Morgunblaðið - 09.07.1994, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 9. JÚLÍ 1994 13
________NEYTENPUR_____
Skrúfaður áltappi
í stað korktappa
HLJÓÐIÐ sem fylgir því að
korktappi er dreginn úr vín-
flösku er yfírleitt merki um
að framundan sé góð stund.
Draumurinn getur breyst í
martröð ef vínið er skemmt,
en oftast stafar það af því að
bakteríur hafa komist í kork-
tappann og þaðan í vínið.
Vínsmakkarar tala um að vín
lykti eins og skítugt uppþvottavatn
eða mygla, ef það er skemmt eftir
sýktan korktappa. „Korkað" eins
og það heitir á fagmáli.
A flestum veitingastöðum er
þeim sem pantar vín gefinn kostur
á að smakka áður en hellt er í glös-
in. Þessi athöfn hefur stundum ver-
ið misskilin, því ætlunin er ekki að
viðskiptavinur athugi hvort honum
þyki tegundin góð eða vond, heldur
á hann að ganga úr skugga um að
vínið sé óskemmt.
í The European kemur fram að
4-5% víns skemmist vegna snert-
ingar við sýktan korktappa og
framleiðendur geti lítið annað gert
en látið óheppna kaupendur fá nýja
flösku í staðinn.
Samkvæmt sömu heimild hafa
sumir framleiðendur brugðið á það
ráð að tappa víni á flöskur með
skrúfuðum tappa í stað þess að
nota korktappa. Þeir eru sagðir al-
gerlega loftþéttir þannig að vín
geymist lengur ferskt í flösku. Ro-
ger Voss skrifaði nýlega grein um
þetta efni í The European og segist
hafa prófað vín sem annars vegar
var tappað á flösku með korktappa
og hins vegar með skrúfuðum
tappa.
Betra fyrir ung vín
„Ég var smakkaði án þess að
vita úr hvorri flöskunni vínið kom.
Þegar um var að ræða ung vín með
miklu ávaxtabragði, þ.e. vín sem á
að drekka ung, voru þau undan-
tekningarlaust betri úr flösku með
skrúfuðum tappa. Þyngri vín, sem
batna með aldrinum, eru hins vegar
betri úr flösku með korktappa, því
korktappi gefur víni tækifæri á að
þroskast í flöskunni."
Hann segir að ímynd léttvíns
muni breytast ef vínframleiðendur
fari allir að nota skrúfaða tappa í
stað gömlu korktappanna. í flugvél-
um eru litlar vínflöskur með skrúf-
uðum tappa alltaf á boðstólum, sé
vín boðið þar á annað borð. Haft
er eftir Peter Nixson framkvæmda-
stjóra breska flugfélagsins British
Airways að ástæðan sé einföld:
hagræðing. „Imyndaðu þér óreið-
una ef áhöfnin þyrfti til dæmis að
draga korktappa úr flöskum allra
farþeganna í klukkutíma löngu
flugi." Vínskríbent The European
lýsir óánægju sinni með skrúfaða
áltappa á vínflöskum, enda taki
þeir stóran hluta af þeirri ánægju
og rómantík sem fylgi þvi að drekka
vín.
Finnst korktappi gamaldags
Sumir vínframleiðendur í Frakk-
landi eru famir að nota skrúfaða
tappa á flöskur sínar, því þeim
finnst korktappi og tappatog vera
gamaldags og úr takt við tímann.
A síðasta ári setti t.d. Cháteau de
la Tuilerie borðvínin sín á
markað í flöskum með
skrúfuðum töppum.
Chantal Comte eigandi
fyrirtækisins heldur því
fram að ungt fólk í úti-
legu eða á strönd kæri sig ekkert
um umstangið sem fylgir því að
taka upp vínflösku með tappatog-
ara. Hún lætur tappa vínin sín á
hálfslítra flöskur í stað 750 cl sem
Eitt hundrað
þúsund flöskur af
léttvínum hennar
seldust á fyrstu sex
mánuðunum og
segir vínskríbent-
inn Roger Voss að
mörg kaffíhús í París og matsölu-
staðir í frönskum listasöfnum hafí
vín hennar nú á boðstólum. í versl-
unum ÁTVR eru seldar vínflöskur
með skrúfuðum töppum
og nú hefur Georges
Duboeuf í Beujolais í
Frakklandi hafið sölu á
750 cl flöskum með
skrúfuðum töppum. Þótt
korkur sé ekki heilagri en hvað
annað, hafa ýmsir áhyggjur af þess-
ari þróun og velta fyrir sér hvort
næsta skref verði það að tappa víni
á plastflöskur eða áldósir.
„Korktappar
geta stundum
skemmt vín.“
hingað til hefur
verið algengasta
stærð á vínflöskum.
„50 cl eru ehæfilegt
magn fyrir tvo sem
drekka vín með mat
og rétt magn í
flösku kemur í veg
fyrir að hluti víns-
ins fari til spillis."
Með þessu móti tel-
ur Chantal Comte
að hún komi til
móts við kröfur
nútímafólks um
sparneytni og auk
þess komi hún
áleiðis skilaboðum
um að vín sé best
í hófi.
Hlauparínn
Tímarit
fyrir
þíg
Ritstjóri:
Sigurður R Sigmimdsson.
Meðal eínis: Æfingaáæílanir fyrir þá sem
ætla að taka þátt í Reykjavíkurmaraþoni.
Til sölu í bókabúðum og blaðsölustöðum.
Áskriftarsími 91-657635.
r r
Vertu meö
- draumurinn gæti orðið að veruleika !
GRAFiSK HÖNNUN: MERKISMENN HF