Morgunblaðið - 12.07.1994, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 12.07.1994, Blaðsíða 8
8 C ÞRIÐJUDAGUR 12. JÚLÍ 1994 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. JÚLÍ 1994 C 9 ISLANDSMOTIÐ I KNATTSPYRNU ISLANDSMOTIÐ I KNATTSPYRNU URSLIT Breiðabl. - Stjarnan 1:2 Kópavogsvöllur, íslandsmótið, 1. deild karla — 9. umferð — mánudaginn 11. júlí 1994. Aðstæður: Andvari og þurrt að mestu. Blautur völlur. Mark Breiðabliks: Gunnlaugur Einarsson (24.). Mörk Stjörnunnar: Leifur Geir Hafsteins- son (70. og 75.). Gult spjald: Einar Páll Tómasson, Breiða- bliki (35. brot), Valur Valsson, Breiðabliki (78. mótmæli), Goran Micic, Stjömunni (63. brot), Valgeir Baldursson, Stjörnunni (80. brot), Sigurður Guðmundsson, Stjömunni (84. töf). Rautt spjald: Enginn. Áhorfendur: Trúlega um 300. Dómari: Eyjólfur Olafsson. Línuverðir: Ólafur Ragnarsson og Gísli Jóhannsson. Breiðablik: Guðmundur Hreiðarsson - Gú- staf Ómarsson, Einar Páll Tómasson, Hákon Sverrisson - Jón Stefánsson, Gunnlaugur Einarsson, Amar Grétarsson, Valur Vals- son, Kristófer Sigurgeirsson - Grétar Stein- dórsson (Sigutjón Kristjánsson 75.), Rast- islav Lazorik. Stjaman: Sigurður Guðmundsson - Birgir Sigfússon, Goran Micic, Lúðvík Jónasson - Hermann Arason, Heimir Erlingsson (Val- geir Baldursson 64.), Ragnar Gíslason, Baldur Bjamason, Ottó K. Ottósson - Leif- ur Geir Hafsteinsson, Bjami G. Sigurðsson. KR-Valur 0:0 KR-völlur: Aðstæður: Rigning lengi vel, örlítil gola, völlurinn góður en eðliiega nokkuð blautur. Gult spjald: Óskar Þorvaldsson KR (30. fyrir brot), Davíð Garðarsson Val, (40. fyr- ir brot), Einar Þór Daníelsson KR, (51. fyr- ir kjaftbrúk), James Bett KR, (84. fyrir brot), Kristinn Lárusson Val, (85. fyrir brot), Heimir Gucijónsson KR, (90. fyrir mótmæli). Rautt spjald: Enginn. Dómari: Ari Þórðarson, átti mjög slakan dag. Línuverðir: Gylfi Orrason og Ingólfur Hjaltason. Áhorfendur: 715 greiddu aðgangseyri. KR: Kristján Finnbogason - Þormóður Eg- ilsson, Óskar Hrafn Þorvaldsson, Sigurður B. Jónsson, Izudin Daði Dervic - Rúnar Kristinsson, James Bett, Heimir Guðjóns- son, Einar Þór Daníelsson (Tryggvi Guð- mundsson 79.) - Sigurður Eyjólfsson (Tóm- as Ingi Tómasson 79.), Salih Heimir Porca. Valur: Lárus Sigurðsson - Davíð Garðars- son (Bjarki Stefánsson 82.), Guðni Bergs- son, Kristján Halldórsson - Jón Grétar Jóns- son, Atli Helgason, Steinar Adolfsson, Ág- úst Gylfason, Hörður Már Magnússon - Eiður Smári Guðjohnsen. ÍBV-ÍA 0:2 Hásteinsvöllur í Vestmannaeyjum Aðstæður: Smá gola, eilítið blautur völlur. Mörk ÍA: Haraldur Ingólfsson (16.), Sigur- steinn Gfslason (66.) Gult spjald: Zoran Lubicic, ÍBV (1. brot), Dragan Manolojvic, ÍBV (21. brot), Nökkvi Sveinsson, ÍBV (82. fyrir ljótt orðbrag við Alexander Högnason), Ólafur Þórðarson, ÍA (77. mótmæli), Alexander Högnason, lA (82. fyrir ljótt orðbrag við Nökkva Sveins- son). Rautt spjald: Enginn. Dómari: Guðmundur Stefán Maríasson. Línuverðir: Pjetur Sigurðsson og Gunnar Gylfason. Áhorfendur: Um 700. ÍBV: Friðrik Friðriksson - Magnús Sigurðs- son, Dragan Manolojuvic, Jón Bragi Amars- son, Heimir Hallgrímsson - Þórir Ólafsson (Steingrímur Jóhannesson 67.), Zoran Ljubcic, Nökkvi Sveinsson, Bjamólfur Lár- usson (Friðrik Sæbjömsson 67.) - Hermann Hreiðarsson, Sumarliði Árnason. ÍA: Þórður Þórðarson - Sturlaugur Haralds- son, Zoran Miljkovic, Ólafur Adolfsson, Sig- ursteinn Gíslason - Kári Steinn Reynisson, Alexander Högnason, Ólafur Þórðarson, Haraldur Ingóifsson - Mihajlo Bibrcic, Bjarki Pétursson. ÍBK-Þór 2:1 Keflavíkurvöllur Aðstæður: Hægviðri, gekk á með rigning- ardembum í fyrri hálfleik og var völlurinn blautur og háll. Mörk ÍBK: Marko Tanasic (78. vsp.), Óli Þór Magnússon (86.). Mark Þórs: Bjami Sveinbjömss. (59. vsp.j. Gult spjald: Gestur Gylfason, iBK (21. brot), Júlíus Tryggvason, Þór (78. mót- mæli). Rautt spjald: Ólafur Pétursson, Þór, (79. fyrir að sparki knettinum í dómarann), Jó- hann B. Magnússon, ÍBK (89. brot). Ahorfendur: Um 500. Dómari: Egill Már Markússon, var ekki sannfærandi. Línuverðir: Gísli Guðmundsson og Kristinn Jakobsson. ÍBK: Ólafur Gottskálksson - Gestur Gylfa- son, Kristinn Guðbrandsson, Jóhann B. Magnússon, Karl Finnbogason - Gunnar Oddsson, Marko Tanasic, Ragnar Steinars- son, Ragnar Margeirsson, (Sverrir Þór Sverrisson 79.) - Kjartan Einarsson, Óli Þór Magnússon (Sigurður Björgvinsson 94.) Þór: Ólafur Pétursson - Arni Þór Amason, (Hlynur Byrgisson 71.), Láms Orri Sigurðs- son, Páll Gíslason, (Brynjar Davíðsson 79.), Birgir Þór Karlsson - Dragan Vitorovic, Þórir Áskelsson, Guðmundur Benediktsson, Júlíus Tryggvason - Ormarr Örlygsson, Bjami Sveinbjömsson. Fyrsti sigur Stjömunnar Var nærri búinn að gleyma sigur- tilfinningunni sagði þjálfari Stjörnunnar ÞAR kom að því að Stjörnumenn unnu leik í 1. deildinni. Garðbæingar brugðu sér yfir hálsin til Kópavogs í gærkvöldi og unnu þar sinn fyrsta leik i deildinni í sumar. Leifur Geir Hafsteinsson skoraði tvívegis fyrir Garðbæinga í 1:2 sigri Skúli Unnar Sveinsson skrifar þeirra. Stjaman hefur verið að leika ágæta knattspyrnu það sem af er sumri en í gærkvöldi var hrein hörmung að sjá til liðsins í fyrri hálfleik en mun skárra í þeim síðari. Hvað ætli Sigurlás Þor- leifsson þjálfari hafi sagt við strák- ana í leikhléi? „Tja, þú hefðir átt að hlusta á ræðuna drengur minn. Breiðabliksmenn hefðu gjarnan mátt heyra ræðuna líka því það var ekki glóra í því sem liðin voru að gera í fyrri hálfleik,“ sagði Sigurlás og af máli hans mátti skilja að þrumuræða hefði verið haldin í bún- ingsklefanum. Ræðan skilaði sér út á völlinn því allt annað var að sjá til liðsins í síðari hálfleik. Baráttan var í lagi og þar fór fyrirliðinn Ragnar fyrir sínum mönnum, piltur sem aldrei gefst upp. Með baráttu og mikilli vinnslu án bolta gáfu Stjörnumenn 1|/|Á 24. mínútu fengu ■ ^#Blikar aukaspyrnu skammt utan við vinstra víta- teigshornið. Tveir Blikar stóðu yfir knettinum og skyndilega og án þess að Stjörnumenn væru almennilega með á nótunum, tók Gunnlaugur Einarsson spyrn- una og sendi knöttinn glæsilega yfir varnarvegginn og efst í homið nær. 1a 4| Eftir að mark hafði ■ I legið í loftinu um nokkurt skeið fengu Stjömu- menn hornspyrnu á 70. mínútu. Ragnar Gísiason tók hana, sendi í átt að stönginni nær þar sem Leifur Geir Hafsteinsson stökk manna hæst og skallaði í netið. 4 «pi ■ márnmv Fimm mínútum síðar ivar Leifur Geir aft- ur á ferðmni. Hann vann boltann á miðjunni, lék inná miðjan vall- arhelming Blika og sendi út til vinstri á Bjama G. Sigurðsson. Hann gaf inn í vítateiginn aftur og Gústaf reyndi að hreinsa frá en knötturinn fór í samherja og datt fyrir fætur Leifs Geirs sem skoraði af öryggi. Gunnar Oddsson, ÍBK. Lárus Sigurðsson, Val. Hákon Sverrisson, Arnar Grétarsson og Valur Valsson, Breiðabliki. Ragnar Gisla- son, Goran Micic, Hermann Arason, Lúðvík Jónasson, Sljörnunni. Þórður Þórðarson, Sturlaugur Haraidsson, Kári Steinn Reynis- son, Ólafur Adolfsson, Alexander Högna- son, Haraldur Ingólfsson, ÍA. Dragan Manojlovic, Jón Bragi Amarsson, Zoran Ljubicic, Nokkvi Sveinsson, ÍBV. Ólafur Pétursson, Lárus Orri Sigurðsson, Dragan Vitorovic, Guðmundur Benediktsson, Orm- arr Örlygsson, Þór. Jóhar.n B. Magnússon, Kristinn Guðbrandsson, Karl Finnbogason, Óli Þór Magnússon, Sverrir Þór Sverrisson, ÍBK. Guðni Bergsson, Hörður Már Magnús- son, Ágúst Gylfason, Val. Kristján Finn- bogason, Óskar Þorvaldsson, Þormóður Egilsson, KR. Ikvöld 1. deild karla Kaplakriki: FH ■ Fram...20 ] nágrönnum sínum ekki frið til að leika knettinum sín á milli eins og í fyrri hálfleiknum. Mark lá í loftinu og meðal annars lenti boltinn tví- vegis í marksúlum Blika í sömu sókninni áður en Leifur Geir Haf- steinsson skoraði tvívegis. Fátt markvert gerðist í fyrri hálf- leik. Breiðabliksmenn voru þó hættulegri við markið og Gunnlaug- ur Einarsson skoraði eina markið fyrir hlé, en nokkur færi misfórust hjá Blikum. Blikar fengu mikinn tíma til að athafna sig og hefðu átt að nýta fleiri færi, en það tókst ekki að þessu sinni. Stjörnumenn léku ekki eins vel og þeir hafa gert í leikjunum hing- að til, en þeir sigruðu og það er spurt að því, en ekki hvernig knatt- spyrnu liðið lék. „Ég er rosalega ánægður með stigin þijú; ég var nærri búinn að gleyma hvernig til- finning þetta er,“ sagði Sigurlás þjálfari Stjörnunnar_ við Morgun- blaðið eftir leikinn. „Ég held að það 'sé ekki nokkur vafí að betra liðið sigraði í kvöld og ég var í rauninni rólegur allan síðari hálfleikinn því mark lá í loftinu allan tímann," sagði Sigurlás. Sigurdur skallar að marki iviorgunDiaoio/ övernr Sigurður R. Eyjólfsson leikmaður KR skallar hér að markl Vals í fyrri hálfleik, og Davíð Garðarsson er til varnar. Sigurður var í byrjunarliði KR í fyrsta skipti í sumar og lék í sókninni, en hann hefur þrisvar komið inná sem varamaður. KR-ingar enn án sigurs vestur í Frostaskjólinu KR-ingar gerðu enn eitt jafnteflið á heimavelli sinum í Frosta- skjólinu í gærkvöldi, þegar Valur kom í heimsókn. Leiknum lykt- aði með markalausu jafntefli, sem var það þriðja í röðinni hjá KR-ingum á heimavelli í sumar, en þar hafa þeir enn ekki náð að sigra nú þegar keppni í 1. deildinni er hálfnuð. Leikurinn var lengi vel hægur og bragðdaufur, og var það ekki eingöngu leik- mönnum að kenna; dómarinn Ari Þórðarson átti sinn þátt í þvf. Fyrri hálfleikurinn var einn sá daufasti sem boðið hefur verið upp á í sumar. Færin voru ákaflega fá, en flestum til mikillar furðu komu Eiríkfson tvösitt hvorummeg- skrifar In “ velhnum á 40. mínútu; sem mark- verðimir vörðu vel. Síðari hálfleikur var heldur fjör- ugri, liðin náðu að skapa sér færi, og þegar um tíu mínútur voru Iiðnar voru bæði lið búin að fá tvö ágæt færi. Á 57. mínútu skaut Einar Þór að marki Vals en Lárus varði og fjórum mínútum síðar átti Rúnar Kristinsson einniggott skot að marki sem endaði í lúkunum á Lárusi. Valsmenn náðu síðan öflugri sókn stuttu síðar, en Hörður Már náði ekki að reka tæmar í knöttinn eftir fyrirgjöf. Þannig gengu færin á víxl en besta færi hálfleiksins kom þegar rúmar tíu mínútur voru til leiksloka. James Bett fékk knöttinn í vítateign- um hægra megin, skaut föstu skoti sem Lárus varði meistaralega. Bett fékk knöttinn aftur en lyfti honum hárfínt yfír. Leikmenn héldu áfram að skapa sér færi það sem eftir lifði leiksins, en engin það vænleg að þau gæfu mörk. Leikurinn verður að telj- ast nokkuð jafn þegar á heildina er litið. Bæði lið áttu arfaslakan fyrri hálfleik, og góða spretti í þeim síð- ari. Sóknir Valsmanna voru reyndar helst til einhæfar, flestar upp miðj- una en kantarnir lítið notaðir. KR- ingar reyndu meira að fara upp kant- ana, en gekk ekki mjög vel að koma knettinum fyrir. Markverðir beggja liða stóðu sig vel, meira reyndi á Lárus Sigurðsson í marki Vals, sem var mjög öruggur. Guðni Bergsson skilaði hlutverki aftasta varnar- manns mjög vel, og Ágúst Gylfason vann vel á miðjunni. Valsmenn börð- ust vel og KR-ingar reyndu einnig að sýna baráttu, en einhverra hluta vegna virtust þeir ekki gefa sig af fullum krafti í leikinn. Ekki er hægt að skilja við þennan leik án þess að minnast á frammi- stöðu dómarans Ara Þórðarsonar. Þó svo að leikmenn hafi margir hverjir verið hægir og slakir sló hann öll met. í fyrsta lagi var hann seinn að dæma sem fór mjög í taug- arnar á leikmönnum og áhorfendum. í öðru lagi stöðvaði hann iðulega leikinn við brot, þrátt fyrir að liðið sem fékk aukaspyrnuna væri með boltann, og hægði þar með mikið á leiknum sem var hægur fyrir. í þriðja lagi var hann ekki samkvæmur sjálf- um sér, og gerði auk þess augljós mistök sem ekki eiga sjást til dóm- ara í 1. deild. Ef hann hefur ekki púst í heilan leik á hann að draga sig í hlé, annars þarf hann að taka sér tak, því frammistaða hans var ákaflega döpur. Þetta gefur tóninn - sagði Guðni Bergsson fyrirliði Vals Þetta var mun betra en síðast, við tókum okkur saman í andlitinu og gáfum okkur alla í leikinn. Við ætluðum okkur sigur en þetta varð jafntefli þeg- ar upp var staðið," sagði Guðni Bergsson fyrirliði Vals. „Þetta gefur tóninn fyrir það sem koma skal og við munum spila betur í síðari umferðinni en þeirri fyrri. Við gerum okkur greín fyrir að við þurfum að hafa fyrir hlutunum, stilla okkur saman og beijast. Það gerðum við núna og munum gera framvegis," sagði Guðni. Þess ber að geta að Guðjón Þórðarson þjálfari KR neitaði að tjá sig eftir leikinn og sagði að það sama gilti um alla leikmenn liðsins. Markahæstir 7 - Bjarni Sveinbjömsson, Þór. 6 - Mihajlo Bibercic, ÍA, Óli Þór Magnús- son, ÍBK. 5 - Helgi Sigurðsson Fram, 4 - Rikharður Daðason, Fram, Tómas Ingi Tómasson, KR, Leifur Geir Hafsteinsson, Stjörn- unni. 3 - Bjarki Pétursson, ÍA, Guðmundur Benediktsson, Þór, James Bett, KR, Jón Erling Ragnarsson, FH. Fj. leikja u j T Mörk Stig IA 9 6 2 1 16: 4 20 FH 8 5 2 1 7: 3 17 ÍBK 9 3 5 1 14: 8 14 KR 9 3 3 3 13: 7 12 ÞOR 9 2 4 3 15: 12 10 VALUR 9 2 3 4 8: 16 9 FRAM 8 1 5 2 13: 14 8 IBV 9 1 5 3 6: 10 8 STJARNAN 9 1 5 3 8: 13 8 UBK 9 2 2 5 9: 22 8 O: Bjjarni Sveinbjörnsson kom Þórsurum yfir með marki úr víta- spyrnu á 59. mínútu eftir að dæmt hafði verið brot á Gest Gylfason gegn Guðmundi Benediktssyni. Ólafur Gottskálksson mark- vörður ÍBK var nálægt að veija, en hélt ekki boltanum. 1:1 Marko Tanasic jafnaði metin fyrir Keflvíkinga úr vítaspyrnu á 78. mínútu sem dæmt var á Ormarr Órlygs- son fyrir brot á Marko sem tók vítið sjálfur og skoraði örugglega og átti Ólafur Péturs- son markvörður Þórs ekki möguleika á að veija. 2a 4|| Óli Þór Magnússon setti sigur- ■ I mark ÍBK á 86. mínútu eftir góðan undirbúning Sverris Þórs Sverrisson- ar sem áður hafði leikið vörn Þórs grátt og sendi að því loknu boltann fyrir markið til Óla Þórs sem var réttur maður á réttum stað. Tassotti fékkátta leikja bann m Italski landsliðsmaðurinn Mauro Tassotti var úrskurð- aður í átta leikja bann af aga- nefnd FIFA í gær, fyrir að nef- brjóta Spánvetjann Luis Enrique í leik Ítalíu og Spánar í átta liða úrslitum HM. Hann var auk þess sektaður um rúma eina milljón króna. Þetta er þyngsta refsing sem leikmaður á HM hefur þurft að sæta frá upphafí. FOLK ■ GUNNLAUGUR Einarsson gerði eina mark Breiðabliks í gær og var þetta fyrsta markið sem hann gerir fyrir félagið. ■ EFTIR hvern heimaleik Breiðabliks er valinn Bliki leiksins og fær viðkomandi meðal annars ókeypis klippingu hjá Villa Þór. Gárungarnir segja að það sjáist á liðinu hverjir hafi verið valdir því þeir koma allir burstaklipptir í næsta heimaleik. ■ GUÐNI Bergsson fyrirliði Vals var á léttu nótunum eftir leikinn gegn KR. Þegar hann var inntur eftir því hvernig stæði á því að leik- urinn hefði verið svona slakur í fyrri hálfleik, sagði hann að þetta væri oft svona þegar tvö sterk lið mættust, samanber leikur Hollands og Brasilíu í átta liða úrslitum HM, og glotti við tönn. ■ GUÐJÓN Þórðarson þjálfari KR tók framheijana Tómas Inga Tómasson og Tryggva Guð- mundsson út úr byijunarliðinu gegn Val. Þeir komu hins vegar báðir inn á þegar um 11 mínútur voru til leiksloka. M TÓMAS Ingi meiddist á baki þegar skammt var til leiksloka, fékk varnarmanninn Kristján Halldórs- son aftan í sig og féll við. Hann var borinn af leikvelli og síðan flutt- ur með börum inn í búningsklefa. Krislján sagði eftir leikinn að þarna hefði verið um brot að ræða, ekki þó ásetningsbrot, en dómarinn sá þó ekki tilefni til að flauta. Tóm- as slasaðist ekki alvarlega sam- kvæmt upplýsingum sem fengust úr herbúðum KR-inga. ■ KR-INGAR heimtuðu víta- spyrnu á síðustu sekúndum leiks- ins, að því er virtist vegna hendi. Valsmenn vildu ekkert kannast við það eftir leikinn, og KR-ingar neit- uðu að tjá sig við blaðamenn. Skagamenn aftur á sigurbrautina EYJAMENN töpuðu öðrum heimaleik sínum í röð, þegar þeir fengu íslands- og bikar- meistara ÍA í heimsókn f gær- kvöldi. Meistararnir fóru aftur á sigurbraut og unnu 2:0, en heimamenn höfðu alla mögu- leika á að gera betur. Leikurinn fór fremur rólega af stað, en þó sóttu leikmenn ÍA meira án þess að skapa sér veruleg færi, rejmdu mest langskot undan smá golu, sem fæst hittu mark Eyjamanna. Það var svo Haraldur Ingólfsson, sem kom Skagamönnum yfír á 16. mínútu með því að skjóta í varnarmann Eyjamanna og í stað þess að hafna beint í fangi Friðriks markmanns breytti boltinn um stefnu og hafnaði í netinu. Eftir þetta skipt- ust liðin á um að sækja í fyrri hálf- leiknum. Bjarnólfur Lárusson átti þrumuskot að marki ÍA, en boltinn fór í Ólaf Adolfsson og þaðan beint yfir og skömmu fyrir hlé munaði minnstu að Bjarki Pétursson kæmi Sigfús Gunnar Guömundsson skrifar frá Eyjum Om <4 Kári Steinn Reynis- ■ I son sendi boltann fyrir mark ÍBV á 16. mínútu. Þar var Haraldur Ingóifsson staddur á miðjum teig og skaut sakleysilegu skoti, að því er virt- ist, en boltinn lenti í varnar- manni ÍBV og fór í bláhomið. OB^^Á 66. mínútu mis- ■ áSatókst einum vamar- nianna iBV að hreinsa frá marki og Sigursteinn Gíslason fékk boltann í teignum og afgreiddi hann yfír Friðrik Friðriksson markvörð. LA í 2:0, en hann skailaði boltann undir slá heimamanna eftir fyrirgjöf Kára Steins Reynissonar. Eyjamenn komu frískir til síðari háifleiks og þegar fimm mínútur voru liðnar fengu þeir gullið tæki- færi til að jafna. Zoran Ljubicic sendi fallega inn á Þóri Ólafsson, sem var einn á vítateig, en hann skaut beint á Þórð í markinu og frábært færi fór forgörðum. Um miðjan hálfleikinn kom Sigursteinn Gíslason ÍA í 2:0 eftir mistök í vörn ÍBV. Þá brá Snorri Rútsson, þjálfari ÍBV, á það ráð að setja Steingrím Jóhannesson og Frið- rik Sæbjörnsson inn á. Þeir hleyptu nokkru lífi í leik heimamanna og fengu sitt færið hvor, en mörkin urðu ekki fleiri. „Betra liðið sigraði," sagði Snorri Rútsson, þjálfari ÍBV, við Morgun- blaðið. „Skagamenn höfðu viljann og það gerði útslagið. Við klúðruðum tveimur til þremur dauðafærum og það er ljóst að tuðran verður að fara inn eigi leikir að vinnast, en það hefur ekki gengið vel hjá okkur hing- að til.“ Hörður Helgason, þjálfari ÍA, var að vonum ánægður. „Það er gott að fara með þijú stig héðan, því þau eru alls ekki auðunnin. Ég var ánægður með margt í leik okkar. Okkur tókst oft vel að láta boltann ganga, en Eyjamenn fengu vissulega sín færi og við sluppum nokkrum sinnum með skrekkinn. Þeir gáfust aldrei upp og það er alltaf gaman að koma og spila héma — og ekki er verra að sigra.“ Morgunblaðið/Golli Mikið gekk á í Keflavík í gær og tveir leikmenn voru reknir af velli. Hér berjast Tanacic og Ormarr Örlygsson um knöttinn og Lárus Orri Sigurðsson er við öllu búinn. Tvö rauð í Keflavík HEiTT var íkolunum og allt á suðupunkti íKeflavík ígærkvöldi og vísaði dómarinn tveim leikmönnum af leikvelli þegar heima- menn sigruðu Þór frá Akureyri 2:1 í þó oft fjörugum og skemmti- legum ieik. Þetta var annar sigur Keflvíkinga í röð eftir að Pétur Pétursson tók við liðinu en þeir höfðu áður gert sér lítið fyrir og sigrað Skagamenn á Skaganum og eru nú í þriðja sæti. Leikurinn var tíðindalítill framan af. Heimamenn sóttu ívið meira í fyrri hálfleik og þá var Óli Þór Magnússon Bprn nokkrum sinnum Blöndal nálægt þvi að skora. skrifar frá En besta færið kom Keflavik þö { hiut Akur- eyringa, en þversláin bjargaði heimamönnum eftir hörkuskot frá Dragan Vitorovic. Til tíðinda dró svo fljótlega í síðari hálfleik þegar Þórsarar fengu dæmda vítaspyrnu og settu mark nokkuð gegn gangi leiksins. Markið virtist draga mátt- inn úr Keflvíkingum um tíma, en þeir náðu sér á strik aftur og eftir eina af mörgum sóknum þeirra var dæmd vítaspyrna á Þórsara eftir brot í vítateignum sem þeir skoruðu úr og jöfnuðu þar með leikinn. Norðanmenn voru ekki sáttir við vítaspyrnudóminn og í kjölfarið fékk Júlíus Tryggvason gult spjald fyrir mótmæli og síðan fékk Ólafur Pétursson markvöður það rauða þegar hann sparkaði boltanum í dómarann þegar hann spyrnti fram eftir vítaspyrnuna. Undir lok leiksins náðu Keflvík- ingar síðan að knýja fram sigur með fallegu marki sem Óli Þór setti eftir góða sókn og laglegan leik Sverris Þórs Sverrissonar sem skömmu áður hafði komið inná sem varamaður. Skömmu efir markið fékk Jóhann B. Magnússon annar miðvarða ÍBK að líta rauða spjaldið fyrir brot og það sem eftir lifði lögðu Þórsarar allt í sölurnar til að jafna en allt kom fyrir ekki. „Þetta var sætur sigur því Þórs- arar eru með sterkt og gott lið og ég er í sjöunda himni með þessá byijun hjá okkur,“ sagði Pétur Pét- ursson þjálfari ÍBK efir leikinn. Pétur sagðist hafa lagt áherslu á lijá sínum mönnum að hafa gaman af leiknum og það hefði gengið eft- ir. „Dómarinn eyðilagði leikinn fyr- ir okkur,“ annað hef ég ekki um hann að segja sagði Sigurður Lár- usson þjálfari norðanmanna eftir leikinn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.