Morgunblaðið - 09.07.1994, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
LAUGARDAGUR 9. JÚLÍ 1994 15
Viðræður um sameiningu Jemens
Reuter
STJORN Ali Abdullah Saleh,
forseta Norður-Jemens, herti
tak sitt á sunnanmönnum í gær,
eftir að Norður-Jemenar náðu
hafnarborginni Aden á sitt vald
á fimmtudag. Leiðtogar Suður-
Jemens, sem hafa nú flúið land,
hétu því engu að síður að halda
áfram baráttunni gegn
„hernámsmönnum". Stjórnin
vill að teknar verði upp viðræð-
ur um sameiningu Suður- og
Norður-Jemens. A myndmm
koma skriðdrekar Norður-Jem-
ena inn í hafnarborgina Aden á
fimmtudag en einn borgarbúa
gengur hjá með fötu til að sækja
sér vatn.
Archer
grunaður
um misferli
London. Reuter.
YFIRVÖLD dómsmála í Bretlandi
hyggjast kanna hvort breski stjórn-
málamaðurinn og rithöfundurinn
Jeffrey Archer hafi átt aðild að
svonefndum innhetjaviðskiptum í
tengslum við kaup á hlutabréfum í
Anglia-sjónvarpsfyrirtækinu.
John Major forsætisráðherra,
sem er náinn vinur Archers, stokk-
ar að líkindum upp í stjórn sinni á
næstunni og hefur Archer verið
talinn eiga kost á að verða ráðherra
þjóðararfleifðar er hefur umsjón
með ýmsum menningarstofnunum.
Archer vísar því harðlega á bug að
hann hafi misnotað aðstöðu sína í
verðbréfayiðskiptum. „Slíkar ásak-
anir varða við meiðyrðalöggjöfina",
sagði hann í samtali við blaðið The
Times..
Líklegur arftaki Thatshers
Archer var á sínum tíma talinn
líklegur arftaki Margaret Thatcher
í embætti leiðtoga breskra íhalds-
manna en þótti sýna dómgreindar-
leysi í viðbrögðum sínum er hann
varð fyrir fjárkúgun af hendi vænd-
iskonu og missti því af lestinni.
Hann hefur ritað margar met-
sölubækur og hafa nokkrar verið
kvikmyndaðar.
Réttarhöld yfir Varenníkov, einum af valdaræningjunum í Rússlandi
Moskvu. Reuter.
MÍKHAÍL Gorbatsjov, síðasti forseti
Sovétríkjanna, bar í gær vitni í rétt-
arhöldum yfir Valentín Varenníkov,
fyrrverandi aðstoðarvarnarmálaráð-
herra og hershöfðingja, sem var
ákærður fyrir aðild að valdaránstil-
rauninni árið 1991. Varenníkov not-
aði tækifærið til að storka Gorbatsj-
ov og egna hann til reiði.
„Þú ert lygari!" hrópaði Gorbatsj-
ov eitt sinn reiðilega og otaði fingri
að Varenníkov, sem reyndi að gera
vitnið að sakborningi.
Varenníkov, sem hafnaði sakar-
uppgjöf sem þingið veitti valdaráns-
mönnunum, las 33 langar spurning-
ar þar sem Gorbatsjov var lýst sem
manninum sem olli hrúni Sovétríkj-
anna, gerðist skósveinn Bandaríkj-
anna, sveik herinn í Afganistan,
o.s.frv..
„Hvers vegna svikari"
„Hefur þú samviskubit út af hruni
Föðurlandsins mikla?...Hvers vegna
vorum við, sem siguivegarar heims-
styrjaldarinnar síðari, neyddir til að
fara frá Þýskalandi og hvers vegna
settum við engin skilyrði? Hvers
vegna varðst þú svikari og þjóðníð-
ingur?“
Þetta eru dæmi um spurningar
hershöfðingjans og úrskurðað var
að 31 kæmi málinu ekki við.
Storkaði
Grorbatsjov
MÍKHAÍL Gorbatsjov, síðasti forseti Sovétríkjanna, ber vitni í
réttarhöldunum yfir Valentín Varenníkov hershöfðingja, sem
átti aðild að valdaránstilrauninni árið 1991.
„Ég sé að hér er allt gert til að
storka mér,“ sagði Gorbatsjov.
„Enginn okkar er úr leikskóla.“
Forsetinn fyrrverandi missti þó
nokkrum sinnum stjórn á skapi sínu
og kvartaði yfir því að komið væri
fram við hann eins og hann hafi
verið saksóttur en ekki Varenníkov.
„Þessa stundina ert þú vitnið og
þessa stundina er ég hinn ákærði,"
svaraði Varenníkov og lagði áherslu
á orðin „þessa stundina".
„Hvað meinar þú nákvæmlega
með valdaráni?" spurði hershöfðing-
inn nokkru síðar.
Tilgangslaus útskýring
„Ef þú getur ekki skilið það er
tilgangslaust fyrir mig að útskýra
það fyrir þér,“ svaraði Gorbatsjov.
„Ég bið þig að koma fram við
mig með virðingu, hætta þessum
árásum og svara spurningunum,"
sagði Varenníkov, sem virtist ætla
að taka að sér hlutverk dómarans.
Þetta er í fyrsta sinn sem Gorb-
atsjov og Varenníkov koma saman
frá valdaránstilrauninni árið 1991.
Hershöfðinginn var ánægður með
að fá tækifæri til að storka forsetan-
um. „Fyrsta samtalið frá því í bú-
staðnum," sagði hann. „Og hvílíkt
samtal.“
/í"
Akureyri
Mývatn
COMBhCAMP
x.
>
E
'O
I
D
V
o
a
CQ
D
£
'0
JZ
if)
-4-»
l/l
TJALDAÐ
Á 15
SEKÚNDUM
TITANhf
LÁGMÚLA 7
SÍMI 814077
Vaglaskógur - Siglufjörður
Sjábu
hlutina
í víbara
samhengi!
- kjarni málsins!
Trump kaup-
ir Empire
State
New York. Tlie Daily Telegraph.
BANDARÍSKI auðjöfurinn Donald
Trump hefur, í félagi við samsteypu
asískra og evrópskra fjárfesta,
keypt Empire State bygginguna í
New York. Kaupverðið var sem
nemur 2,8 milljörðum króna, og
segir Trump að samningur hans og
erlendu samsteypunnar hljóði upp
á jöfn skipti, en sjálfur verði hann
í forsvari nýja félagsins og sjái um
daglegan rekstur byggingarinnar.
Orðrómur hefur komist á kreik
um að hlutur Trumps í kaupunum
sé lítið annað en skálkaskjól. í raun
og veru sé verið að selja enn meira
af Bandarískum menningarverð-
mætum í hendur Japönum, sem nú
þegar eiga margar af þekktustu
byggingunum í Bandaríkjunum.
Útsölustaðir: Skóverslun Reykjavíkur, Laugavegi 95, RR skór, Krlnglurmi 8-12,
Skóbúðln, Keflavfk, Versl. Jón og Gunna, ís