Morgunblaðið - 09.07.1994, Blaðsíða 36
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN I 103 REYKJAVÍK
SÍMI 691100, SÍMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 3040 / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTl 85
LAUGARDAGUR 9. JÚLÍ 1994
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Skrifað undir samninga í gær um sölu á510 milljóna hlutafé í Samskipum
ÁTTA innlendir aðilar og einn
erlendur hafa í sameiningu keypt
hlutabréf í Samskipum að upphæð
510 milljónir króna. Landsbanki
íslands íjármagnar kaup innlendu
... aðilanna að hluta og er stefnt að
því að hlutafé fyrirtækisins í árslok
verði 800 til 900 milljónir króna.
Landsbankinn mun eiga áfram,
a.m.k. fyrst um sinn, 164 milljóna
króna hlut í fyrirtækinu, en ráðger-
ir að selja hann síðar meir. Áætlan-
ir gera ráð fyrir að taprekstur Sam-
skipa á þessu ári verði á milli 40
og 50 milljónir króna, en þegar á
næsta ári skili fyrirtækið a.m.k. 100
milljóna króna hagnaði.
Ótrúlegur léttir
Sverrir Hermannsson, banka-
stjóri Landsbanka íslands, sagði í
samtali við Morgunblaðið í gær:
„Það er ótrúlegur léttir fyrir Lands-
■" bankann að þetta skuli hafa gengið
fram. Þetta eru mikil tímamót og
gleðileg og ég vona að þetta verði
íslensku atvinnulífi til góðs. Ég hef
mikið traust á þeim aðilum sem
koma að máluin. Þetta eru öflugir
menn og þeim er full alvara. Lands-
bankinn kemst með sóma frá þessu
máli. Hann mun hvorki eiga mann
í stjórn fyrirtækisins né hafa nein
Níu fyrirtæki
kaupa hlutafé
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
SAMNINGAR um hlutafjárkaup nýrra eigenda Samskipa undir-
ritaðir í Landsbanka íslands eftir hádegi í gær.
afskipti af stjórn fyrirtækisins, eftir
að endurijármögnun er lokið.“
Ánægja með Bruno Bischoff
íslensku fyrirtækin sem hér um
ræðir eru Fóðurblandan, Samheiji,
Hagkaup, Vinnslustöðin, Vátrygg-
ingafélag íslands, Olíufélagið hf.
og Samvinnulífeyrissjóðurinn, með
samtals hlut upp á 350 milljónir
króna. Þá hafa stjórnendur Sam-
skipa skrifað sig fyrir allt að 15
milljóna króna hlut. Þýska fyrirtæk-
ið Bruno Bischoff leggur þegar
fram 85 milljónir króna og að öllum
líkindum aðrar 190 milljónir króna
fyrir árslok. Þá hefur Eignarhalds-
félag Alþýðubankans ákveðið, sam-
kvæmt upplýsingum Morgunblaðs-
ins, að kaupa 50 milljón króna hlut.
Er það gert með fyrirvara um sam-
þykki stjórnar.
Nýir eigendur vænta mikils af
samstarfi fyrirtækisins við Bruno
Bischoff og telja að með samvinnu
við það og dótturfyrirtæki þess,
Team Line, á milli hafna innan
Evrópu náist umtalsverð hagræðing
og tekjur fyrirtækisins aukist til
muna við það að geta selt sama
gámastæðið oftar en nú gerist.
■ Nýjú lífi blásið í Samskip/19
Gúmbát hvolfdi
Sjö menn
bjargast
úr Hvítá
GÚMMMÍBÁT með sjö
mönnum hvolfdi á Hvítá neð-
an við Gullfoss í gærkvöldi.
Einn mannanna náðist með-
vitundarlaus í iand eftir að
hafa misst tak á bátnum. Var
hann lífgaður við og hresstist
fljótt.
Þyrlan send
Hann var fluttur með þyrlu
Landhelgisgæslunnar á Borg-
arspítalann. Lenti þyrlan þar
um klukkan 23.30.
Tilkynning um slysið barst
lögreglunni á Selfossi um kl.
22 í gærkvöldi og var þyrla
Landhelgisgæslunnar þegar
kölluð út. Sex mannanna í
bátnum náðu að halda sér í
hann og náðust þeir allir í
land lítið meiddir.
Þorgeir & Ellert á Akranesi gjaldþrota
Nýtt hlutafélag
tekur brátt við
NÝTT HLUTAFÉLAG tekur við rekstri skipasmíðastöðvar Þorgeirs &
Ellerts á Akranesi innan skamms, eftir að samkomulag tókst við stærsta
kröfuhafann, Landsbanka íslands. Hörður Pálsson stjórnarformaður nýja
hlutafélagsins segir að gamla fyrirtækið fari að öllum líkindum í gjald-
þrot. Hann segir að allir rekstrarþættir verði teknir til endurskoðunar.
Hörður Pálsson sagði í samtali
við Morgunblaðið í gærkvöldi að
forsenda þess að hægt hafi verið
t að stofna hlutafélag um reksturinn
hafi verið kaup Akranesbæjar á
skipalyftu fyrirtækisins. Hann tók
fram að ekkert lægi enn fyrir um
hvernig fyrirtækíð yrði rekið. „Ný
stjórn mun taka alla þætti í rekstri
fyrirtækisins til endurskoðunar með
það í huga að reka fyrirtækið með
ágóða,“ sagði Hörður.
Langflestir haldi störfum
Stofnfé í nýja fyrirtækinu er 10
milljónir, sem er mest í eigu ein-
staklinga en bærinn á einnig lítinn
Þjóðvegurinn lokast
Arekstur
við Kotá
TVEIR bílar skullu saman á
brúnni yfir Kotá í Norðurárdal
um kvöldmatarleytið í gær.
Farþegi í öðrum bílnum
slasaðist og var fluttur á
sjúkrahúsið á Akureyri og
fimm aðrir slösuðust lítillega.
Að sögn lögreglu á Sauðár-
króki eru aðstæður mjög erfið-
ar við ána og lokaðist fyrir
alla umferð um tíma á þjóð-
vegi eitt. Á brúnni yfir Kotá
er aðeins ein akgrein og blint
beggja vegna frá þegar ekið
er að henni. Að mati lögregl-
unnar er þetta slysagildra.
hluta hlutafjár. Hörður segir að
stefnt sé að því að auka hlutafé í
30 milljónir með þátttöku bæj-
arbúa. „Við fórum út í þetta vegna
þess að við töldum það ekki á bæt-
andi fyrir atvinnulíf í bæjarfélaginu
að Þorgeir og Ellert hætti rekstri.
Þar hafa unnið um 80-90 starfs-
menn og við vonum að langflestir
þeirra haldi störfum," sagði Hörður.
Framkvæmdastjóri í nýja fyrir-
tækinu verður Þorgeir Jósefsson
viðskiptafræðingur, afabarn og al-
nafni stofnanda Þorgeirs og Ellerts.
í stjórn sitja ásamt Herði, Þórður
Þ. Þórðarson og Sveinn Knútsson.
Flugleiðir að stofna
flugfélag á Indlandi
FLUGLEIÐIR vinna nú að því í sam-
vinnu við indverskan auðjöfur að
stofna flugfélag á Indlandi, sem
nefnist Indotik Airways. Er gert ráð
fyrir að starfsemin geti jafnvei hafist
í október. Um verður að ræða áætl-
unarflug til alls um 11 áfangastaða
víða á Indlandi sem ein Boeing
737-300 og tvær Boeing 757 þotur
munu sinna.
Indverski fjármálamaðurinn
Ravi Tikkoo sem hefur sjálfur
bækistöðvar í London, fjármagnar
fyrirtækið en Flugleiðir leggja að
öðru leyti til alla þekkingú á sviði
flugrekstrar, viðhalds og stjómun-
Að sögn Sigurðar Helgasonar, for-
stjóra Flugleiða, eru ástæðurnar sem
Ravi Tikkoo gefur upp fyrir vali á
Flugleiðum sem samstarfsaðila ekki
síst þær að gott orð fer af félaginu
í öryggismálum, það sé fánaberinn
í íslenskum fiugmálum, einkarekið
og nógu smátt í sniðum til að vera
sveigjanlegt og snart í snúningum.
Flugfélag frá grunni
Pétur Eiríksson framkvæmda-
stjóri markaðssviðs Flugleiða segir
að í reynd séu Flugleiðir að aðstoða
indverska samstarfsaðilann við að
byggja upp flugfélag frá grunni.
Nokkur erlend flugfélög hafa reynt
að ná fótfestu á Indlandi en fæst eru
komin jafn langt og Flugleiðir. Á
Indlandi búa um 900 milljónir manna
og er indverski markaðurinn talinn
mjög álitlegur því þar er uppgangur
á mörgum sviðum. Er indverska
hagkerfið talið það hagkerfi heims
sem er í hvað örustum vexti næst á
eftir hinu kínverska.
Ravi Tikkoo hefur verið talinn
auðugasti Indveijinn sem búsettur
er í Bretlandi. Tikkoo er einnig í
samvinnu við Sölumiðstöð hraðfrysti-
húsanna um að byggja upp vinnslu
og veiðar á túnfiski á Indlandi.
■ Stofna Indotik Airways/11
Morgunblaðið/Árni Sæbcrg
Hundur
létti
róðurinn
ÞEIM Ými, Ingva og Öldu bætt-
ist óvenjulegur liðsauki í gær
er hundur þessi, sem enginn
vissi deili á, hugðist létta þeim
róðurinn í Nauthólsvíkinni.
Undirtektir viðstaddra, sem
biðu á bryggjunni, voru mjög
góðar en krakkarnir voru þátt-
takendur í ævintýranámskeiði
Þróttheima fyrir 10-12 ára
börn, sem lauk í gær að loknum
róðri og ratleik sem fylgdi í
kjölfanð.
■ Sumarið er tími barnanna/6