Morgunblaðið - 09.07.1994, Page 22

Morgunblaðið - 09.07.1994, Page 22
LAUGARDAGUR 9. JUU 1994 MORGUNBLAÐIÐ JÓNKR. KRISTJÁNSSON + Jón Kr. Kristj- ánsson vélstjóri var fæddur í Hnífs- dal 5. desember 1942. Hann lést á Fjórðungssjúkra- húsinu á ísafirði 2. júlí síðastliðinn. Foreldrar hans voru hjónin Krist- ján Jónsson skóla- sljóri og Sigríður Ólöf Kjartansdóttir kennari. Tvíbura- bróðir Jóns er Krislján Sigurður, en önnur systkini eru Kjartan Bjami, Krisljana og Elísabet. Jón kvæntist Ingi- björgu Steinunni Einarsdóttur frá Isafirði 18. mars 1967 og eiga þau tvö börn, Björgu Aðal- heiði, f. 3. apríl 1969 og Krist- ján, f. 11. okt. 1972. Sambýlis- maður Bjargar er Einar Snorri Magnússon. Jón var háseti og vélstjóri á bátum frá Hnífsdal á árunum 1960-66, vann síðan i Vélsmiðjunni Þór á Isafirði til 1974, en eftir það var hann vélstjóri hjá Hraðfrystihúsinu Norðurtanganum hf. á Isafirði. Hann verður jarðsunginn frá Isafjarðarkapellu í dag. Jón er dáinn. Orðin verða að tónfalli sem berg- málar innra með okkur. Lífið minnir á sig með hverfulleika sínum. Og við erum aldrei tilbúin. Sársaukinn persónugerist, breið- ir úr sér yfir allt, hann deyfir okk- ur, við leitum eftir svari sem seint mun fást. Jón var maðurinn hennar Steinu frænku, pabbi Bjargar og Krist- jáns, hann var mikilvægur liður í hryggjarsúlu stórfjöl- skyldunnar frá Hlíðar- enda. Það fylgdi hon- um glaðværð, það fylgdi honum já- kvæðni, hann var hrók- ur alls fagnaðar. Hann jós stöðugt úr ríkuleg- um sagnabrunni sín- um, þar voru gam- ansögur bæði í bundnu máli og óbundnu, og hefur rithöfundurinn í fjölskyldunni tekið sumar þeirra til hand- argagns. Jón vildi hlægja menn, vildi að mannfólkinu liði vel í návist sinni, bæði börnum og fullorðnum. Hann var strákur í sér, sama á hvetju dundi. Tilveran var og er samofin þeim á Hjallavegi 16, aðeins steinsnar utar í götunni. Það var alltaf verið að hittast, tilefnin oft augljós, ef ekki, þá voru þau búin til. Og hefð- bundnir heimsóknartímar voru oft- ar en ekki látnir lönd og leið; ósjald- an birtust Jón og Steina undir lág- nættið, ekki síst á sumrin, og ævin- lega var glettnin í fyrirrúmi, stund- um í formi stríðni. Þá var hann að kanna viðbrögðin, sagði hann stundum, ekki síst hjá mágkonu sinni, sem fann kannski aðskotadýr úr gúmmíi á disknum sínum. Til- tæki hans lituðu samkomur Hlíðar- endafjölskyldunnar og framkölluðu mörg hlátrasköllin. í minningu barns situr framand- legur brúnn jeppi, Austin Gypsy, sem flutti fólkið oftar en ekki á milli staða í vetrarbyl. Og það hvíl- ir ævintýraljómi yfir brúðkaupi Jóns og Steinu — þau voru prins og prinsessa. Þegar þau voru að draga sig saman hafði Steina um tíma t Faðir okkar, sonur, stjúpsonur og bróðir, ÞORSTEINN EYVAR EYJÓLFSSON, Spóarima 1, Selfossi, lést þann 7. júlí. Atli Rúnar Þorsteinsson, Andrea Hanna Þorsteinsdóttir, Eyjólfur Arthúrsson, Hrefna Svava Þorsteinsdóttir, og systkini hins látna. t Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, INGA KRISTJÁNSDÓTTIR, Kirkjuvegi 11, Keflavík, er látin. Pétur Þórðarson, Erna Sigurbergsdóttir, Elín Þórðardóttir, Kristján Þórðarson, Guðbjörg Samúelsdóttir, Sigurjón Þórðarson, Guðfinna Arngrímsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Þökkum innilega samúð og vinarhug við andlát og útför eiginkonu minnar, móður, tengdamóður, og ömmu, JÓNÍNU ÓLAFAR SVEINSDÓTTUR, Vesturgötu 81, Akranesi. Sverrir Bjarnason, Ingveldur Sverrisdóttir, Þorvaldur Sigtryggsson, og barnabörn. t Þökkum samúð og vinarhug viö andlát og útför SIGURBJARGAR SIGHVATSDÓTTUR, Flókagötu 47, Reykjavík. Sérstakar þakkir til starfsfólks á deild 32A, Landspítala. Ragnheiður Þorkelsdóttir, Þórður Þorkelsson, Gyða Jónsdóttir, Guðmundur Kristinsson, Elin Ellertsdóttir, Kristín Lúðvíksdóttir. MINNINGAR herbergi hjá okkur að Smiðjugötu 9. Litlar frænkur að taka fullorðins- tennur voru oftar en ekki áijáðar í félagsskap þeirra, en stundum lok- uðu þau eðlilega að sér. Þá gátu góð ráð verið dýr. Eitt sinn reyndum við systurnar að fá þau til að opna með því að kalla að hann Stjáni væri kominn, hann væri með svart hár alveg eins og Jón og margar margar fullorðinstennur. Jón var nefnilega tvíburi og ekki alltaf auðvelt fyrir ung augu að þekkja þá bræður í sundur, hann og Kristján. Heilög var til dæmis hneykslun barnsins þegar það sá Jón einn daginn með annarri konu! Þeir bræður gerðu sér einatt mat úr þessum ruglingi og kipptu sér ekki upp við það þótt þeim væri heilsað með virktum af bláókunnug- um eða þótt einhver fyrtist yfir fáskiptni þeirra. Sögð er saga af því þegar Jón fékk svöðusár á hendi og fór upp á sjúkrahús til að láta gera að því. Þá hittist svo á að Nína kona Kristjáns lá á fæðingar- deildinni og einhvern tíma þegar læknirinn á leið um ganginn situr Kristján þar, sami æringinn og bróðirinn, og spyr hvort hann vilji líta á höndina núna. Jú, læknirinn skoðar höndina í krók og kring og hina líka, hverfur svo þegjandi og hljóðalaust á brott. Um stund hefur doksi líklega haldið sig vera krafta- verkamann, eða þangað til hann fer að segja söguna á vaktinni. Gellur þá í danskri hjúkrunarkonu sem þar var starfandi: Ja, men de er tvilling- er! Þótt Jón lifði mjög heilbrigðu lífi, reykti hvorki né drakk og stundaði útivist, átti hann til allrar óham- ingju eftir að hafa mun meira af læknum að segja. Árið 1985 kenndi hann sér fyrst þess meins sem hann átti eftir að glíma við til dauða- dags. Hann gekkst undir hjarta- aðgerð í Lundúnum í lok desember 1985, var svo fram á sumar að bíta úr nálinni með það hér heima, því eitt og annað kom upp á og varð þess valdandi að hann þurfti hvað eftir annað að leggjast undir hníf- inn. Hann missti þó aldrei móðinn, heldur beitti skopinu. Þegar textíl- konan í fjölskyldunni kom í heim- sókn vildi hann endilega sýna henni „bróderinguna" á bringunni. Að lokum tókst honum með góðra manna tilstyrk að ná heilsu og heija störf hjá Norðurtanganum á ný. En veikindin tóku sig upp á nýjan leik og aftur varð hann að gangast undir aðgerð árið 1991, þá á Land- spítalanum. Hún tókst vel og Jón náði sér vel á strik aftur. Kæmi bakslag í seglin tók hann því einatt af sinni eðlislægu geðprýði, þetta var æfíng, sagði hann stundum í því sambandi. Hann varð svo einn af fyrstu íslensku hjartasjúklingun- um til að fá nýtt tæki fyrir hjarta- sjúklinga ígrætt og var ánægður með það. Þrátt fyrir skert starfsþrek var Jón eftir sem áður jafn bóngóður og greiðvikinn. Hann var ævinlega að gera við og dytta að hlutum fyrir hina og þessa, alltaf reiðubú- inn til að gefa góð ráð um lausn vandamála. Hann var verkstjóri þegar gagngerar endurbætur voru gerðar á Hlíðarenda fyrir nokkrum árum. Og þegar dóttir mágkonu hans stóð ráðþrota gagnvart frá- rennslisvandamáli vegna tækis sem hún var að setja upp kom Jón til sögunnar. Málið var leyst og frá- gengið þegar hún kom heim daginn eftir og ekki haft um það. Þetta viðhorf Jóns gagnvart lífínu aflaði honum vinsælda meðal ungra sem aldinna. Þegar litlir frændur komu í sínar árlegu sumarheimsóknir að sunnan voru þeir til að mynda vart komnir inn úr dyrunum þegar þeir vildu fara í heimsókn til Jóns og Steinu. Þar var þeim veitt athygli í miðjum önnum dagsins, stundum í hádeginu, og meira að segja yngsti frændinn, tveggja ára, er farinn að rata í þrautahomið hans Jóns. Síðustu samverustundirnar átt- um við með Jóni þann 17. júní síð- astliðinn. Þá fór stórljölskyldan í heimsókn til ömmu á sjúkrahúsið, síðan var drukkið hátíðarkaffi á Hótel ísafirði. Þannig nutum við einatt hátíðarstunda með Jóni og erum þakklát fyrir það. Elsku Steina, Kristján, Björg og Einar Snorri, við samhryggjumst ykkur við þennan mikla missi og biðjum Guð að gefa ykkur styrk á erfiðum tímum. Fjölskyldan Hjallavegi 4. Hversu dýrmæt er ekki sorgin. Hvílík forréttindi að hafa átt sam- leið með þeim sem skilur eftir stórt skarð, svo sáran söknuð. Þau sann- indi renna upp fyrir mér þegar ég nú þarf að kveðja svila minn Jón Kr. Kristjánsson mörgum árum of fljótt. Á kveðjustundinni raðast saman minningar af svo ólíkum toga að það er eiginlega með ólíkindum að þær skuli passa í eina heilsteypta mynd. í skapgerð Jóns bjuggu prakkarinn og alvörumaðurinn svo náið að þeir urðu ekki skildir að. Það sem sameinaði þá var velviljinn sem virtist hafa bæði augu og eyru, og alltaf vita hvað heyrði til stund og stað eða þörfum hvers og eins. Jón var greiðvikinn á þann hátt að það var rétt eins og fyrirhöfn væri ekki til, hvað þá tímaleysi. Og hann var ekki aðeins bóngóður, heldur var hann oftar en ekki fyrri til að sjá hvers þurfti með í stóru sem smáu. Ég vissi t.d. ekki hversu handhægur gripur rúllupylsupressa er fyrr en hann hafði smíðað eina handa mér. Jón var vélstjóri og fær í sínu fagi, en áhugi hans og verksvit náðu langt út fyrir það. Hann hafði yndi af að leita lausna, bjó sjálfur til gestaþrautir, og einhverntíma heyrði ég hann ráðleggja hvernig ætti að munstra saman gardínur. — Þar að auki var hann bókamaður og kunni mikið af kveðskap. Samband Jóns og Kristjáns tví- burabróður hans var sérlega náið, enda voru þeir líkir í sjón og raun, og glettnin ævinlega á næsta leiti. Oft hefur fólk villst á þeim bræðr- unum og þeir voru þá ekki að eyði- leggja spaugið með því að segja of fljótt til sín. Gott dæmi er sagan af Iækninum sem hélt sig hafa séð kraftaverk þegar hann hafði saum- að saman svöðusár í lófa annars þeirra en sá ekki svo mikið sem ör (í lófa hins) daginn eftir. Jón kunni að gleðjast við allar aðstæður og studdist aldrei við áfengi til þess. Það var dæmigert fyrir sjálfstætt lífsviðhorf hans sem sjaldnast var rætt en sást glöggt í látlausri breytni. Hann var jafnlyndur maður og aldrei sá ég hann bregða út af sinni yfirveguðu ró. Það var þó ekki af því að lífið væri honum misfellu- laust. Fyrir jólin 1985 fór hann í hjartaaðgerð til Englands, og í kjöl- farið rak hver uppskurðurinn ann- an. Mestallan þann vetur var Jón á gjörgæsludeild og hjartadeild Borg- arspítalans, hann kom heim í ferm- ingu sonar síns um vorið. Aðeins fimm árum seinna þurfti hann aftur að fara í hjartaaðgerð, og síðar var græddur í hann hjartavörður. Þær aðstæður vörpuðu skíru ljósi á væntumþykjuna sem hann átti með- al fjölskyldu og stórs vinahóps, að ekki sé talað um hjónabandið sem á skilið fegurðarverðlaun. Aldrei voru erfiðleikarnir tíundaðir en hvert tilefni til gleði og kátínu var nýtt. Sérstaklega gerðu þau sér far um að rækta sambandið við fjöl- skyldu og vini og glæddu hversdag- inn lífí. Hver samverustund var skemmtun sem seint gleymist. Það er því sannarlega verðskuld- uð sorg sem við berum, öll sem til Jóns þekktum, - jafnt börn sem fullorðnir, og hlýjar fyrirbænir sem fylgja honum á leið í nýrri tilveru. Inga Dan. Kveðja frá samstarfs- mönnum í Hraðfrystihúsinu Norðurtanga hf. Það var flestum kunnugt, sem til þekktu, að Jón Kr. Kristjánsson gekk ekki heill til skógar seinustu árin, enda þótt honum tækist allvel að leyna því með sinni alkunnu glaðværð og gamansemi. Fáum mun þó hafa boðið í grun, að starfs- degi hans lyki með svo skyndilegum hætti, eins og raunin varð. En eigi má sköpum renna. Hann lézt í Fjórðungssjúkrahúsinu á Isafirði laugardaginn 2. júlí sl. á 52. aldurs- ári. Jón Kr. Kristjánsson var af vest- firzku bergi brotinn í báðar ættir, sonur hjónanna Sigríðar Ólafar Kjartansdóttur kennara og Krist- jáns Jónssonar skólastjóra í Hnífs- dal. Hann ólst upp í foreldrahúsum ásamt þremur eldri systkinum og tvíburabróður sínum, Kristjáni. Jón var ekki gamall, þegar í ljós kom, að honum var mikill hagleikur í blóð borinn. Fáum, sem til þekktu, mun hafa blandast hugur um, hvert hann sótti hagleik sinn, því að afí hans, Jón Jakobsson á Eyri í Seyðis- firði við Djúp, var á sínum tíma talinn mikill völundur, bæði á tré og járn, og leituðu Djúpmenn mjög til hans með allar viðgerðir. Það var fljótlega ljóst, hvert hug- ur Jóns stefndi. Að loknu skyldu- námi í Hnífsdal stundaði hann nám í Reykjanesskóla og lauk þaðan gagnfræðaprófí vorið 1960. Síðan lá leiðin til Reykjavíkur en þar lauk hann mótorvélstjóraprófí Fiskifé- lags íslands vorið 1963 og stundaði sjómennsku um skeið. En fljótlega hóf hann nám í vélvirkjun hjá Vél- smiðjunni Þór hf. á Isafirði. Þar starfaði hann til ársins 1973, en þá réðst hann til starfa hjá Hrað- frystihúsinu Norðurtanga hf. og þar var starfsvettvangur hans, þar til yfir lauk, fyrst sem vélgæzlumaður, en lengst af við viðgerðir og eftirlit með fískvinnsluvélum. Jón var einstaklega traustur og góður starfsmaður. Hann hafði ekki aðeins gott vald á starfi sínu, held- ur fylgdi honum einstaklega skemmtilegur starfsandi. Hann hafði ágæta kímnigáfu, sagði vel frá og sá hlutina gjarnan í öðru ljósi en samferðamenn hans. Það leiddist því engum í návist hans. Það tekur okkur, sem eftir stöndum, nokkurn tíma að átta okkur á, að lífsgöngu hans sé lokið og við fáum ekki leng- ur notið hins hressilega viðmóts hans. Starfsfélagar hans þakka honum ánægjuleg kynni, sem skilja eftir minningar, sem ekki munu gleymast. Þeir þakka langt og far- sælt samstarf og senda öllum að- standendum hans einlægar samúð- arkveðjur. Jón Páll Halldórsson. Elsku Nonni. Við ætlum að kveðja þig með nokkrum línum, en trúum samt tæplega að við munum aldrei sjá þig framar. Aldrei heyra þig fara með skondið vísukorn eða segja skemmtilega sögu. Við eigum samt alltaf minningarnar. Minning- ar um allt sem þið pabbi tókuð upp á, allar sögurnar af misskilningi tengdum því hve líkir þið voruð og hvernig þið lögðuð ykkur nú ekkert fram um að leiðrétta allan misskiln- ing strax. Við eigum minningar um fríin sem við fórum í öll saman, sumarbústaðaferðirnar þar sem við krakkarnir sváfum saman í hrúgu og vikuna þegar hver morgunn hófst með „halló Rúna“. Við eigum minningar um sterkan mann sem stóð af sér margra ára veikindi án þess að kvarta nokkurn tíma eða gefast upp. Við eigum minninguna um þig. Þú varst alltaf svolítið „meiri“ frændi okkar en hin móður- og föð- ursystkini okkar af því þú og pabbi voruð alltaf sem tveir hlutar af heild. Andlitsfall, bygging, hreyf- ingar, svipbrigði og jafnvel tilsvör voru svo ótrúlega lík. Það er því svo erfitt að hugsa til þess að nú er bara annar „krumminn“ eftir. Við þökkum þér, elsku Nonni, öll fríin, fjölskylduboðin og góðu stundirnar. Við þökkum þér fyrir að hafa alltaf verið til staðar fyrir okkur og fyrir allt sem þú hefur gefið okkur með návist þinni, gæsku og glaðværð. Elsku Steina, Björg og Kristján. Missir ykkar er meiri en orð fá Iýst. Þið eigið alla okkar samúð. Sigríður, Harpa, Gísli og Kristján, Kristjánsbörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.