli meirihluta og minnihluta borgarstjórnar um það hver beri ábyrgð á því að hallinn á borgarsjóði er svo mikill sem raun ber vitni. Slíkt karp kann að þjóna pólitískum tilgangi en má ekki beina augum manna frá því sem máli skiptir. Reykjavíkurborg hefur á undanförnum árum varið miklum fjármunum til þess að halda uppi atvinnu í borginni enda hafa borgarfulltrúar allra flokka verið sammála um mikil- vægi þess. Að sama skapi hefur Reykjavíkurborg haft for- ystu varðandi ýmis félagsleg framfaramál. Um ágæti þess hefur heldur ekki verið deilt. Það er líka óumdeilanleg staðreynd að Reykjavíkurborg er stöndugt sveitarfélag og þolir aukna skuldabyrði. Hún getur hins vegar ekki frekar en önnur sveitarfélög eða ríkis- sjóður fjármagnað umframeyðslu sína endalaust með Iántök- um. Til að draga úr hallarekstri borgarsjóðs verður því annað- hvort að auka tekjur borgarinnar eða þá að mæta hallanum með niðurskurði. Raunar er ljóst, að ekki hefur verið gengið nægilega hart fram í því að draga úr útgjöldum hin síðari ár. í þessum efnum verður að gera sömu kröfur til Reykjavíkur- borgar og ríkisins. Það er þó langt frá því að Reykjavíkur- borg sé eina sveitarfélagið, sem rekið er með umtalsverðum halla. Sem annað dæmi má nefna Hafnarfjörð, en í síðasta mán- uði kom fram að rekstur þess sveitarfélags fór 876 milljónir króna fram úr tekjum á síðasta ári, samkvæmt reikningum bæjarins. Greiðir Hafnarfjörður nú 22% af tekjum sínum í afborganir og vexti af lánum. Fjölmörg svipuð dæmi er að fínna allt í kringum landið og því Ijóst að þegar upp er staðið nemur hinn opinberi halla- rekstur mun hærri upphæð en rekstrarhalli ríkissjóðs einn og sér gefur tilefni til að ætla. Það sama á líka við um rekstrarhalla ríkissjóðs og sveitarfélaga að hann verður að fjármagna með stórfelldum lántökum, sem halda uppi vaxta- stigi í landinu. Að lokum eru það líka skattgreiðendur, ein- staklingar jafnt sem fyrirtæki, er verða að fjármagna um- frameyðsluna. Það verður því ekki síður að gera þá kröfu til sveitarfélaga landsins en ríkisins að þau miði útgjöld sín við tekjur. Undanfarin ár hefur Landsvirkjun í samvinnu við sérfróða aðila unnið að athugunum á hag- kvæmni sæstrengs frá íslandi til Evrópu. Jóhannes Nordal skýrir hér fjögur grund- vallaratriði til þess að hægt að mynda sér rökstudda skoðun á þessu máli. NÝLEGA var undir- ritaður samningur milli Landsvirkjunar og Ice- net hópsins, sem stofn- aður var árið 1992 af Reykjavíkurborg og hollenskum fyrirtækj- um til að kanna hag- kvæmni sæstrengs milli íslands og Hollands og möguleika þess að byggja verksmiðju til framleiðslu slíkra strengja hér á íslandi. Hollensku fyrirtækin eru þijú. Tvö eru orku- fyrirtæki, EPON, sem er raforkuframleiðandi og NUON sem rekur veitur fyrir rafmagn, gas, heitt vatn, kalt vatn og kapalsjónvarp auk starfsemi á umhverfissviði. Þessi fyrirtæki hafa áhuga á orkukaupum frá íslandi vegna þeirrar stefnu sinnar að minnka framleiðslu gróðurhúsagasa í raforkuvinnslu og auka sölu á vist- vænni orku. Þriðja fyrirtækið er NKF Kabel, sem framleiðir flestar gerðir rafstrengja og rekur starf- semi í mörgum löndum. Það hefur áhuga á að kanna hvort hagkvæmt sé að reisa rafstrengjaverksmiðju á íslandi. Landsvirkjun hefur um nokkurra ára skeið unnið að athug- unum á hagkvæmni sæstrengs til Evrópu, og má þar sérstaklega nefna athuganir unnar fyrir Lands- virkjun af sæstrengjaframleiðand- anum Pirelli og síðan Vattenfall, systurfyrirtæki Landsvirkjunar í Svíþjóð. Ennfremur er nú í gangi samvinnuverkefni Landsvirkjunar og raforkufyrirtækis í Skotlandi (Scottish Hydro Electric), þar sem athuguð eru áhrifín af samtengingu á rekstur orkukerfa þessara tveggja landa. íslenskir aðilar hafa einnig rætt við rafveitu Hamborgar vegna mikils áhuga þar á raforkukaupum héðan. Hinn nýgerði samningur fjallar síðan um þátttöku Lands- virkjunar í framhaldi hagkvæmniat- hugunar á vegum Icenet, sem ljúka á um mitt næsta ár. Landsvirkjun væntir sér einkum góðs af sam- starfí við hina hollensku aðila vegna þekkingar þeirra á lögum og reglu- gerðum Evrónubandalagsins, þar sem búast má við mörgum úrlausn- arefnum. Þá er ekki síður mikils um vert að hafa samstarf við þá um könnun á raforkumarkaðnum og allt er varðar tengingar og sam- rekstur við raforkukerfí megin- landsins. í opinberum umræðum síðustu mánuði, hafa ýmsir fjallað um fyrirliggjandi hugmyndir um lagningu sæstrengs til Evrópu og sýnist sitt hveijum. Þær bráðbirgða- niðurstöður sem liggja fyrir benda þó eindregið til, að útflutningur raforku frá íslandi til Evrópu geti orðið viðskiptalega hagkvæmur ein- hvern tíma í framtíðinni, en þó varla fyrr en eftir miðjan næsta áratug. Hins vegar þarf að svara að minnsta kosti fjórum grundvall- ar spumingum áður en hægt er að mynda sér rökstudda skoðun á þessu máli. 1. Er tæknilega fram- kvæmanlegt og öruggt að leggja sæstreng svo langa leið og um það dýpi sem er milli íslands og næstu landa Evrópu? 2. Hvaða áhrif hefur það á rekstur íslenska raforkukerfísins og ör- yggi raforkunotenda á Islandi að tengja ísland við raforkukerfi megin- lands Evrópu? 3. Er rétt að stefna að því að flytja út hluta þeirrar raforku sem hægt er að framleiða, eða er skynsam- legra að geyma hana alla til eigin notkunar og uppbyggingar á iðnaði hér heima? 4. Er hér um svo stórbrotið við- fangsefni að ræða, að íslendingar verði nánast eins og nýlenduþjóð í höndum þeirra fjársterku aðila, sem að lagningu sæstrengsins þyrftu að standa? 1. Tæknimál Það er vissulega rétt, að mörgum úrlausnarefnum þarf að sinna áður en lagning sæstrengs héðan til Evr- ópu telst tæknilega fýsileg. Það er hins vegar skoðun allra færustu sérfræðinga sem til hefur verið leit- að, að þau séu leysanleg innan þess ramma sem tæknin setur okkur í dag og muni leysast á næstu árum í tengslum við önnur sæstrengs- verkefni sem eru á döfinni víðs veg- ar um heim. Þróun sæstrengja Áhugi á lagningu sæstrengja fer vaxandi og mikið fé er því lagt í þróun á þessu sviði af hálfu helstu framleiðenda. Kemur þetta t. d. fram í því hve ört flutningsgeta sæstrengja hefur vaxið á undan- fömum árum og er talið víst að sú þróun haldi áfram í framtíðinni (mynd 1). Telja margir að innan 10 ára muni sæstrengur með 1000 MW flutningsgetu ekki kosta meira en sæstrengur með 550 MW flutn- ingsgetu kostar í dag. Reynist þetta rétt mun það lækka verð á orku frá íslandi á meginlandi Evrópu um nálægt 20%. 2. Áhrif tengingar raforkukerfa Með lagningu sæstrengs er rofin einangrun íslenska raforkukerfísins og það tengist stóru blönduðu vatns- og varmaorkukerfi þar sem varaafl er verulegt. Margvísleg áhætta fylgir rekstri hins einangr- aða íslenska vatnsorkukerfis og henni verður að mæta með fjárfest- ingum í varaafli og orkuverum sem nægja í þurrustu vatnsárum, en nýtast'ekki að fullu í hinum vatns- Jóhannes Nordal NÝTT RAFORKUI MYND 2 - Byggt á hugmynd ABl ir orkumark ÞRÓUN SÆSTRENGJA MYND 1 - Þróun tæknilegrar flutningsgetu eins sæstrengs frá íslandi, í Megawöttum. ríkari. Það liggur nokkuð ljóst fyr- ir, að samtenging af þessu tagi, sem veitir aðgang að raforkumörkuðum Evrópu jafnt til sölu sem kaups, gæti stuðlað að hagkvæmari upp- byggingu og rekstri orkuöflunar- kerfísins en nú er, auk þess sem slík tenging felur í sér stóraukið öryggi í rekstri hins íslenska kerfis. Er jafnvel ástæða til að ætla, að Island verði álitlegri kostur fyrir staðsetningu nýs orkufreks iðnaðar, eftir að það er orðið hluti af hinu samtengda orkukerfí Evrópu. Jafn- framt má reikna með, að raforku- verð til stóriðju miðist eftir það við markaðsverð á orku eins og það birtist í viðskiptum gegnum sæ- streng. 3. Er ásættanlegt að selja raforku úr landi? Vafalaust eru allir sem að þessu máli koma sammála um það, að uppbygging arðbærs orkufreks iðn- aðar ætti að hafa forgang umfram beina sölu orku til útlanda, svo hún skili meiri tekjum í þjóðarbúið. Þar með er ekki sagt, að þessir tveir kostir útiloki hvor annan. Enn skortir markað fyrir 90% af þeirri vatns- og jarðvarmaorku sem hag- kvæmt er að beisla hér á landi. Nánast er óhugsandi að orkufrek ■

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.